Morgunblaðið - 11.04.1973, Side 10
10
MÖRGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1973
HELLISSANDUR
- ■■ ■ ■■■
Það er ekki síður mikið að g;era hjá yngri kynslóðinni.
ÞAÐ voru skýjabólstrar yfir
jökulhettun.ni, en glampandi
sólskin og nær ótakmiarkað
skyggni í aðrar áttir, þegar við
komuim til Helllssands í síðustu
viku. AuSvitað var allt mjalla-
hvítt af snjó eins og annars stað-
ar á Snæfeilsnesi, en það var
ekki þungfært og Landroverinn
okkar mial'aði sig auðveldlega í
tgiegnum þá fáu skafla sem á veg
inum urðu.
Krakkar léku sér að snjóþot-
um og sleðum, eins og krakkar
gera alls staðar þar sem snjó
fes'tir. Það var líka eins gott að
þeir höfðu eitthvað til að una
sér við, því foreldrarn'.r vinna
myrkranna á 'milM og sum böm-
in verða að ganga nær sjálfala.
VINNA TIL AÐ BJARGA
VERÐMÆTUM
— Það er ekki vegna þess að
foreldrarnir kæri sig um að
vinna svona, sagði Sigurður
Magnússon, verkstjóri í Hrað-
frystihúsi Hellissands, þegiar vfið
litum við hjá honum. Þeir vilja
eðlilegia hafa sín frí eins og aðr-
ir til að sinna bönnum og heim-
iii. Þe r kæra sig heldur ekkert
sérstaklega um tekjurnar sem
fást með alliri þessari vinnu, því
það fer alltof mikið af þeim í
skatta. Þegar svo er komið að
fólk þarf að greiða yfir fimmtíú
prósent í skatta, finnst því timi
til kom'nn til að hætta og taka
sér fri. Eina ástæðam til þess að
það vinnur er að það veit að ann-
ars myradu milljónaverðmæti
fara í súginn.
— Hvað hafið þið tekið á móti
mikium fiski á vertíðinni?
— Frá áramótum höfum við
tekið um 1200 tonn. Mest af því
hefur farið í frystingu, en
tveggja nátta fiskurinn hefur
farið i salt. Tíðin hefur verið
nokkuð risjótt, en marzmánuður
þó góður. Við búumst við þessu
áframhald'andi, jafnvel út maí.
Skarðsvikin hélt áfram út maí i
fyrra og gekk ágætlega. Ég veit
ekki hvort fleiri reyna það í ár,
en ég veit til þess að nokkrir eru
að hugsa um að fara á grálúðu
í sumar. Mesta vandmál okkar
núna held ég að sé húsnæðis-
skortur. Það vantar sárlega fólk
hingað, þetta hús eitt gæti vel
notað allt það virarauafl sem
finnst í hreppnum. Veitti jafnvel
ekki af. En það vantar húsnæði
og fólk er eðlilega hikandi við