Morgunblaðið - 30.09.1973, Qupperneq 11
MORGU-NBLAI>lÐ SUNNTJDAGUR 30. SEPTEMBER 1973”
11
Selja blóm
í Kópavogi
— til ágóða fyr-
ir bágstadda
DlKNARSJÓÐUR Áslaugar
Maaek í Kópavogi efnir til ár-
legrar biómasölu í Kópavogi í
dag, sumniudag 30. sept. — Sjóð-
urinn var stofnaður 27. janúar
1952 til minningar um Áslaugu
Maaek en hún var fyrsti for-
maður Kvenfélags Kópavogs.
Tilgangur sjóðsins er að
styrkja fjötekyldur og einstakl-
inga sem af einhverjuim ástæð-
urn þurfa á hjálp að halda, og í
mörgum tilvikum hefur hér ver-
ið úim skyndihjálp að ræða.
Kvenfélagskoniur munu ganga
með blómm, sem eru ,,gleym
mér éi" í hús í Kópavogi og von-
ast þær til, að undirtektir verði
góðar.
á
Framkvœmum | véla-, hjóla- og Ijósastillingar ásamt tilheyrandi viðgerðum. H Ný og fullkomin stillitæki. Ó. ENGILBERTSSOISI HF I Stilli- og vélaverkstæði Auðbrekku 51 Kópavogi, Sími 43140. { T erylene-buxur danskar — íslenzkar — mittisvídd 80—120 sm. Verð frá 1.575 — ANDRÉS, Skólavörðustíg 22. — Sími 18250.
Snyrtislofa Ástu Halldórsdáttur Tómasarhaga ~ sími 16010. Aihliða nudd, húðhreinsun, andlits-, fót- og handsnyrting. Endurnýjið lifsþróttinn. Verið velkomin, jafnt karlár sem konur.. |l Traust starfsemi að baki. | H afnarfjörður Til sölu falleg 6 til 7 ára gömlu 3ja herb. íbúð á efstu hæð í þríbýlishúsi við Grænukinn, með sérhita, sér- inngangi og sérstökum frystiklefa. Verð um kr. 3 milljónir. ÁRNI GUNNLAUGSSON, HRL, Austurgötu 10. Hafnarfirði. Sími 50764.
Tapaði
tjaldinu
FRANSKUR ferðalangur, sem
undanfamar þrjár víkur hefur
dyalizt í Vestmannaeyjum sem
sjáifboðaliði við hreinsun í bæn-
um, sagði lögreglunni sinar far-
ir ekki sléttar í gær. Þegar hann
fór til Eyja frá Reykjavík skildi
hann eftir lítið tjald á tjaldstæð-
inú í Laugardal, og í þvi voru
bækur, skyrta og sitthvað fleira.
Þegar Frakkinn kom til baka í
gær, var tjaldið horfið. Það eru
tilmæli lögreglunnar að skilvís
fimnandi skili því á lögreglustöð-
ina eða láti vita af þvi.
Athugasemd yið
skrif Sigurðar
Magnússonar
GEIR H. Zoéga hafði samband
við Mbl. í gær og bað um að
eftirfarandi athugasemd yrði
birt vegna skrifa Sigurðar
Magnúsbonar í Mbl. á föstudag.
„Ég kannast ekki vi@ að nein
annarleg sjónarmið eða rang-
túlkun hafi komið fram í sam-
taiiinu við mig sem birtist í Mbl.
sil. fimmtudag, eins og Sigurður
Magnússon laetur að liggja.
Endá kannast S. M. við að vera
á móti ríkiisrekinni ferðaskrif-
stofu. Það er vitaskuld allt aran-
að að reka upplýsingaskrifstofu
og hótelfyrirgreiðslu en að keppa
við einkafyrirtæki með almenna
ferðaskrifstof u.
Geir H. Zöega.
Grænmet-
isuppsker-
an með
minna
móti
UPPSKERA grænmetis í gróð-
urhúsum og utandyra virðist
vera með minna móti á þessu
liausti, en það á þó ekki við um
allar tegundir grænmetis.
Ingi Tryggvason blaðafull-
trúi búnaðarsamtaikanna sagði
í gær, að tómatiuppskeTa væri
með minna móti, og kenna garð
yrkjumenn um birtu'leysi i vet-
ur og vor. Önnur uppsfcera gróð-
urtiúsa er svipuið og undanfarin
ár.
Af þeim tegunduim, sem rækt-
aCar eru utandyra, er blómkáis-
uþpskeran efcki eins góð og á
síðustu árum, en hvítkál hefur
aftur á móti vaxið saamiilega. —
Gulrófnauppöfcera virðist vera
nokbuð góð, en gulrótcuuppsker-
an er með minna móti.
Að sögn Inga eru ekki enn
komnar neinar heildartölur yfir
framleiðsluna, og verða þær vart
tilbúnar fyrr en í næsta máruuði.
Smjörlíki h/f hefur ákveðið að efna til samkeppni um
beztu smáréttina. Verðlaun nema samtals 80 þúsund
krónum. Samkeppnin ber heitið: Ljóma smáréttasam-
keppnin.
Þátttakendur í samképpninni þurfa aðeins að senda
inn uppskrift af bragðgóðum, skemmtilegum smárétti,
sem búa má til á fljótlegan og einfaldan hátt.
Fyrstu verðlaun samkeppninnar verða 40 þúsund
krónur, önnur verðlaun 20 þúsund krónur, þriðju verð-
laun 10 þúsund krónur, fjórðu og fimmtu verðlaun 5
þúsund krónur hvor.
Þátttaka í Ljóma-smáréttasamkeppninni er öllum
heimil, konum og körlum, nema þeim, sem hafa matar-
gerð að atvinnu, starfandi húsmæðrakennurum, lærðum
bökurum og brytum.
Kjörorð samkeppninnar er: „Alveg ljómandi“.
Samkeppnisreglur:
IÞátttakendur mega senda
svo margar uppskriftir, sem
þeir óska.
2Vélritið, eða skrifið prent-
störfum, allt í uppskriftinni.
Gleymið ekki að gefa upp
nákvæmt mál eða vigt, bök-
unartíma/suðutíma og hita-
stig. Nafn á smáréttinum
ef þér hafið það.
5Veljið yður dulnefni og
skrifið það á uppskriftar-
blaðið. Látið síðan nafn yð-
ar, heimilisfang og síma á
annað blað og setjið það í
umslag merkt dulnefninu.
Hvort tveggja er síðan látið
I umslag merkt: „Alveg
ljómandi", pósthólf 5133,
Reykjavík. Umslagið verður
að Hafa borizt okkur í síð-
asta lagi 16. október, 1973.
Skilyrði fyrir þátttöku pr:
a) að Ljóma-smjörlíki sé
notað á einhvern hátt í
uppskriftinni og
b) önnur efni, sem fáan-
leg eru í verzlunum hér-
lendis,
c) að smarétturinn sé fljót-
gerður.
Smjörlíki h/f áskilur sér
rétt til að nota allar upp-
skriftlr, sem berast í aug-
lýsingar, í uppskriftabæk-
ur, eða með öðrum hætti og
án þóknunar fil sendanda
eða höfundar. Uppskriftirn-
ar verða ekki endursendar
eða verður unnt að gera til-
kall til þeirra á annan hátt,
enda hafi enginn einkarétt
á þeim.
6Fimm réttir komast í ór-
slit. Sendendum þeirra verð-
ur boðið að vera viðstaddir,
þegar órslit verða tilkynnt
af dómnefnd 15. nóvembar
1973. Fargjöld og uppihald
verður greitt fyrir þátttak-
endur utan af landi.
7Sérstök dómnefnd mun
f jalla um uppskriftirnar, en
hana skipa:
Agla Marta Marteinsdóttir,
húsmóðir.
Uröfn Farestveit,
húsmæðrakennari.
Elsa Stefánsdóttir,
hósmóðir.
Jón Ásgeirssön,
fréttamaður.
Skóli Þorvaldsson,
veitingamaður.
Haukur Hjaltason,
matreiðslumaður,
og er hann jafnframt for-
maður dómnefndar.
Ath.: Nánari upplýsingar, ef
óskað er, veitir Smjörlíki
h/f, Þverholti 19,
Reykjavík. Sími: 26300.
Sendið okkur eftirlætisupp-
skrift yðar strax í dag. Hver
veit nema einmitt yðar upp-
skrift verði metin fjörutíu þús-
und króna virði?
smjörlíki hf.
ÞVERHOLTI 19, SlMI 26300
REYKJAVlK.