Morgunblaðið - 12.04.1973, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRlL 1973
14444 ® 25555
® 22*0*22*
RAUDARÁRSTÍG 31
STAKSTEINAR
Estrup þurfti
heldur
ekkert þing
I leiðara i Tínianum í gær
staðhæfir Þórarinn Þórarins-
son ritstjóri, að eina ástasðan
fyrir því, að ríkisstjórnin
vilji Ijúka Alþing-i fyrir
páska, sé að sjálfsögðu sú, að
hún telji að það megi mjög
auðveldlega takast. Eitthvað
hefur ritstjóranum verið und
arlega innan brjósts, er hann
sló þessar fullyrðingar á let-
urborð gömlu leiðararitvélar
innar á Tímanum. Þórarinn
Þórarinsson á sæti á Alþingi
en eitthvað virðist hann vera
farinn að taka illa eftir upp
á síðkastið. Undanfarna daga
er hverju stórmálinu eftir
öðru fleygt framan í þing-
menn. Ráðherramir biðja
margfaldrar afsökunar á því,
hvað þetta sé nú allt seint
fram komið. Hins vegar bæta
þeir svo við, að öll séu mál-
in svo vel úr garði ríkis-
stjórnarinnar gerð, að þing-
mönnum sé óþarft að vera
glugga i þau að ráði. Bezt sé
fyrir þá að samþykkja þau
hugsunarlaust, enda sé það
nauðsynlegt, þar sem enginn
timi gefist til athugunar „þar
sem þingi skal ljúka fyrir
páska".
Yfirlýsingar eins og sú,
sem Þórarinn Þórarinsson
leyfir sér að gefa í gær, sem
er eins fjarri raunveruleikan
um og verða má, gefa frem-
ur en allt annað tilefni til að
ætia, að eitthvað annarlegt
vaki fyrir ríkisstjórninni.
Henni er ljóst sem öðrum, að
Alþingi Ijáir málum hennar
ekki brautargengi og þvi
skal senda þingmenn heim,
og matreiða síðan stjórnar-
ákvarðanir oní landslýð, sam
kvæmt kokkabókum Estrups
hins danska.
Viðurkenna
ósigur sinn
Bretar og V-Þjóðverjar
hafa boðið íslenzku ríkis-
stjórninni, að þeir séu tilbún
ir að falla frá málum sinum
fyrir Alþjóðadómstólnum
gegn því að fá veiðiheimild-
ir innan fiskveiðilögsögunn-
ar. Þessi nýja stefna sannar
það betur en margt annað,
hversu málstaður fslendinga
er studdur sterkum rikum.
Hin aldurhnignu stórveldi
hefðu aldrei gert íslending-
um þessi boð nema vegna eig
in vissu um, að þeir færu með
tapað mál, — nema vegna
þess, að nú á að reyna að
sleppa frá málinu með sem
minnstri skömm.
Það er öllum ljóst, að At-
þjóðadómstóllinn mun ekki
kveða upp efnisdóm andstæð
an íslendingum í landhelgis-
málinu. Dómstóllinn myndi
með slikum dómi ógilda út-
færslu landhelgi 30 til 40
rikja S.Þ. Slikt er ekki á
færi dómstólsins, dómur sem
væri okkur í óhag, væri jafn
framt dauðadómur yfir hon-
um sjálfum. En íslenzka ríkis
stjómin heldur dauðahaldi í
þá kenningu, að fslendingar
fari ekki að alþjóðalögum.
Þess vegna grípur hún nú
fegins hendi gylliboð Breta
og V-Þjóðverja um að dragn
landhelgismálið frá Haag.
Þjóðviljinn og Timinn em
látnir skrifa leiðara eftir leiS
ara um, að fslendingar fart
ekki að alþjóðareglum i sain-
skiptum sinum við aðrar
þjóðir og því sé bezt að eiga
ekkert undir þeim stofnunum,
sem fari eftir settum reglum
í samskiptum þjóðanna.
BfLALEIGA
CAR RENTAL
tS1 21190 21188
■ANOt£G HREYSTI-ALIRA HBLLB
FERÐABlLAR HF.
Bílaleiga — sími 81260
Tveggia manna Citroen Mehari.
Fimm manna Citroen &.S.
8—22 manna Mercedes Benz
hópferSabíIar (m. bílstjórum).
HÓPFERÐIR
Til leigu i lengri og skemmri
ferðir 8—34 farþega bílar.
Kjartan Ingimarsson,
símar 86155 og 32716.
Bifneiðasala
Notaóirbílartilsölu
Jeepster 1973
Úskað er eftir tiBboðum í
Jeepster '73 eins og hann er
eftir árekstur. BíWnn verðu r til
sýnis hjá okkur í dag (fimmtu-
dag) og á morgun. Tiltooðum
sé skiiað til okkar fyrir kl. 5
e. h. mánudaginn 16. þ. m.
Allt á sama stað
EGILL
VILHJÁLMSSOM
HF
Laugavegi 118-Sími 15700
ggt spurt og svarad Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið í sima 10100 kl. 10—11 frá mánudegi tU föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- unhlaðsins.
Umferð-
armál
Lesendaþjónustu Morgun-
blaðsins — Spurt og svarað,
berast jafnan margar spurn-
ingar, sem á einn eða annan
hátt fjalla um umferðarmál.
Nú hefur verið ákveðið að
birta þessar spurningar og
svör við þeim I sérstökum
þætti, sem nefnist „Spurt og
svarað — um umferðarmál“.
Mun þáttur sá birtast í blað-
inu eftlr þörfum, en tekið er
á móti spurningum i hann kl.
10—11 frá mánudegi til föstu
dags, samhliða öðrum spurn-
ingum til Iesendaþjónustunn
ar.
ÖKUSKfRSTEINI FVRIR
17 ÁRA TJÖNVALDA
Guðmundur Snorrason,
Þórustíg 15, Ytri-Njarðvík,
spyr:
„Er það í endurskoðun að
gefa út ökuskírteini fyrir 17
ára unglinga, sem hafa verið
tjónvaldar í umferðinni? Er
enginn hámarksaldur fyrir
handhafa ökuskírteinis?“
Óskar Ólason, yfirlögreglu
þjónn, svarar:
„17 ára unglingar fá aðeins
útgefið bráðabirgðaskírteini
til eins árs. Áður en fullnað-
arskírteini er gefið út, er öku
mannsferill allra, sem fengið
hafa bráðabirgðaskírteini,
kannaður og ef hlutaðeig-
andi hefur lent í umferðar
slysum eða umferðaróhöpp-
um og kenna má um vankunn
áttu, vanhæfni, vítaverðum
akstursháttum eða öðrum
brotum gegn ákvæðum um-
ferðarlaga, má eigi gefa út
fullnaðarskírteini, nema við-
komandi hafi staðizt próf að
nýju í umferðarreglum og
akstri.
Ekki veit ég til þess, að á
þessu sé væntanleg breyting.
Seinna atriði spumingar-
innar er hægt að svara með
neii, en þeir sem eru 60 ára
eða eldri, þurfa að endumýja
ökuskírteini sín oftar en aðr-
ir ökumenn og verða þeir þá
að leggja fram þau gögn,
sem krafizt er við endurnýj-
un, m.a. læknisvottorð.“
SKEMMDIR A GÖTUM
REYKJAVÍKUR
Ingólfur Kristmundsson,
Vesturbergi 10, spyr:
1. „Eru göturnar i Reykja-
vik ekki byggðar fyrir ís-
lenzka veðráttu?"
2. „Hver er ábyrgur fyrir
hugsanlegu tjóni á ökutækj-
um, sem verða vegna
skemmda á götunum?"
Ingi Ú. Magnússon, gatna-
málastjóri svarar:
„1. Jú.
2. Það fer eftir aðstæðum
hverju sinni, en í flestum til-
vikum hafa borgaryfirvöld
hafnað kröfum um bætur.“
BlLAVERKSTÆiÐI VIÖ
SLYSAHORN
Leifur Guðmundsson, Laug
arnesvegi 50, spyr:
„Ég bý á mótum Sundlauga-
vegar og Laugarnesvegar,
við eitt af mestu árekstra- og
slysahomum bæjarins. Ég
undrast hvers vegna starf-
semi bílaverkstæðis á Laugar
nesvegi 48 er leyfð, starfsemi
einmitt á þessum varasömu
gatnamótum í gömlum og
þröngum bílskúr með mjög
erfiða aðkeyrslu. Og oft
trufla umferðina dráttarbílar
sem draga bíla inn á bila-
verkstæðið til viðgerðar.
Flestir húseigendur, sem
við þennan götuspotta búa,
eiga oft erfitt með að leggja
bilum sínum fyrir framan hús
sin, þar sem bílaverkstæðið
leggur viðgerðarbílum sínum,
svo að segja hvar sem þeim
hentar á götunni, og oft á
gangstéttum.
Ég mælist til að umferðar-
yfirvöld taki þetta mál til at-
hugunar, og kanni hve mörg
slys og árekstrar hafa átt sér
stað á þessu horni seinustu
þrjú ár, og meti hvort ekki
er kominn tími til þess að stað-
setja bilskúraverkstæði þetta
á hentugri stað í bænum, þvi
svo virðist sem slys og
árekstrar aukist frekar en
fækki við þessi erfiðu gatna-
mót.“
Guttormur Þormar, formað
ur Umferðarnefndar Reykja-
víkur svarar:
„Þakkað er fyrir vinsam-
lega ábendingu, sem mun
verða tekin til athugunar.
Það er þó ekki hlutverk um-
ferðaryfirvalda að ákveða
hvaða atvinnurekstur er
leyfður á hverjum stað.
Þessum hluta Laugarnes-
vegar hefur nú verið lokað
fyrir gegnumakstur vegna
framkvæmda við Kringlumýr
arbraut. Verður Laugarnes-
vegur nú tengdur Kirkjuteigi
en ekkert samband verður
við Kringlumýrarbraut. Ætti
umferð um götuna þvi að
minnka verulega.
Það skal upplýst, að skv.
skýrslum lögreglunnar varð
fjöldi árekstra á gatnamótum
Laugarnesvegar og Sund-
laugavegar sem hér segir:
1970 — 11 árekstrar, 1971 —
21 árekstur og 1972 — 15
árekstrar."
Moon skotinn...
TROMMULEIKARI hljóm
sveitarinnar WHO, Keith
nokkur Moon, var fhittur í
sjúkrahús í dauðans ofboði
fyrir nokkru, eftir að hafa
fengið skot í magann. Hafði
hann verið að leika sér með
byssu sem hann á. Hljóp
skyndilega úr henni skot og
í magann á honum. Læknis-
skoðun leiddi í Ijós að kapp-
inn var ekki aivariega særður,
heldur aðeins marinn og hrufl
aður. Byssan var nefnilega
bara loftbyssa, reyndar stór
og kraftmikil, en hana hefur
hann notað á sviði að undan-
förnu, er hann hefur gegnt
hlutverki kynnls, og hefur
hann skotið úr byssunni hylkj
um, sem opnast nokkru eftir
að úr byssunni er skotið og
strá marglitum kornum yfir
nærstadda. Talsmaður Moons
þessa sagði við fréttamenn um
atvikið: „Keith var að Ieika
John Wayne einu sinni enn“.
Kvæntist á laun...
HETJAN Jimmy Lea í SLADE
gekk í það heiiaga einn dag-
inn fyrir skömmu og lét næst-
um þvi engan vita af því. —
Hann gekk að eiga 22 ára
stúlku, Louise Ganner að
nafni, og valdi mánudag til
athafnarinnar. Sannazt því
orðtakið „mánudagur til
mæðu“, því að þetta hefur
valdið yngismeyjum Bretlands
mikilli mæðu. Þess skal getið,
að enginn félaga hans i
SLADE var viðstaddur athöfn-
ina.
Búinn aðfá sér
rafmagnsgítar...
GÍTARLEIKARINN heims-
frægi, JOHN WILLIAMS,
sem hér kom fram á sl. sumri
á Listahátíð og heillaði alla
með flutningi sínum á sígildri
tónlist, hefur nú orðið sér úti
um rafmagnsgítar og leikið
inn á stóra plötu, sem kemur
út um miðjan næsta mánuð.
Nefnist hún „The Height
Below“.
John Williams —
kominn með rafmagnsgítar.