Morgunblaðið - 22.09.1973, Side 12

Morgunblaðið - 22.09.1973, Side 12
12 MORGU’NBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1973 f#e 1 \ t 1 / forum world features OLIAN, HIÐ HÁRBEITTA VOPN ARABA Hversu reiðir, sem fílistearn- ir hafa verið, þegar Davíð grandaði risanum þeirra, Goliat, með steinvölu, eru Bandarikjamenn, gnægtaþjóð- in mikla, voldugasta riki, sem sögur fara af, áreiðanlega hálfu reiðari nú, er þeim er ógnað af vesölum eyðimerkurrikjum, sem vart hafa á að skipa meiri mannafla en 20 milljónum, ef allt er talið, karlar, konur og börn. Það gremjulegasta við þetta vopn, sem nú er beitt gegn Bandarikjamönnum og er raun- ar eins lítið, slétt og fellt og steinvalan hans Davíðs er það. að Bandaríkjamenn munu að öllum líkindum standa ger- samlega ráðþrota gagnvart þvi. Saudi Arabia og litlu oliurikin við Persaflóa hafa nefnilega ekki í hyggju, að gera neitt rót- tækt, svosem að stöðva olíusölu eða annað, sem bryti í bága við alþjóðalög. Þeir segja einungis, að þeir neyðist til að hætta við aukningu á olíuframleiðslunni. En það er nóg. Hinar áhrifa- miklu aðgerðir Kadaffís, þjóð- arleiðtoga Libyu, eignaupptaka olíufélaga, lokun á höfnum landsins fyrir þeim oliuskipum, sem neituðu að framselja rétt- indi leigutakans, það að neita að taka við greiðslu í Bandaríkjadölum fyrir oliu selda i Bandarikjunum, — I stuttu máli, allar þessar að- gerðir, sem vakið hafa heimsat- hygli, myrxiu aðeins valda gremju og óþægindum, ef ekki væri hætta á, að rikin á austan- verðum Arabiuskaga gripu til svipaðra aðgerða. 'tin fimm meiriháttar oliu- ..„•ög í I .darikjunum og Royal Dutt.i Shell, sem orðið hafa fyrir barðinu á þjóðernis- stefnu Kadaffis, geta I mörgum tilvikum stöðvað sölu á olíu, sem þeir hafa keypt frá Libyu með þvi að höfða mál, þar sem olfunni er skipað á land og einn ig með þvi að kæra til Alþjóða- dómstólsins í Haag eins og British Petroleum gerði, eftir að Libyumenn þjóðnýttu oliu- vinnslu þeirra árið 1971. Þau myndu njóta stuðnings ríkis- stjórna í Vestur-Evrópu og Ameríku. Einnig hefur getum verið að því leitt, að sjötti floti Bandarikjamanna setji hafn- bann á hafnir í Libyu, sem er ósennilegt, og Nixon forseti hefur lagt til að samkomulag verði gert um að hætta öllum olfuviðskiptum við Libyu, en undirtektir VesturEvrópu- þjóða þar að lútandi hafa verið dræmar, þar sem þær kaupa megnið af henni. En hætt er við, að þessar aðgerðir geti á engan hátt klekkt á Kadaffi, þar sem hann hefur þegar dreg- ið úr framleiðslu sinni, sem var 116 milljónir tonna á síðasta ári en 160 milljónir árið 1970, og samt á hann varasjóð, sem nem- ur 1.000 milljónum sterlings- punda og gæti með honum haldið ríki sínu gangandi i ára- tug án þess að selja svo mikið sem eitt gallon af oliu. Mótleik- ur hans gæti verið sá að þjóð- nýta allar eignir Breta og Bandaríkjamanna til fullnustu í stað þess að þjóðnýta aðeins 51%, eins og hann hefur I hyggju, enda þótt hann hafi næstum enga þjálfaða menn til að starfa við iðnaðinn. MIKLAR BIRGÐIR Ríkin á austanverðum Ara- bíuskaga eiga lika miklar olíu- birgðir og þvi fer fjarri, að þau þurfi að nýta allar tekjur sfnar af oliusölu til venjulegra þarfa, og þetta styrkir stöðu þeirra. Sennilega hefðu þau öll mestan hag af þvi að draga úr oliufram- ieiðslunni, þvi að hráefnið í jörðinni hækkar óðfluga i verði, en hagnaðurinn af olíu- sölunni, sem þeir leggja I banka, rýrist stöðugt að raun- gildi, eða sú hefur þróunin orðið einkum sl. tvö ár. Þeir ráðherrar Arabarikjanna, sem með olíumál fara, geta hæglega sagt að þeir geri Japan og iðnaðarrikjunum á Vestur- löndum nægilegan greiða með þvi að vinna eins mikið magn af olíu og þeir þegar gera. Aðalástæðan fyrir yfirvof- andi orkukreppu, sem svo hef- ur verið nefnd, og það, sem hefur fært Aröbunum „oliu- vopnið" I hendur, er hin gífur- lega þörf Bandaríkjamanna. í Bandarikjunum búa aðeins 6% jarðarbúa, en oliuneyzla þeirra nemur 33% af þvf oliumagni, sem framleitt er í heiminum. Ríkisstjórnin ætlar nú að nýta hinar geysimiklu oliubirgðir sfnar f Alaska og hefur sam- þykkt eftir 5 ára tafir að láta flytja olíu þaðan f leiðslum. Ennfremur er frekari kola- vinnsla ráðgerð og auknar rannsóknir á sólarorku og notkun kjarnorku f iðnaði. A hinn bóginn ætla Efna- hagsbandalagsrikin að nýta eins fljótt og unnt er olíu- lindirnar á botni Norðursjávar, sem geta séð fyrir allt að helmingi af orkuþörf Bretlands og þörf ríkjanna á meginland- inu að verulegu loyíi. Þá var ráðgerð frekari kolavinnsla og nýting orku í öðrum myndum. En það eru ár og dagur þar til þessar kostnaðarsömu fram- kvæmdir geta dregið úr þörf- inni fyrir oliu frá Arabaríkjun- um, svo að nokkru nemi. Bandarikin hafa sjálf kallað orkukreppuna yfir sig með heimskulegu atferli, skorti á langtíma áætlunum, hindr- unum áróðursaðila, og f siðasta lagi mótmælum um- hverfisverndunarmanna, sem lögðu stein f götu þeirra, er vildu leggja olfuleiðsluna frá Alaska. Sl. vetur var olíuskort- ur f Mið-Vesturríkjunum og á þessu ári verður bæði skortur og skömmtun á ýmsum olíuteg- undum. Arið 1967 fluttu Banda- rfkjamenn inn aðeins 300.000 olfutunnur á dag að jafnaði, og því er spáð, að árið 1980 flytji þeir inn um 15 milljónir af olfu- tunnum daglega, einkum frá Mið-Austurlöndum. Þessa þró- un hefði verið unnt að sjá fyrir, og það gerðu raunarýmsir fyrir mörgum árum. Þá voru til næg- ar birgðir i landinu og Banda- rikjamönnum hefði gefizt ráð- rúm til að leita skipulega eftir orkugjöfum f annarri mynd. Feisal konungur Saudi Arabíu hefur beðið þolinmóður eftir þessum bráða og knýjandi olfuskorti Bandaríkjamanna, þvf að hann sá hér leik á borði gegn Israel. Feisal hefur þrisvar áður lagt á ráðin um notkun þessa vopns i átökum Araba og Israela, árin 1948—1956 og 1967. 1 þessi skipti reyndist það haldlftið af þeirri einföldu ástæðu að til var nægileg olía á Vesturlöndum til að mæta þörfum Evrópuríkja. Að undanförnu hefur fast verið lagt að Feisal, að hann hætti oliusölu til Bandaríkjamanna vegna stuðnings þeirra við Israela. Hann hefur hins vegar látið sér nægja að senda vin- samlegar aðvaranir til Hvfta hússins, hann svaraði eftirfar- andi til, þegar Sadat Egypta- landsforseti og fleiri Arabaleið- togar hvöttu hann til róttækari aðgerða: „Vopnið okkar getur aðeins orðið raunhæft, þegar Bahdarikjamenn eru i knýjandi þörf fyrir oliu, — og sá tfmi nálgast óðum. Við þurfum ekki að hætta framleiðslu okkar, og jafnvel ekki að draga úr henni. Með þvf móti gætum við skaðað vinaþjóðir okkar í Evrópu, og hver veit, hvernig okkur reiðir af, ef allur heimurinn er okkur andvigur. Ég er sá aðili, sem selur mesta olíu til Bandarfkj- anna, og ég þarf ekki að gera annað en hafna tilmælum um að auka framleiðsluna að þvi marki, sem Bandarfkin þurfa á að halda til að mæta vaxandi olíuneyzlu i landinu. Engin al- þjóðalög geta svipt mig heimild til að fara sparlega með olfuna f landi mfnu, né heldur getur nokkurt erlent rfki gert réttlæt- anlegar ráðstafanir til að koma f veg fyrir, að ég hrindi fyrir- ætlun minni í framkvæmd." Um mjög svipað leyti og Feis- al konungur flutti Sadat þenn- an boðskap sinn, kom Frank Jurgens til Riyadh, en hann er forseti bandarfska olfufélagsins Aramco, sem sér um vinnslu og dreifingu á nærfellt allri olíu frá Saudi Arabfu. Erindi hans var að biðja konung um leyfi til framleiðsluaukningar f áföng- um eða frá 8 milljónum tunna á dag upp í 20 milljónir, hvorki meira né minna. 1 þetta sinn voru viðtökur Feisals ger- sneyddar þeim hjartanleika, sem hann hafði áður sýnt Jurgens. I stað þess svaraði hann kuldalega: „Við núver- andi aðstæður, er mér ógerlegt að verða við þessari beiðni eða viðhalda vináttu við þjóð yðar. Þjóðernistilfinning mfn gerir mér ókleift að svikjast undan merkjum, þar sem orkan, er við framleiðum, er notuð til að veita Israelum ótakmarkaðar birgðir vópna og flugvéla og styðja þá gegn okkur i hvi- vetna.“ Jurgens kom fram i sjónvarpi f Bandarfkjunum nokkrum dögum siðar og hafði eftir þessi orð, bandarísku þjóð- inni til viðvörunar. Sagðist hann álfta, að ef til annarrar styrjaldar kæmi milli Araba og tsraela, þá yrðu Bandarikja- menn f vonlausri aðstöðu. Fyrir nokkrum mánuðum gerði Fulbright öldungadeild- arþingmaður, formaður utan- rikismálanefndar Bandarfkja- þings, grein fyrir þvi, hversu alvarlegt ástandið væri, er hann sagði, að Bandarfkjamenn þyrftu ef til vill að tryggja olfu- flutninga til landsins með hernaðaraðgerðum, og gerði þvf jafnvel skóna, að öflugum herjum Israels og Irans yrði beitt I slfkum átökum. Aðrar aðgerðir, til að mynda svlpaðar þeim, sem notaðar hefðu verið gegn Libyu, væru óhugsandi gagnvart rfkjunum við Persa- flóa, sem hefðu staðið óaðfinn- anlega við lög og samþykktir. Samt sem áður eru alvarlegir meinbugir á þvf að grípa til vopna gegn Aröbum. Skammt frá, norðan við Persaflóa hafa Sovétríkin fylgzt með þvf með ánægju, hversu óhönduglega Bandarfkjamönnum hefur tekizt til f samskiptum sfnum við Araba, og ekkert gæti frekar fengið þá til að bregðast harkalega við en að Bandarfkin sýndu merki um hernaðarlega fhlutun. Feisal konungur telur sér enga hættu stafa af þessu. Hann telur, að olfuþörf banda- rfsku þjóðarinnar geti knúið Nixon, eina manninn, sem hafi áhrif á Israel, til að taka upp jafnvæga stefnu gagnvart Israelum og Aröbum. Verði sú raunin á, verður oliuvopnið lagt afsiðis og látið rykfalla.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.