Morgunblaðið - 30.09.1973, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ — SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1973
velvakandi
0 Skammdegisveiklun
„Kæri Velvakandi.
Aðeins fáein orð. Ár eftir ár
hafa verið hér við lýði skammdeg-
isdeilur. Venjan er sú, að þær
hefjast siðsumars, en ná siðan há-
marki sínu i skammdeginu, og
lækka svo með hækkandi sól.
E.t.v. er þetta aðeins ofurlítil
„geðbilun".
Eitt sinn vað það bjórmálið,
sem var tilefni slíkra deilna. Þá lá
við, að öll þjóðin „fyndi á sér“,
sumir af vandlætingu — aðrir af
tilhlökkun.
Svo kom hundamálið, sem varð
ekki aðeins frægt hér á landi
heldur erlendis líka, þar sem
„hundafólk" stóð á öndinni af
skelfingu yfir grimmd Islendinga
og væntanlegu blóðbaði, sem
aldrei varð þó annað en blóðrauð
hugarsýn.
Á eftir hundamálinu kom svo
torf(u)deilan, en um torf(una)
var deilt svo hart, að brakaði og
brast í fúnum spýtum sem ófún-
um. Þetta nafn Torfan er svo
táknrænt og smellið, að sá orðhagi
maður Sveinn Ben. hefði ekki get-
að gert betur þó að hann hefði
valið fyrirbrigðinu nafn.
Enn hefur nú gosið upp ólgandi
deilumál, og það með slíkum
ósköpum, að þrumugnýr fór um
landið, og endaði raunar með
jarðskjálfta.
Það á nefnilega að byggja
bankahús í gamla kolaportinu við
Arnarhól.
I mínu ungdæmi þótti kolaport-
ið ljótur og leiður staður, en er nú
orðinn slíkur „dýrðarkoppur", að
ekki má við því hrófla.
Það er ekkert „dýrðarkoppa-
logn“ i Reykjavik um þessar
mundir. En þeir, sem halda nokk-
urn veginn óbrjáluðum sönsum
ennþá gátu brosað þegar neyð-
arópin bárust utan af landsbyggð-
inni á fundinn, sem haldinn var á
Arnarhóli, kolaportinu gamla til
verndar.
Mætti annars ekki kalla þessa
nýju bjargvætti „Portsamtök"?
Lilja Jónsdóttir.,
Grettisgötu36,
Reykjavík."
% Seölabankinn og
bókabúðin
Maður nokkur hafði samband
við Velyakanda. Hann sagðist
hafa komið inn I bókaverzlun i
miðbænum þar sem hann verzlar
að staðaldri. Hann sagðist hafa
tint saman, það sem hann ætlaði
að höndla, og farið síðan með það
að afgreiðsluborðinu til að borga
það. Þá sagðist hann hafa rekið
augun i plagg eitt, sem lá þar á
borði, og var þar kominn undir-
skriftalisti sá, sem andstæðingar
Seðlabankabyggingarinnar eru að
safna nöfnum á. Viðmælandi Vel-
vakanda segist vera eindregið
fylgjandi Seðlabankabygging-
unni, og sagði það hafa farið mjög
i taugarnar á sér, að vera ónáðað-
ur með svona plöggum í verzlun-
um. Það væri óþarfi fyrir for-
stöðumenn slikra fyrirtækja að
augjýsa afstöðu sina í við-
kvæmum deilumálum með því að
láta slíka lista liggja f rammi.
Að endingu sagðist hann ekki
geta stillt sig um að geta þess, að
sér væri kunnugt um að Seðla-
bankinn væri einn bezti við-
skiptavinur fyrirtækis þess, sem
rekur umrædda verzlun.
0 Endurskinsmerki
Pétur Sveinbjarnarson skrifar:
„I tilefni af bréfi f dálki þfnum
nýlega frá „móður", en það bar
yfirskriftina „öryggi barna í um-
ferðinni", langar mig til að koma
eftirfarandi áframfæri:
Fyrir nokkrum árum var gerð
tilraun til að setja endurskiris-
merki í sölu i september, en því
miður gaf hún ekki góða raun.
Reynslan hefur leitt i ljós, að
þrátt fyrir verulegan áróður
kaupir fólk ekki endurskinsmerki
fyrr en í mesta skammdeginu, eða
í nóvember og desember. Undan-
farin þrjú ár hefur Umferðarráð
dreift endurskinsmerkjum til
sölu i nóvember, en I ár verður
reynt að hafa þau nokkru fyrr,
eða í október. I þessu sambandi
vil ég sérstaklega geta þess mikla
velvilja, sem stjórn Mjólkursam-
sölunnar og starfsfólk hennar
hefur sýnt þessu máli, en Mjólk-
ursamsalan hefur tekið merkin til
sölu I mjólkurbúðum sinum
undanfarin ár, án þess að taka
sérstaklega greiðslu fyrir. Þá
hefur jafnframt verið óskað eftir
þvi við Samband islenzkra sam-
vinnufélaga, að það dreifi
merkjunum til allra kaupfélaga í
land.inu.
£ Dreifing endurskins-
merkja f skólum
Það er vissulega góð hugmynd,
sem kemur fram í bréfi „móður" I
Velvakanda, að dreifa eigi endur-
skinsmerkjum í skólum. Þessi
hugmynd hefur oft verið rædd, en
hins vegar höfum við orðið varir
við það, að margir skólamenn
hafa lagzt gegn þvi, að hlutir
væru hafðir til sölu i skólum. Þeir
skólastjórar, sem óska eftir því að
fá merkin til sölu í skólum sinum,
geta að sjálfsögðu fengið þau.
Þess má geta, að í augum hins
opinbera eru endurskinsmerki
lúxusvarningur og verður Um-
ferðarráð að greiða 70% toll af
þeim. Nú liggur fyrir fjármála-
ráðuneytinu beiðni um, að að-
flutningsgjöld af endurskins-
merkjum og ýmsum öðrum
öryggisútbúnaði i umferð, verðí
lækkuð verulega eða felld niður.
Um leið og ég þakka fyrir ágætar
ábendingar í bréfi „móður“, og
þann áhuga, sem hún sýnirþessu
málefni, vil ég gera enn eina
tilraun til þess að leiðrétta
þann alvarlega misskilning, að
endurskinsmerki séu eingöngu
fyrir börn og aldraða i umferð-
inni. Endurskinsmerki eiga að
sjálfsögðu allir gangandi vegfar-
endur að bera, án tillits til aldurs.
Hinsvega ríkir svipað viðhorf hjá
mörgum fullorðnum til endur-
skinsmerkja og bílbelta — fólk
vill ekki sýnast alltof varkárt eða
,Hlægilegt“ með þvi að nota
þennan sjálfsagða öryggisút-
búnað.
Eitt er þó vist, — þeir tólf
hundruð, sem slösuðust f umferð-
inni á sfðasta ári, hlæja ekki að
þeim, sem nota endurskinsmerki
eða bilbelti.
Með þakklæti fyrir birtinguna.
Pétur Sveinbjarnarson".
• •
Oryggi framar öllu
SAAB er á undan
Halogenljós og Ijósaþurrkur, rafmagnshitað bílstjórasæti,
fjaðrandi höggvari og stólbitastyrkt yfirbygging eru ekki lengur nýjungar hjá SAAB,
heldur þrautreynd öryggisatriði, sem æ fleiri bílaframleiðendur taka nú eftir.
En SAAB er áfram á undan:
f ár eru nýjungarnar t.d. framsæti með áföstum hnakkapúðum, sérhönnuð fyrir akstursöryggi og vellíðan.
Stýri með öryggispúða. Sterkari höggvari. Endubætt loftræsti- og hitakerfi, sér hitablástur á afturrúðu.
SAAB fæst nú með hinni nýju viðurkenndu 2 lítra sænsksmíðuðu SAAB-vél.
SAAB 1974 fæst í 7 litum, þar af 2 nýjum tízkulitum. Nýtt grill á SAAB 95 og SAAB 96.
-rHnakkopúðar" í aftursæti.
Sér hitoblástur ó afturrúðu,
Nýtt handfong,
„pístólugrip".
öruggari dyralæsing
Nýtt sérhannað ökumannssæti,
með óföstum hnakkapúða.
Nýtt öruggara og þægilegra stýri.
Endurbættar rúðuþurrkur.
Nýtt loftræsti- og hitakerfi.
Endurbætt ryðvörn.
Innfelling fyrir útvarp.
Nýjir litir að innan.
Stærri geimir fyrir rúðuvask, 5 Itr.
SAAB 99L
2 lítra vél, 95 ha DIN (70 kW)
4 gíra venjul. skipting,
eða 3 gíra sjálfskiptur.
2 eðo 4 dyra. 5 manna.
SAAB 96
5 manna, 2 dyra.
V4 vél, 73 ha DIN.
4 gíra venjul. skipting.
Sterkari höggvari.
SAAB 99 þolir ákeyrslu á 8 km. hraða
án þess að verða fyrir tjóni.
SAAB 99x7
1.85 lítra vél, 88 ha DIN (65 kW
4 gíra venjuleg skipting,
2 dyra. 5 manna.
Á hagkvæmu verði.
SAAB 95
7 manna, 3 dyra. Stadion
V4 vél 73 ha DIN.
4 gíra venjul skipting
/(ORYGGI FRAMAR OLlUM
B3ÖRNSSON Jl£9:
SKEIFAN 11 SÍMI 81530