Morgunblaðið - 29.12.1972, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.12.1972, Blaðsíða 3
MORGU'NBLAÐIÐ, FÖiSTUOAGUR 29. OESEMBER 1972 3 Jólagleði MR verður haldin i kvöld í KVÖL.D er hin áriega jóla- gleffi Mennta.skólans i Reykja vik í Laiigardalshöllinni og hefst hún kl. 10,30. Viff litum inn í Höllina í gær dag, en þar stóff yfir nndir- búningnr niikill og nm fimm tin nemendnr voru þar sam- ankomnir. Mikil jólastemnmg ríkti meðal nemendanna og sjá mátti á öllu, að skreytingum miðaði vel. Á vegigjum héngu fagrar og flennistórar mynd- ir eftir tvo nemendur skólans, þau Rebekku Sveinsdóttur og Guðmund Gislason, sem bæði eru í 5. bekk. Rebekka sagði okkur, að ætlunin hefði verið að hafa myndirnar í þjóð- sagnastil, en smám saman var horfið frá þeirri hugmynd og ákveðið hefði verið að binda þær ekki við neitt sérstakt. í mdðjum sailnum stóðu yfir bygigingaframkvæmdir kirkju og hotfs, sem skreytt voru með jólaljósum. í jóiagieðinefnd eiga sæti 1.1 nemendur og hafa þeir unnið að undirbúningd sl. viku. Að sögn formarms mefnd arinnar, Garðars Guðmunds- sonar, er mikið í jólagieðina iagt í ár, þar eð óvist væri, að jólagleði Menntaskólans yrði haldin aftur í Laugardalshöli inni. — Okkur fínnst mijög bagalegt að hugsa til þeiss, að fá ekki að halda jóiagieðina hér framar, þar eð þetta er eini staðurinn, sem til greina kemur. Likliega þunfum við - að- fá undir okkur stóra skemmu næst — sagði Garð- ar. Að þessu sinni verður dans að i tveimur söium, en nýr salur heíur verið opnaður uppi. Skreytingar þar hefur einn nemondi skóianis annazt, Sigrún Eldjárn. í aðalisalnum mun hljómsveitim Trúbrot sjá um undirleik dansins, en i efri sainum verður diskótek. Margt verður til skemmtunar, svo sem — grinútvarp — ræða kennara og inspectors, og ým is skemmtiatriði önnur. Allur undirbúmingur að jólagleðinni er sj álfboðavinna nemenda, en segja má, að nær ailt jólafriið þeirra nemenda, sem að honum standa fari í u.ndirbúning. Þau Rebekka, Garðar og Guðmundur sögðu það ómaksins vert að ieggja þetta erfiði á sig, þar eð þvi fyiigdi mikill spenningur og ógn væri gaman að sjá eitt- hvað gott eftir sig. Búizt er við 1800 manns í Höllina í kvöld. Garðar Guðnuinclsson, formaður jólagleðinefndar, Rebekka og Gnðmumliir fyrir framan eina mynd Rebekku. Alltir hópurinn saman kominn í Höliinni í gær. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.) Fallegar myndir prýddu veggi Laugar dalshallar. # KARNABÆR ■ I TOKUM UPP I DAG!!! □ S(ÐA KJÖLA OG SÍÐ PILS □ PRJÖNAKJÖLA- MIKIÐ ÚRVAL □ SAMKVÆMISPEYSUR □ FÖTMEÐVESTI □ SMEKKBUXUR □ UPPLITAÐA DENIMJAKKA OG BUXUR VIÐ EIGUM TIL: PILS - BLÚSSUR - VlÐAR BUXUR - SPÆL FLAUELSBUXUR - ÚRVAL AF SKYRTUM - BINDI o. m. fl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.