Morgunblaðið - 02.03.1973, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.03.1973, Blaðsíða 14
14 MORGUN’BLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1973 Ingólfur Jónsson; næsta árs I STUTTU MALI GRUNNSKÓ LAFRUM- VARPIÐ Grurmskólafrum>varpið var enn til 1. umræðu í neðri deild í dag. Magnús Torfi Ól- afsson, menntamálaráð'herra hélt áfram ræðu sinni, sem hann hafði orðið að fresta daginn áður vegna þingfliokka funda. Kom m.a. fram í ræðu hans, að hann teldi, að með grunnskólanum væri l'oks hætt að hossa þeim nemend- um sém hygðu á akademískt nám, og að láita aðra sitja á haikanum. Þá var hann ekki fylgjandi þvi að böm i grunn skólum fengju aðilld að skóia stjórnum viðkomandi skóla, og sagði hann að erfitt væri að draga m'arkalínu við ákveð inn aldursmörk í því sam bandi. Ráðherrann saigði að ekki hefði farið fram könnun viðvíikjandi því, hvers vegna þau 18% nemenda sem ekki settust í þriðja bekk hyrfu úr skóla. Hins vegar væri það staðtöl.ulegt og mark tækt, að mun fleiri nemend uir úti á lands'byggðinni hyrfu úr skólum en aðrir. Auk ráð- herrans töluðu Pálmii Jóns- son, Ólafur Einarsson, Lárus Jónsson, Jónas Árnason, Ell- ert Schram, Björn Pálsson og Svava Jakobsdóttir. Að um- ræðunni iokinni var m<álinu vísað tiil 2. umræðu. VISTHEIMILI FVRIR VANGEFNA í gær var samþykkt þings- ályktunartillaga um vistheim ili fyrir vangefna. 1 þings- ályktunin.ni siegir, að Alþingi álykti að skora á ríkisstjórn- ina að: 1) kanna töliu vangefinna í landinu og sikiptingu þeirra eftir landshlutum. 2) að kanna aðstöðu til sérhæfingar fyrir það fólik, sem tekst á hendur þjónustu störf á vistheimilum fyrir vangefina, þ. á m. kennslu. 3) að beita sér fyrir þvi, í samráði við Styrktarfélag vangefna, að komið verði upp vistheimilum fyrir van- gefna þar sem þeirra verður talin þörí. ÍBÚÐIR OG SAMEIGNIR I BREIÐHOLTI VERÐI ATHUGAÐAR Bjarni Guðnason og Stefán Valgeirsson hafa lagt fram tlilögu til þingsályktunar uim gagngera rannsókn á ibúðum og sameignum í Breiðlholti I. 1 greinargerð með tillögunni segir að íbúðaeigendur í Breiðholti hafi margsinnis kvartað yfir göllium og beðið um 1‘agfæringar, en þeim hafd ekki verið sinnt fyllilega að dómi eigendanna. Segir og að 243 ibúðaeigendur af 260 hafi skrifað undir skjal, þar sem beðið er um hið sama og þimgsályktunartillagan gerir ráð fyrir. FYRIRSPURNIR Pálmi Jónsison spyr land- búnaðarráðherra uim verð- lagsgrundvöll landbúnaðar- ira: 1. Hvað Mður gerð nýs verðlagsgrumdvaMar, er upp- haflega átti að taka gildi 1. september 1972? 2. Frá hvaða tíma er hin- um nýja gruindveiii ætlað að gilda? 3. Hverjar verða helztu breytingar á magntölum verðlagsgrundvallarins ? ver ða 30-32 millj arðar að óbreyttri verðbólguskriðu Verðhækkanir á landbúnaðarvörum ræddar utan dagskrár Gylfi Þ. GíslasOn kvaddi sér hijóðs utan dagskrár vegna þeirra verðhækkana sem orðið hafa á nauðsynjavörum. Sagði hann, að engin skýring hefði ver ið gefin á þessum hækkunum. Mjólk hefði t.d. hækkað um 6,15 kr. lítrinm, rjóminn hefði hækk að um 6,10 kr. kvart hyrnan, smjörið hefði hækkað um 53,50 kr. pr. kg. Þessar hækkanir, sem nú hefðu orðið samsvöruðu 3,5 vísitölustig u.m, og þau yrðu launþegar að bera óbætt næstu þrjá mánuðina. Kauphækkunin sem orðið hefði nú 1. marz hyrfi — eyddist. Þá munu launþegar aðeins fá bætt 2 vísitölustig af þessum 3,5 stig- um, því samkvæmt gildandi regl um yrðu þeir að bera 1,5 stig bótalaust. Bað þlngmaðurinn fjármálaráðherra að gefa skýr- ingar á þessum miklu hækkun um og á fyrirætlunum ríkis- stjórnarinnar. Halldór E. Sigurðsson f jármóla ráðherra sagði að sér væri ljúft að gefa skýringar á þessum hækkumim. Sagði hann, að eng in breyting hefði orðið á verðlags grundvelli landbúnaðarvara síð an 1. sept. 1970. Forsendur þess ara hækkana nú væru aukinn kostnaður vlð búrekstur. Eftir- Ingólfur Jónsson farandi hefði áhrif á búvöruverð ið til hækkunar: Kjarnfóður 1,3% Viðhald 0,2% Kostnaður við vélar 0,5% Flutningskostnaður 0,8% Annar kostnaður 0,6% Rafmagnskostnaður 0,1% Launakostnaður 7,9% Launakostnaður hækkaði mest, og væri það í samræmi við grunnkaupshækkanir og vísitöliu. Þá væru bráðabirgðaniðurgreiðsl ur felldar nlður, og niðurgreiðsl ur yrðu þær sömu og verið hefðu fyrir 1. desember. Þær hefðu ver ið 2,48 aurar á mjólk og 3,97 aur ar á 1. flokks kindakjöti en minni á öðrum vörum. Ingólfur Jónsson: Það er aug- ljós skýring á þessum hækkun- um, sem orðið hafa á landbúnað arvörum. Það er dýrtíðin, verð bólguskrúfan. Bændur búa við sama verðgrundvöll og lagður var 1970, með samkomulagi 1. september það haust. Sá grund völiur átti að gilda í tvö ár og endurskoðast 1. september sl. En rikisstjórnin gaf þá út bráða- birgðalög, og létu bændur það gott heita, elns og launastéttirn ar. Bráðabirgðalögin skyldu gilda til áramóta, en bændur hafa beðið með þögn og þolin- mæði til þessa dags. Verðlagið hefur nú verið reiknað út og verð bó'lguskriðan, sem orðið hefur vegna stjórnleysis landsins veld u>r þessum mikliu verðhækkun- um. Það er vísitöluskrúfan og stjórnleysið sem hér eru að verki, um það er engum blöðum að fletta. Það litur ekki vel út i dag með efnahags og atvinnumál lands- ins. Fróður maður hefur reiknað það út, að fjárlög fyrir næsta ár muni verða 30—32 milljarðar, og margir spyrja nú að því hvort hægt verði að innheimta 32 millj arða á árlnu 1974. En þetta gerist ef það verður óbreytt stjórnar ástand. Enginn vafi er á, að bú vörurnar eiga eftir að hækka. Menn hafa gert sér grein fyrir, hver vísitalan verður 1. júní nk. Þá mun koma nýtt búvöruverð 1. sept. nk. Eins hafa menn reiknað nokkurn veginn hver vísitalan muni verða 1. desember, nk. Þá mun einnig koma til nýtt verð á búvörur. Þetta gerist vegna þess að verið er að leitast vlð að búa bændum svipuð kjör og öðrum stéttum i landinu. En þessi mdkla verðhækkun nú, er vegna óstjórnarinnar, og hömluileysisins i verðlags- og dý# tíðarmálum. Og ekki er gott til þess að hugsa, ef v'ð eigum eftir að búa áfram við þetta ástand í landinu. En sem betur fer hafa einstöku ráðherrar gert sér grein fyrir hvert stefnir, og það gefur vonir um, að breyting verði á. MÞinGI Lagafrumvarp um heilbrigðisþ j ónustu MAGNÚS Kjartansson heil- brigðisráðherra meel'ti í gær fyr ir frumvarpi til laga urn heil- brigði sþjónustu. Frum var pið var lagt fram til kynmingar á síðasta þingi, og kemur nú fram á ný nokkuð breytt. Frumvarp- ið gerir ráð fyrir, að landinu verði skipt í 5 læknishéruð. Þrjú þeirra eru stór, Reykja- vikurhérað, Suður- og Vestur- landshérað og Norðurlandshér- að, en tvo eru min.ni, Vestfjarða hérað og Austurliandshérað. Magmis Kjartansson heilbrigð isráðherra rakti helztu þætti frumvarpsins. Þvi er skipt í 5 kafla. 1. kafli.nn er um yfir- stjórn og er þar m.a. greint frá skiptingu heilibrigðisráðuneytis- ins i 5 starfsdeildir. 2. kaflinn er um læknishéruð. 3. kaflinn er um heilsugæzlu og er þar m.a. kveðið á um, að settar skuM á stofin heilsugæzlustöðvar um landið. Þeim er skipt í heilsu- gæzlustöðvar I, þar sem starfa skal einn íæknir hið mimnsta og í heilsugæzlustöð II, þar sem starfa skulu tveir liæknar hið minnsta. 1 þessurm kafla er greint hvar heiisugæzlustöðvarmar skuli vera, og taldi ráðherrann, að aU- miklar umræður yrðu væntan- lega um það atriði frumvarps- icns. 4. kaflinn er um sjúkrahús, og eru sjúkrahús þar ffldkkiuð eftir tegund og þjómustu oig eru þar einnig ákvæði um stjómun- arform sjúkrahúsamna. í 5. kafla eru ýmis ákvæði. Ingólfur .iónsson gagnrýndi Magnús Kjartansson staðarval fyriir heilsugæzlustöðv ar í Suðurlandskjördæmi og eins, að gert væri ráð fyrir, að svæðið miMli KoMafjarðar á Barðaströnd og Skeiðiarársands yrði eitt læknishérað, og héraðs- Iiæknirinn ætti að siitja í Hafn- arfirðd. Ef það yrði úr, að héraðslæknissvæðið yrði svo viðfeðmf, þá væri eins gott að læknirinn sæti í Reykjavik, þar sem hægara væri að ná til hans. Þá greindi IngóiÆur frá ýmsum mótmælum, sem honum og öðr- uim þimgmönnum Sunnléndinga hefðu borizt vegna þess, að svi’pta ætti íbúa ákveðinna staða héraðsJækini sinium. Sagðisit hann myndi sjá til þess, að ráð- herrann og þær nefndir, sem fjalla mymdu um máliið fengj-u þessi mótmæli til atihugunar. Ingvar Gíslason sagði að þetta frumvarp fæli í sér mikl- ar breytingar, nýsköpum, sem orðin væri brýn. Sagðist hann líita svo á, að hér væri djarí- manntega að verki staðið. Hins vegar óttaðist hann tvennt. 1 fyrsta Lagi myndd þetta kerfi ekki leysa í tæka tið þann vanda, sem við væri að glíma í læfena- málum strjálibýlisins, og í öðru lagi væri engin trygginig fyrir þvi, að hægt væri að manna þessar heilisugæzlustöðvar. Þetta nýja kerfi þarfnaðist mjög mikils sérmenntað starfis- lið, og með því væri ekki leyst tregða og viljaskortur lsökna, að ekki væri sagt ábyrgðarleysi, til að gegma störfum úti á lamds- bygigðinni. — Gíslar skæruliða Framhald af bis. 1. ríkjanna, fyrsta sendiráðsritara beigíska sendiráðsins, sendiherra Saudi-Arabíu og fyrsta sendi- ráðsritara Jórdaníu. • Skæruiiðarnir hafa sett fram kröfur um, að látnir verði iausir ýmsir fangar bæði í Bandaríkjunum, Evrópu og Mið- aiisturlöndum; nánar tiltekið, að Sirhan Sirhan, sem dæmdur var fyrir morðið á Robert Kennedy, árið 1968, verði sleppt úr fang- elsi í Bandaríkjunum; að öllum arabiskum konum verði sleppt út fangelsum í ísrael, að sleppt verði 50 Aröbum, sem sitja í fangelsum í Jórdanin og öllum föngnum félögum Baader-Mein- hof í Vestur-Þýzkalandi. • Ríkisstjórnin í Súdan hefur komið saman til skyndifund- ar til þess að ræða hvemig bregðast skuli við þessum at- burði. Bandaríski sendiherranm í Khartouim, Cleou Noel var ný- kominn til Súdans, þar eð skammit er um liðið fr'á því að Bandaríkin og Súdam tólku nú upp fuL’.t diplomatískt samband. Það var rofið af Súdans hálfu meðan á stóð styrjöld ísraels og Araiba í júni 1967. Síðdegisboðið í dag var haldið í því skyni að kveðja bandarisika semdimanininm George Moore, sem verið hefur fulltrúi Banda- ríkjanna í Khartoum undan'farið og undirbúið að fullt samband ríikjanna kæmist á. — Áætlun Framhald af bls. 1. ir áreiðanlegum heimildum, að sleppt verði 108 hermönmum í N-Vietnam og 26 hermömmim og 8 óbreyttum, sem Þjóðtfrelsis- hreyfingin heifiur haft í haldi í S- Vietnam. Samikvæmt áreiðanlegum heim ilduim sýnir ofanigreind áætfliun, sem samþykkt var á Vieitnam ráðstefn'unni í dag, að bæði Bandaríikiamemn og N-Vietnam- ar — og stuðmingsríki þeiira — hafa slakað verulega á kröfum siin'um til þess aö unnt væri að ná samkomulagi. N-Vietnamar og stuðninigsríki þeirra félil'U frá þeirri kröfu, að einunigis vœri hægt að kalla ráðstefmuna sam- an til au'kafundar með samtþy'kki meirihluta aðildarríkjanna. Hefði þeirri kröfu verið sinnt hefðu báðir aðilar gietað komið í veg fyrir, að hún /æri köliliuð saman, þó að áistæða þætti til. Þar á móti féllust Bandaríkjamienn og banda lagsríki þeirra á, að tiligireina byltimigarstj órn Þj óðfrelsishreyf- ingarinnar sern fuMgildan aðila að ráðstefnunni. Utanríkisráð- herra S-Vietnams, Tram Van Lam reyndi árangursl-a'ust að koma í veg fyrir þessa tilslökun en komið var til móts við and- mæli hans með því að taka fram í lokaákvæði áætluniairinnar, að þeir aðilar, sem undirriituðu hana, þyrftu ekki endilega að viðurkenna hver annan. Fullltrúar kommúnistariikjanna á ráðstefnunni komiu í veg fyrir -það með eindreginni andstöðu siinni, að Kurt Waldiheim, fram- kvæmdastjóri Sameinuð'u þjóð- anna, fengi virku hlutverki að gegna við friðareftirlitið í Viet- nam. Höfðu Kanadamemn sér- stakan áhuga á, að framkvæmda stjórinn fengi meira að segja í þessum efnum og utanríkisráð- herra Karnada, Mltchelfl Sharp, lét hafa efitir sér í dag, að hamm teldi ráðstefnuna hafa komið Skamimarlega fram við Kurt Waldheim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.