Morgunblaðið - 30.09.1973, Qupperneq 2
2
MORGUiNBLABIÐ — SUN’NUÐAGUR 30. SEPTEMBER 1973
Tjón Sunnu metið á
35,5 millj. kr.
— dómkvaddir matsmenn mátu
tjónið vegna afturkallaðs
flugrekstrarleyfis
I BOEGARDÓMI í fyrradag var
lögð fram matsgjörð, sem dóm
kvaddir matsmenn hafa nnnið
til J>ess aff meta til peninga það
tjóta, sem ferðaskrifstofan
Sunna varð fyrir vegpaa þess
að fyrirtækið varð að hætta flug
rekstri eftir 6 mánaða rekst-
uir 1970, en þá hafði hið opin-
foera afturkallað fiugrekstrár-
Ieyfi Sunnu. Matsmennirnir,
sem borgardómari útnefndi til
matsgerðarinnar, þeir Giiðmund
u r Magnússon prófessor og
Bárður Daníelsson, telja að tjón
Sunnu sé 35 miiljónir 430 þús.
kr., en kröfur Sunnu námu um
60 millj, kr.
Á þeim 6 mánuðum, . sem
Sunna hafði flugrekstur 1970,
hafði fyrirtækið þjálfað tvær
íslenzkar flugáhafnir á fiugvél
sína og flutt liðlega 5000 far-
þega á flugleiðum, sem Sunna
flytur venjulega farþega sína,
þ. e. til Spánar og Norðurland-
anna. Að auki hafði á þessu
tímabili verið flogið leiguflug
fyrir erlenda aðtla milli Bret-
lands og meginlandslandanna og
rrteð þýzka aðila milli þýzkra
borga og Mallorka, Malaga, Ten
erife og Salzburg.
Þegar flugleyfið var aftur-
kallað, var búið að gera samn-
inga við erlenda aðila um leigu-
flug mill'i ýmissa staða erlendis,
en flestír aðilamir sögðu upp
samningum þegar þeir fréttu
um aftttrköllun flugrekstrarleyf-
isiins vegna þess að þeir munu
hafa taiið að það hafi verið gert
vegna grófra brota á öryggis-
reglum.
í október 1971 höfðaði Sunna
síðan mál gegn ríkiesjóði vegna
þessa, en vió afturköllun leyf-
isins lenti Sunna í ýmsum erfið-
leikum við að flytja farþega
sína.
Þó hafði Sunna fengið aftur
fiugrekstrarleyfi nokkrum dög-
um áður en Leyfissvipting sam-
gönguráðuneytisins átti að
ganga úr gildi 1. des. 1970, en að
miati Sunnu var nýja flugrekstr-
arleyfið það seint fram komið
að ekki var hægt að hefja rekst-
ur strax, en, síðan hefur Sunna
haft flugreks.trarleyffi. Hefur
það því aldrei runnið út síðan
það var veiitt 1969.
í miatsigjörð dómkvöddu mats-
gerðarin.nar er talið, að ef Sunna
hefði getað stundað eðlilegan
flugrekstur tveimur mánuðum
eftiir að flugleyfið átti að renna
út 1. des. 1970, þá hefði tjón’ð
verið metið á 14,2 millj. kr.
Sunna hóf síðau aftur flug-
rekstur með eigin vél í júlí sl.
og hefur á þeim tíma flutt um
6000 farþega.
f sama mánuði sl. vor féllu úr
gildi öll fiugreksitrarleyfi á ís-
iandi, samkvæmt nýrri löggjöf,
en Sunna uppfyllti öll skilyrði
ti'l að fá leyfið að nýju.
Undirskriftasöfnun:
Jakob hjá einu málverka sinna, er hann nefnir Fegurð.
Sverrir fái Þingvalla-
veg sem reynslukafla
Afi undanförnu hefur staðið yfir
undirskriftasöfnun meðal at-
vinnubíl.stjóra, þar sem lýst er
fyigi við þá Imgmynd, að Sverr-
lr Runólfsson fái Þingvallaveg-
inn sem reynslukafla fyrir „blönd
un A staðnum“-aðferðina. Eftir-
lit með kostnaði og verkgæðum
skuli Vegagerð ríkisins annast.
Mbl. sneri sér til Sverris og
spurði hann um þessa undir-
skriftasöfnun. Hann sagði, að
þrír bitstjórar hefðu komið fram
með hugmyndina að því, að hann
fengi Þingvallaveginn. „Þegar ég
sá, að áhugi var mikill fyrir
þessu, fékk ég sjálfur áhuga á
þessari hugmynd, enda er það
forsenda fyrir því, að við getum
komið með alia vélasamstæðuna
hiingað tii lands, að við fáum að
leggja meira en einn kílómétra."
Sverrir sagði, að t. d. á einni
leigubilastöð i börginni, þar sem
listinn hefði legið frarhmi, hefði
þegar meira en helmingur bíl-
stjóranna skrifað nafn sitt á
lista.
Islenzk ljóð
frá upphafi
Útgáfa að hef jast á merku safnriti
Nti I MAUST hefst hjá Al-
menna hókafélaginu útgáfa á
mikiu safnverki sem ætlað er að
spanna islenzka Ijóðagerð frá
npphafi, eins og kemur fram í
grein i lilaðinu i dag. Nefnist
verkið „íslenzkt ljóðasafn" og
er Kristján Karlsson bókmennta-
fræðingur ritstjóri. Er gert ráð
fyrir að verkið komi út í fimm
bindum á fimm árum, og kemur
þriðja bindið út fyrst eða nú í
lok október eða byrjun nóvem-
ber. I því verður úrval Ijóða frá
því um lok nitjándu aldar fram á
upphaf þeirrar tuttugustu og
velur Kristján Ijóðin.
í viðtali við Morgunblaðið
sag«Si Kristján Karlsson að skipt
ing i bíndi væri ekki eftir skörp-
um tímasKilum, né heldur væri
miðað við flokkun eftir ákveðn-
um skáldskaparskólum eða —
stefnum. Skiptingin í hin bindin
væri ekki alveg ákveðin, en þó
mætti segja að í fyrsta bindinu
yrðu aðallega ljóð frá fomöld. f
öðru bindinu sem koma mun út
næst yrðu einkum ljóð frá 17.
öld til upphafs þeirrar nítjándu.
1 fjórða bindinu yrðu svo ljóð
frá því um 1920 og fram undir
olckar dag, og er þá miðað við
skáld sem gefið hafa Ijóð sín út
á þessu tímabili að mestu leyti. í
fimmta bindinu verður svo úrval
þýðiinga frá upphafi vega og
fram á þennan dag.
Kristján kvað ástæðuna fyrir
þvi að þriðja bindið kæmi út
fyrst vera þá, að hann hefði ver-
ið búinn að vinna talsvert að
þessu bindi áður, og óskað eftir
þvi sjálfur að þessi háttur yrði
hafður á. Nú er verið að vinna
að undirbúningi annars bindis og
starfar Hannes Pétursson skáld
með Kristjáni að því.
Gert er ráð fyrir að öll bindin
verði stór, eða á fjórða hundrað
blaðsiður hvert. Verður sérstak-
lega vandað til útgáfunnar um
frágang, pappír og annað.
Samæfing allra
björgunaraðila
— í Saltvík um helgina
EANDSSAMBAND hjálparsveita
skáta liefur ákveðió að efna til
sameiginlegra björgunaræfinga
í Saltvík uni helgina með þátt-
tiiku Slysavarnafélagsins, F.B.
S., björgunarsveitarinnar Stakks,
Almannavarna, Rauða krossins,
lögreglunnar, slökkviliðs, land-
helgisgænlu, flugstjórnar Reykja
víknrflugvallar, vamarliðs og
I.« ndssi ma.
Á æfingun'um verða fjö'mörg
erindi flutt um björgumanmál,
svo sem stórfellia slysaiflutninga,
fyrstu meðferð sjútolinga eftir
stórslys og l'íkur á náttúruham-
förum í nágrennii þéttbýlla staða
á Islandi.
Á sunnudag verður m. a. sam-
æfiing allira þessara aðila, og er
æfingin í því fólgin að finna
farþegafluigvéi, veita fa‘rþegum
hennar fyrstu hjálp og sjá um
flutning þeirra i sjúkrahús.
16 ára
sýnir á Mokká
16 ÁRA pilttur, Jakob Jóhann-
esson opnaði málverkasýn-
ingu á Mokka fyrir nokkrum
dögum. Sýnir Jakob 11 mál-
verk, lakk-, olíu- og vatnslita-
myndir. Eru þær unnar á síð-
ustu 5 árum. Myndirnar eru
flostar til söi’U, og er verð
þeirra 2—13 þús. Sýningim
stendur yfir í tvær vikúr.
Skemmdir á sæ-
strengnum í Elliðavogi
— tefur lagningu nýrrar aðalleiðslu
Rafmagnsveitu Reykjavíkur
í STORMINUM sem gekk ýfir
um síðustu helgi urðu skemmd-
ir á sæstreng, sem Rafveita
Reykjavíkur var að leggja yfir
Elliðavog. Er hér um nýja
leið9lu fyrir aðalraforkuflutning
í borgina að ræða, en um langt
skeið hefur allt rafmagn tiil borg
arinnar verið flutt um loftlínu
á Geithálsleiðinni og í aðal-
spennistöðina við Elliðaárnar.
Nú er hins vegar verið að
leggja loftlinu frá Geithálsi og
að Korpúlfsstöðum, síðan jarð-
streng að Gufunesi og þá sæ-
streng yfir Elliðavoginn. Borgar
megin er síðan jarðstrengur I að
veitustöð 3 hjá Rafveitunni við
Uækjarteig. Um þennan streng
er ætlað að fari 50% af öllu raf
masrni til Reykjavíkur.
Að sögn Hauks Pálmasonar
verkfræðings hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur var búið að leggja
einn þriðja, eða 500 m af sæ-
strengnum Kleppsmegin yfir
Elliðavog og búið var að teng'ja
endann á næstu 500 m við þann
sem kominn var í sjó. Var rúllan
með vírnum á staðsett á flot-
pramma þegar óveðrið skall á.
Reynt var að halda pramman-
um í horfinu, en það endaði með
INNLENT
því að ekki varð við neitt ráðið
vegna veðurofsans og slitnaði
pramminn upp. Við það slitnaði
sæstrenguriinn um múffuna, sem
búið var að tengja. Að sögn
Hauks er ljóst að talsverðar
skemmdir eru á endanum, sem
liggur í sjó, en tengingin hafði
tekið 8 sólarhringa stanzlaust
með pramma hafnarinnar og
áhöfn, köfurum og kafarabáti,
þannig að hér er um tilfinnan-
legt tjón að ræða hjá Rafmagns
veitu Reykjavikur. Leiðslan um
þessa leið átti að vera tilbúin
í byrjun næsta árs, en mögu-
legt er að verkið tefjist lengur
en einn mánuð. Það mun þó
liggja ljóst fyrir þegar búið er
aö kanna skemmdirnar til hlít-
Ný sjálfvirk ;
símstöð
SJÁLFVIRK símstöð var opmið
á Reyðarfirði fimmtUdagÍTm 20.
9eptember síðastliðinn 1 nýrri
bygginigu Pósts og síma þar 4
staðnum. Stærð stöðvarinmar er
200 númer og eru nú þegar 135
númer í notkun. Jafnframt v-ir
opnuð á Reyðarfirði svonefnd
hnútustöð, sem tengir saman
sjálfvirku stöðvarnar á Reyðair-
firði, Egilsstöðum, Neskaupstað
og Höfn í Hornafirði.
í tilefni af opnun stöðvarinna'r
bauð Póstur og simi til hófs í
félagshei m ilinu á Reyðarfirði. —
Þar voru flutt ávörp forstöðu-
manna Land9símans, en einnig
tóku til máls heimamenn, ' sem
fluttu heillaöskir og þakiknr. I
hófimu töluðu eftirtaldir metm:
Arnþór Þórólfsson stöðvarst jótá,
Þorvarður Jónsson yfirverkfræð
ingur Laimdssímans, Gissur Er-
lingsson, umdæmi'sstjóri Pósts
og síma, Hjalti \ Gunnarsson,
varaoddviti, Helgi Seljan, alþing
ismaður og Vilhjálimur Sigur-
björnsson, framkvæmdastjórl
Brúnáss hf., sem sá um bygg-
ing'U síms'töðvarhússins.
Sumarsýningunni í
Ásgrímssafni að ljúka
Sýning á Akureyri í október
í DAG lýkur sumarsýningunni
í Ásmundarsal, sem opnuð var
27. maí sl. Safnið verður lokað
um tírna meðan komið verður
fyrir haustsýningu þess, en fyr-
irhugað er að sýna þá eingöngu
vatnslitamyndir. Einnig vegna
undirbúnings sýningar, sem send
verður til Akureyrar á næst-
unini, en Myndlistarfélag Akur-
eyrar fór þess á leit við Ás-
grímssafn á sl. vori að safnið
sendi sýnirtgu norður.
Vill Myndlistarfélagið með
sýningu þessari kynna hluta af
hinni miklu listaverkagjöf Ás-
gríms Jónssonar, og heiðra jafn-
framt minningu hans.
Sumarsýningin er yfirlitssýn-
ing á verkum Ásgríms, elzta
myndin máluð um aldamótin,
en sú yngsta árið 1957. Margt
erlendra gesta kom í Ásgríms
safin á þessu sumri.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74, er opið í dag frá kl. 1.30—4.
Aðgangur ókeypis.