Morgunblaðið - 24.10.1973, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.10.1973, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÖBER 1973 Mikið var um dýrðir f Sidney f Astralfu sl. föstudag, þegar óperuhúsið nýja var vfgt. Elizabet Englands- drottning kom f sex daga opinbera heimsókn til landsins af þessu tilefni og hélt aðalræðuna við vfgsluhátfðina. — Nóbelsverðlaun Framhald af bls.l hafi rofið friðarsamkomulagið um Vietnam. Tho segir, að hann kunni að taka við verðlaununum, þegar raunverulegur friður er á kominn f Vietnam. — Lúðvík Framhald af bls. 32 hannesson, forsætisráðherra í gær, hvað hann vildi segja um þessa samþykkt. Ólafur sagðist ekkert vilja segja um hana, hún skýrði sig sjálf. Þá staðfesti Einar Ágústsson, utanrikisráðherra það i viðtali við Morgunblaðið í gær, að rétt væri skilið, að hann myndi einn ráðherra ræða við sendi- herra Breta, John McKenzie á grundvelli þessarar rikisstjórnar- samþykktar. „Ég mun annast þetta í samráði við þau ráðuneyti, sem málið snertir, sjávarútvegs- ráðuneytið og dómsmálaráðu- neytið." — Richardson Framhald af bls.l dæma um öll þessi atriði en úr- skurðurinn kynni að ráða úr- slitum um velfarnað hennar og öryggi. Richardson kvaðst hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að hann þjónaði landi sínu og þjóð bezt sem einstaklingur, óbundinn opinberu embætti, þegar um var að tefla áframhaldandi setu hans í ráðherrastól annars vegar og hins vegar að svíkja þau loforð, sem hann gaf Archibald Cox og bandaríska þinginu um, að hann fengi frjálsar hendur um rann- sókn Watergatemálsins. Hann sagðist hafa tekið við embætti dómsmálaráðherra til þess að að- stoða við að endurvekja heiður rfkisstjórnarinnar og f þessu ágreiningsmáli hefði sá hinn sami heiður verið f veði. Þegar Richardson var að því spurður, hvort hann teldi, að leggja ætti fram kærur áhendur Nixon, vék hann sér undan að svara en benti á, að hann hefði haft ýmis embætti á hendi i ríkis- stjórn Nixons allt frá því hann tók við sem forseti og hann tryði á markmið stjórnarinnar. Hann teldi sérstaklega mikilvægt það hlutverk, sem stjórn Nixons hefði á hendi í utanríkismálum. Þegar Richardson var inntur nánar eftir skoðun sinni á kröfum þing- manna um kærur á hendur for- setanum, svaraði hann „Eg held, að ég ætti ekki að reyna að kveða upp dóm yfir þeim." Haft er eftir góðum heimildum í Washington, að Richardson hafi rætt við Nixon forseta í hálfa klukkustund í gær. Hafa verið uppi getgátur um það í dag, að forsetinn hafi boðið honum nýtt embætti í stjórn sinni, en ólíklegt er talið, að Richardson muni þiggja það. — Alfreð Flóki Framhald af bls.5. fannst mér svívirðileg árás á Sverri Haraldsson í Vöku i Sjón- varpinu." „Þú munt sýna f Kaupmanna- höfn f vetur?“ „Eg er að undirbúa sýningu í Kaupmannahöfn, þar sem ég mun sýna f marzlok f ágætasta sal borgarinnar, Passepartout." „Og hvað sækir svo helzt á snill- inginn?" „Eg hef fullan hug á að fara að vinna inn í íslenzkar þjóðsögur, hrikalegu hliðarnar þá og kannski toga eina og eina huldustelpu út í klettavegg. Kannski fer ég eitt- hvað að nota Iitaðar teikningar og svo hefur legið f mér um skeið að myndskreyta ljóð, t.d. eftir Davíð Stefánsson. Hann er mjög mynd- rænn. Svo hefur mig lengi langað að gera myndskreytingu á stóran vegg, og til dæmis mætti brenna slíka mynd í postulínsplötur. Það er mikill kúltúr yfir slíku.“ -á.j. — í Grimsby Framhald af bls.12. milurnar sigra. Hér eru margir mjög háðir framvindu mála. Þetta er lífsviðurværi okkar. En ég er þakklátur fyrir það, að ekki hefur komið til alvarlegri árekstra en raun ber vitni. Verksmiðjurnar vantar fisk og þið Islendingar hljótið að skilja, að við erum fullir efa- semda um friðunaráform ykk- ar, því að á meðan þið færið út svokallaða lögsögu ykkar, kaup- ið þið tugi nýrra togara til landsins. Hér sit ég við skrif- borðið mitt og þarf að ákveða , á hvern hátt ég á að endurnýja flotann minn. Hvernig skip á ég að kaupa, þegar ég veit ekki, hvort við fáum notið beztu miða okkar?“ Ekki gat ég leyst erfiðleika Don Listers — þetta var hans vandamál. — Nixon Framhald af bls.l dottin, því að hún fór þess á leit við áfrýjunardómstól Bandaríkj- anna, að hann endurskoðaði ákvörðun sína um að vísa frá kröfu nefndarinnar um að hún fengi spólurnar i hendur. Sagði nefndin i málaleitan sinni, að það væri bandarísku þjóðinni nú mikilvægara en nokkru sinni fyrr að fá að vita, hvað þar væri að finna og tekið var fram, að þótt Sam Ervin, formaður nefndarinn- ar, hefði fallizt á að sjá afrit af samtölunum, hefði hann engu lofað um að nefndin hætti mála- rekstri til þess að fá þau afhent. Litið er á afstöðubreytingu Nixons sem afdráttarlausan sigur dómstóla landsins og þingsins í átökunum við forsetavaldið, — en öðrum þræði hefur allt þetta mál verið spurning um valdastöðu þessara aðila innbyrðis. Er talið, að forsetinn komist nú a.m.k. hjá kæru þingsins, sem talað hefur verið um síðustu daga af meiri alvöru en nokkru sinni fyrr. Er nú spurningin, að því er NTB segir, hvort eitthvað er að heyra á segulböndunum, sem steypir honum úr öskunni í eldinn, en John Dean, fyrrum ráðgjafi forsetans, hefur staðhæft, að þar megi finna sannanir fyrir því að Nixon hafi vitað þegar í septem- ber sl. um tilraunir til að þagga niður rannsókn Watergatemáls- — Togaramenn Framhald af bls.l stjórnin hafa svikið okkur, en við eigum ekki um aðra kosti að velja," sagði Evans. Samkvæmt tillögu brezku stjórnarinnar verður afli Breta innan fslenzku 50 mflna fiskveiðilandhelginnar tak- markaður við 130.000 lestir á ári og veiðar aðeins leyfðar á ákveðnum svæðum. Hingað til hefur meðalaflinn á ári verið 175.000 lestir. KAUPMANNASAMTÖK ÍSLANDS Verzlunarstjóri Stór blönduð verzlun á Suðurlandi óskar eftir að ráða verzlunarstjóra. Góð laun fyrir hæfan mann með starfs- reynslu. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Kaupmannasamtaka íslands að Marargötu 2, til 1. nóv. Margur maðurinn segir við sjálfan sig og jafnvel aðra: það kemur alðrei neitt fyrir mig Þetta eru staðlausir stafir, því áföllin geta hent hvern sem er, hvar sem er. Það er raunsæi að tryggja. Hikið ekki — Hringið strax 83® ALMENNAR TRYGGINGAR2 Pósthússtræti 9, sími 17700 — Súez Framhald af bls.l SOVÉTMENN GAGNRVNDIR Stjórnir Bandarfkjanna og Sovétríkjanna hafa enn náið sam- band um leiðir til að binda enda á átökin, svo sem sameiginleg álykt- un þeirra fyrir öryggisráðinu sýnir. Sovétstjórnin hefur orðið fyrir talsverðri gagnrýni ýmissa Araba, m.a. Khaddafys, leiðtoga Libyumanna fyrir ónóga aðstoð við þá og svik við málstað þeirra með því að fallast á vopnahlé. Tass-fréttastofan visaði þessari gagnrýni á bug í dag og kvað vopnahléið hafa stefnt að því, að komið yrði á varanlegum friði milli stríðsaðila. Israelski hershöfðinginn, Shlomo Gazit sagði í dag, að vopnahléið væri einungis pólitísk ráðstöfun stórveldanna, til þess ætluð að koma í veg fyrir að Isra- elar ynnu fullnaðarsigur, en til þess þyrftu þeir nú aðeins fá- eina daga. — Virðisaukaskattur Framhald af bls. 32 árunum 1974 eða 1975. Égtel hins vegar, þörf á, að hann verði undir- búinn á þessu þingi og tel mjög æskilegt að leita eftir samstöðu allra þingflokka um þetta mál, því hér er um að ræða breytingu, sem við verðum að gera á okkar tekju- öflunarkerfi vegna samninga og vegna þeirrar breytingar, sem er að verða umhverfis okkur. Ég tel þvf nauðsyn bera til, að samstaða verði um þennan skatt Min hugmynd er sú, að hann komi ekki til framkvæmda fyrr en 1. janúar 1976. Ég held að það muni reynast betra til þess að tryggja framkvæmd hans.“ Um skattsvikin sagði ráðherra, að verulegu máli skipti, hvernig viðurlögum við þeim væri háttað. Sitt mat væri, að til að koma í veg fyrir skattsvik yrði að beita viður- lögum gegn þeim, eins og um fjár svik væri ao ræða. Slik refsi- ákvæði ætti að setja inn í skatta- lögin. Einnig kvaðst hann líta svo á, að eðlilegt væri að birta nöfn þeirra, sem svikju undan skatti, ef þar væri um nokkra verulega upphæð að ræða. — Nefndastörf Framhald af bls. 32 kjörnar og skipaðar nefndir, sam- kvæmt lögum og ályktunum Alþingis. Samtals eru þær nefndir 147 og nefndarmenn 763. Þóknun til þeirra nemur 20,3 milljónum, en kostnaður við nefndirnar er alls 25,8 milljónir króna. FJórða tafla fjallar um nefndir skipaðar af stjórnvöldum, en þær eru samtals 253. Nefndarmenn eru 687, og er þóknun þeirra 18,4 milljónir króna, en heildar- kostnaður nefndanna er 22,7 milljónir króna. Samkvæmt þessu kostar þvf nefndarbákn rfkisins 121,6 mi lljónir króna — en þessar tölur eru miðaðar við árið 1972. — Gullfoss Framhaid af bls. 32 mannahafnar, en var í leigu hjá frönsku fyrirtæki veturinn .1050 — 51 og sigldi þá milli Bordeaux og Casablanca. Mjög hefur dregið úr verk- efnum fyrir Gullfoss við far- þegaflutninga, og var skipinu, sem kunnugt er, lagt hér í Reykjavík sl. vetur af þeim sök- um og vegna stórhækkaðs rekstrarkostnaðar. Og þar sem fyrirsjáanlegt var að mikill haHarekstur yrði á skipinu í vetur og framvegis, var því lagt nú i byrjun október eftir að sumarferðum lauk. Þau 23 ár sem Gullfoss hefur verið i siglingum, hefur skipið flutt meira en 156 þúsund far- þega f nálega 456 ferðum milli landa. Fer naumast hjá því, að margir muni sakna Gullfoss, er hann hverfur nú úr þjónustu Eimskips.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.