Morgunblaðið - 24.10.1973, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÖBER 1973
0 fclk 1 »r. b** ra
fréttum Q r ! - • 1
Paul Newman sagði nýlega, að
hjónaband hans og Joanne Wood-
ward gengi ljómandi vel, og þökk-
uðu þau það ákveðinni verka-
skiptingu á heimilinu. Joanne
tæki allar minniháttar ákvarðan-
ir, eins og til dæmis þær, sem
varða skólagöngu barnanna, húsa-
kaup, hvaða kvikmyndahlutverk
þau hjónin tækju að sér, og þess
háttar smámuni. Hann segist írft-
ur á móti sjálfur sjá um að móta
afstöðu fjölskyldunnar til stór-
mála eins og t.d. þess, hvort Kína
eigi að vera aðili að Sameinuðu
þjóðunum...
Þessi föngulegi kvennaskari lagði efnið upp I hendurnar á snillingun-
um f hárgreiðslukeppninni á Hótel Sögu um daginn, og verður ekki
annað sagt en konurnar séu bærilega klipptar, kemdar og þvegnar.
I Central Park I New York er
stytta af H.C. Andersen og Ijóta
andarunganum. Það bar við nú
um daginn, að Ijóti andarunginn,
(sem er svo sætur), hvarf. Ein-
hverjum hafði sem sagt dottið f
hug að fara að herma eftir ófét-
inu, sem stal höfði litlu hafmeyj*
unnar i Kaupmannahöfn fyrir
nokkrum árum. Höfuðið kom
aldrei f leitimar, þrátt fyrir um-
fangsmikla leit, og þegar ófært
þótti að hafa hafmeyjuna höfuð-
lausa lengur var smfðað á hana
nýtt höfuð.
Ljóti andarunginn kom hins
vegar I Ieitirnar eftir nokkra
daga, öllum til mikils léttis, en þá
höfðu fjölmargir borgarbúar, tfu
útvarpsstöðvar og fjórar sjón-
varpsstöðvar aðstoðað við leitina.
Dona Clemencia Concalves, sem
býr I miðri Brasilíu, er talin vera
elzta mannvera f heimi. Hún er
161 árs, eftir því sem næst verður
komizt, þannig að hún er fædd
árið 1812. Sfðustu 30 árin hefur
hún verið dálítið lasburða, en er
annars ern og minnug mjög. Hún
er tvígift, og hefur orðið tvisvar
sinnum ekkja. Hún man ekki
lengur, hvað fyrri maðurinn
hennar hét, né heldur man hún,
hvenær hann yfirgaf þetta líf, en
seinni maður hennar var af
ftölskum ættum og hét Salvador
Rosa Diano og lézt árið 1909. Þá
hefur Dona Clemencia verið orðin
97 ára, svo að það var kannski
ekki von, að hún færi að standa í
því að gifta sig aftur.
Nú er allt útlit fyrir, að Bertil Svfaprins gangi f hjónaband á
næstunni. í tæp 30 ár hefur hann haldið ástasambandi við enska konu,
Lillian Craig að nafni. Þau kynntust árið 1944, en Gústav Adólf 6.,
faðir prinsins lagðist gegn þvf, að þau gengju í hjónaband, vegna þess
að honum þótti nógu margir úr sænsku konungsfjölskyldunni þegar
hafa gifzt óbreyttum borgurum, og fáir „ekta“ fulltrúar konungsfjöl-
skyldunnar væru eftir til að gegna.oþinberum skyldum.
Tveimur árum eftir fyrsta fund sinn keyptu LiIIian Craig og Bertil
prins hús á Miðjarðarhafsströnd Frakklands, þar sem þau hafa sfðan
dvalizt langdvölum á sumri hverju. Þar hafa þau sameiginlega tekið á
móti fjölda gesta, og hafa flestir meðlimir sænsku konungsfjölskyld-
unnar heimsótt þau þar, en Gústav Adólf kom þangað aldrei.
Það þótti tfðindum sæta, þegar konungur varð nfræður f nóvember f
fyrra, að þá var Lillian Craig viðstödd öll hátfðahöld af þvf tilefni, og
var það f fyrsta sinn, sem hún kom fram sem ein af f jölskyldunni.
LiIIian Craig er nú 51 árs, en prinsinn er sextugur, svo að vart verður
sagt, að til hjónabandsins verði stofnað f barnaskap, ef af verður.
Liv Ullman er okkar eftirlætis-
kvinna. Það hefur verið haft eftir
henni, að hún sé svo hjátrúarfull f
trúmálum, að ef hún sé spurð,
1 hvort hún trúi á guð, þá þori hún
1 ekki að segja nei, af þvf að hún sé
svo hrædd um, að guð heyri til
hennar.
— Tekur þú aldrei konuna þfna með á skytterf?
BfGrfúMO
Reyndu að koma þessu út úr þér, þetta á að verða jólabók.
HÆTTA A NÆSTA LEITI
— Eftir John Saunders og Alan McWilliams
~^
Stattu ekki eins og þvara, Mark. Opnaðu
dyrnar, ég vil lfta nánar á þennan unga
mann. Vertu nú róleg, Goldie. Mundu, að
við ákváðum, að það yrðu ekki teknar
neinar skyndiákvarðanir. (2. mynd) Það
eru miklir peningar f veði, og við getum
ekki hætt þeim á óþekkta persónu. (3.
mynd) Púff, það þekkti enginn Goldie
Markee, fyrr en ég hafði gert mfna fyrstu
mynd. Snúðu höfðinu ungi maður; ég vil
sjá prófflinn.