Morgunblaðið - 21.06.1973, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.06.1973, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1973 23 EGILL R.FRIÐLEIFSSON Hátíð i ENN höldum við iistaþinig. I þetta sinn helgað samtímatónlist. Eftir all stormasaman undirbún- inig, svo hvassan, að norræn sam staða rauk út í veður og vind, hótfst ISCM-þinigið (alþjóðleg samtök um nútímatónlist) sl. mánudag. Vissulega ber að fagna því að fá hingað hóp tónskálda og túlk- enda frá hinum ýmsum heims- hornum, fá tækifæri til að kynn ast verkum þeirra og hæfni, skynja andrúmsloftið — þá vinda, er hvað sterkast blása í heimi tónlistar dagsins í dag — hrífast eða hneykslast, sbemmta sér eða leiðast, fyllast áhuga eða bara dotta. Fyrir þetta einstæða tækifæri að fá að þramma með „í takti tímans“ ber að þakka þeim aðilum, sem hvað ötultegast hafa unnið að undirbúningi og framkvæmd þessa þings. Hitt er, annað, að fyrir hinn venjulega tónleikagest virðast réttirnir, sem fram eru bornir, æði misjafn ir að gæðum, forvitnitegir í flest um tilvikum og sumt krassandi, en annað bragðdauft í meira lagi. Hér er ætlunin að minnast í ör fáum orðum á konsert, sem fram fór í Norræna húsinu sl. þriðju iag, en þar var mættur Norski tréblásarakvintettinn og flutti >kkur skandinaviska blásara- bæ músík, eins og hún er nýjust af nálinni. Þar mátti heyra verk eft ir fjögur norsk tónskáld, eitt finnskt og eitt sænskt. Tónleik- arnír hófust á OHM eftir A. Nord heim, en hann er okkur að góðu kunnur, þvi mörg verka hans hafa heyrzt hér áður, bæði á tón leikum og í útvarpi. OHM er sam ið fyrir hið norska þjóðlega hljóð færi LUR (langt tréblásturshljóð færi, að mestu gert úr trjáberki) og segulband. OHM er ákaflega einföld og i raun'nni „þjóðteg“ tónsmið. LUR-leikarinn var hér Odd Uileberg, og hann ásamt seg ulbandinu, sem bergmálaði á skemmtilegan hátt loðna tóna LURsins, frömdu hið ágætasta eyrnagaman. Það vekur ætíð athygli, þeg ar rykið er dustað af gömlum þjóðlegum hljóðfærum, og fólki gefinn kostur á að kynnast þeim á nýjan leik. Kannski eitthvert okkar tónskálda taki sig til og setji eitthvað saman fyrir lang spilið okkar, — ekki svo galin hugmynd fyrir 1974 — eða hvað? Svo haldið sé áfram með efni þessa greinarkorns, var það verk fyrir einleiksflautu eftir F. Mort ensen er næst hljómaði um sali hússins í ágætri meðferð Per Öi- en, fagmannlega og vandvirknis tega unnin tónsmíð af hendi höf undar, og flutningur sömuleiðis prýðisgóður, eins og áður sagði. En það sem hvað mesta athygli vakti á tónleikunum var Sonatina no. 2, Astrali, eftir A. Bibalo. Són atínan, sem er i þremur þáttum virðist ákaflega heilsteypt og sannfærandi verk, skýrt í formi, litfagurt og spennandi, enda auð heyrt að Norski blásarakvintett inn naut þess að leika þetta skemmtilega verk, og skilaði hlutverki sínu með miklum sóma og glæsibrag, ekki hvað sízt síð asta þættinum, sem ber yfir- skriftina -e- M. G. 42 (fróðir menn segja mér að M.G. 42 sé eitthvert stjarrifræðilagt fyrir- bæri). Raunar má segja, að öll þau verk, er kvintettinn flutti, væru sérdeilis vel leikin, því hér eru á ferð mjög færir og vel sam æfðir hljóðfæraleikarar, sem greinilega taka verk sitt alvar- lega. Auk ofangreindra verka fengum við einnig að heyra „Yan Guan“ eftir S. Berge, Quintet eft ir E. Salmenhaara — fremur langdregið verk og „Etwas fúr...“ eftir Welin, litfögur og í rauninni indael tónsmið, en virðist frem ur laus i formi — laus við form — væri e.t.v. betra að segja. Húsið var þéttskipað þakklát- um áheyrendum, sem fögnuðu listamönnunum innilega. Von- and: fáum við fleiri jafn ánægju lega tónleika á 47. þingi ISCM. — Laxveiði Framhald af bls. 10 Nú be;r góðan gest að garðli, þar sem er Steingirím- ur Jónsson, fyrrverandi raf- magnsstjóri. Hann er einn sá maður, sem 'hvað mest hefur gent fyrir Elliðaámiar, vernd- un þeirr,a og rætobun. Þegar hann byrjaði ræktundna dreymdi h-ann um að fylla hana svo af laxi að menn gætu eins og í Bandarilkjuin- um staðið hlið vi© hliið á bafkkanum við veiðar. Bann hlær þegar hann segir- okkur þessa sögu. Hann verður brasmildur er hann sér veið- ina og ósikar Birgi til ham- iimgju. GurKnlaugur og Aðalsteinn eru nú báðir búnir að landa löxum, Guinnlaugur tveimur, þar af var annar 13 pund og Aðalsteiimn var búinn að vera fjári óheppinn, því hann miissti þrjá laxa í röð, sesn höfðu tekið grannt. Fossinn virðist nú vera bú- inn að fá nóg í bili og þeir Birgir og Þórður ákveða að reynia í neðrf Móhyl fram að kaffi, sem átti að verða kl. 10. Stórlax á færinu Það va-r aðeins farið að draga fyrir sólu og ekki var hægt að hugsa sér ákjósan- legra veiðiveður. Birgir var ekki búinin að renna lengi í hýllinn þegar stönginn allt í einu kengbogniaði og það var ljóst að þarna var höfðingi á ferð. Laxinn strilkaði niður ána svo að söng í hjólinu, en stöðvaði síðan og lagðist þumgt í. Þanraig lá hann drykk laniga stund og þeir toguðust á veiðimaðurinn og bráðin. Birgir var saliarólegur og færði sig hægt niður eftir um leið og hann spann inm á hjóJlið. M'eð lagnd tótkst hom, um að koma laxinium af stað aftur og eftir mokkrar falleg- ar rdkur og stökk fór hann að gefa súg og það leið að leikslokum. Birgir leiddi lax- inn að landi, þar sem Garð- ar greip um sporðinn örugg- um höndum og lyfiti honuim. upp úr vatnimu. Leikurinn, hafði staðið í rúma.r 20 mín- útur og laxiinn vó 14 pund, Þetta er 9tórlax á El'liðaár- mæililkvarða, fallegur, stinrnur hængur, sem aðeiins var far- inn að taka lit. Hefur líklegaL verið búinn að vera í ánni í svo sem 10 daga. Þetta þótti mönniuim góð miorgum- veiði og nú var ákveðið að baka kaffi’hlé. í veiðihúsimu bauð Barðl gesti velkomna með stuttri ræðu, þar sem hann þakkaði góð samikipti SVFR og Reykj avíkurborgar. Steingrímur Jónsson hélt eiimnig stuitta ræðu, þar sem hann lagði ríka áherzlu á nauðsyn þess að vernda Ell- iðaárnar, dalinn cng voginn, fyrir mengun og halda áfram. ræktun hennar. Birgir Isleif- ur þakkaði boðið og tók und- ir með Steingrími um nauð- syn þess að standa vörð um þessa perlu höfuðborgarinn- ar. Efitir kaffiið var .skipt. um veiðiistaði og fór B?Fgiir upp í efri Móhyl, Gunnlaugur eitt hvað í uppána og Aðalsteinn í Sjávarfoss, þar sem hann landaði strax einum 5 punda fiski og missti annan. Birgir varð aðeiins var uppfrá en fékk ekki fteiri en bamm varð að fara um hádegisbilið. Er ekki ótirúlegt að firú Sonja hafi tekið manini sínum vel er hann kom heim að lokinmi velheppnaðri veiðiferð. — ihj Heffjið ekhi ferðalagið án ferðaslysatryggingar SJÓVÁ i » Ferðasíysatrygging Sjóvá greiðir bætur við dauða af slysfðrum, vegna varanlegrar örorku og viku- legar bætur, þegar hinn tryggðl verður óvinnufær vegna slyss. Viðbðtartrygging er einnig fáan- leg, þannlg að sjúkrakostnaður vegna velkinda og slysa, sem sjúkrasamlag greiðir EKKI, er inni- falinn I tryggingunni. Sökum mjðg lágra iðgjatda, þá er ferðaslysatrygging Sjóvá sj.' .,'sögð öryggisráðstöfun allra ferðamanna. Dæmi um iðgjöld: Tímalengd 14 dagar 17 dagar J mánuður Dánarbætur Ororkubætur 1.000.000,00 1.000.000,00 1.000.000,00^ Dagpeningar á viku 5.000,00 5.000,00 5.000 00 Iðgjald m/söluskatti og stimpilgjaldi 551,00 596,00 - 811,00 Aðrar vátryggingarupphæðir að sjálfsögðu fáanlegar. SJ0VA INGÓLFSSTRÆTI 5 REYKJAVÍK SÍMI 11700 UMBOÐSMENN UM LAND ALLT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.