Morgunblaðið - 11.04.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.04.1973, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1973 Bjarni Guðnason við Hannibai: Lestu bara reglugerð- ina, góði! Átök Samtakanna blossa upp í þingsölum „FARIÐ er fram á hlutlauaa köninun, en Hannibal tekur ein- dregna afstöðu með Fram- kvaemdanefnd byggingaáætlunar. Er Hannibal fyrst og fremst um- boðsmaður Framkvæmdanefndar eða fóliksins í landinu? Ég hugsa að ráð væri fyrir Hannibal að fara í Breiðholt I og skoða íibúð imar — signar gangstéttir og móðu glerin. Þessi afstaða Hanni balg að láta þetta afskiptalaust er óábyrg — sýnir að hann telur ekki ástæðu til að taka tillit til 262 ibúðareigenda. Allt sem farið -er fram á er hlutlaus könnun. Um þetta er efcki að fást. Hanni- bal skilur ekki hlutverk siitt sem ráðherra. Þetta eru íhaldssjónar- mið enda á hann heima í flokki íhaldsmanna.“ Þetta eru orð Bjarna Guðna- sonar, sem hann mælti á Alþingi í gær við umræður um þimgs- ályktunartillögu hans og Stefáms Valgeirssonar um að gerð verði rannsókn á íbúðum og sameign- um í Breiðholtl Hanrribal hafði lesið skýrslu Framkvæmdanefnd ar, og þó hann segist ekki ábyrgj Páskakökubasar í Hafnarfirði ÞESSA dagana eru mikil um- svif hjá Vorboðakonum í Hafn- arfirði, þar sem þær standa í páskakökubakstri fyrir kökubas- ar sinn. Hinn vinsæli páskaköku basar Vorboðans verður í Sjálf- stæðishúsinu á laugardaginn kemur og hefst kl. 16.00. Vor- boðakonur eru vinsamlega beðn ar um að koma með kökur í Sjálfstæðishúsið kl. 10.00 f.h. á laugardag, en kökubasarinn opn- ar kl. 16.00 eins og áður segir. ast að allt væri þar satt frá sagt, þá byði nefndin að hún myndi uppfylla allar sínar skuld- bindingar. Þá sagði hann, að ef ekki yrði samkomulag og íbúðar- eigendur teldu sig órétti beitta, þá væri elfcki um annað að ræða en leita réttar síns fyrir dóm- stólunum. Hamnibal Valdimarsson svar- Framhald á bls. 31 Grásleppuveiðar eru hafnar af krafti víða norðanlands og þessa skemmtilegu mynd tók Hermann Stefánsson nýlega á Dalvík. Menntamálarád: 95 List um landið“ mistókst gjörsamlega Aðeins voru settar upp 4 leiksýningar, á Sel- fossi, Grindavík, Borgarnesi og Laugarvatni MENNTAMÁLARÁÐ skýrði í gær frá starfsáætlun sinni fyrir árið 1973. Ráðið hefur að þessu sinni til ráðstöfunar tæplega 8 mill.jónir króna, en hafði í |yrra um 6,4 milljónir. Fjárhagsáætl un gerir ráð fyrir því að tæplega 3 milljónir króna renni að þessu sinni til bókaútgáfu ráðsins, 10 dvalarstyrkir tii listamanna 800 þúsund krónur — eða 80 þús. kr. hver, styrkur til kvikmynda gerðar 650 þús. kr. — einn styrk ur, tónlistarstarfsemi — væntan ieg hljómplötuútgáfa 300 þús. krónur, „Hst nm landið“ 700 þús. kr. og 300 þús. kr. sem stofn- framlag fyrir ballettflokk. Til annarrar menningarstarfsemi er áætlað að verja 650 þús. krón- um til þess að standa straum af Athugasemd frá þýzka sendiráðinu Reykjavik, 6. apríl 1973. Herra ritstjóri. Morgunblaðið birti 5. apríl leiðara urn þýzk-íslenzku viðræð- umar um lausn landhelgisdeil- unnar, sem fram fóru í Reykja vík 3. og 4. apríl 1973, sem ekki er unnt að láta ómótmælt af hálfu sendiráðs Sambandslýð- veldisins Þýzkalands. f greininni er það m.a. staðhæft, að ríkis- stjórn Sambandslýðveldisins Þýzkalands hafi stjómað ferðuim togava frá Sambandslýðveldinu á Selvogsbanka og gefið skipstjór unum fyrirmæli um aðgerðir í samræmi við það. Þessar stað- hæfingar eru rangar, þar sem togararnir frá Sambandslýðveld inu tilheyra útgerðarfyrirtækj- um í einkaeign. Ríkisstjóm Sam bandslýðveldisins Þýzkalands hefur engan rétt til þess að gefa þýzku togurunum fyrirskipanir. Sendiráðið harmar þessa ástæðu lausu leiðaragrein, þar sem það Jóns Sigurðs- sonar-húsið Á FUNDI stjórnar húss Jóns Sig urðssonar hinn 5. aprfl sl. var samþykkt að veita Haraldi Sig urðssyni, bókaverði, kost á afnot utn af fræðimannsíbúð hússins á tímabilmu 1. júní til 31. ágúst næstkomandi. hefur metið að verðleikum, eink- um m-eð tilliti tiil þýzk-íslenzkra samskipta, réttan fréttaflutning Morgunblaðsins til þessa. Virðingarfyllst, Friedrich W. E. Fuchs sendiráðsritari. ATHUGASEMD RITSTJ. 1 ritistjóirnargrein þeirri, sem vitnað er til í bréfi þýzka sendi ráðsins, er þvi hvergi haidið fram, að þýzk stjómvöld hafi stjórnað ferðum togaranna inn á Selvogsbanka. En hver trúir því, að þau hafi ekki ráðið því, að togaramir fóru út af svæðinu, eftir að samningaviðræðum hafði verið frestað? Ritstj. hinum ýmsu umsóknum, sem kunna að berast. Þá kom það fram, að áætlun um „list um landið“ mistókst gjörsamlega á sl. ári, settar voru upp 4 leik- sýningar í nágrenni Reykjavik- ur. Á blaðamannafundi í gaer kynnti Inga Birna Jónsdóttir starfsiáætlun ráðsins fyrir árið 1973, en fundinn sátu einnig aðr ir meðlimir Menntamálaráðs, Baldvin Tryggvason, Björn Th. Bjömsson. Kristján Benedikts- son var f jarverandi, svo og vara- maður Matthiasar Johannessen, Eiríkur Hreinn Finnbogason. Út- gáfubækur ársins 1973 eru ekki að fullu ákveðnar, en verið er vinna að 3. og 4. bók Alfræðinn ar, Höfundatali, sem Hannes Pét ursson og Helgi Sæmundsson taka saman og Hagfræði, sem Ólafur Bjömsson, prófessor tek- ur saman. Þá kemur út í Smá- bókaflokkmum þýðing úr spænsku eftir Guðberg Bergsson, Króksi og Skerðir eftir Cervant és. í þýðingaflokknum kemur endurprentun á Hómerskviðum. Af fræðiritum má nefna Túlk un Nýja testamentisins eftir dr. Jakob Jónsson, en sú bók verður offsetprentuð, en áður hafa tvö rit komið út í þeirri mynd og er hún ódýrari en venjuleg prentu.n. í ráði er að fram fari ítarleg at hugun á bókaútgáfu Menningar sjóðs með tilliti til endurskipu lagningar, en hana mun annast E'ríkur Hreinn Finnbogason, borgarbókavörður, ásamt for- manni og framkvæmdastjóra Menntamálaráðs. Bráðlega er væntanleg hljóm plata, sem Menntamálaráð hefur styrkt. Á henni verða píanóverk eftir dr. Pál Isólfsson, Leif Þór Afbragðssala hjá Neptúnusi TOGARINN Neptúnus, sem er eign Júpíters og Mars hf., seldi á mánndag í Cuxhaven 168,1 lest fyrir 239.521 v-þýzkt mark og jafngiidir það 8,1 milljón króna. Meðalverð á hvert kg er 48,65 krónnr og er þetta með hæstu sölitm íslenzks togara erlendis. Sldpstjórl á Neptúnusl er Jó- hann Sveinsson. Afli Neptúnusar var mjög góður blandaður fiskur otg sér- lega vel mieð farinn að sögn Stabels raeðismanns. Togarimn Júpíter mun selja í dag i Þýzka- l'andi, á fimmtudag togaramir Sigurður og Röðull, Haltveig Fróðadóttir á föstudaig og á laugardag Bjami Benediiktsson og Þormóður goðL arinsson og Atla Heimi Sveins- son. Rögnvaldur Sigurjónsson leikur, en Leifur Þórarinsson sér um útgáfuna, en platan er gerð. í Kaupmannahöfn. Talsvert var á blaðamanna- fundinum rætt um „list um land ið“ og kom fram hjá Ingu Birnu að ekki hefði tekizt að koma út þeirri einu milljón króna, sem verja átti í fyrra til þessa þáttar í starfsemi Menntamálaráðs. Að eins notuðust 310 þús. krónur, en framlag til hins sama er í ár 700 þúsund krónur — eða 300 þús. krónum minna en í fyrra. Hefur ráðið nú ráðið Gunnar Reyni Sveinsson til þess að skipuleggja „list um landið". Á síðasta ári urðu 4 sýningar á vegum „list um landið“ og voru þær settar upp í Borgarnesi, Grindavík, Selfossi og á Laugar vatni. Þá styrkti ráðið högg- myndasýn'ngu í Vestmannaeyj- Framhald á bls. 31 Bæjarmál í Kópavogi SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Kópavogi éfna til almenns fund- ar í Sjálfstæðishúsinu við Borg- arholtsbraut í kvöld og hefst fundurinn kl. 20.30. Á fundinum mun Björgvin Sæmundsson, bæj arstjóri ræða um bæjarmál, mið- bæinn og sérstaklega um hita- veituna. Allir Kópavogsbúar eru velkomnir á fundinn. Steingrímur Jónsson. Hugvitsmaðurinn Bók eftir Steingrím Jónsson, fyrrverandi rafmagnsstjóra, um Hjört Pórðarson ALMENNA bókafélagið hefur nýlega gefið út bókina Hugvits- maðurinn, Hjörtur Þórðarson, rafmagnsfræðingur í Chicago, sem rituð er af Steingrími Jóns- syni fyrrv. rafmagnsstjóra í Reykjavík. Á kápu bókarinnar er efni hennar lýst á þennan hátt: „Saga Hjartar Þórðarsonar er ævintýri hins íslenzka sveita- drengs, sem flyzt sex ára gam- all með foreldrum sínum og fimm systkinum til Bandaríkj- anha, missir föður sinn réttum tveim mánuðum seinna, elst síð- an upp í bjálkakofa og sezt í fyrsta sinn 18 vetra gamall á skólabekk — í barnaiskóla, en hefst þá á fáum árum til auðs og frægðar af hugviti sinu, gáf- um og mannkostum. En áhugi hans snerist að fleiri efnum en einu og þar sagði kannski upp- runi hans ótvíræðast til sin. Snemmia á árum lagði hann grundvöll að bókasafni sínu, sem með tíð og tima varð eitt hið stærsta og dýrmætasta í einka- eign vestan hafs. Jafnframt keypti hann fagra og víðlenda eyju, Klettaey í Michiganvatni, gerði visindalegar gróðurtilraun- ir og byggði þar yfir sig og viini sína af þjóðsögulegri rausn og listræmim metnaði. Nú hefur eyjan verið friðlýst sem nátt- úruverndarsvæði, en háskólinn i Madison 'geymir bókasafn Hjart- ar. Þannig mun einnig þetta hvort tveggja varðveita á ókofián um árum ævintýri hTns íslenzfca sveitadrengs. Allt þetta og margt fleira er ýtarlega rakið í þessari fróðlegu bók. Hún er merkilegur vitnis- burður um ýmsa þá eiginleika, sem dugað hafa bezt hinum ís- lenzka þjóðstofni, og fyrir þá sök ætti hún ekki hvað sízt að vera æsku landsins uppörvandi lestur og holl hugvekja." Bókin Hugvitsmaðurinn er 213 bls. prýdd 50 myndum og hefur að geyma ýtarlega nafnaskrá. Bókin er prentuð og bundin í Prentsmiðju Hafnarfjarðar h.f., myndir eru unnar i Prentþjón- ustunni sf. og offsetprentaðar I Litmyndum sf. Torfi Jónsson teiknaði kápu bókarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.