Morgunblaðið - 24.10.1973, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.10.1973, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 239. tbl. 60. árg. MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÖBER 1973 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Nixon beygir sig fyrir úrskurði Sirica dómara Leyfir honum að hlýða á segulböndin A sunnudag fór Moshe Dayan, landvarnaráSherra tsraels f könnunarferð til sveita Israela, sem höfðu komið sér fyrir á vesturbakka Súez-skurðar. A þessari mynd er hann að ræða við Avraham Adanr hershöfðingja. Washington, 23. okt. AP-NTB • TILKYNNT var f kvöld, að Richard Nixon, forseti Banda- rfkjanna, hefði ákveðið að beygja sig fyrir úrskurði Johns J. Sirica dómara, sem hann kvað upp fyrir nokkru, og leyfa honum að hlýða á segulbandsspólur Hvfta hússins með samtölum forsetans um Watergatemálið við helztu aðstoð- armenn sína. Lögfræðingur for- setans, Charles Wright, skýrði Sirica frá þessu og þvf með, að hann gæti fengið spólurnar af- hentar eftir nokkra daga. Sfðast f gærkveldi hafði forsetinn verið staðráðinn í þvf að láta segul- böndin ekki af hendi, að þvf er Wright upplýsti. Fyrr í dag höfðu þingmenn repúblikana og demókrata orðið ásáttir um að kanna, hvort fyrir hendi væru nægar ástæður til þess að þingið bæri fram kæru á hendur forsetanum. Skýrði forseti þingsins, Carl Albert, svo frá á fundi með fréttamönnum i dag, að allar tillögur og ályktanir þar að Iútandi yrðu sendar laga- nefnd þingsins, sem væntanlega mundi koma saman til fundar þegar á morgun. Kúvending forsetans i segul- bandsmálinu hefur vakið geysiat- hygli og þykir einsýnt, að hin harða gagnrýni, sem hann hefur hlotið fyrir síðustu ráðstafanir sínar, þ.e. brottrekstur Archi- balds Cox, hins sjálfstæða rann- sóknardómara i Watergatemál- inu, sem leiddi til afsagnar tveggja æðstu manna dómsmála i Bandaríkunum, hafi sýnt forset- Brezkir togara- menn samþykkja „grundvöllinn” Einkaskeyti til Mbl., Grimsby, 23. október (AP). SKIPSTJÖRAR og togara- menn f Grimsby ákváðu f dag „með mikilli tregðu" að sam- þykkja málamiðlunartillögu brezku rfkisstjórnarinnar til lausnar fiskveiðideilunni við Islendinga. Akvörðunin var tekin að loknum fundi togaramanna, en talsmaður þeirra, Jack Evans, sagði, að engu að sfður mundu þeir gera allt, sem f þeirra valdi stæði til þess að tryggja jafnmikið framboð af fiski og áður, eftir þvf sem kostur væri. „Okkur finnst brezka Framhald á bls. 18 Vopnahléð út um þúfur: Hörðustu bardagar stríðsins við Súez Hrapaði í flóa — flestir syntu í land Rio de Janeiro, 23. okt. AP TVEGGJA HREYFLA braziliönsk flugvél hrapaði í kvöld til jarðar með 65 manns innanborðs. Vélin kom niður í grunnum flóa og tókst flestum, sem f henni voru, að synda til lands. Talið er þó, að sjö manns hafi farizt. Kairo, Tel Aviv, 23. okt. AP-NTB. EBardagar stóðu f dag milli raela og Araba eins og aldrei hefði til vopnahlés kornið og voru átökin við Suez-skurð sennilega hin hörðustu frá upphafi styrjald- arinnar. Styrjaldaraðilar héldu uppi gagnkvæmum ásökunum um að hafa rofið vopnahléið og Golda Meir, forsætisráðherra Israels, sagði f ræðu í dag, að úr þvf Egyptar hefðu rofið vopnahléið myndu Israelar ekki skila aftur herteknu svæðunum frá 1967 né þeim löndum Araba, sem þeir hefðu hertekið f átökunum nú. öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna kom saman í kvöld að heiðni Egypta, sem staðhæfðu að Israels- menn hefðu hafið bardagana á ný. Þar lögðu Bandaríkjamenn og Rússar fram sameiginl. áskorun á stríðsaðila að hverfa til þeirra stöðva, sem þeir hefðu haft áður en vopnahléið í gær gekk í gildi.Q NTB fréttastofan hefur í kvöld eftir heimildum í banda- rfska landvarnaráðuneytinu, að stjórnir Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna hefðu komið komið sér saman um að draga úr vopna- flutningum sínum til stríðsaðila. í síðustu viku fluttu Bandaríkja- menn um þúsund lestir vopna og hergagna til ísraels á degi hverj- um. Nú verður dregið úr loft- flutningum en flutningar á sjó, einkum flugvéla og skriðdreka, halda áfram óbreyttir. BARIZT UM BIRGÐALEIÐIR Af hálfu Egypta var í dag stað- hæft, að Israelar hefðu notað vopnahléið til að styrkja vígstöðu sina á vesturbakka Suezskurðar. Fregnir beggja aðila benda til þess, að bardagarnir við Suez- skurð hafi verið hinir hörðustu frá upphafi átakanna fyrir átján dögum, og hafi fyrst og fremst staðið um birgðaflutningaleiðir Egypta. Allir Egyptar, fæddir á ára- bilinu 1941—52, sem ekki hafa þegar látið skrá sig til herþjón- ustu, voru í dag hvattir til að gera það hið bráðasta. I Golanhæðum var einnig barizt í dag, en Sýrlendingar höfðu ekki samþykkt vopnahléið. Voru háðir miklir loftbardagar fyrir norðan Damaskus og harðir bardagar urðu við fjallið Hermon, sem er hernaðarlega mjög mikilvægur staður fyrir yfirráð á Golansvæð- inu. Sýrlendingar hertóku fjallið i upphafi átakanna en Israelar náðu þvf aftur. Framhald á bls. 18 anum, að hann ætti ekki lengur annars úrkosta en láta undan. NTB segir Wright hafa tjáð Sir- ica, að forsetinn hafi gert sér vonir um að sú málamiðlunartil- laga hans, að rannsóknarnefnd öldungadeildarþingsins fengi að sjá úrdrætti úr samtölunum á segulböndunum, sem demókrata- þingmaðurinn John Stennis hlustaði síðan á og staðfesti, gæti orðið til að kveða niður kröfurnai um að hann léti böndin af hendi. I dag varð hins vegar Ijóst að rann sóknarnefndin var ekki af baki Framhald á bls. 18 Richardson skýr- ir afstöðu sína: Heiður banda- rísku stjórn- arinnar í veði Washington, 23 okt. AP ELLIOTT L. Richardson sagði á fundi með fréttamönnum f Was- hington f dag, að það væri hlut- verk bandarfsku þjóðarinnar að fella endanlegan dóm f Water- gatemálinu — og kvaðst sjálfur ekki vera maður til þess að úr- skurða, hvort kærur skyldu lagða- r fram á hendur Nixon, forseta Bandarfkjanna. Sjónvarpað var frá blaða- mannafundi þessum, þar sem Richardson gerði grein fyrir þeim atburðum, er leiddu til þess, að hann sagði af sér embætti. Við- staddir fundinn voru og allmargir starfsmenn dómsmálaráðuneyts- ins og klöppuðu þeir Richardson lof í lófa í samfleytt tvær mín- útur, þegar hann kom á fundinn. Richardson skýrði rækilega frá samningaviðræðunum í síðustu viku, þráteflinu og fyrirskip- unum forsetans um að vísa Archi- bald Cox frá störfum sem sjálf- stæðum rannsóknardómara í Watergatemálinu. Kvaðst Richardson þeirrar skoðunar, að rannsókn málsins ætti að vera í höndum sjálfstæðs rannsóknar- dómara og sagðist hann mundu hafa farið eins að og Cox, hefði hann verið í hans sporum. Hins vegar yrði bandaríska þjóðin að Framhald á bls. 18 Hafnar Nóbels- verðlaununum Hong Kong, 23. okt NTB. LE DUC THO, aðalsamninga- maður N-Vietnama, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels ásamt Henry Kissinger, utanrfkisráð- herra Bandarfkjanna, hefur hafn að verðlaununum, að þvf et fréttastofa Norður-Vietnams til- kynnti í dag. Segir f fréttinni, að Le Duc Tho hafi f gær sent Nóbelsnefnd Stórþingsins norska bréf, þar sem hann geri grein fyrir ákvörðun sinni en mcgin- ástæða hennar sé sú, að Suður- Vietnamar og Bandarfkjamenn Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.