Morgunblaðið - 30.09.1973, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ — SUNTSÍUDAGUR 30. SEFTEMBER 1973
' y
® 22-0-22-
RAUOARÁRSTÍG 31
— .
BfLALEIGA
CAR RENTAL
tr 21190 21188
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTÚN 29
|^ENDUM
BltALEIGA JÓNASAR & KARLS
Ármúla 28 — Sími 81315
BILALEIGAN
51EYSIR
\> CAR RENTAL
Bílaleiga
CAR RENTAL
41660 - 42901
Við
gluggann
eftir sr. Árelíus Níelsson
I ærugarði
Margt er nú þegar gert í
nágrannalöndum til að bæta úr
þeim voða og því afhroði, sem
ýmsir verða að gjaida af
sfaukinni fíkniefnaneyzlu.
Reist hefa verið hæli handa
hundruðum og þúsundum sjúk-
linga með faglærðu starfsliði,
læknum, sálfræðingum, félags-
fræðingum og þjálfuðu
hjúkrunarliði, sem beita kann
öllum nýtízkutækjum og lyf jum
af tækni og lærdómi.
Ef fátt er, sem fulltreysta má.
Og ekkert virðist einhlítt til
bjargar þeim vesalingum, sem
vín og hass hafaf jötrað.
Eitt af þvi, sem vakið hefur
einna mesta athygli nú á
síðustu tímum hér á Norður-
löndum á þessu sviði, er fram-
tak eins eða tveggja ungmenna,
áhugamanna frá Kaupmanna-
höfn, sem hafa tekið til afnota
afrækt eyðibýli í eyju úti á
landi og komið þar upp hæli
handa auðnulausum unglingum
og eiturneytendum. Þeir heita
Nielsen og Eyvin Stiirup ogeru
báðir um þrítugt, annar skip-
stjóri, hinn bóksali.
Hvernig fóruð þið að þessu?
Það er nú löng saga. En í
stuttu máli sagt. Okkur fangaði
til að hjálpa — gera eitthvað,
sem vit væri í. Við heyrðum um
gamalt yfirgefið verzlunarhús í
þorpinu Ommel úti á Ærö, sem
erlítil eyja í nánd við Fjón.
Okkur tókst að festa kaup á
þessu hússkrifli. Og við ákváð-
um að hefja þar starfsemi til
endurhæfingar unglingum,
sem dengja í sig hassi, brenni-
vini og öðrum „hörðum efn-
um“, sem sumir nefna svo.
Við nefnum þetta Ærögárd
(sem gæti verið Ærugarður á
íslenzku býst ég við).
Þetta fólk, sem þarna kemur
er flest heimilislaust, gengur
um götur á nóttum til rána og
innbrota, hatar og fyrirlítur
foreldra og aðra „vonlausa vit-
leysingja", sem það nefnir svo,
ef þeir eru fimm árum eldri en
það sjálff og ofurlítið greindari.
Og hvað segið þið við þessa
verðandi skjólstæðinga ykkar?
Það koma nú fáir fyrr en í
flest skjól er fokið, svo að skjól-
stæðingar er réttnefni. Jú, við
segjum: Komið og hjálpið okk-
ur að bjarga við gömlu drasii og
laga þar til. Þið verðið að
„streða" frá klukkan sjö að
morgni til tíu að kvöldi og fáið
ekki einseyring í kaup. Ef þið
viljið eitthvað fá að éta, þá
verðið þið að hjálpa til við mat-
reiðsluna og svefnstað verðið
þið sjálf að útbúa. En að öðru
leyti megið þið ráða ykkur sjálf
vera frjáls.
Og hvað gerist svo?
Hvað gerist? Hér morar af
ungmennum frá öilum iandsins
hornum, sem strita og erfiða
alla daga undir strangri verk-
stjórn, og eru ótrúlega ánægð,
jafnvel hamingjusöm. Eiturlyf
og áfengi er bannað, en mjólk I
kæliskápnum og vatn i kranan-
um.
Og hvað bjargast bezt?
Lagast einhverjir?
Já, ótrúlega margir. Það er
vinnan, erfiðið, sem bjargar
bezt. Ástæða er til að halda að
skortur á lfkamlegri vinnu og
viðfangsefnum sé helzta orsök
þessa eiturlyfjaþorsta, sem
hefur gripið um sig I allri vél-
tækni veisældarlandanna.
Og þegar fólkið fer að vinna
virðist löngunin í eitur og
áfengi dvína smátt og smátt hjá
flestum — auðvitað ekki öllum.
Koma margir hingað á Æru-
garð?
Tveim dögúm eftir að við
fluttumst hingað komu fyrstu
„krakkarnir". Að viku liðinni
voru þau 40, að hálfum mánuði
liðnum 65 að tölu. Þau unnu af
lífi og sál, frá 7 að morgni til lf
að kvöldi. Sumir setjast hér að
til dvalar. Öðrum komum við á
hæli og „heimili" annars
staðar, eða þá út á sjó, en það er
eitt helzta þrautaráðið.
Og hvaða menntun og sér-
þekkingu hafið þið hlotið?
Enga sérþekkingu í uppeldi
eða þess háttar. Ég held það
hafi sáralitla þýðingu. Aðal-
atriði er fórnfýsi og þolinmæði,
trú á árangur og rósemi.
Ég hef séð marga
„hámenntaða fræðinga," segir
Eyvin Stiirup, sem vinna bara
frá 9—17 og líta aðeins á starf
sitt til launa, en ekki sem
köllun. En árangurinn er þá
eftir því — oftast sáralítill.
Og hvernig gengur þetta þá?
Ef til vili mætti segja
ótrúlega vel. Við reynum að
lokka, krakkana til einhvers,
sem þau hafa áhuga á og þau
sjá engan tilgang í. Og erfiðið
gerir flesta fljótt eins og aðrar
manneskjur með þörf fyrir
svefn, hvild og hollan mat.
Hér þekkist ekkert, sem sést
á öðrum hælum, þar sem setið
er að sumbli, reykt og drukkið
og stungið af að nóttu til inn-
brota og gripdeilda.
Mörg dæmi eru hins vegar
um hið gagnstæða, skólaleið og
námsþreytt börn, sem fara aft-
ur í skólann sinn og eru þar
gjörbreytt til batnaðar, hafa
lært að iifa án þess að hakka í
sig skít og óþverra. En við neyð-
um ekki neinn til neins. Svo
furðulegt sem það má virðast,
þá þrá allir erfiðið og hafa gott
af þvf. En við höfum þau yfir-
leitt með í ráðum. Og þau líta á
Ærugarð sem sina stofnun, sitt
heimili.
Og að síðustu, hverjar eru
framtiðarhorfur eftir tveggja
ára tilraun?
„Fjárhagur er þröngur. Ég
fór úr góðri stöðu f bókaverzlun
í Kaupmannahöfn og hef enn
engin laun þegið hér. Við höf-
um 50 krónur á dag fyrir hvern
sem telst formlega til vist-
manna á Ærugarði. Nú erfarið
að veita okkur athygli. Það lof-
ar góðu um aukinn styrk hins
opinbera. En gætum við haldið
þessu gangandi til hjálpar og
endurhæfingar, þá eru það
ríkuleg iaun handa mér.“
Árelíus Níelsson
Frá Bridgefélagi
Hafnarfjarðar
Síðastliðinn mánudag var fram
haldið meistarakeppni félags-
ins i tvímenning. Eftir tvær
umferðirer staðan þessi:
1. Þröstur — Bjarnar 431
2, Birgir — Þórarinn 394
3. Ásgeir — Ragnar 370
4. Sigurður — Sæmund. 364
5. Agúst — Kristján 353
6. Hörður — Sævar 342
Eftirfarandi spil kom fyrir í
öðrum riðlinúm á mánudaginn.
Allir á hættu.
Norður
S G 9-7
H 5-4
T 9-7-5-2
L A-D-fO-9
Vestur
S Á-K-8
H D 9-6
T Á-K-G-fO-6 4
L 3
Anstur
S D-10-5
H Á-D-G-10-3
T 8
L G-8-6-2
Suður
S 6-4-3-2
H 8-7-2
TD-3
L K-7-5-4
A flestum borðum voru spil-
uð 6 hjörtu, á einu borðinu, 4
hjörtu og 7 hjörtu á einu borð-
inu. Alls staðar voru unnin 7
hjörtu, þar sem suður kom ekki
út með lauf. Þriðja umferðin
verður svo spiluð nk. mánudag
1. október.
Síðastliðinn miðvikudag var
spilaður ein kvölds tvímenning-
ur hjá BR og var spilað í tveim
riðlum.
Röð efstu para — A-riðill:
Guðlaugur — örn 132
Hermahn — Sverrir 125
Ölafur — Lárus 115
B-riðill:
Sveinbjörn—Hilmar 144
Guðbrandur — Jón 143
Vigfús — Magnús 126
Næsta miðvikudag hefst svo
aðaltvímenningskeppni BR og
verður hún með því fyrirkomu-
lagi að tvö siðustu kvöldin verð-
ur spilað með barometerfyrir-
komulagi.
Spilað verður í Domus Med-
ica og eru keppendur beðnir að
láta skrá sig hjá stjórnarmeð-
limum. Bragi Erlendsson, sími
42711. Gylfi Baldursson, sími
43611. Hörður Arnþórsson, sími
71359.
SAFNAST ÞEGAR
. SAMAN
S SAÍJIVINNUBANKINN
EMUR
ShlÞAUfííCRB KIKISINS
Ms. Esja
fer frá Reykjavik laugardaginn
6. október vestur um land í
hri ngferð.
Vörumóttaka: þriðjudag, mið-
vikudag og fimmtudag til Vest-
fjarðarhafna, Norðurfjarðar,
Sigliufjarðar, Ólafsfjarðar, Akur-
eyra-r, Húsavíkur, Raufarhafnar,
Þórshafnar, Bakkafjarðar, Vopna
fjarðar, Borgarfjarðar, Seyðis-
fjerðar, Mjóafjarðar, Neskaup-
staðar, Eskifjarðar, Reyðarfjarð-
ar og Fáskrúðsfjarðar.
TlU vinsælustu lögin á fslandi þessa vikuna, samkvæmt útreikn-
ingum þáttarins „Tfu á toppnum“:
1 ( 1) Saturday night ..........................Bay City Rollers
2(2) I’m a clown ................................. David Cassidy
3(5) Brother Louie.......................................Stories
4(3) (Jenny, Jenny) Dreams are ten a penny .............Kincade
5(4) Free electric band .......................Albert Hammond
6(—) Ididn’tknow ............................Magnús Kjartansson
7(6) I’m the leader of the gang...................... Gary Glitter
8 ( 7) Standing on the insidc.......................Neil Sedaka
9(—) Feelin’stronger every day.......................... Chicago
10 ( 8) Free ride............................ Edgar Winter Group
IH6
Af listanum féllu fimm lög: Life on Mars — David Bowie (10);
Music makes my day — Marvin & Farrar (9); Showbiz kid — Steely
Dan (—); Delta Dawn — Helen Reddy (—); og If you want me to
stay — Sly & the Family Stone (—).
Ný Iög eru fimm:
11 Stealin’......................................Urlah Heep
12 Let’s get it on .............................Marvin Gaye
13 Bad, bad boy.....................................Nazarcth
14 Let me in........................................Osmonds
15 Angie.......................................Rolling Stones