Morgunblaðið - 24.07.1973, Page 4

Morgunblaðið - 24.07.1973, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ — ÞRIÐJUÐAGUR 24. JÚLÍ 1973 Bjl HÍI. iU H, I \ Æ’alur;' 22*0-22- RAUÐARÁRSTÍG 31 BÍLALEIGA CAR RENTAL Tf 21190 21188 li /£> 14444 f 25555 « mum BÍLALEIGA CAR RENTAL BORGARTÚM 29 AVIS SIMI 24460 c- BÍLALEIGAN 51EYSIR CAR RENTAL CAR RENTAL TDAIICTI BÍLALEIGA TRAUSTI l»VERHOLT 15ATEL. 25780 BÍLALEtGA JÓNASAR & KARLS Ármúla 28 — Sími 81315 eiLALEIGA BORGARHESS Kveldúlfsgötu 19, sími 93-7298. FERÐABlLAR HF. Bílaleiga. - S.mi 81260. Tveggja manna Citroen Mehari. F mm manna Cítroen G.S. 8—22 manna Mercedes Benz hópferðabílar (m. bílstjórum). SKODA EYÐIR MINNA. Shodh LE/GAN AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 42600. STAKSTEINAR Skattaálögurnar Athyglisvert er að fylgjast með skrifum stuðningsblaða ríkisstjórnarinnar um skatta- mál um þessar mundir. Skatt skrárnar hafa verið birtar og sýna öðru sinni, hversu óskyn samleg skattastefna ríkis- stjórnarinnar er. Jafnvel hin einstrengingslegu stnðnings- blöð ríkisstjórnarinnar hafa tekið undir kröfur stjórnar- andstæðinga um breytta stefnu í þessum efnum. Tekjuskattarnir eru nú orðn ir meginhlutinn af opinbertim gjöldum skattgreiðenda. Er það glöggt dæmi um, hvernig rikiskerfið hefur verið þanið út. Þegar skattalögin voru sett á sínum tima, básúnuðu stjórnarblöðin. að skattar myndu lækka á þorra gjald- enda. Reynslan hefur nú sýnt annað, og af þeim sökum hafa stjórnarblöðin neyðzt til þess að taka undir kröfur stjórnar andstöðunnar um nýja stefnu í skattamáium. Dagblaðið Timinn reynir þó að bera í bætifláka f.vrir rík- isstjórnina sl. sunnudag með því að halda fram, að skattar séu nú lægri en áður á meðal- tekjur og lágtekjur. Ritstjóra Tímans er þó vafalaust ljóst, að fullyrðing hans um þetta efni er röng. Einn megingall- inn á skattakerfi núverandi ríkisstjórnar er einmitt sá, að skattaálögurnar leggjast með mestum þunga á fólk með miðlungstekjur og lágar tekj- ur. Samtöi Morgunblaðsins við nokkra hafnarverkamenn sl. laugardag sýna svo að ekki verður um viilzt, að skatta- stefna ríkisstjórnarinnar bitn ar mjög liarkalega á þeim hópi manna. Hvort sem það hefur verið ætlun ríkisstjórnarinnar eða ekki að leggja þyngstu byrð- arnar á láglaunafólk og eldra fólk, þá hefur sú orðið raunin á. Að vísu var gerð nokkur Ieiðrétting að þvi er eldra fólk ið varðar i fyrra, enda var þar um hneyksli að ræða. Ef hér var ekki um ætlunarverk að ræða, þá sýnir það áðeins stjórnleysið og ringulreiðina, sem virðist alls ráðandi i öil um gcrðum ríkisstjórnarin- anr. Lúðvík biður um hjálp Sú ákvörðun stjórnarflokk- anna að hefja hyggingu nýs Seðlabankahúss hefur valdið gífiirlegum deilum innan þeirra og þó einkanlega á milli Þjóðviljans og Tímans. Þessi höfuðmálgögn ríkisstjórnar- innar reyna nú allt sem þau geta til þess að koma sökinni af sínum flokki og yfir á sam starfsflokkana. Að vísu heyr ir þetta til venjuhelgaðra vinnubragða innan þessarar ríkisstjórnar. En i þessu til- viki hafa öldur illdeilna risið hærra en oftast áður. Timinn hefur þráfaldlega í forsíðufrásögniim og forystu greinum lagt áherzlu á, að Lúðvík bankamálaráðherra bæri alla ábyrgð á fram- kvæmdagleði banknas og gæti einn stöðvað hana. Þjóðvilj- inn segir svo enn í forystu- grein sl. sunnudag, að fullyrð ingar Tímans um þel.ta efni séu fráleitar: Lúðvík geti með engu móti skipað undirmönn- um sínum fyrir verkum, nema ráðherrar hinna flokkanna komi honum til aðstoðar. Boltanum hefur sem sagt verið varpað í hendur Fram sóknarráðherranna. Nú er það bara spurningiu, hvort þeir koma Lúðvík til hjálpar. * ORÐ I EYRA Sumarleyfi Þá eru nú sumarteyfin vin- sœlu byrjuð fyrir alvöru, og þeir, sem hafa ekki efni á að kaupa sér hjólhýsi eða ferða- grill, verða að láta sér nægja að skreppa til Mæorku eða kosta uppá sig delasól eða kvað það er nú kallað sólskin ið þarna suður á Spáni. Að vlsu er ednstaka maður svo heppion að hafa tekið svo kallaða veiðiveiru. Af slíkum þarf eingar áhyggjur að hafa. Ef þeir geta komizt í sbraum- vatn fyrir smápeníng eða sii úngapoll fyrir enn minna, þá meiga öll hjólhýsi og all'r grill ofnar heimsins fara veg allr- ar veraldar fyrir þeim. Meira- aðsegja Mæorka, sem verður, hvað líður, kunnari sönnum Íslendíngum en Hafnarstræti og skólavörðu'holt, mætti leysast upp í sína frumparta ásamt með öllu, sem á henni iðar, án þess nokkur sæi þeim bregða. >ví hvað er hjólhýsi á við flugu? Og hvað er Mæorka á við maðk? Sú tíð er laungu fyrir bí og kemur sjálfsagt aldrei aftur fremuren aðrar tíðir, að landi.nn sigli til Kjöben og komi heim forframaður og margvís og tyggi uppá dönsku. Nú gistir landinn mennlngarpláss við Miðjarðar haf og Svartahaf, og eingum dettur í hug að gera kröfu til þess, að hann komi margs vísari heim. Hinsvegar þarf hann nauðsynlega að dökkna á húð og þýðíngarmiikið er að eiga litmyndir af hótelum og baðströndum, sem auðvdt- að eru því merkilegri, sem mör landiinn hefur haft óljósari nasasjón af umhverfinu. — Það eru semsagt ýmsir möguleikar i sumarfríinu, eins og þeir fóstbræður Gvuðrti og Ingó'lfur, vita. Ef metwi nota það þá bara ekki í að byggja og geyma sér svoköll- uð sólariönd, hjólhýsi og veiði stángir, þartil fjölskyldugaller áið er að minnstakosti til- búið undir tréverk. Hvað segir Jóhann G. í fréttum? JÓHANN G. .lóhannsson var fyrir nokkru í London og hljóðritaði þar sex lög sín til útgáfu á plötum hér heima og e.t.v. eriendis. Poppkorn sagði frá ferð hans og dvöl i London á síntim tíma, og nú rifjurn við það upp aftur, í til- efni af því, að nú er verið að gefa út á íslandi fyrstu plöt- una með afurðum ferðarinn- ar. Platan er tveggja laga og heita lögin „Don’t try to fool me“ og „Fifth floor“. Útgef- andi plötunnar er hljómplötu- fyrirtækl, sem Á.Á. nefntst og er í eigu Ámunda Ámunda- •Tóhann G. Jóhannsson. sonar, sem um langt skelð hefur rekið umboðsskrifstofu fyrir hljómsveitir. Ef Popp- kornstölvan man rétt, er þetta þriðja platan, sem Á.Á. gefur út, en hinar tvær voru plata fxiga, sem nýkomin er á markað, og hin sérstæða plata .Tóhanns G. með lögun- um „Brotinn gítar“ og „Þögn- in rofin“. Við spurðum Jóhann um daginn, hvernig sú plata hefði selzt. „Nokkuð vel,“ sagði hann. „Ég tók hana með mér til London og leyfði fólki að heyra. M.a. hitti ég fransk- an náunga, sem hefur gefið út sérstæðar plötur, t.d. eina, þar sem hann leikur aleinn á kontrabassa. Hann varð mjög hrifinn, þegar ég gaf honum eitt eintak af minni plötu, og lionum þótti hún mjög at- hyglisverð." En hvað vill Jóhann segja um þessa nýju pltttu sína, svo og hin lögin, sem hann hljóð- ritaði í Ijondon? „Auðvitað er maður aldrei fullkomlega ánægður og gjarnan hefði tím inn í upptökustúdíóunum mátt vera lengri. En samt er ég á vissan hátt ánægður, því að þetta er í rauninni fyrsta skipti, sem ég kem fram með mína eigin tónlist. Ailt það, sem ég hef samið áður, hef- ur verið undir áhrifum frá öðrum listamönnum. En nú hefur mér tekizt að losna und an áhrifunum — eða svo virð- ist mér — og skapa núna ein- göngu mína eigin tónlist." I Lundúnaferðinni reyndi Jóhann lítillega fyn. sér með að ná sambandi við þarlend plötufyrirtæki og virðist það hafa gengið framar vonum. Fljótlega eftir að hann kom heim, fékk hann bréf frá Der- ek Wadsworth, sem var hon- um hin mesta hjálparhella í sambandi við plötuupptökurn- ar. 1 bréfinu sagði Derek, að A&M plötufyrirtækið hefði sýnt tónlist Jóhanns mikinn áhuga og viidi fá 15—20 lög til viðbótar á segulhandi til athugunar. Þá hafa fjársterk- ir einstaklingar einnig sýnt áhuga á að sjá um útgáfu á plötum Jóhanns, þ. á m. einn, sem var að hugsa um danska markaðinn. Jóliann er því sæmilega bjartsýnn á framtíðarhorfiim ar og síðast, er Poppkorns- ritari ræddi við hann, kvaðst hann nú ætla að einbeita sér að því að koma lögum sín- um á band til að senda A&M. Af nógu er að taka af nýjum lögum, því að Jóhann hefur algeriega helgað sig tónlist- arsköpuninni undanfarna mán uði — og aðeins gert hlé til að mála.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.