Morgunblaðið - 31.01.1973, Page 14

Morgunblaðið - 31.01.1973, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1973 Aðsetur bæjarfógeta 1 Eyjum til Reykjavíkur í GÆR var frumvarp til laga um bráðabirgðabreytingu á dómsmálastjórn Vestmanna- eyja o.fl. samÞykkt sem lög frá Alþingi. Dómsmálaráð- herra mælti fyrir frumvarp- inu og voru veitt afbrigði frá þingsköpum og frumvarpið afgreitt frá báðum deildum samdægurs. Lögin kveða á um, að að- setur bæjarfógetans í Vest- mannaeyjum er flutt um sinin til Reykjavíkur. Þá segir að aðála, sem varnarþing eigi í Vest- mannaeyjum, megi sækja fyrir dómi á aðsetursstað embættis bsejarfógetans í Vestmannaeyj- um í Reykjavik. Ennfremur skal bæjarfógetinn svo gilt sé, af- segja vixla með greiðslustað í Vestmannaeyjum að aðsetri bæj- arfógetans í Reykjavik. í 3. grein laganna segir: Nú fellur krafa eða önnur fjárskuld- binding með greiðslustað i Vest- mannaeyjum, eða krafa á hend- ur aðila með vamarþing í Vest- mannaeyjum í gjalddaga á tima- bilinu frá 23. janúar 1973 til 22. febrúar 1973, og er þá gjald- daga þeirrar skuldbindingar frestað til 23. febrúar 1973. 1 6. grein segir, að dómsmála- ráðherra ákveði með auglýsingu, hvenær sá háttur mála, sem um er rætt í 1. og 2. grein, falli nið- ur. Ólafur Jóhannesson dómsmála- ráðherra, sagðist ekki þurfa að hafa mörg orð um þetta frum- varp. Margvísleg röskun hefði orðið á högum manna vegna at- burðanna í Vestmannaeyjum. Nauðsynlegt væri að gera bráða- birgðaskipun varðandi staðsetn- ingu bæjarfógetaembættisins í Vestmaninaeyjum. Og af sömu ástæðum væri nauðsynlegt að fresta réttaráhrifum ýmissa skuldbindinga. Hins vegar yrði enn um sinn staðsettur fulltrúi frá bæjarfógetaembættinu i Vest- mannaeyjum þar í kaupstaðnum og myndi hann hafa með hönd- um stjórn lögreglumála og ann- að þess háttar. Nauðsynlegt væri að koma þessari skipun mála í löglegt form sem fyrst, og því væri vonazt til að þetta frumvarp yrði að lögum þá um daginn. Kveðjur frá þing- mönnum Norðurlanda I UPPHAFI fundar í Sameinuðu þingi las varaforseti þess, Gunn- ar Thoroddsen upp bréf, sem Al- þingi hafði borizt frá dönskum, finnskum, sænskum og norskum þingmönnum, sem nú sækja ráð- stefnur í Helsingfors. Bréfið fer hér á eftir: Danskir, finnsikir, norskir og sænskir þingmenn, komnir sam- an í Helsingfors í sambandi við ráðstefnu Alþjóðaþingmanna- sambandsins um samstarfs- og öryggismál Evrópu, vilja láta i ljós samúð sina með hinum mörgu Islendingum, sem hafa orðið fyri-r þungu áfalli vegna Gylfi I3- Gíslason: íslendiugar mega vera stolt- ir af Vestmannaeyingum Réttaráhrifum vegna vanefnda á fjárskuldbindingum með efnda stað i Vestmannaeyjum eða fjár- skuldbindingum aðila með varn- arþing í Vestmíininaeyjum, sem fallið hafa í gjalddaga fyrir 23. janúar 1973, er frestað til 22. febrúar 1973. 4. grein fjallar um réttaráhrif tilkynningar og 5. grein um vexti af skuldum, sem greiðslu er frestað á, en þeir skulu vera hin- ir sömu og krafan bar. VEGNA plássleysis I blaðinu í | gær, var ekki hægt að birta alla frásögnina um umræður, sem 1 urðu vegna þingsályktunartil- j lögu forsætisráðherra um neyð- arráðstafanir vegna eldgoss í Heimaey. Niðurlag þeirrar frá- sagnar fer hér á eftir. j Gylfi Þ. Gíslason sagði: Fyrstu orð mín skulu vera þau, að láta 1 í ljós djúpa samúð í garð Vest-j mannaeyinga, sem orðið hafa fyrir hörmulegustu áföllum, sem \ yfir is-lenzika þjóð hafa duniðj öldum saman. Jafnframt læt ég í ljós aðdáunj á því æðruieysi, þeim kjarki, | i sem Vestmannaeyingar hafa j sýnt í ótrúiegum erfiðleikum. ís- j lendingar mega vera stoltir af, að á roeðal þeirra skuli vera svo staðfast og sterfct fólk sem Vest- mannaeyi'ngar hafa reynzt í þessari raun. Það vekur ekki að- eins von um, það veldur vissu um, að það böl, sem nú verður að bera, verður bætt og að aftur bló.mgist byggð í hinum fögru Eyjum, sem verið hafa prýði ís- lands. Það er skoðun Alþýðu- flokksins, að sá vandi, sem að hefur borið, sé vandi íslendinga allra. Einhuga þjóð á að takast á við hann. Með því móti og með því móti einu, mun verða sigrazt á honum. Ég vona af alhug, að gæfa íslendinga verði slík, að það megi takast. Þingflokkur Alþýðuflo'kksins hefur rætt þá tillögu til þings- ályktunar, sem forsætisráðherra hefur mælt fyrir. Þingflokkur- inn samþykkti einróma að greiða ti'ilögunni atkvæði. Lúðvík Jósepsson kvaðst fyrir hönd þingflokks Alþýðubanda- lagsins vilja votta Vestmanna- eyingum samúð í þeim erfiðleik- um sem þeir stæðu nú fram.mi fyrir og taka undir orð annarra í því sambandi. Lúðvík sagði, að Vestmannaeyjar hefðu verið líf- höfn hins stóra bátaflota oig hefði hann byggt sína útgerð á stöðu eyjanna og því ljóst, að marg- vístegar ráðstafanir þyrfti að gera til að tryggja rekstur þess- arar útgerðar. Lúðvík sagði, að fyrst ekki hefði náðst samkomu- lag um fjáröflunarfrumvarp rík- isstjórnarinnar vegna þessara atburða, hefði þótt rétrt að láta Alþingi kjósa nefnd, til að gera tillögur um ráðstafanir og ná þannig samstöðu allra þin.g- flokka. Kvaðst hann vona að samkomulag næðist um fjárhags vandamálin, sem væru lang- stærsta málið, sem nú væri við að etja. Hannibal Valdimarsson sagð- ist vera djúpt hrærður yfir þeim miklu áföllum og þeim búsifj- um, sem Vestmannaeyingar hefðu orðið fyrir vegna eldgoissins í Heimaey. Þetta væri einstakur atburður í íslandssögunni, því að aldrei fyrr hefði eldgos átt sér stað í slíkri nánd við fjöl- merena kaupstaðarbyggð. Hannibal sagði, að einkum hefðu húsnæðisvandræði snúið að sér og sínu ráðuneyti. Hefði verið mögulegt að útvega strax húsnæði fyrir 1000 manns til bráðabirgða, en móittökur Reyk- víkinga hefðu verið slíkar, að ekkert þurfti að gera í þeim efnum fyrstu sólarhringana. Náttúrlega væri ljósrt, að bráða birgðahúsinæði dygði aðeins í nokkrar vikur, og því þyrfti að fara að hugsa fyrir framtíðar- lausn á þeim málum. Þá sagði ráðherrann, að við sér blasti að kanna hvaða hafnir gætu veitt Vestmannaeyjaflotanum þjón- Framhald á bls. 20. eldgossins í Vestmannaeyjum. Við vonum af heilucm hug, að náttúruhamfarirnar verði ekki viðtækari en orðið er og að af- leiðingum þeirra fyrir íbúa Vest- manreaeyja og efnahag lands- manna geti þrátt fyrir allit orðið takmörk sett. Við munum reyna að vinna að því hjá ríkisstjórnum landa okkar, að íslendingum verði veitt sú aðstoð, sem þörf reynist á, til að byggja upp aftur og bæta fjárhagslegt tjón. Fyrir hönd sendinefndanna, Alsing Andersen (Danmörku), Johannes Virolainen (Finnlandi), Knut Frödenlund (Noregi), Kaj Björk (Sviþjóð). SVARSKEYTI EYSTEINS JÓNSSONAR, FORSETA SAMEINAÐS ÞINGS Þakka inmilega samúðarskeyti yðar vegnia náttúruhamfararena i Vestmaninaeyjum og fyrirheit um að virtna að stuðmingi við uppbyggimgu og lausm efmahags- vandans. Það er okkur ölluim hér ómet- anlegur styrkur og uppörvun að vita um útrétta hjálparhönd þingmanma og annarra á Norð- uriöndum og mun sá stuðning- ur með þökkum þeginn, sem í té verður látinn. Þingmanna- nefnd kjörin EFTIR að þimgsályktumarti'llaga frá forsætisráðherra um neyðar- ráðstafanir vegna eldgossiins í Heimaey, hafði verið samþykkt í Sameinuðu þingi var kjörin sú þingmannanefnd, sem þingsálykt unartillagan kveður á um. Aðeins eiren Ms'ti barst og voru því nefndarmennimir sjö sjálf- kjömir. 1 nefndinni eiga sæti: Eysteinn Jónsson, Halldór E. Sigurðssom, Lúðvík Jósepsson, Hannibal Valdimarsson, Jóhann Háfstein, Ingólfur Jónsson og Gylfí Þ. Gíslason. Á ég að gæta bróður míns? Enginn bölvaldur hefur orðið til jafn mikils skaða þjóðlifi okkar, hin s'ðustu ár sem of- neyzla sterkra drykkja. Ekkert hefur eyðilagt jafnmörg heimili, hrakið eins margar eiginkonur út á yztu þröm örbirgðar og ör- væntingar, svipt eins mörg böm forsjá föðurverndar og heimilisöryggis. Allt þetta er flestum Islendingum næsta kunnugt. En þó er það ekki fyrr en við komum í nána snertingu við þetta hræðilega böl, sem við sjáum hve voðinn er geig- vænlegur. Síðastliðið ár hafa allmargir drykkjumenn bjargazt frá þess- um bölvaldi fyrir vakningar- starf Filadelfiusafnaðarins í Reykjavík, ekki sízt á tjaldsam- komum safnaðarins síðastliðið sumar. Ungir menn, frá góðum heimilum, og af góðu fólki komn ir, er beðið höfðu tjón á þess- um vettvangi um árabil, hafa fengið örugga fótfestu og eigre- azt ný markmið, við þá ger- breytingu, sem persónuleg trú- arreynsla gefur hverjum og ein um. Það gerist þegar mannssál- in mætir Jesú Kristi sem frels- ara sínum. Reynsla allmargra slikra manna hinn síðasta tíma, varpar nýju og björtu ljósi yfir orð Ritningarinnar: „Ef þannig einhver er í samfélagi við Krist, er hann ný skepna, hið gamla varð að engu, sjá allt er orðið nýtt.“ (2. Kor. 5.17). Við nána kynningu margra manna, sem eiga þennan bak- [ grunn, sem að ofan er lýst, og ! hafa eignazt gerbreytingu aft- j urhvarfsins, skapast kynning og tengsl við ótölulega marga aðra, sem ekki hafa náð til lands, en fáir vissu um fyrr en örlög þeirra komu upp úr djúpinu við kynni okkar við þá, er bjarg- azt hafa og eru orðnir sem ný- liðar í starfinu. Það var eins og söfnuðurinn væri allrt í einu orð inn eyja með marga brúar- sporða út i hyldýpi mannlegrar eymdar. Og brúarsporðarnir voru þeir ungu menn, sem höfðu fengið fótfestu fyrir aftur hvarf til liifandi trúar. Allir vissu þeir um ótölulega marga aðra, sem vel'ktust um í sama brimlöðri, er þeir sjálfir höfðu bjargazt úr. Með örvandi orð um báru þeir ljósið til þeirra, báðu þá að koma og heyra það orð, sem gæti leyst þá og bjarg- að þeim. Þar með kom ný ábyrgð og nýjar skyldur eins og ! þung bylgja yfir söfnuðinn. Þótt þetta nýja álag mæddi á mörgum, mæddi það þó lang mest á forstöðumannínum. Hér væri þó á sínum stað, að nefna ákveðin heimili, sem áttu vanda menn, sem bjargazt höfðu, mæð ur, sem sáu syni sína verða allt í einu að nýjum mönnum, eftir glatað líf í ofdrykkju, en rúms ins vegna er það ekki hægt. Ávöxtur af freisi sonanna var , stundum sá, að mæðurnar tóku á móti Kristi sem frelsara sín- um, og gerðu svo heimili sín að nokkurs konar björgunarstöð, fyrrverandi félaga sona sinna. Sum dæmi um þetta eru geisl- andi fögur. Einar J. Gíslason ræddi stund um þetta vandamál, sem orðið var allt í einu til á meðal okk- ar, innan safnaðarstjórnarinnar. Margt Jíom til álita. Seinast, þeg ar þetta var rætt meðal margra bræðra, ’oar forstöðumaður fram ákveðna tiliögu í málinu. Að þessi tillaga kom svo fljótt fram, má ef tii vill rekja til þess að honum bauð í grun, að safnaðarstjórn.n væri með nokkurn undirbúning að fimm- tíu ára afmæli hans. Hann vék þeirri spurningu að okkur, hvort hann mætti ekki lyfta þessum afmæl'sdegi sínum upp á hærra sv:ð en það að hann snerisí aðeins um hann sjálfan. Svo kom spurningin: Hvernig munduð þið taka þeirri ósk minni, að allir, sem hugsuðu sér að senda mér skeyti, blóm eða smá glaðnine, vildu verja þeim peningum í beint fram-lag til stofnunar sjóðí er ckapað gæti aðstöðu til hjálpar drykkju- mönnum til betra og bjartara lífs? Þetta tók bergmál í brjóst um allra fundarmanna. Þetta var samþykkt og fært inn í geiðabók fundarins. Jafnframt var þess óskað, að forstöðumað ur leyfði, að vel undirbúin sam- koma yrði haldin í Fíladelfiu næsta sunnudag eftir réttan af mælisdag hans, er fellur á virkan dag, sem yrði sunnudag- urinn 4. febrúar. Lögð var áherzia á að þetta yrði auglýst innan safnaðarins og fórn færi i fram á samkomunni til styrktar j nefndum sjóði. Geta má þess að eftir að þetta kom í tal manna á milli hafa j hjón, sem heyrðu um þetta rætt, ■ sent þessum væntanlega sjóði ávísun upp á kr. 100.000. Þetta í verður þá ailra fyrsta gjöfin til j þessa málefnis. Nú segir lesand j ínn ef til vill, þetta hafa verið milljónamæringar, sem gefa svona. Þvert á mórti. Maðurinn hefur verið óvinnufær um ára- bil og kona hans miður sdn, eft- ir að hafa fengið slærna krans æðastíflu. En það sýnir annað, að þegar hjartað slær fyrir ein hverju málefni, þá er sú fóm lögð fram, er annars yrði ekki ■ gefin. j Búast má við, að einhverjir spyrji sem svo, hvernig þetta sé hugsað í framkvæmd. Þvi er til að svara, að framkvæmdin hef ur verið hugsuð en ekki full mót uð. En benda má á, að hvita- sunnumenn í Sviþjóð, og þá fyrst og fremst fyrir brautar- gengi Levi Pethrus, hafa byggt upp þvíLikar björgunarstöðvar fyrir drykkjumenn, að vakið hefur alþjóðar athygl'i þar i landi, og um öll Norðurlönd. Op inberar skýrslw sýna, að af þeim fjölda drykkjumanna, sem þangað koma, verða 95 af hverj um hundrað, nýir og nýtir meren. Þetta er slíkur stærðar- munur, við árangur af stöðvum sem ríkið starfrækir með ærn- um kostnaði, að yfirvöld hafa spurt um ástæðuna fyrir því. Svarið liggur ljóst fyrir. Þarna er fyrst og frernst lögð áherzla á að boða þessum sundurflak- andi mannsl'ífum náðarboðskap- inn í Jesú Kristi og skím i Heilögum anda. Þegar kraft-ur Heilags anda fyllir og yfir- skyggir hjarta þess manns, sem fengið hefur fyrirgefning synda sinna fyrir blóð Jesú Krists, verður maðurinn ný sköpun og betur hertygjaður til þess að mæta hverju sem upp á kemur. Á björgunarstöðvum þessum hafa þeir og iðnrekstur, sem dvalargestir fá und’ir eins vinnu við, í lengri eða skemimri tíma, eftir eigin vali. Björgunar stöð, eitthvað í þessu formi vak- ir fyrir Fíladelfíusöfreuðinum, helzt i sveit, við góð skiilyrði og hæfilega langt frá Reykjavík. j Mætumst svo heil til guðs- : þjónustunnar í Fíladelfíu, I sunnudaginn 4. febrúar kl. 8 með fórn okkar til styrktar i þeim sjóði, er hornsteinninn hef j ur þegar verið lagður að, með j gjöf áðumefndra hjóna, og ætl- að er að hrinda því venki í fram- i kvaamd, er gæti orðið tæki í hendi Guðs til að binda um sár margra hjartna, sem blæða í ■ dag. Ef við lyfbum merkireu vel í byrjun, styttir það leiðina mjög að framkvæimd málsins. I Á.E.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.