Morgunblaðið - 11.08.1973, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 19T3
17
Norræn menn-
ingarmiðstöð
NORRÆNA menningarvikan. í Háss-
elby slott er haldin árlega og hefur
það markmið að auka þekkingu fólks
á norrænni menningu, bókmenntum
og listum. Hásselby stofnunin er rek-
in af norrænu höfuðborgunum sam-
eiginlega, í stjórn hennar eru fulltrú-
ar höfuðborganna og tveir fulltrúar
Stokkhólmsdeildar Norræna félags-
ins. Forstjóri stofnunarinnar er Birg-
er Olsson. Á þessu ári er stofnunin
tíu ára.
1 Hásselby slott hafa einkum verið
haldnar ráðstefnur um félagsleg efni
og fjölmörg námskeið. Sameiginleg
áhugamál höfuðborganna, framtiðar-
skipulag, skólamál, umhverfisvernd,
er meðal þess, sem verið hefur á dag-
skrá. Auk hinnar umfangsmiklu fé-
lagslegu starfsemi hefur verið lögð
áhersla á að kynna myndlist og tón-
list frá Norðurlöndum. Níu sýningar
norrænnar nútímamyndlistar hafa ver
ið haldnar í Hásselby slott með verk-
um eftir samtals 358 listamenn. Auk
þessara sýninga hefur verið haldin
sýning á teikningum skólabarna frá
Kaupmannahöfn, sýningin 10 norr-
ænir nútímamálarar og íslensk nú-
tímamyndlist. Nýr sýningarsalur var
tekin í notkun í lok síðasta árs, Gal-
erie Piaisiren, og þar stendur nú yíir
fyrsta einkasýningin, plastmyndir eft
ir rriyndhöggvarann Per-Erik
Willö. Myndir Per-Eriks Willö eru
heimildir um liðna tíð, Hfið í skánska
þorpinu Husie by, þar sem hann fædd
ist árið 1921. Hann er staðráðinn i að
gefa tæmandi mynd af Hu&ie og íbú-
unum þar. Sá, sem sér sýninguna,
trúir þvi vel að Per-Erik Willö muni
ljúka ætlunarverki sínu. Pað var
skemmtilegt að skoða sýninguna und-
ir leiðsögn hans sjálfs, en myndirnar
eru i naivískum stíl, tilfimning lista-
mannsins gagnvart viðfangsefninu
innileg og barnsleg.
Forstjóri Hásseiby slott Birger Ols-
son var áður ritari í Svíþjóðardeild
Norræna félagsins en hann hefur
stjórnað Hásselby stofnuninni frá
upphafi. Birger Olsson er mikill Is-
landsvinur, ritari í félaginu Sver-ige-
Island, en það félag hefur greitt götu
margra Islendinga i Sviþjóð, meðal
annars styrkt íslenska blaðamenn til
Svíþjóðarfarar. Birger Olsson hefur
hug á því að efla tengsl íslendinga
við Hásselby slott. I tilefni 1100 ára
afmælis Reykjavíkur á næsta ári
mun Hásselby stofnunin efna til sýn-
ingar á teikningum reykvískra skóla-
barna, íslenskir myndlistarmenn
munu sýna og ef til vill lesa islenskir
rithöfundar úr verkum sinum. 1 sam
vinnu við Författarcentrum í Stokk-
hólmi verður á næsta ári haldið þing
rithöfunda frá Norður-Sviþjóð, Norð-
ui’-Noregi, Norður-Finnlandi og Is-
landi í Hásselby slott. Islendingar
tóku nú í fyrsta sinn þátt í norrænu
menningarvikunni Vár tids kultur i
Norden, en Birger Olsson hyggst
stefna að því að íslendingar verði
þátttakendur í framtíðinni, íslensk
menningarmál eða listir verði fastur
iiður vikunnar. Þess ber að geta að
Hásselby slott er ekki eini vettvang-
ur menningarsamvinnu 1 Svíþjóð. 1
Biskops Arnö er líka töluverð starf-
semi, en hún er einkum bundin við
bókmenntir.
Birger Olsson sagðist njóta starfs-
ins i Hásselby slott. Það væri lær-
dómsrikt og að sínum dómi ákaflega
mikilvægt. Hann sagði að Hásselby
stofnunin hefði þeim tilgangi að
þjóna að efla norræna samkennd;
með því að hittust i Hásselby lærðu
þjóðirnar hver af annarri. Norrænt
samstarf gengi hægt, en þolinmæði
yrði að hafa. Ef til vill er norræn
samvinna ekki nauðsynlegust af öHu,
sagði Birger Olsson þegar ég minnti
hann á þá gagnrýni, sem beinst hef-
ur gegn henni, nauðsynlegast er að
veita vanþróuðum þjóðum stuðning,
en til þess að unnt sé að vinna sam-
an að alþjóðlegu samstarfi þurfa ná-
grannaþjóðir að geta talast við. í>að
er einkum þegar mikill vandi er á
ferðum, samanber eldgosið í Vest-
mannaeyjum, að norrænu þjóðirnar
finna hve mikfflvægt er að standa
saman, að það er skylda þeirra að
rétt hver annarri bróðurhönd.
Þannig talaði þessi mæti fulltrúi
norrænnar samvinnu, maður, sem
vinnur að raunverulegum tengslum
norrænna þjóða, en hafnar há-
stemmdu orðagjáifri skálaræðanna.
Honum hefur tekist að gera Hássel-
by slott að sannkallaðri menningar-
miðstöð.
Húseiningar hf. á Siglufirði:
Heildarframleiðslan getur farið í
100 hús á ári
Rætt við Kristján Sigtryggs-
son og Skúla Jónasson
í hinni alhliða uppbyggingu
atvinnulífsins á Siglufirði er
eitt fyrirtæki, sem er öðrum
nýstárlegra. Það er hlutafé-
lagið Húseiningar, sem vænt-
anlega mun hefja verk-
smiðjuframleiðslu íbúðarhúsa
seinna á þessu ári. —
Þegar blaðamaður Morgun-
blaðsins var á Siglufirði fyrir
skömmu var ætlunin að hitta
að máli framkvæmdastjóra
fyrirtækisins, Knút Jónsson,
en hann var í viðskiptaerind-
um fyrir sunnan. Snerum við
okkur því iil Kristjáns Sig-
SIGLUFJÓRÐUR
tryggssonar, stjórnarfor-
manns fyrirtækisins, og Skúla
Jónassonar, ritara, og báðum
þá að segja okkur frá fyrir-
tækinti í stórum dráttum.
Húseiningar hf. var stofnað
á síðasta ári, og nemur hluta-
fé þess nú um 7,5 milljónum,
og eyksit stöðugt. Stærsti
hluthafinn er Siglufjarðar-
bær með 2 milljónir, en næst
stærst-i hluthafinn er verka-
lýðsfélagið Vaka með hálfa
millljón. Alls eru hluthafar
101 talsins, einistakiingar og
félög, með hi.utafé frá 10 þús-
und krónum upp í 2 milijónir,
sem fyrr segir.
Kristján og Skúli sögðu, að
fyrirtækið fengi fyrst um
sinn inni í húsnæði Tunnu-
verksmiðju ríkisins, sem nú
er ekki starfrækit. Lægi nú
fyrir að rýma það húsnæði
bæði af vélum og birgðum.
því væntanlega væru vélarn-
ar í húsaverksmiðjuna á leið-
innd til landsins.
— Við vonum að framleiðsl-
an geti haCizt á næsitu Vilkum,
því ekki ætti að vera mikið
verk að setja upp vélarnar,
og ailt annað er tilbúið. Við
fáum væntanlega afn-ot af
Kristján Sigtryggsson og Ski'di Jónasson
tunnuverksimiðjunni um nokk
urn tíma, a. m. k. á meðan
bann við síldveiðum er í gildi,
en í framtíðinni verður vafa-
laust ráðizt í að byggja nýtt
húsnæði fyrir starfsemina.
— Eru þesisi hús að ein-
hverju leyti frábrugðin þeim
húsuim, sem Viðlagasjóður
hefur flutt inn á síðustu mán-
uðum?
— Þau eru að því leyti frá-
brugðin Viðlagasjóðishúsun-
um, að þau eru í fyrata lagi
byggð í smærri einingúm. í
öðru lagi eru þau hönnuð hér
á landi og styrkt talsvert
fram yfir skandiinavísku hús-
in fyrir vindi og vatni. Hús
þessi eru teiknuð af Helga
Hafiiðasyni, arkitekt, og hef-
ur Edgar Guðmundsson í
verkfræðiþj ónustustofu Guð-
mundar Óskar&sonar séð að
mestu um verkfræðillega hönin
un þeirra. Hugmyndina að
Framliald á bis. 23