Morgunblaðið - 02.03.1973, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.03.1973, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1973 3 Loftleiðir: Tvær BOEING 747 í notkun vorið 1974? NC IÍHI K óðum að þvi, að Loftleiðir verði að taka ákvörð- un um kaupin, ef félagið ætlar að taka risaþotuna Boeing 747 í notkun vorið 1974. Við þá hug- mynd hefur verið gælt alllengi og hafa fulltrúar Boeing-verk- smiðjanna verið tíðir gestir í Keykjavik upp á síðkastið. Vegna viðræðna flugfélaganna um sameiningu hefur flestum minniháttar ákvörðunum verið skotið á frest, en vart hægt að gera það t.il lengdar. Fréttamaður Mbl. hitti um helgina þá Charles Weaver frá Boeing og Jóhannes Einarsson, verkfræðing og deildarstjóra hjá Loftleiðum, en sá fyrrnefndi hélt þá heimleiðis og lauk fjórt- ándu íslandsferðinni, sem hann hefur farið í erindum Boeing á síðustu 12 mánuðum. „Við höfum að undanförnu gert víðtæka athugun á fram- tiðarflugvélakosti fyrir Loftleið- ir,“ sagði Jóhannes „og að sjáif- sögðu hefur athyglin eingöngu beinzt að hinum búkvíðu þotum sem komnar eru á markaðinn. Loftleiðir eru eina fdugfélagið af tuttugu í Atlantshafsflugi, sem ekki hefur annað hvort tekið búk viðar þotur í notkun eða gert pantanir á slikum vélum.“ „Enginn vafi leikur á þvi að Boeing er lang hagikvæmasta þotan sem nú er völ á fyrir flug leið okkar milli New York, Is- lands og Luxemborgar. Það er líka ljóst, að þessi þota Iiefur mjög mikið aðdráttarafl á far- þegamarkaði. En þetta er ekki nóg, því hér er um að ræða þvi- likt stórræði fyrir Loftleiðir, að annað eins hefur ekki gerzt í íslenzku athafna'lífi. Enn sem komið er hefur félagið ekki skuldbundið sig á neinn hátt, hvorki formlega né óformlega. Okkur er þó ljóst, að við yrðum að láta til skarar skríða mjög bráðlega, ef við ætlum að táka Boeing 747 í notkun að ári — og þvi er ekki að leyna, að okk- Kosta 6000 milljónir ur hefur fundizt freistandi að miða við vorið 1974 í þessu sam- bandi.“ „Loftleiðir gætu að sjálfsögðu byrjað með eina Boeing 747," hélt Jóhannes áfram, „en rekstr arlega séð yrði hagkvæmast að reikna með tveimur þotum. Ým- is vandamál væru samfara því að hafa tvær gerðir flugvéla á sömu fJugleiðinni, því ein Boeing 747 annar ekki flutningunum, þótt stór sé. Allar umræður hafa snúizt um 500 sæta þotu, en flestar, sem komnar eru i um- ferð, hafa færri sæti, enda er þá allmikið rúm lagt undir lúx- usfarrými. Tvær slikar þotur kosta ásamt nauðsynlegum vara hlutum 60 milljónir doliara, eða um sex þúsund milljönir is- lenzkra króna miðað við núver- andi gengi." „Við munum nota DC-8 áfram á öðrum flugleiðum — þ.e.a.s. til Norðurlanda og Bretlands. Ástæðurnar til þess að við telj- um okkur betur borgið með „risa þotu“ á flugleiðinni til Luxem- borgar eru ekki aðeins aukin hagkvæmni í flugrekstri og vin- sældir þotunnar meðal farþega. Sumarið 1974 yrðum við að líkindum með fjórar DC-8 þot- ur samtimis í brottför frá New York flesta daga. Þá blasa við afgreiðsluvandamál. Það væri mun auðveldara og ódýrara að vera með tvær, sem tækju sama farþegafjölda. Sama er að segja um viðkomu vélanna á Keflavík urflugvelli — og afgreiðslu þeirra i Luxemborg. Við getum alveg eins litið aftur i timann. Værum við enn með DC-6B þyrft um við 18 slíkar vélar til að anna þessum flutningum. Það er rétt hægt að imynda sér hvers konar v þröng það yrði.“ „Búkvíðu þoturnar eru enn- fremur álíka aðlaðandi fyrir nú- tíð og framtíð og Sexumar eru nú orðið fráhrindandi á Htlants- hafsfflugi — og ljóst er, að Boe- ing 747 er framtíðarþota, þvi enn eru ekki á teikniborðunum nein- ar þotur, sem jafnast á við hana hvað hagkvæmni og þægindi snertir — fyrir okkar fiugleiðir." „Við getum rekið Boeing 747 frá Keflavíkurflugvelli þótt æskilegt væri að endurbæta og lagfæra eitt og annað varðandi afgreiðsluaðstöðuna — m.a. að setja þar upp yfirbyggða, færan- lega ganga fyrir farþega til og frá þotunum. 1 Luxemborg verð- ur byrjað á nýrri flugstöðvar- byggingu í sumar og verður hún * væntanlega fullbúin að ári,“ sagði Jóhannes Einarsson. Mr. Weaver sagði, að viðræð- urnar við Loftleiðir hefðu fyrst og fremst verið upplýsingastarf- semi af hálfu Boeing-verksmiðj anna, sem hefðu aðstoðað Loft- leiðir við að skoða niður í kjöl- inn allt, sem lýtur að rekstri þotunnar á flugleiðum félagsins. „Nú hafa yfir 200 þotur þessar- ar gerðar verið teknar í notkun. Við framleiðum að meðaltali tvær á mánuði fram á næsta ár, en þá reiknum við með að geta aukið framleiðsluna,“ sagði hann. „Við teljum þetta ekki aðeins þotu áttunda áratugarins, held- ur þess níunda — og hún verð- ur áfram í góðu gildi þann ti- unda lika. Með eðlilegri notkun gerum við ráð fyrir að Boeing 747 endist eigendum sínum í sex- tán ár og stöðugt er unnið að endurbótum og þróun i fram- leiðslunni. Við tölum um 500 sæta þotu fyrir Loftleiðir svo að ekki verði dregið á neinn hátt úr þeim þægindum, sem félag- Framliald á bls. 11. Jóhannes Einarsson og Charles Weaver. TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS KARNABÆR LAUGAVEGI20A OG LAUGAVEGI 66 ★ PRJÓNAKJÓLAR ★ UPPLITAÐ DENIM SlÐ PILS SMEKKBUXUR BAGGYBUXUR OG JAKKAR ★ PEYSUR ★ BLÚSSUR, KÖFLÓTTAR ★ ZIGZAGBUXUR ★ SOKKABUXNASETT ALLIR LITIR VINSÆLUSTU PLÖTURNAR: ★ Duane Allman / An Anthology if Frank Zappa, Grand Wazoo The Mothers in Grateful Dead. Europe '72 if The Beach Boys, Holland ■Ar Chuck Berrys, Golden Decade Vol 2 it Santana, Caravanserai ★ Flasr, In The Can ★ Crazy horse, At Crooked Lake -fc Tempest ★ Jonathan Edward Honky-Tonk Stardustcowboy if Batdrof and Rooney ★ Loggins and Messina it; West, Bruce and Laing, Why dontcha ic Amrika, Homecoming + James Taylor One Man Dog if Neil Young, Journey Through The Past ir Yes, Close To The Edge ir Uriah Heep, The Magician's Birthday ★ Deep Purple, Who do We Think We Are ir Al Kooper, Naked Songs -k Dave Mason, Scrapbook ★ Walo De Los Rios, Symphonies for The Seventies ★ FÖT, EINLIT OG RÖND- ÓTT MEÐ VESTI ★ STAKIR JAKKAR ★ OXFORD BAGS ★ SKYRTUR, EINLITAR OG KÖFLÓTTAR ★ EINLITAR PEYSUR ★ FLAUELSBUXUR MARGIR LITIR ★ ZIGZAGBUXUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.