Morgunblaðið - 29.12.1972, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1972
félk í * -Z.* ra
fréttum 41 □
Elke Sonimer ásamt einum mót leikara sínum, sem er dúkka.
Þýzka þokkadísin Elke
Sommer leikur um þessar
mundir I hrollvekju einní, sem
verið er að taka í nágrenni
Madrid á Spáni. —- Djöfullinn
tekur dauðann með sér — er
heiti myndarinnar og ætti það
að gefa dágóða hugmynd um
efni og áhrif þeirrar kvikmynd
ar.
Eiginmaður Elke Sommer,
sem er bandarískur blaðamað-
ur, er ávallt hjá konu sinni,
hvar svo sem í heiminum hún
er stödd við upptöku mynda,
en hann notar tækifærið
og skrifar greinar frá þeim
stöðum, sem hann dvelst
á hverju sinni.
NÝK VINUR
Soraya prinsessa hefur nú
eignazt nýjan vin. Fyrir val-
inu að þessu sinni varð fransk
ur verzlunarmaður og fyrrver-
andi Ijósmyndari, Armand de
Roney. Nýlega hóf hann fram-
leiðslu á ilmvatni, sem hann
hafði framleitt sérstaklega
handa Sorayu skömmu áður.
Ilmvatn þetta selst nú mjög
vel í París.
Soraya skemmtir sér vel
í draumaborginni París ásamt
Armand og um daginn smellti
franskur ljósmyndari mynd af
þeim á þekktum veitingastað
Parísar.
☆
-X
HEIM A LFI», LOKSINS
Meðal þeirra 16, sem
komust af úr flugslysinu mikla
I Andesfjöllum, þann 13. októ
ber s.l. voru vinimir Roberto
Canessa og Fernando Parrada.
1 10 vikur þraukuðu þeir
ásamt öðrum farþegum og þeg-
ar hungrið tók að gerast óbæri
legt var lifað á mannakjöti.
Þegar allt virtist vonlaust
orðið, tókst þeim Roberto og
Femando að klöngrast niður
fjallið að litlu sveitaþorpi við
rætur fjallsins og skömmu síð-
ar var björgunarþyrla send á
vettvang.
Allir, sem lifðu slysið af,
hafa nú verið fluttir til byggða,
en flestir farþeganna voru frá
Uruguay og þaðan var flugvél
in einnig.
Myndin hér fyrir ofan var
tekin af þeim vinunum,
Roberto og Femando skömmu
eftir að þeir höfðu klöngrazt
niður E1 Maiten fjallið í Chile.
Með þeim eru tveir lögreglu-
þjónar.
Madge Madsen ásamt yngri s ystur sinni.
MEGEUN EÐA FANGELSI
— Rétturinn krefst þess, að
þér megrið yður um 35 kíló,
að öðrum kosti munið þér
*
Hjartaskurðlækninum fræga
frá Höfðaborg, Christian Barn
ard, líður nú sæmilega eftir bíl
slysið, sem hann lenti í fyrir
tæplega hálfum mánuði síðan.
Blaðamönnum var fyrir
stuttu leyft að hafa tal af
sjúklingnum á Groote Schuur
sjúkrahúsinu og þá var þessi
mynd tekin.
Lítið hefur heyrzt frá eigin-
konu Christians, sem einn-
ig liggur á sama sjúkrahúsi.
HÆTTA Á NÆSTA LEITI - Eftir John Saunders og: Alden McWiIliams
VOU INTERRUPTED THE
MOST IMPORTANT DAY Of
MV LIFE/TROV/I TRUST
vni i uAn finnn RPA«,m
I'LL LET X
VOU BE
THE JUDGE/
MR.LAKE/
ALONG WITH THE'OVERDRAWN
NOTICE",THE BANK SENT THIS
STACK OF CANCELLED CHECKS/
Þú truflaðir mikilvægasta dag lifs
mins, Troy. Ég vona ad þú hafir góða
áetæðu. Ég læt þig dæma um það, herra
Lake. (2. mynd )Með bréfi bankans var
þessi bunki af innstæðiilaiisum ávísun-
iim. (3. mynd) Þ*r eru stílaðar á fólk,
sem ég hef ekki einu sinni heyrt getið
um, en undirskrift þín er á þeim öllum.
lenda í svartholinu. Þér þekk-
ið reglurnar. Engar súkkulaði
bollur, engar kökur, ekkert
gott. Og mundu, að í svarthol-
inu muntu hvorki fá súkkulaði
eða sætindi.
Svohljóðandi dómur var
kveðinn upp yfir hinni akfeitu
Madge Madsen frá Manchester
í Englandi, sem sökuð var um
þjófnað úr ýmsum verzlunum í
Cheshire héraðinu, þar sem
hún býr.
Magde Madsen er ósköp sæt
stúlka, en alltof feit. Hún er
120 kíló og það háir
henni mjög svo andlega. Þyngd
hennar hefur valdið henni
mikilli óhamingju. Aldrei
tekst Madge að eignast kær-
asta. Grinið, sem aðrir gerðu
að henni varð flestum ungum
karlmönnum, sem hún kynntist
ofraun. Þess vegna leiðist
Madge afskaplega mikið. Svo
langt var Madge leidd I leið-
indum sínum, að hún tók að
stela smáhlutum úr verzlunum
sér til huggunar og dægrastytt
ingar. Hún stal að sjálfsögðu
aðallega sælgæti.
Madge var stefnt fyrir rétt
og sálfræðingur var fenginn
til aðstoðar við úrskurð dóms-
ins. Hann gaf þau fyrirmæli,
að Madge skyldi hljóta skil-
orðsbundinn dóm. Og nú hefur
Madge ákveðið að hætta öllu
hnupli og losa sig víð auka-
kílóin.