Morgunblaðið - 23.09.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.09.1973, Blaðsíða 4
4 MORGU'NBLAÐIÐ — SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1973 22-0-22- RAUOARÁRSTÍG 31 V_______—------/ BÍLALEIGA CAR RENTAL 72 21190 21188 BILALEIGA CAR RENTAL BORGARTÚN 29 AV/S SIMI 24460 BÍLALEIGAN EYSIR CAR RENTAL BllALEIGA JÓNASAR & KARLS * Ármúla 28 — Sími 81315 CA* tENTAi SÍLALEIGA TRAUSTI ►V£*«OLT 15ATEI. 25780 Bilaleiga CflR RENTAL U* 41660 - 42902 SAFNAST ÞEGAR * SAMAN § SAMVINNUBANKINN U€ EMUR MORGUNBLAÐSHÚSINIf Við gluggami eftir sr. Árelías Nielsson tekið hann til fyrirmyndar f starfsaðferðum td. héraðs- dómari f Tel Aviv I ísrael; og yfirmaður allrar fangahjálpar f heiminum frú Ruth Baker sendir honum jólakveðjur. I ör- stuttri grein „við gluggann" verður því fátt sagt af því, sem færa mætti á sfður heillar bókar. Upphafið var niðurbrotinn vinur og jafnaldri vestur í »The grand old gentlemen from Iceland« Ég sit í djúpum stól f gömlu húsi við hjartastað Reykjavík- ur, varla steinsnar frá „Bern- höftstorfu“ fyrrverandi „heidra fólks“ borgarinnar. A vegg beint á móti mér, nær dyrum er sérkennileg tré skurðarmynd, sem sýnir tvo menn. Annar stendur, hinn krýpur. Sá, sem stendur ber með sér tiginlega reisn, gæti verið táknmynd Krists en líka eitthvert göfugmenni úr hvaða stétt sem er, maður sem Kristur sagði um: „Verið í mér þá verð égíyður.“ En sá, sem krýpur, er auð- sjáanlega að standa upp. Hefur nú þegar komið fyrir sig öðrum fæti, en liggur í auðmýkt og þökk á öðru knénu. Slitin keðja, járnhlekkir, hanga enn um úlnliði hans. Maðurinn, sem stendur bendir fingri beint til hæða. Ógleymanleg mynd. Gjöf frá fimm föngum til fangavinarins Oscars Clausen. Þetta er nefnilega skrifstofa hans og heimili i Bankastræti 12. Og skrifborð hans er fullt, yfirhlaðið af stórum þykkum bókum, með óteljandi nöfnum og skýfslum. Það eru nöfn ungra íslenzkra afbrotamanna. Aðeins frá árinu 1955 eru þeir, sem þarna eru skráðir 1336 að tölu. Og mörg erindi fyrir hvern þeirra. En það sem bezt er: í bókum þessum eru fagnaðartíðindi um frjálsa menn og fjötra leysta. Yrirleitt eru þetta aðeíns ungir menn á aldrinum 15—21 árs, þótt einnig séu þar nöfn nokkurrá kvenna og eldri manna. Aðeins 10% þessara unglinga hafa framið afbrot á ný. Hinir hafa bjargast. Sam- kvæmt alþjóðaskýrslum er það heimsmet í góðum árangri á þessu sviði. Við borðshornið á móti mér situr húsbóndinn, mannvinur- inn, ættaður vestan úr Ólaf svfk, Oscar Clausen. Flestir ís- lendingar og margir aðrir þekkja nafn hans og Iíklega þekkja hann flestir Reykvík- ingar í sjón. Gildvaxinn, góðleg- ur maður, með virðulegt fas, mótað hógværð og tiginleika. Hann gæti verið prestur að út- liti, en þó ekki síður auðugur kaupmaður, sem allt hefði sparað ævilangL Og víst var hann kaupmaður af kaupmönnum kominn í marga ættliði. Og víst eru prest- ar og vfgð stórmenni meðal for- feðra hans í f jórar aldir. Og fáir kunna fleiri sögur um prestaen hann. En hér er hann sérstæð per- sóna engum öðrum líkur, Oscar Clausen, sem nefndur er á mannvinaþingum í Ulm, Þýzka- landi: „The grand old gentle- man, from Iceland.“' Hann hefur árum og ára- tugum saman sótt alls konar heimsþing, þar sem fangamál og fangelsismál eru til umræðu, kynnt sér fangelsi og verið áheyrandi við réttarhöld frægra dómara og mál- flutningsmanna. Hann hefur látið mikið af eignum sinum, sem voru miklar ganga til fangahjálpar á íslandi og afneitað öllum venjulegum lífsþægindum og „luxus“ nútímans af sömu ástæðum. Hann hefur unnið og innt af hendi störf á þessu sviði sem mundu fara vel heilli stofnun, með fjölmennu starfsliði og tekið lítil sem engin Iaun fyrir, heldur miklu frekar fórnað eigin eignum. Hann hefúr ritað hátt á þriðja tug böka, sem margar eru uppseldar og uppilesnar og öllum ritlaunum sínum hefur hann fórnað fangáhjálpinni. Hann hefur unnið sérstak- lega að því, sem kalla mætti að koma í veg fyrir fangelsisvist og frelsisskerðingu. Og nú þegar hafa ágætir starfsmenn erlendis á þessum vettvangi veitt honum viðurkenningu og Stykkishólmi, þegar þessi 85 ára öldungur var um tvítugt. Þessi vinur hans var niður- brotinn eftir mánaðar innilok- un í litla svartholinu „uppi á höfðanum", og þorði ekki að líta upp. Þá tók kaupmannssonurinn og fulltrúinn I kaupmanns- húsinu hann að sér, gaf honum föt og skó og fór með hann á dansleik og veitti honum vonir, sjálfstraust, manndóm ogfrelsi að nýju. Útvegaði honum at- vinnu og bar umhyggju fyrir honum. Og þetta er í fáum orðum aðferð Oscars Clausen enn i dag og allatíð. „Frelsi, vinna og framtiðar- brautin verður greið“ segir hann. Og svo ekkért bréniiivín engin eiturlyf. „Það eru aðeins örfáir, sem ekki lagast á þennan hátt,“ bæt- ir hann við. „En þá sem ekki vilja vinna og hjálpa sér sjálfir getur sjálfur Guð ekkert gert fyrir. Og þeir, sem misnota frelsið aftur og aftur og vinna öðrum mein og tjón, verða auð- vitað að finna f jötrana. Handa þeim þarf sérstaka sjúkradeild. Allt slíkt er geð- bilun á einhverju stigi. Árásarmenn eru yfirleitt geð- bilaðir, og þá verður að tryggja samborgurum öryggi gagnvart þeim. Fangahjálpin byggist ekki á sérkunnáttu, heldur á því að hafa opið hjarta, alúð, samúð skilning, trú á Guð og traust á hið góða í hverri sál. Bezt er að koma unglingum á góð heimili í sveit eða í gott skiprúm. Vinna og aftur vinna og algjörlega takmarkaðir peningar er alltaf bezta lækningin.“ Þannig gæti Oscar leiðbeint endalaust. Maðurinn, sem eng- ar kröfur kann sjálfum sér til handa í lítilli, gamalli leigu íbúð hjá Silla og Valda. Þar er bæði rikmannlegt og fátæklegt f senn. Ein mynd t.d. höggmynd af Napoleon mikla gæti kannski kostað hundruð þúsunda. Fieiri fornmunir úr kaupmanna- og prestaheimilum fortíðar gætu verið eins dýr- mætir. Annars rannur ein- búans, sem er í starfsgleði og fórnun hamingjusamur maður.^ „Erum allslausir en eigum þó allt.“ Franz frá Assisi á íslandi á 20 öld, ’fangavinurinn, sem fer þó ekki I fangelsin. Þeir koma til hans og sumir árum saman. Sannarlega hefur hann þó verið óvirtur, misskilinn, jafn- vel ofsóttur. En ég veít, að hann hefur -verið sæmdur æðstu heiðúrs- merkjum Isléndinga. Fálka- orðu, Stórriddarakrossi. En þær gersemar sjást ekki þarna;, þó held ég, að hann meti þær að verðleikum starfs síns vegna- Og þegar ég að lokum spyr: Hvað viltu sýna mér að skilnaði, sem þú metur mest hér á þinu heimili? Þá tekur þessi virðulegi, hæg- fara öldungur litla postulíns- mynd af barni eða engli á bæn, sem stendur á skrifborði hans og segir: „Amma einhvers af drengjunum færði mér þetta fyrir mörgum árum og sagði, að myndin ætti að tákna verndar- engilinn minn. Og nærveru hans hefi ég oft fundið. Og svo er hérna kross alþak- inn gleymmér-ei-um. Hann er mér kær. Og hvað viltu svo segja við mig vesælan prest að skilnaði? sagði ég. Öldungurinn brosti og sagð* þessari lágu röddu, sem hann hefurtamiðsér: „Musteri Guðs eru hjörtun sem trúa“, og „Aðgát skal höfð * nærveru sálar“. „Þessi spekimál Einars Ben. eru hornsteinar fangahjálpar, hvar sem er í heiminum,“ bætti hann við. Bridgeþáttur er nú að hefja göngu sína eftir sumarfríin. Samstarfið á síðasta keppnis- tímabili við blaðafulltrúa bridgefélaganna var mjög gott, og vonast þátturinn til, að svo verði einnig í vetur. Fréttir af höfuðborgarsvæðinu, þ.e. þær sem birtast vikulega, þurfa að berast til birtingar eins fljótt og unnt er, því að í vetur og á komandi tfmum mun Morgun- blaðið verða offsetprentað og þarf þá meiri undirbúning á fréttunum. Þátturinn mun ekki birtast eins og í fyrra á laugar- dögum og sunnudögum, heldur mun laugardagsþátturinn fær- ast aftur á þriðjudag eða mið- vikudag. * Aðalfundur Bridgefélags kvenna var haldinn í Domus Medica 17. sept. sl. Stjórn fé- lagsins var öll endurkjörin, en hana skipa: Margrét Ásgeirs- dóttir, formaður, Guðrún Hall- dórsson, ritari, Júlíana Isebarn, gjaldkeri og til vara Aðalheiður Magnúsdóttir og Petrína Færsteth, einnig end- urkjörnar. Endurskoðendur voru kosnar Halla Bergþórs- dóttir og Elín Jónsdóttir og til vara Laufey Arnalds. Félagið hefur starfsemi sína næstkomandi mánudag 24. sept. með einmenningskeppni. Konur eru beðnar að tilkynna þátttöku sem fyrst í símum 14218 eða 16233. Öllum konum er heimil þátttaka þó þær séu ekki f félaginu. Stjórnin. * Frá Bridgefélagi Hafnar- fjarðar. Aðalfundur félagsins var haldinn mánudaginn 10. sept. sl. og voru þessir menn kosnir í stjórn: Formaður Björn Eysteinsson. Aðrir stjórn- endur: Jóhannes Guðmunds- son, Jón Gíslason, Ólafur Sigur- geirsson, Ölafur Valgeirsson og Sigurður Lárusson. Sú nýbreytni verður tekin upp, að fyrir hverja keppni verða, auk verðlauna, gefin stig fyrir efstu sætin: 6 stig fyrir 1. sætið, 4 stig fyrir 2 sætið, 3 stig fyrir 3. sætið o.s.frv. Sameigin- legur stigaf jöldi fyrir allan vet- urinn ræður úrslitum til verð- launa. Vonast stjórnin til, að nýbreytni þessi verði hvatning til meiri þátttöku félagsmanna. Fyrsta spilakvöldið var sl. mánudag, en spilaður verður fimm kvölda tvímenningur. Röð efstu para eftir fyrstu umferðina er þessi: Þröstur — Bjarnar 153 Þórarinn — Birgir 133 Agúst — Kristján 125 Óskar — Sigurður 125 Björn — Ólafur 124 Sævar — Hörður 121 Þorgeir — Eyjólfur 119 Asgeir — Ragnar 114 Arangur Þrastar og Bjarnars er mjög góður og athyglisverð- ur, eða 42% umfram meðal- skor, og er það næst bezti árangur, sem náðst hefur f einni umferð í Firðinum. Beztan árangur eiga Ágúst og Theodór, en þeir hlutu í fyrra 156 stig, og var þá meðalsko 108 eins og nú. Fróðlegt væri a heyra um árangur sem þennafl annars staðar að af landinu. Athygli bridgespilara sj£a vakin á þvf, að pörum verw* bætt inn f tvfmenningskepPI\' ina, sem nú stendur yfir, ® aðeins fyrir næstu umfer Bridgespilarar eru hvattir til fjölmenna. Nk. fimmtudag mun Bridg félag Keflavíkur hefja kepPnI ár sitt og byrjá á tvímenninS- keppni (Danivalsmótið) SP“a er á Víkinni, og hefst kepPnl kl. 20 stundvíslega. Tafl- og bridgeklúbburin lun hefja spilamennskuna n ' immtudag, og verður trúleg yrjað á eins kvðlds tvfm®11 ngskeppni. Spilað er I Dom íedica, og eru keppend ieðnir að mæta kl. 20 stun ÍSlega’ A.G.B. ”V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.