Morgunblaðið - 23.11.1973, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1973
17
Aðeins gripið til gagn-
ráðstafana í ítrustu neyð
Gaddaf.v I samtali við fréttamann AP
Olía til USA
frá Libyu?
Washington, 22. nóv., AP.
HENRY Kissinger utanrfkisrðð-
herra Randarfkjanna gaf þá yfir-
lýsingu á blaðamannafundi I dag,
að þrýstingur sá, sem Arabarfkin
hefðu í frammi vegna olfusölu til
ótal landa, myndi ekki ráða mót-
un stefnu Bandaríkjanna í Mið-
austurlöndum. Ilann kvaðst og
vilja vara við þvf, að Bandarfkin
kynnu að svara með mótaðgerð-
um, sem hann skýrði þó ekki nán-
ar. Hann lagði á það áherzlu, að
Bandaríkin ætluðu sér ekki að
verða þrýstingsaðgerðum utanað-
komandi aðila að bráð.
GAMLI
GETTY
NEIT-
ARENN
Guildford, Englandi,
Rómaborg, 22. nóv. AP.
AUÐJÖFURINN Paul Getty
hefur ftrekað, að hann muni
ekki borga eyri í lausnargjald
fyrir sonarson sinn, sem talinn
er vera I höndum mann-
ræningja á ftalfu. Sagði full-
trúi Gettys fréttamönnum f
dag, að afstaða afa piltsins
hefði ekkert breytzt, og að þvf
er bezt væri vitað, hefði faðir
drengsins heldur ekki lagt út
neina peninga.
Enn hefur ekki tekizt að
sanna, að eyra, sem móður
Gettys unga hefur verið sent,
sé af syni hennar. Mynd barst
dagblaði í Rómaborg, sem átti
að sýna piltinn með afskorið
eyra, en sérfræðingar telja
myndina ekki óyggjandi sönn-
unargagn. Þá hefur borizt bréf
frá piltinum, sem birt hefur
verið, þar sem hann biður móð-
ur sína og ættingja að hjálpa
sér og láta undan kröfum ræn-
ingjanna. Heitir hann því, að
þá skuli hann breyta um líf-
erni og fara í einu og öllu að
vilja aðstandenda sinna. ,,Ég
skal meira að segja fara aftur í
skóla,“ stendur í bréfinu, sem
álitið er, að hann hafi skrifað.
Hins vegar hefur frá upphafi
leikið grunur á því, að piltur-
inn hafi sjálfur sviðsett ránið á
sér til að hafa fé út út ættingj-
um sinum.
Moskvu AP.
YELENA SAKHAROV, eigin-
kona visindamannsins Andrei
Sakharovs, sagði á blaðamanna-
fundi á heimili sfnu í Moskvu,
að við yfirheyrslu hjá KGB —
sovézku öryggislögreglunni —
fyrr um daginn, hefði starfs-
maður þar látið að þvf liggja,
að hún hlyti að vera geðveik,
þar sem hún ncitaði allri sam-
vinnu við lögregluna.
Andrei Sakharov lýsti því
yfir á fundinum, að hann væri
fús til að taka boði um að kenna
við Princetonháskólann f
Bandaríkjunum. Hann sagðist
þó ekki vera bjartsýnn á, að fá
brottfararleyfi og einnig
óttaðist hann, að fengi hann
leyfi til að fara úr landi, væri
viðbúið, að hann gæti ekki
snúið aftur ef hann óskaði.
Hann sagðist hafa hug á að
Fréttamenn segja, að enda þó.tt
yfirlýsingar Kissingers á fundin-
um hafi verið gagnorðar, hafi
hann virzt sáttfús í betra lagi, og
hann hafi látið í ljós von um, að
Arabaríkin myndu slaka á jafn-
skjótt og færi að hilla undir raun-
hæfar friðarviðræður. Hann
sagði, að vonandi gæti hann skýrt
frá-því í næstu viku, hvaða ríki
ættu fulltrúa í þessum viðræðum
og einnig hvar þær yrðu haldnar.
Varðandi önnur atriði, sem
Henry Kissinger
Kissinger fjallaði um, má vfkja að
því, að hann snupraði ríki
Atlantshafsbandalagsins fyrir að
bregðast Bandaríkjunum, meðan
styrjöldin í Miðausturlöndum
stóð sem hæst, en sagði þó, að
hann skildi, að hver þjóð hefði
sína eigin afstöðu.
Hann lét í Ijós von um, að bætt
sambúð við Kína myndi verða til
að draga úr spennu í Suðaustur-
Asiu. Hann sagði, að engin grund-
vallarbreyting yrði milli
Washingtonstjórnarinnar og þjóð-
ernissinnastjórnarinnar á For-
mósu. Hann vildi ekki — vegna
sambúðar Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna — gera nákvæma
grein fyrir þeim aðstæðum, sem
urðu til að Bandarikin virtust við-
búin að taka þátt í Miðaustur-
landastyrjöldinni þann 25. októ-
ber. Sagði Kissinger, að Banda-
ríkjamenn yrðu að hafa allsæmi-
legt traust á þvf, hvernig ráða-
menn landsins skipuðu málum
þess.
Kissinger er nýkominn úr
ferðalagi til Miðausturlanda,
Kfna og Japans, eins og sagt hefur
verið frá. Hann hefur gefið Nixon
Bandarikjaforseta skýrslu, svo og
kenna við Princeton í eitt ár að
minnsta kosti.
Yelena Sakharov sagði, að
KGB-menn hefðu hótað að
refsa börnum þeirra hjóna, án
þess þó að skýra nánar í hverju
refsingin myndi felast. Hún
sagði, að sonur þeirra. dóttir og
tengdasonur hefðu þegar sætt
kúgun af hálfu hins opinbera
vegna starfsemi manns hennar.
Dóttir hennar og tengdasonur
hafa til að mynda verið rekin
úr háskóla og svipt atvinnu.
Sonurinn Alexei sætir stöðugri
áreitni í skóla sínum og hefur
verið neitað um inngöngu í
háskóla.
Yelena sagði, að Sischikov
ofursti hefði vakið athygli á
andlegu ástandi hennar, sem
hann hugði vera hið varhuga-
verðasta, þegar hún neitaði að
vitna gegn Gabriel Superfin og
tveimur nefndum öldungadeild-
arinnar.
í sambandi við þær gagnráð-
stafanir, sem Bandaríkin kynnu
að grípa til, ef Arabarfkin léttu
ekki olfusölubanninu, sagði Kiss-
inger, að til engra ráðstafana yrði
gripið ,,nema í ítrustu neyð“, en
hins vegar gætu Bandarikjamenn
ekki sætt sig við þá afstöðu, sem
fram kæmi hjá Arabaríkjunum í
þessu efni. Hvatti Kissinger Ar-
abaleiðtogana til að sýna mun
meiri sveigjanleik i þessu máli.
Kissinger kvaðst horfa björtum
augum til samningaviðræðnanna
um ástandið i Miðausturlöndum,
sem haldnar yrðu undir eftirliti
Sameinuðu þjóðanna, en Banda-
ríkin og Sovétríkin myndu leggja
þar fram einna drýgstan skerf, að
öðru óbreyttu, svo að friður kæm-
ist á.
Kissinger sagði, að engar sann-
anir væru fyrir þeim staðhæfing-
um, sem komið hefðu fram um, að
Sovétríkin hefðu sent Egyptum
kjarnorkuvopn, en ef það væri
rétt, væri það vitanlega mjög al-
varlegt mál.
Rússar reknir?
Parfs (AP).
SOVÉZKA sendiráðið bar afdrátt-
arlaust til baka á miðvikudag
blaðafréttn þess efnis, að 10
sovézkum verzlunarfulltrúum f
Frakklandi hefði verið vfsað úr-
landi fyrir njósnir.
Franska utanríkisráðuneytið
kvaðs ekkert vita um fréttina sem
birtist í L’aurore.
Egyptalandi, 22. nóvember, AP.
SAMNINGAMÖNNUM Egypta og
tsraela tókst ekki að koma sér
saman um nýjar vopnahléslfnur á
fjögurra klukkustunda löngum
fundi, sem haldinn var f dag í
tjaldi Sameinuðu þjóðanna á
stað, sem er kallaður 101.
kflómetrinn. Finnski hers-
höfðinginn, Ensio Siilasvuo, sem
er yfirmaður friðargæzlusveita
Sameinuðu þjóðanna, sagði þó, að
fundurinn hefði verið gagnlegur
Victor Khaustov, sem eiga yfir
höfði sér alt að sjö ára vist i
nauðungarvinnubúðum vegna
„andsovézkrar áróðursstarf-
semi“. Neitaði hún að undirrita
yfirlýsingar, sem starfsmenn
KGB lögðu fyrir hana, m.a. þess
efnis, að hún segði ekki opin-
berlega frá þremur fundum
hennar og KGB. Hún hefur ver-
ið boðuð til enn einnar yfir-
heyrslu á morgun, föstudag.
Hún sagði einnig, að KGB-
menn hefðu rætt það itarlega,
að hún hefði smyglað úr Iandi
fangelsisdagbók Eduard
Kuznetsovs, sem var dæmdur í
flugránsréttarhöldunum í
Leningrad árið 1970. Einnig
var reynt að fá hana til að beita
áhrifum sinum svo að maður
hennar hætti gagnrýni á
sovétskipulagið,
Beirut, 22. nóv, NTB
HAFT er eftir heimildum innan
olfuiðnaðarins f Beirut í dag, að
trak og Libýa, sem hafa ákveðið
að taka ekki þátt f leiðtogafunda
Arabarfkjanna nk. mánudag,
haldi uppi sýna Iinari takmörkun-
um á olfusölu en önnur arabísk
rfki.
Heimildir þessar herma, að olía
berst frá Libyu til Bandaríkj-
anna um riki við Karabiska hafið.
Sömuleiðis haldi Libya fast við
þá ákvörðun Arabaríkjanna frá
því 17. október að takmarka oliu-
framleiðsluna um 5% á mánuði,
og samningamennirnir myndu
hittast aftur á morgun.
Grundvallarkrafa Egypta er sú,
að tsraelar kalli herlið sitt aftur
til víglínunnar eins og hún var,
þegar vopnahlé var fyrst sam-
þykkt 22. október. Það myndi
leysa úr haldi 20 þúsund manna
þriðja her Egypta, sem er alger-
lega umkringdur á vesturbakka
Suesskurðar. ísraelar eru tregir
til að gera þetta, nema eitthvað
komi í staðinn, en hafa lagt til, að
báðir aðilar kalli hersveitir sínar
til þeirra landamæra, sem giltu,
áður en stríðið hófst. Gæzlusveitir
Sameinuðu þjóðanna gætu svo
verið beggja vegna Suesskurðar.
Fangaskiptum við
Egypta lokið
Stríðsfangaskiptum Egypta og
Israela lauk í dag. Til Tel Aviv
voru fluttir 17 síðustu ísraelarnir
og 166 Egyptar voru sendir til
baka með sömu flugvél. Egyptar
hafa þá skilað alls 241 fanga en
Israelar 8.301, sem teknir voru í
stríðinu.
Moshe Dayan varnarmálaráð-
herra tók á móti ísraelsku föngun-
um og herstúlkur f mini-pilsum
færðu þeim blóm og kysstu þá og
knúsuðu. Þær voru rennandi
en Kuwait og Saudi-Arabfa hafa
minnkað framleiðsluna þegar um
30%. Þess má minnast, að
Gaddafy, leiðtogi Libyumanna
hefur hvað harðast gagnrýnt
stuðning Bandarikjamanna við
israel og hvatti snemma til, að
olían yrði notuð sem vopn.
Irakar hefi opinberlega látið í
Ijós óánægju fyrir hinni miklu
takmörkun olíuframleiðslu á
þeirri forsendum, að hún skaði
bæði vini Araba.og þá sjálfa. Þeir
telja þjóðnýtingu bandarískra
eigna i olfuiðnaðinum vænlegra
vopn.
blautar þvi ausandi rigning var,
þegar vélin með fangana lenti.
Dayan kvaðst vona, að nú yrði
hægt að taka upp fangaskipti við
Sýrlendinga. Sýrlendingar hafa
hingað til neitað að skila 121
ísraelskum herfanga í skiptum
fyrir 368 Sýrlendinga og 16 iraka,
sem Israelar hafa í haldi. ísraelar
hafa miklar áhyggjur af því, að
Sýrlendingar fari illa með
fangana, og þeir hafa sakað
Sýrlendinga um að hafa myrt 28
ísraelska stríðsfanga. Þeir
fundust með bundið fyrir augum
og hendurnar bundnar fyrir aftan
bak, skotnir í höfuðið.
Fögnuður og þögn
Allt israelsriki hefur fagnað
striðsföngunum, sem nú eru
komnir heim. Golda Meir og
Moshe Dayan hafa persónulega
tekið á móti þeim og Lod flugvöll-
ur hefur verið fánum skreyttur.
Hins vegar hefur verið mjög
hljótt um fangana, sem Israelar
hafa skilað til Egyptalands. Þeir
eru fluttir í kyrrþey og tekið á
móti þeim í kyrrþey. Talið er, að
þetta sé gert vegna þess, að leið-
togarnir vilji ekki þurfa að út-
skýra fyrir fólkinu, hvers vegna
Egyptar tóku aðeins 241 fanga, en
israelar yfir átta þúsund.
Konur athugið
Ný nárgrelöslustofa l Brelðholll
opnar í dag.
Hðrgrelðslustofan Flöla
Arahólum 2. Pantanir teknar í síma 72740
Elinborg Pálsdóttir (Ellý).
Verður frú Sak-
harov talin geðveik?
Ekkert samkomulag um
nýjar vopnahléslínur
Fögnuður annars vegar, þögn hins vegar eftir stríðsfangaskipti