Morgunblaðið - 11.08.1973, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.08.1973, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 11. ÁGÚiST 1973 Austin Mini 1000 MINI kom fyrst á markaðin.n í heimalandi slnu Bretlandi ár ið 1959. Hönnun bílsins þótti þá mjög óvenjuleg og þurftu sumir nokkurn tima til að venjast honum. En Mini’inn seldist fljótt mjög mikið og s.I. haust varð Miini fyrsti brezki bíilinn, sem smíðaður hefur verið í yfir 3 milljón eintökum. Mini hefur ekki breytzt mik ið síðan hann kom fyrst á markaðínn utan smávægilegra breytinga að innan og aukins úrvals véla. Gerðin, sem seld er hérlendis nú er Mini 1000. Lítiil bíll, mjög hentugur i borgarumferð og þarf ekki stórt bílastæði. Mini er skráð- ur fyrir fjóra farþega. Þyngd arpunkturinn er lágt og með framdrifi liggur bil'linn frá- bærlega og er hægt að aka ó- trúlega hratt í beygjuir á hon- um. Vélin er 38 hestöfl, fjögurra strokka og liggur þvert. Þjöpp unarhlutfallið er 8,3:1. Vatns- kassi og vifta eru tiii hliðar í stað þess að snúa beint fram eins og algengast er. Kæling- in er nægi'leg þrátt fyrir þetta. Kveikjulokið er hins vegar alveg frammi við grill- ið en varið raka með plast- hlíf. — Viðhragðið 0—80 km/ klist. er um 14 sek. og há- markshraðinn yfir 130 km/ klst. Mini 1000 vegur rúm 600 kg óhlaðinn. Bremsur eru með borðum á ölium hjólum og fjaðrabún- aður er sjálfstæður fyrir h vert hjól. Hita- og loftræstikerfið mætti vera kraftmeira en það er. BKlinn er ekki hentugur á slæmum vegum vegna þess m.a. hversu hjólin eru lítil, en í innanbæjarakstri jafnast fá:ir á við Mini’inn. — Mæla- borðið er mjög einfalt og öll- um nauðsynlegum viðvörunar ljósum, éisamt hraða- og kiló- metramæli komið fyrir á einni skífu. Helztu keppinautar Mini eru Fiat 127 og Renault 5. Þess má h:ns vegar geta að þrátt fyrir fjöida ítalskra smá bíla hefur Mini selzt einstak- lega vel á Ítalíu. I>að er kannski ekki til fyrirmyndar að leggja svona, en gef- ur nokkra hugmynd um stærð bilsins. Vélin er 38 hestöfl og liggur þvert. Austin Mini 1000. P. Stef., sem tók við Mlni umboðinu ekki all's fyrir löngu er nú að koma sér upp mjög fulikomnum varahlutalager og verkstæði i húsnæði sínu v:ð Hverfisgötu 103. Austin Mini 1000 kostar um kr. 290 þúsund. SKAI Smyslov slapp með skrekkinn ÞEGAR þetta er ritað, hafa litlar fregnir borizt af milli- svæðamótinu, sem nú fer fram í Petrópolis í Brasilíu. Þó er vitað, að eftir níu um- ferðír voru þeir Ljubojevic (Júgósl.) og Portisch (Ungvl.) efstir og jafnir með 9(4 v. hvor. Portisch var af flestum spáð sigri i upphafi mótsins en frammistaða hins unga júgóslavneska stórmeistara kemur nokkuð á óvart. Ljubojevic hefur að viisu oft náð mjög góðum árangri en hann tefiir mjög djarft og fær því harða skelli inn á milli. Þá ber og að hafa í huga, að staðan í dag getur gefið villandi mynd af tafl- mennsku keppenda, þar sem sovézku stórmeistaramir hafa flestir teflt SEuman í fyrstu umferðumum. Það er kannski til litils að vera með mi'klar bolialeggingar enn sem kom- ið er, en ég spái því, að þeir Portisch og Poluigajevs'ky verði í tveim efstu sætunum en baráttan um þriðja sætið sÞndi á milli Geilers, Hort, Ljubojevic og Panno. En lit- um nú á skemmtilega skák frá mótinu. Þeir, sem eigast við, eru Lian Ann Tan, full- trúi Austur-As'íu, og fyrrver- andi heimsmeistari, Vasily Smyslov. Hvítt: Lian Ann Tan (Singapur). Svart: Vassily Smyslov (Sovétríkin). Pirc-vöm. 1. e4 — d6, 2. d4 — Bf6, 3. Bc3 — g6, 4. Bc4 — Bg7, 5. De2 (M. Tal beitir þessari upp- byggingu gjaman, en önnur góð leið er hér 5. f3, ásamt Be3, Dd2, 0-0-0 og síðan h4). 5. —c6, 6. e5!? Vassily Smyslov (Tan leggur ótrauður til atlögu við hinn fræga fyrir- renmara sinn. Róiegri og ör- uggari leifcur var hér 6. Bb3). 6. — Bd5, 7. Bd2 (Auðvitað ekki 7. Rxd5 — cxd5, 8. Bxd5 — Da5f, og svartur vinnur mann). 7. _ 0-0- 8. 3b3 — a5, 9. a4 — dxe5, 1». dxe5 — Ba6, 11. Bf3 — Bc5, (Smyslov tryggir sér bisk- upaparið, sem oft hefur reynzt hættulegt vopm í iiöndum hans. 1 þessari skák 'kemur það þó að litl- um notum, þar sem peðið á e5 lokar svarta kóngs- biskupinn inni). 12. Bxd5 — cxd5, 13. Be3 — Be4, 14. Bd4 — Exc3, 15. Bxc3 — b6, 16. Dd2 — Ba6, (Þessi bisltup er hálfgerður vandræðagripur í stöðunni, en þessl reitur er þó senni- lega sá skásti fyrir hann). 17. h4 — Dd7 ?! (Með þessum leifc leggur Smyslov út í vafasamt ævintýri. Hann vinnur að vísu peð en staðan verður etoki upp á marga fisfca. Til álita fcom að reyna að hamla á móti kóngssóknar- áformum hvíts og leika 17. — h5). 18. h5 — Dg4, (Nú er að hrökkva eða stökikva). 19. 0-0-0 — Dxa4, 20. Kbl — Hfc8, 21. Hli4 — De8, (Ekki 21. — Hc4, vegna 22. b3 — Dd5, 23. Rd4 og hvít- ur vinnur a. m. k. skipta- mun). 22. hxg6 — hxg6, 23. Hdlil — Hc4, 24. Hh7?? (Hér slapp heims’meistar- inn fyrrverandi svo sannar- lega með skrekkinn. Eftir 24. Hh8f!! — Bxh8, 25. Hxh8f — Kxh8, 26. Dh6f — Kg8, 27. e6, er svartur óverj- andi mát í 2. leifc). 24. — Df8, 25. e6 — Hxc3, (Eina leiðin, sem gefur svörtum nokkra von um björgun. 25. — f6 gæti hvít- ur svarað með 26. Rg5 eða einfaldlega Dd3). 26. exf7f — Dxf7, 27. bxc3 — Hd8, 28. Be5 — Df6, 29. f4 — d4, 30. g4 — Bb7, 31. Hlh3 — Hd5, 32. cxd4 — Dd6, 33. Dh2 (Hér var hvítur í gifurlegu timahraki, en ég fæ efcki betur séð en hann geti enn unnið í þesisari stöðu með 33. Hxg7f — Kxg7, 34. f5, t. d. — Hb5t, 35. Ka2 — Bd5t, 36. c4). 33. — Db4t, 34. Ka2 — Da4t, 35. Ha3 — Dxd4, 36. Hxg7t — Kxg7, 37. Hh3 og um leið og hvítur lék þessum leik fór hann yfir tímamörkin. •lón I>. Þór.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.