Morgunblaðið - 21.06.1973, Síða 28

Morgunblaðið - 21.06.1973, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNl 1973 SAI GAI N Anne Piper: 1 Snemma í háUinn 9 klukkan ellefu að kvöldi. Ég á að gifta mig á morgun. — Einmitt þess vegna er ég hingað kominn, elskan. Ég vil að þú eigir fagrar endurminn- ingar um mig í þessu nýja lífi þínu. — Jack, þú hefur líka verið að drekka. . . — Auðvitað hef éj það, en bara ekki mikið, enn sem komið er. En þegar ég kem þangað aft- ur, ætla ég að verða álíka full- ur og Edward. Líttu bara á mig, Jenny. En það gat ég ekki, heid ur hélt ég bara áfram að íitla við snúruna í sloppnum mínum, og óskaði þess, að ég væri dauð. Hann gekk til min og settist hjá mér og lyfti á mér andlitinu, svo að táriin runnu niður kinnarnar. — HVers vegna geturðu ekki látið mig í friði? veinaði ég. — Tii hvers þurftirðu að vera að koma? Og svo þrýsti ég andlit- inu að öxlinni á honum og grét allt hvað af tók og hann léði mér vasaklútinn sinn eins og áð ur og hann var jafn óhreinn og áður, þrátt fyrir leigðu sam- kvæmisfötin, og loks fór ég að hlæja. — í>að er nú enn ekki orðið of seint, elskan, að bregða hon- um upp. — Jú, það er það, sagði ég, — og auk þess langar mig ekk- ert til að hætta við allt saman. Ég nýt þess fullkomiiega — nema þegar þú ert héma. Einhver hörkusvipur kom á andiitið á honum. — Ef svo er, elskan mín, þá ætla ég ekki að sleppa þér. Ég á þig að minnsta kosti í kvöld þó að hann Edward eigi þig á morgun. — Hvað áttu við? sagði ég og röddin var heldur betur vesæld- arleg. — O, þú veizt fullvel, hvað ég á við, sagði hann og leesti síðan dyrunum. Svo tók hann að af- klæða sig og fór að engu óðs- lega, tók allt upp úr vösum sín- um og raðaði því á borðið, rétt eins og við værum búin að vera gift árum saman. EJn á meðan skalf ég svo miíkið, að ég gat ekki ei-nu sinni staðið upp. — Ef þú kemur nærri rúminu, þá öskra ég upp yfir r.iig! sagði ég máttleysislega. — O, þú lætur það ógert, sagði hann. — Hvað heldurðu, Vegna styttri vinnuviku og þar er sumarleyfis- tíminn fer í hönd, verða verzlanir vorar lok- aðar á laugardögum fyrst um sinn. SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS. að fína tengdamamma mundi segja, af hún fyndi stóran karl- mann 1 herberginu þímu, kvöldið fyrir brúðkaupið? Auk þess er hún Anna frænka heyrnarlausa öðru megin við þig og baðher- bergi hinu megin, svo að enginn mundi heyra til þín. Ég hafði vit á að athuga þetta vandlega. — Guð minn góður, Jack! Þetta skal ég iauna þér þó síðar verði. Hann sneri sér við í gamla brúna sloppnum mínur.i, sem hann hafði tekið af hurðinni. — Vertu kát, etskan. >ú ert þegar búin að ná þér niðri á mér og vel það. Þú ert þegar bú in að særa mig meira en ég get nokkurn tíma hugsanlega sært þig. Farðu upp í! Þamniig fékk ég aldrei sviig- rúm tU þess að krulila á mér hárið fyrir giftinguna og hafði það því slétt upp að altarinu. Og svo svaf ég yfix mig í þokka- bót. Betsy kom með morgunmat- inn ásamt handfylli af skeytum klukkan ellefu. Þau voru öll frá vinum Edwards, þvi erngan átti ég vininn, að Jack undantekn- um. Ég hafði talið May fræmku trú um, að það væri alltof langt í þýáingu Páls Skúlasonar. fyrir hana að fara í brúðkaup- ið. En við ætluðum að heim- sækja hana saman næsta dag. Jack hafði sent mér afmælis- kort með einhverri andstyggi- legri vísu á. — Æ, Betsy, sagði ég. — Ég held ég sé alltof þreytt til að gitfta mig og vil helzt liggja í rúminu þangað til á morgun. Hvað er á seyði niðri? Betsy gekk út að gtugganum og dró frá honum, svo að ég sá sólima um- kringda regnskýjum. — Það er aUt í háaloftl. Ed- ward og Jack eru báðir þræl- timbraðir og eims og háifdauðir. AHt frændfólkið er að reyna að hjálpa, en mamma bregzt bara iíla við, og svo stanzar siminn aldrei. Bassett kemur til að hjálpa þér að klæða þig fclukk- an tólf, og við eigum að fá ein- hvem kaldan bita héma uppi ktukkan eitt. Betsy var eitthvað að gera við kjólimn minn og hún fleygði brennl á eldimm, svo að það var næstum orðio heitt þarna inni. — Þú mátt ekki sjá Fossvogur 4ra til 5 herbergja hæð í vestari hluta Fossvogs- hverfis óskast. Fjársterkur kaupamdi. EIGNAHUSIÐ Lækjargötu 6a. Símar: 18322 — 18966. velvakandi Veivakandi svarar í síma 1010C frá mánudegi til föstudags kl. 14—15. 0 Hljóinhurður Valdi skrifar: „Ég hef oft furðað mig á því, að ekki sé kvartað yfir hljómburði útvarpsiins. Á ég þar við hvað hann er mishár. Þetta á ekki síður við um sjón- varpið og er þá einna mest á- berandi þegar auiglýsingar eru. Þá getur hávaðinn aMt í einu orðið svo ofsalegur, að hlaupa verðu-r að tækih-u til þess að lækka í því. Því vek ég athygli á þesisu, að nýlega var ég staddur í húsi þar sem fólk var að horfa og hluftta á sjónvarp. Tók ég þá eftir því, að kona, sem þarna var eiimnig og sem notar heym- artæki, hrökk ila við þegar hávaðinn jókst. Augljóst var, að henn-i ieið verr en okkur hinum. Hér hlýtur að vera um tæfcni- lega galta að ræða, en þedr eru nú orðnir nokkuð langvarandi. Er þetta vegna kunináttuleysis eða trassaskapar þeirar, sem ei-ga að s-ti'Ma hljóðið? Valdi.“ Ekki vedt Velvak'andi það, en sjónvarpsmönnum er velkomið að svara fyrirspuimiinni á þess- um vetitvamigi. 0 Landhelgismálið Konráð Þorsteinsson, Háaleit- isbraut 18 skrifar: „Kæri Velvakandi. Ég get ekki orða bundizt um þá stórkostlegu atburði, sem gerzt hafa í yfirstamdandi þorskastriði. Þar kom að því, að Bretar gerðu okkur greiða og hann stóran, að visu óvilj- andí, sem von var, en jafn mik ilvægan fyrir okkur. Atferli STJÖRNUGRÓF 18 SÍMI 84550 Fjölærar plöntur (yfir 100 tegundir) Ribs, sólber, birki, brekkuvíöir og mispill í lim- geröi. _______________/ Breta að senda herskip inn í landhelgi okkar, hefir í eimni svipan gerbreytt allri aðstöðu, svo að segja má að héðan í frá, eigum við alls kostar við þá í þessu máli. Það er skemmtileg tilhugsun, að brezki-r togaraút- gerðarmenn skyldu verða til þess að leggja okkur upp í hendurnar þa-u vopn, sem okk- ur voru ákjósanlegust. Á máli skákmanna má segja, að útgerð armennirnir hafi sett „eitrað peð“ fram fyrlr brezk stjóm- völd, og brezka ljóndð ginið við agni-nu og gleypt það. Flestum munu nú þykja eftirfarandi við- brögð eðlileg áf okkar hálfu: — Að banna brezkum her- flugvélum afnot af íslenzkum flu-gvöllum. — Að slíta stjórnmálasam- bandi við Breta sem árásarað- ila. — Að engar samningaviðræð ur ei-gi sér stað meðan brezkir togarar eða herskip eru innan fimmtiu miilna markanna. — Samningunum við Banda- ríkjamenn um aðstöðu vamar- liðsins verði tafarlaust sagt upp og ekki endumýjaðir nema vaimariiðið haldi fisk- veiðd’landhelginni hreinni. Minna má á, að þegar samning- urinn var upþhaflega gerður, var m.a. sett það skilyrði fyrir dvöl vamarliðsins, að Banda- riMn viðurkenndu fullveldi ís- lands og ynnu að þvi, að aðrar þjóðir gerðu það einnig. Nú reynir á hvort hér er lið, lífs- hagsmunum okkar til vamar eða ekki. — Að sjálfsögðu á að kæra innrás brezka flotans til réttra aðila, oig ekki er víst að í bráð gleymist hér hin smekklegu um mæli, sem höfð voru í þessu samlbandi eftir „hugsjónamann- inum“ Willy Brandt, um lög- mæti og eðlUegheit innrásar- innar. Hið fáránl-ega og fá- vizkulega uppátæki Breta, að senda „flota hennar hátignar" til þess að rifja upp foman yfir gang Breta hér og morð þeirra á vestfirzkum sjómönnum í tíð Hannesar Hafsteins, mun þjappa íslenzku þjóðinni sam- an á hi-nn ákjósanlegasta hátt. Ástæða hefði verið tM þess að tiltæki Breta nú hefði verið fagnað á íslandi með því að draga hvern islenzkan fána að húni. Konráð Þorsteinsson." Það er einkennilegt, að svo voveiflega atburði sem ódæðis- verk fárra manna endur fyrir löngu, og það, að floti stórveld- is skuld vera farinn að herja í íslenzkri landhelgi, skuli þurfa til þess að við íslendingar stönd um saman, ein-s o-g bréfritari gef-ur i skyn. Spyrja má hvort við eigum að segja okkur úr Samein-uðu þjóðunum og öðrum samtök- um, þar sem aðildarþjóðirnar viðurkenna ekki landhelgi okk- ar. KAUPUM hreinar og stórar léreftstuskur i ■ 3Hbr0tmbTúílíí>

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.