Morgunblaðið - 04.05.1973, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.05.1973, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MAl 1973 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthfas Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjóri og afgreiðsla Aðalstræti 6, sfmi 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Asknftargjald 300,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasðlu 18,00 kr. eintakið. IT'undur þeirra Nixons, * Bandaríkjaforseta og Pompidou, Frakklandsfor- seta, sem haldinn verður í Reykjavík um næstu mánaða mót, er sögulegur í tvennum skilningi. Vegna þess, að Is- land hefur verið valið sem fundarstaður þessara tveggja þjóðaleiðtoga mun ísland og íslenzk málefni verða í sviðs- ljósinu á alþjóðavettvangi næstu vikur. Ekki þarf að hafa mörg orð um þýðingu þessa fyrir okkar fámennu og að mörgu leyti einangruðu þjóð. Á hinn veginn er fund- ur þessi haldinn, þegar Banda ríkin og ríki Evrópu standa á tímamótum í samskiptum sín á milli. Þess vegna má telja líklegt, að viðræður for- setanna her í Reykjavík geti skipt sköpum um framvindu þessara mála á næstu mán- uðum og árum. Síðasti fundur forsetanna tveggja var haldinn á Azor- eyjum í desembermánuði 1971. Á þeim fundi var tekin ákvörðun um gengislækkun dollarans og afnám sérstaks innflutningstolls í Banda- ríkjunum. Vel má vera, að á þessum viðræðufundi forset- anna tveggja verði teknar ákvarðanir, sem ekki verða síður þýðingarmiklar. Nixon, Bandaríkjaforseti, hefur ger- breytt öllum viðhorfum í al- þjóðamálum í forsetatíð sinni með óvæntum stefnu- breytingum, eins og alkunn- ugt er. Bersýnilegt er, að hann er til alls vís. Fyrir u.þ.b. 10 dögum flutti Kissinger, aðalráðgjafí Banda ríkjaforseta í alþjóðamálum, ræðu, sem vakið hefur heims- athygli. í ræðu þessari gerði Kissinger að umtalsefni sam- skipti Bandaríkjanna og Evr- ópu og lagði til, að gerður yrði nýr sáttmáli um At- lantshafið. Þessari ræðu Kiss- ingers hefur verið líkt við ræðu þá er Marshall, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, flutti eftir stríðið er hann lagði fram tillögur sín- ar um Marshalláætlunina, sem gerði Evrópuríkjum kleift að hefja endurreisnar- starfið að stríðinu loknu. Nú eru tímamót í samskiptum ríkjanna beggja vegna At- lantshafsins og því hefur verið lýst yfir af Bandaríkj- unum, að þetta sé ár Evrópu, þar sem tengsl Bandaríkj- anna við Evrópu verði tekin upp til endurskoðunar. í því ljósi ber að skoða ræðu Kiss- ingers og viðræður Nixons við Evrópuleiðtoga um þess- ar mundir. í ræðu sinni lagði Kissing- er áherzlu á 6 atriði. í fyrsta lagi, að Bandaríkin vilji halda áfram að stuðla að sameiningu Evrópuríkja. I öðru lagi, að Bandaríkin ætli ekki að draga úr þátttöku í varnarsamstarfi Atlantshafs- ríkjanna en vænti í þess stað eðlilegrar þátttöku í því sam- starfi af hálfu Evrópuríkj- anna. í þriðja lagi, að Banda- ríkin vilji stuðla að bættri sambúð austurs og vesturs með samningum. í fjórða lagi, að Bandaríkin muni aldrei af ásettu ráði gera neitt, sem gengur gegn hags- munum bandalagsríkja þeirra en að þau vænti hins sama frá þeim. í fimmta lagi, að þau vandamál, sem nú eru komin upp varðandi orku- notkun verði leyst sameigin- lega og í sjötta lagi, að viður- kennd verði hin nýja staða Japans og að Japan geti orð- ið aðili að sameiginlegum ákvörðunum Atlantshafsríkj- anna. Á þessum grundvelli má gera ráð fyrir, að viðræður þeirra Nixons og Pompidou fari fram. Þær munu fyrst og fremst snúast um ný við- horf beggja vegna Atlants- hafsins. Með ræðu Kissing- ers má segja, að Bandaríkja- forseti hafi spilað út sínum fyrstu spilum og eftir er að sjá, hver viðbrögð Evrópu- ríkjanna verða. Nixon hefur þegar rætt við Heath og Brandt og nú er röðin komin að viðræðum hans og Frakk- landsforseta. Þessar viðræð- ur munu svo væntanlega leggja grunJvöll að Evrópu- ferð forsetans í haust, sem vel getur orðið hin söguleg- asta. Menn spyrja að vonum hvers vegna ísland hafi orð- ið fyrir valinu sem fundar- staður. Svarið virðist ein- faldlega vera, að forsetarnir hafi viljað hittast einhvers staðar miðja vegu milli Evr- ópu og Bandaríkjanna. Árið 1971 voru Azoreyjar valdar, nú or það ísland. Þetta er okkur íslendingum mikið fagnaðarefni. Það er heiður fyrir okkur að bjóða hina voldugu gesti velkomna. Fundarhald þeirra hér mun stuðla að því að efla tengsl íslands bæði við Bandaríkin og Evrópuríkin og stuðla að virkari þátttöku okkar í þeim breytingum, sem nú eru að verða í samskiptum ríkj- anna við Atlantshaf. SÖGULEGUR FUNDUR S j álf stæðisf lokkur inn einn hefur ekki bognað — segir Jónas Haralz, bankastjóri EINS og kunnugt er hefur Jónas Haralz gengið í Sjálfstaeðisflokk- inn og verið kosinn fulltrúi á landsfund flokksins sem hefst um þessa helgi. Hefur þetta vak- ið verulega athygli, ekki sízt vegna ummæla hans í Eimreið- inni nýlega, þar sem hann er m.a. spurður, hvort hanm hyggi á beina þátttöku í stjómmálum, en hann svarar því neitandi. Morgunblaðinu þótti rétt að spyrja Jónas Haraiz um þessi mál, enda mun mörgum þykja fróðlegt að kynnast sjónarmið- um hans, svo mjög sem um ákvörðun þessa er rætt. Það sem Jónas Haralz sagði í samtalinu fer hér á eftir: „Aðdragandinn að þeirri ákvörðun minni að ganga í Sjálf- stæðisflokkinn var sá, að á sl. hausti mæltist formaður flokks- ins til þess, að ég tæki sæti i efnahagsmáianefnd flokksins. Ég varð við þeirri ósk og hef starfað í þeirri nefnd síðan, en verið eini maðurinn í nefndinni, sem er ekki í flokknum. Ég tai- aðí einnig alloft á sl. vetri í fé- lögum sjálfstæðismanna að ósk þeirra. Mér virtist að slík starf- semi innan flokksins, án þess að vera formlega í flokknum, væri óeðlileg og hreinlegra væri að ganga í flokkinn. Þegar því sjálfstæðismenn í Kópavogi stungu upp á því við mig, að ég gengi í félag þeirrá og yrði full- trúi á landsfundi, féllst ég á þá uppástungu, enda skoðanir mín- ar í mjeginatriðuim i samræmi við stefnu flokksins eins og fram hefur komið í þeim erindum, sem ég hef haldið. Það hefur á hinn bóginn verið skýrt tekið fram af minni hálfu, að ég vildi ekki taka að mér nein trúnaðarstörf umfram það sem ég hef þegar gert, þ.e.'að starfa i efnahagsmálanefnd flokksins. Ákvörðun mín að ganga í Sjálf- stæðisflokkinn er því ekki að mínum dómi í neinu ósamræmi við ummæli mín í Eimreiðinni, þar sem ég tók fram, að ég hefði áhuga á stjórnmálum, en hygði ekki á beina þátttöku í þeim, en með þvi átti ég við opinbera þátttöku sem frambjóðandi í kjördæmi eða til trúnaðarstarfa innan flokksins. Viðbótarástæða til þess að ég vildi ganga í flokkinn er sú, að ég tel að mikið umrót sé í stjómmálum bæði hér á landi og erlendis. Miklar breytingar á við- horfum hafa orðið á undanförn- um árum, og mjög áberandi v'.rð- ist vera, að raenn missi sjónar á því, hvernig það frjálsa og opna þjóðfélag sem við hér á Vestur- löndum höfum lifað í, sé upp byggt og hvemig það starfar. Mikil hætta er á því, að menn í óþolinmæði og ógáti raski þeim meginstoðum, sem þetta þjóðfé- !ag hvílir á. Ég hef gert mér far um það upp á síðkastið að leiða þessar tilhneigingar fram í dags- ljósið og vara við þeim. Ég efast ekki um, að mikinn skilning á þessum vanda er að fiinna í flest- um eða öllum flokkum. En mér virðist, að allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkurinn hafi bogn- að í þeiim sterka vindi, sem nú hefur blásið um stundarsakir. Þvi meiri ástæða er fyrir þá, sem hafa ákveðnar skoðanir á þessum málum að sýna flokkn- um, að þeir meti þá afstöðu, þó að það'sé ekki gert á annan hátt en þeir gerist meðlimir í flokkn- um. Stjórnmálastarfsemi er bæði erfitt og vanþakklátt verk. Og þess vegna líka ástæða fyrir þá, sem eru ekki þannig settir, að þeir vilji eða geti tekið þátt í slikri starfsemi að sýna í verki, að þeir meti það sem aðrir leggja fram. Ég vil taka fram, að störf bankastjóra geta ekki samrýmzt stjórnmálaönnum. Fyrir því er raunar almennur skilningur. Samkomulag var milli stjórnar- f.okkanna i fyrrverandi ríkis- stjórn um það, að menn sem tækju að sér bankastjórastörf skyldu ekki vera í framboði eða sitja á Alþingi. Núverandi stjórn arflokkar virðast vera sömu skoð unar. Þetta er, að mínu áliti, sjálfsögð stefna. Landsbankinn er það mikil stofnun, að ekki er hægt að veita henni forystu, nema það sitji í fyrirrúmi fyrir öHu. Hér má einnig nefna í þessu sambandi, að gagnstætt þvi sem fólk virðist oft halda, koma pólitísk sjónarmið ekki til greina í stjóm bankanna. Það er tvímælalaust kostur eins og okk ar þjóðfélagi er háttað, að í bankastjórn sitji menn sem hafa fullt traust stjórnmálaflokkanna og flokkarnir geta sýnt fullan trúnað. En innan veggja bank- anna er þeim stjórnað í nánu og ágætu samstarfi bankastjóranna, þar sem leiðarljósið er heill og hagur bankans sjálfs og hinna mörgu viðskiptavina hans. Að þessu leyti eru íslenzkir bankar ekki frábrugðnir bönkum annars staðar. í samræmi við þessi sömu sjónarmið hefur bankaráð Landsbankans að undanförnu tekið það fram við ráðningar úti- bússtjóra, að ætlazt sé til að þeir hafi ekki opinber afskipti af stjórnmálum, þ.e. fari ekki í framboð, þó að ekki sé talið at- hugavert að menn starfi innan stjórnmálaflokka." 1 samtali sem ég átti við Jón- as Haralz og birtist 6. sept. 1969, leggur hann áherzlu á mikilvægi einstaklingsframtaksins og seg ir m.a.: „Það er bezti grund völlur heilbrigðs og gróandi at vinnulífs. Of mikil afskipti stjórnvalda af atvinnulífinu í ein stökum atriðum örva ekki heil brigða þróun heldur drepa hana í dróma. Jónas Haralz Með þetta viðhorf í huga tek ég við bankastjórastarfi í Lands- bankanum. Ég hefi ekki tekið þátt í störfum Sjálfstæðisflokks- ins, enda hefði það ekki sam- rýmzt störfum mínum sem efna hagsráðunautur ríkisstjórnarinn- ar. Ég hef ekki heldur í hyggju að gerast flokksmaður neins flokks. 1 ljósi þessara staðreynda blasir því betur við frjálslyndi Sjálfstæðisflokksins að stuðla að vali mínu.“ Vegna þessara ummæla er 1 lokin ástæða til að spyrja Jónas Haralz, hvort þessi orð sam- rýmist núverandi ákvörðun hans. Hann svaraði: ,,1 grundvallaratriðum er þetta óbreytt. En með tilllti til stjóm- málaviðhorfa nú hef ég eins og ég hef reynt að skýra í þessu samtali, talið rétt að standa ekki lengur utan flokka." M.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.