Morgunblaðið - 18.10.1973, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.10.1973, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1973 19 Athugasemd frá barna- vinafélaginu Sumargjöf Undanfama mánuði hafa birzt í dagblöðum fréttir frá foreldra- hópi um stof nun nýs dagheimilis I Reykjavík. Heimili þetta hefur í sumum greinum verið nefnt „til- raunadagheimili", en I öðrum greinum aðeins „nýtt dag- heimili“. Jafnhliða þessum frétta- greinum og viðtölum hafa birzt auglýsingar frá forráðamönnum þessa foreldrahóps, þar sem aug- lýst er eftir börnum til dvalar. Er þar rætt um „virka þátttöku foreldra" og að merkja skuli væntanlega umsókn „uppeldi en ekki geymsla". 1 Reykjavík’eru flest dagheimili og leikskólar rekin af Barnavina- félaginu Sumargjöf. Er því aug- ljóst, að gagnrýnin í umræddum blaðagreinum og auglýsingum beinast fyrst og fremst að heimil- um og starfsemi félagsins. Stjórn og starfsfólk Sumargjaf- ar hefur hingað til látið aðdrótt- anir þessar lönd og leið, en vegna ókunnugleika fjölda borgara á starfí barnaheimila Sumargjafar, þykir ástæða til að stinga niður penna. Bamavinafélagið Sumargjöf rekur nú 28 bamaheimili í Reykjavík, 15 dagheimili, þar af 3 skóladagheimili, og 13 leikskóla. A dagheimilum eru börn á aldrinum 3ja mánaða til 6 ára, nema á skóladagheimilum, sem eru ætluð börnum 6 til 12 ára. Börnin eru á dagheimili allt að 8 — 9 st. á dag á timabilinu 7.30 — 18.30. Leikskólar eru aftur á móti starfræktir fyrir börn á aldrinum 2ja til 6 ára. Getur hvert barn aðeins verið annað hvort á morg- undeild eða síðdegisdeild, mest 4 klst. á dag. Bæði dagheimili og leikskólar eru rekin með verulegum styrk frá Reykjavfkurborg. Hefur styrkur til dagheimila þó verið hlutfallslega miklu hærri miðað við rekstrarkostnað. Hvorki leikskólar né dagheimili geta fullnægt eftirspurn eftir vist á þessum stofnunum. Þannig eru nú samtals um 400 börn á biðlist- um leikskólanna. Engir forgangs- flokkar eru að leikskólunum held- ur er stefnt að þvl að gefa sem flestum kost á leikskóladvöl án tillits til heimilisaðstæðna. Jafnan er þó reynt að lið- sinna þeim sem erfitt eiga. Um dagheimili gegnir nokkuð öðru máli. Uthlutun vistar að öllum dagheimilum Sumargjafar er á einni hendi, hjá félagsráð- gjafa, er aðsetur hefur á skrif- stofu félagsins. Forgang að þeim hafa fyrst og fremst einstæðir foreldrar og námsmenn. Hefur sú regla gilt um áratuga skeið m.a. vegna stöðugs rúmleys- is á dagheimilum. Vantar jafnvel mikið á að unnt sé að fullnægja þörfum allra, sem talizt geta til þessara forgangsflokka, eins og sjá má af því, að 146 börn ein- stæðra foreldra og námsmanna eru nú á biðlista að dagheimilis- vist. Vissulega hefur því verið hald- ið fram, að allir eigi að hafa jafn- an aðgang að dagheimilum án til- lits til heimilisástæðna. Það er þó tómt mál að tala um, meðan sá hörgull er á dagvistunarrými, sem raun ver vitni. Forgangsreglur Sumargjafar um vist á dagheimilum eru til marks um að félagið telur sér skylt að koma fyrst og fremst til móts við þá, sem hafa mesta þörf fyrir dagheimilisvist fyrir böm sín. Meðan þetta ástand varir, sér stjórn Sumargjafar ekki ástæðu til að fella niður nefndar for- gangsreglur. Er og ekki kunnugt um stefnubreytingu hjá Félags- málaráði Reykjavíkur um for- gangsflokka að dagheimilum. Segja má, að rekstur dagheimil- anna miðist við að leysa viss þjóð- félagsleg og uppeldisleg vanda- mál á þann veg, að sem flestir geti notið þjónustunnar, án þess að gæði hennar rýrni. Þrátt fyrir margvlsleg vanda- mál í rekstri bamaheimila Sumargjafar hefur starfsfólki þeirra yfirleitt tekizt að skapa dvalarbörnum mjög góð vaxtar- og þroskaskilyrði, og i hinu dag- lega starfi mætti margt til tfna, er kalla mætti tilraunastarf, án þess að blásið sé i lúðra. Stöðugar umræður fara fram um innra starf heimilanna meðal starfsmanna þeirra og milli fóstruskólans og fóstra. Auk þess hefur verið efnt til fjölda um- ræðufunda og námskeiða með for stöðukonum og öðrum fóstrum. Það verður aldrei til endanleg lausn á þvi, hvernig starfrækja skuli barnaheimili. Þau mál verða I stöðugri athugun og breytingu, svo sem allt það, er snýr að mann- verunni. Augljóst má vera og þarf ekki tilraunarekstur til að sanna, að hægt er að skapa góða uppeldis- stöðu á heimili með fáum börnum og góðum starfskrafti, að ekki sé talað um, þar sem báðir foreldrar eru fyrir hendi og vilja vinna á heimilinu. Hvað eru þá verið að kanna á hinu nýja svokallaða „tilrauna- dagheimili"? 1 hverju er tilraunin fólgin? Er verið að athuga, hvort hægt sé að nota starfskrafta foreldra á barnaheimilum, eða er verið að athuga, hvort börn, sem eru svo heppin á hafa bæði föður og móð- ur á heimilum sínum, þurfi á dag- heimilisaðstöðú að halda? Ekki er ólíklegt, að fleiri foreldrahópar óski eftir fjárhags- aðstoð frá ,ýmsum aðilum borgar og ríkis“ til að reka „tilraunadag- heimili," og væri raunar fróðlegt að vita, hverjir hinir „ýmsu aðil- ar“ eru. I þvi sambandi er trúlegt, að ólfkar skoðanir komi fram um það, hvort verja skuli skattpen- ingum borgarbúa til að greiða nið- ur dagheimilisgjöld fyrir aðra en núverandi forgangsflokka, þ.e.a.s. börn einstæðra foreldra og náms- manna. „I upphftfi skyldi endinn skoða." Bamavinafélagið Sumargjöf hefur slðar en svo amazt við því, að aðrir starfræki barnaheimili. Geta margir borið vitni um það. Nú bregður hins vegar svo við, að forráðamenn umrædds „til- raunadagheimilis" sjá ástæðu til að dylgja um búnað, fyrirkomu- laga og starf annarra barnaheim- ila. Það er Sumargjöf að sjálfsögðu algjörlega að meinalausu, þótt þetta heimili fan af stað, og ekki á valdi félagsins að ráða neinu um, með hvaða hætti það verður starfrækt. Væri þó skemmtilegra, ekki sízt fyrir forráðamenn heimilisins, ef það gæti hafið starfsemi slna, án þess að kastað sé rýrð á dagvistunarstofnanir, sem fyrir eru. Stjórn Sumargjafar mun ekki ræða þetta frekar nema sértak- ar ástæður komi til en leyfir sér hér með að bjóða áhugafólki, að skoða dagheimili og leikskóla félapsin.s. Fh. stjórnar Sumargjafar Asgeir Guðmundsson. VALE kraft- talíur lyfta qrettis- taki O ELUNGSEN HF Hafnarstræti 15 sími 14605 Radhús (Ketlavík (smlúum Höfum í einkasölu raðhús í smíðum í Keflavík, í nýju hverfi um 130 fm, auk bílskúrs. Húsin seljast fokheld, með fokheldum bílskúr. Sum húsanna verða tilb. fyrir áramót, önnur eftir áramót. Nánar tiltekið, 4 svefnherb., 2 samliggjandi stofur, eldhús, bað wc, sjónvarpshol, þvottahús. Verð 2.250 þús. útb. 1450 þús sem má skiptast. 800 þús. lánað til 2ja ára, sem hægt er að greiða með húsnæðismálaláni sem er 800 þús. Teikningar í skrifstofu vorri. Samningar og Fasteignir Austurstræti 10a 5. hæð. Sími 24850. Heimasími 37272. SPEGLAR — SPEGLAR í fjölbreyttu úrvali. Hentugar tækifærisgjafir. LUDVIG STORR SPEGLABÚÐIN Laugavegi 15 — Sími: 1-96-35. HAFNARFJÖRÐUR Eftirtaldar eignir nýkomnar til sölu: Arnarhraun 3ja. herb. nýleg og rúmgóð íbúð á jarðhæð í 6 íbúða fjölbýlishúsi á hornlóð. NorSurbær 3ja. herb. íbúð á 3ju hæð í fjölbýlishúsi. Afhendist tilbúin undir tréverk í byrjun næsta árs. Bílgeymsla fylgir. SuSurgata 3ja. herb. íbúð á miðhæð i eldra steinhúsi og hálfur kjallari. Söluverð um kr. 21/2 milljón. Öldutún 4ra. herb. nýleg efri hæð í tvíbýlishúSi með óinnréttuðu risi. Allt sér. Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, HafnarfirSi, sími 50764. DUNLOP HJÓLTJAKKAR 2.5 tonna lyftihæð 24" 2.5 „ „ 36" 4.0 „ „ 19.5" ^ AUSTURBAKKIÍsÍMI 38944 Laugavegi 60, sími 21270.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.