Morgunblaðið - 29.12.1972, Side 25

Morgunblaðið - 29.12.1972, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1972 25 Snorri Árnason lög fræðingur Selfossi Eiginkonan var alltaf að vekja hann á næturnar, vegna hávaða, sem hún heyrði niðri. Þegar hún vakti hann í fimmta skipti, sagði hann ön- — Þjófar hafa ekki hátt. 1 þeim heyrir maður aldrei. Eftoir þessar upplýsingar, vakti hún hann í hvert sinn, sem hún heyrði ekkert. Framh. af bls. 23 A. Anna María í Gagnfræða- skóla Selfoss. Frú Eva reyndist manni sin- um stoð og stytta í erilsömu starfi -— enda hlóðust á hann ýmis verkefni utan hinna eigin- legu embættisverka, sem voru ærin. Hann var kjörinn í hrepps- nefnd Selfosshrepps 1950 og átti þar sæti nær óslitið til 1970 (varamaður frá 1962 til seinni hluta árs 1963). Mest mæddi á honum á þeim vettvangi kjörtímabilin 1950— 58. Þá gegndi hann oft oddvita- störfum í forföllum Sigurðar Óla Ólafssönar, er hann sat á þingi. Eðliskostir Snorra Árnasonar komu vel fram i störfum hans í sveitarstjórn. Hann var fljótur að átta sig á kjarna hvers máls. Var fast- ur fyrir, ef um það var að tefla, sem honum þótti skipta megin- máli, sneiddi hins vegar hjá deil um um það sem minna máli skipti. Því naut hann óskoraðs trausts, jafnt i hópi andstæð- inga og samherja og var oft til- kvaddur af beggja hálfu, þegar mest á reyndi. Snorri var formaður skóla- nefndar Sandvikurskólahverfis frá 1950 þar til nú á miðju ári 1972, er hann baðst lausnar sak ir vanheilsu. Ég tel að þau störf hafi honum verið hugleiknust af óeigingjörnu starfi hans í þágu samfélagsins. Hann gerði sér snemma Ijóst, að þéttbýlið við Ölfusá átti miklu hlutverki að gegna á sviði skóla- og menningarmála héraðsins í heild. Spor hans á þeim vett- vangi eru ótalin og verk hans seint fullþökkuð. Af öðrum störfum Snorra Árnasonar get ég þessara. Hann var prófdómari við Mið skólann síðar Gagnfræðaskól- ann á Selfossi einkum í ensku og stærðfræði frá 1950. Hann var formaður stjórnar Héraðsbókasafns Árnessýslu 1956—70. Formaður stjórnar Byggingasamvinnufélags Sel- foss frá stofnun þess. Formaður Norræna félagsins á Selfossi frá 1956. Seinasta áratuginn rak Snorri lögfræðiskrifstofu á Selfossi og mun nú margur sakna vinar í stað áf þeim vettvangi, sem gott var til að leita — ekki sízt, ef í nauðir rak. Prúðmennsku Snorra Áma- sonar var viðbrugðið. Að dag- fari var hann hlédrægur og dul ur en hverjum, sem af honum hafði kynni duldist ekki, að hann var drengskaparmaður. Æðruorð voru honum lítt að skapi — enda naut hann þess í þungbærum veikindum seinustu mánuði. Sjálfur mat hann mest að eiga hamingjuríkt heimili þar sem hann naut umhyggju og skilnings. Þar er nú sár harmur að kveð inn. Um leið og ég þakka marg háttað samstarf við Snorra Árnason og störf hans öll í þágu Selfosshrepps votta ég og fjölskylda mín eiginkonu hans og öðrum ástvinum dýpstu sam úð. Óli Þ. Guðbjartsson. SNORRI ÁRNASON, lögfræðing- ur á Selifossi, er nú allur, aðeins 51 árs að aldri. Langvimmur sjúk- dómur lagði hann að velli. Um störf Snorra Árnasonar, ættir og uppruna mun getið á öðrum stað hér í blaðinu. Forlögin ráða þvi, að við jóla- ljósin tregum við og sökmum okkar gamla skólabróður. Ég átti þvi láni að fagma að sitja lagadeild Háskólams á sama tima og Snorri Ámason. Við lásum saman meirihluta þess tíma, ýmist hér í Reykja- viik, austur á Seyðisfirði eða í seli Menntaskólans í Reykjavík. Frá þessum tíma geymast góðar minningar frá námi og skemmt- an. Snorri Ámason var vel gerður og vel á sig kominn bæði and- lega og líkamlega. Hann var gáfaður og góður námsmaður ef hann beitti sér. Hann var ljúfur og varfærinn til orðs og æðis, hlédrægur nokkuð og vart get ég hugsað mér hann leggja stein í götu nokkuns manns sjálfum sér til frama. Minningar gamalla skóladaga koma í hugann og skólafélagar Snorra Árnasonar eiga þar stór- an sjóð góðra kynna og gleði- stuinda. Snorri var vimun sínum mjög kær sakir hógværðar og ljúfmennsku. Hann var fróður og ræðinn, dómgreind skýr og örugg að ógleymdri skemmtilega næmri tilfinningu fyrir því sem broslegt kann að vera. Það sem nú hefir sagt verið og margt fleira gerði Snorra Áma- son að „persona grata“ hjá þeim er honum voru handgengnir. Að námi loknu hóf Snorri störf hjá sýslumanni Árnessýslu á Selfossi. Þar reisti hann bú sitt. Hann kvæntist Evu Þorfinns- dóttur árið 1947 og varð þeimjsex bama auðið. Ævistarf sitt vann þessi mæti Austfirðingur á hkiu mikla undirlendi Suðurlands við góðan orðstir, þótt ég reki það ekki hér. Þessum fátæklegu orðum fylgja kveðjur samúðar og sakn- aðnr til frú Evu, barna þeirra, barnabarna og allrar fjölskyldu og ástvina. Mér kemur margt í huga er ég nú kveð þennan gamla vin minn, en þó öðru fremur hinir sól- björtu dagar á Seyðisfirði sum- arið 1945. ugur: Mundu nú að þú máttekki öskra, þá er voðiiin vís. ÍMá X%+ 92JT/56.4 R t x jj > 3,92-2+ - 9 rlx. S7.4 + K + .’VéTz. * = % 1 zá + Z k2 + 245e> 7 v * -% t- % (K ?■*) þ1 f 3 MlX'20. 22 2 -•> /Or- W X = Z'z «lJX3l4M>2 4- ■'jVí1 f* = '4 +'f x _'V|.4 . X .12.0001 [%. (P)%x 5(z)+ 4> 655 00,2 - ím4 7yT= % + /9+^ \þ o\\ A 'V' 9 4.3 fyí) "T-l _ TZv 1122 IVIan einhver ykkar, hvað við ætlnðnm að sanna. , stjörnu JEANE DIXON SPa Hrúturinn, 21. marz — 19- apríl. ltéttur tími til að gera breytingrar og algerar umba-tur. Nautið, 20. apríl — 20. maí. tað er émaksins vert að endurskoða varasjóði sina, og skipu- legKja vel fram á næsta ár. Tvíburarnir, 21. maí — 20. júni Mótleikarinn vill tá athyíili þína óskipta, os vill maret 4 sig legftja til að komast að betra samkomulagri við þig. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. I?að að slejipa einhverju úr skipulaKinu setur bjargað málinu. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Fólk er að starfa miklu meira en þú ætlaðir því, sumum gengrur vel, öðrum ekki. Maerin, 23. ágúst — 22. september. Heimilið er bezti staðurinn til að ná fram einliverri vinnu að ráði. Vogin, 23. september — 22. október. Þú ert svo eirðarlaus, að bezt er fyrir þig að bregða þér út fyrir. Sporðdrekinn, 23. októlter — 21. nóvember. I-ú gretur náð töluverðum árangri I skipulaenineu i dag. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. I>ú ert hérumbil upp á þitt allra bezta, og því hefurðu alveg rítð á að slá dálítið um þiff. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. I»ú finmir eitthvað, sem hefur verið á flækiug:I og kemst að því, hvað gerzt hefur meðan þú leizt undan. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Rétt er að fefa vinum þínum tækifæri á að sogja hug sinn, þar sem bjarfiráð þin henta þér betur en þeim. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. l»ér finnst, að allir séu að heimta allt af þér, og: það er rétt. I»ú tekur þá eftir því, sem þeir eifi:a skilið. Vilhjálmur Árnason. Finndu réttu setninguna . Lausn: A-7, B-5, C-1, D-6, E-2, F-8, G-4, H-3. Málaskóli 2-69-08 ★ Danska, enska, þýzka, franska, spænska, ítalska og íslenzka fyrir útlendinga. ★ Kvöldnámskeið. ★ Síðdegistímar. ★ Sérstakir barnaflokkar. ★ Innritun daglega. ★ Kennsla hefst 15. janúar. ★ Skólinn er til húsa í Miðstræti 7. ★ Miðstræti er miðsvæðis. 2-69-08 Halldórs uímme) SKIPHOLL Áramófafagnaður á vegum karlakórsins Þrestir. Miðasala 29. desember kl. 17—19. HllBIHIjHDllljlBjlLDHMllUllH Gamlársgleði NÁTTÚRA á gamlárskvöld klukkan 11-4.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.