Morgunblaðið - 23.11.1973, Page 19

Morgunblaðið - 23.11.1973, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1973 19 JÓNA TANMÁF- URÁ ÍSLENSKU JÓNATAN LIVINGSTONE MÁFUR Saga eftir Riehard Bach f þýðingu Hjartar Pálsson- ar. Ljósmyndir eftir Russell Munson. Örn og Örlygur 1973. SAGAN um Jónatan Livingston, máfinn, sem varöðruvísi ep. aðrir máfar, sætti sig ekki við takmörk sín, er komin út í íslenzkri þýð- ingu. I Morgunblaðinu 25. febrúar sl. komst ég m.a. svo að orði um Jónatan máf: „Jóntan er frelsistákn, sigur andans yfir efninu. Um leið er hann lof- söngur um einstaklingshyggju, dýrkun hins einstæða og dirfsku- fulla, þess, sem fer ekki alfara- leið. Jónatan má líka kalla Jesú- máf, hugleiðslumáf í guðspeki- legum skilningi. Hann er i senn fugl og maður, tákn endalausrar leitar. Richard Bach tileinkar bókina hinum raunverulega Jónatan máfi, sem býr í okkur öllum,“ Richard Bach, höfundur Jóna- tans Livingston málfs, er fyrrver- andi orrustuflugmaður á fertugs- aldri. Hann hefur samið nokkrar bækur og er kunnur fyrir skrif sín um flugmál. Með Jónatan máfi hlaut hann heimsfrægð og bókin varð metsölubók i Banda- rikjunum. Jónatan Livingston máfur er einföld og ljóðræn saga. Bókin er snjöll hugmynd i aðgengilegu formi. Það eru yfir henni töfrar líkt og höfundurinn hafi orðið fyrir hugljómun. Aftur á móti get ég ekki fullyrt hve langlff þessi bók verður. Hinar spaklegu orðræður máfanna, sem öðlast hafa fullkomnun eða eru að full- komnast, draga dám af guðspeki og eru ef til vill of fyrirferðar- miklar. Það hvarflar að lesand- anum, að þótt Jónatan Living- ston máfur sé ekki löng saga, hefði hún þurft að vera enn styttri. Þetta gildir einkum um siðari kaflana. Sumar bækur koma á réttum tíma. Jónatan Livingston máfur veitir svör við ýmsum spurn- ingum fólks, sem vill að bækur séu uppbyggilegar og háleitar. Hvers^ konar hugrenningar af guðspekilegum toga eru nú mjögf tisku, ekki aðeins i bandariskum kvennaklúbbum. heldur um allan heim. Hugmyndir Richards Bach hvetja til umræðu og íhugunar þótt þær séu alls ekki nýstárlegar. Boðskapur Jóntans Livingstons máfs er leit að fullkomnun og ástundun kærleika. Öllum hindr- unum til að ná hinu eftirsóknar- verða takmarki fullkomnunar- innar þarf að ryðja úr vegi. Jónatan máfur verður að sætta sig við útskúfun, öfund og hatur eins og allir brautryðjendur. í heimi, þar sem allir eiga að vera steyptir í sama mót, verður sér- hver tilraun til að víkja af vegi vanans að hættulegri uppreisn. Máfaráðið, sem dæmir Jónatan fyrir að brjóta reglur máfanna, ættum við að kannast vel við úr mannlegu félagi. Hjörtur Pálsson hefur þýtt Jónatan Livingston máf. Þýðing hans er smekkleg, málið i senn lipurt og gott. Bókin er skreytt listrænum ljósmyndum eftir Ryssell Munson og gefa þær bók- inni aukið gildi. Það er þokkafullt samræmi yfir þessari bók. Snjólaug Bragadóttir: Ráðskona óskast í sveit. Má hafa meðsér barn. Bókaútgáfan Örn og Örlygur h.f. 1973 A síðustu áratugum hefur það bjargað mörgu sveitabýlinu frá að fara í eyði, að þangað hefur flutzt kvenmaður, sem staðið hefur einn uppi með eitt eða fleiri börn, og síðan gengið að eiga bónda, sem hfrzt hefur með systur eða aldr- aðri móður á jörð sinni — eða verið alger einstæðingur og þá gjarnan svo mótaður af mein- legum aðstæðum, að hann hefur verið orðinn utanveltu við allt félagslíf. Stúlkan, ekkjan eða hin frá- skilda móðir hefur flutzt í sveit- ina sakir þess, að henni hefur þótt sér ofraun að gera hvort tveggja: vinna i skrifstofu, búð eða verk- smiðju fimm, sex daga vikunnar og fá barni sínu eða börnum dag- langt örugga og æskilega umönn- un. En nú eru þess orðin allmörg dæmi, að bæði einstæðar mæður og einnig fjölskyldur flytjast f sveit, þó að aðstæður þeirra f þétt- býlinu séu allgóðar eða almennt talið vel viðunandi. Kann vel að vera, að þar hafi áhrif skrifin og talið um mengun, og þá engu sfður sú staðreynd, að fleiri og fleiri sjá, að hið þrúgandi þæg- indakapphlaup er að ekki litlu leyti „eftirsókn eftir vindi“. Einnig kunna að valda þarna nokkru umræðurnar um það, að ekki sé þjóðfélagslega æskilegt, að mikill meirihluti þjóðarinnar hrúgist niður á nokkur hundruð ferkílómetra okkar víðáttumikla lands. Loks munu svo sumar hinna einstæðu mæður og fjöl- skyldur, sem flytjast í dreifbýlið, hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að börnum þeirra kunni að vera hollt aðalast upp meira og minna úti f „guðsgrænni náttúrunni“, og vera i svo til daglegum tengslum við dýr, hund og kött, kýr, kindur og hesta, villta eðatamda fuglaog Iontur í læk. Aðalpersónan i sögu Snjólaugar Bragadóttur flytzt ekki með Huldu litlu dóttur sína i sveit sakir fjárhagslegs vanda eða af því, að dóttur hennar skorti umönnun, þegar móðirin fer til vinnu. Síður en svo. En hún er leið á starfi sínu og þá ekki sfður á ráðriki móður sinnar og vin- konu hennar, sem er föðuramma Huldu litlu, en báðar þessar mekt- arfrúr vilja, að úr því verði, sem snemma var til ætlazt, að Anna gangi að eiga barnsföður sinn, þó að hvorki hann né hún séu tengd öðrum böndum en gamallar vin- áttu allt frá bernsku og svo þeim, að Hulda Iitla varð til. En í sveit fer Anna á býli, þar sem aldraður maður býr með tveimur uppkomnum, en ókvænt- um sonum, öðrum raunar hálft í hvoru trúlofuðum stúlku, sem meira en gjarnan vill verða konan hans og er erfingi að góðu býli í næsta nágrenni við bújörð feðg- anna þriggja. Allt gengur „eins og i sögu“. Hulda litla er svo himinlifandi glöð yfir dásemdum sveitalífsins, að hún tekur ekki í mál að vera annars staðar en á Áshóli, enda verður hún yndi feðganna og þá ekki sízt gamla mannsins. önnu lízt í fyrstu alls ekki á blikuna, finnur mjög til vanmáttar og van- þekkingar gagnvart skyldum sfnum, en þetta lagast brátt, og hún reynist fyrirmyndar húsmóð- urefni, sem þrífur húsakynnin, snyrtir allt og býr til forlátamat. Annar sonurinn trúlofast stúlku úr kaupstað og flytzt burt, hálf- gildings kærasta hins gefst upp á honum og fær sér annan, og loks Framhald á bls. 20 Frásögur Hersilíu Hersilía Sveinsdóttir. VARASÖM ER VERÖLDIN. Leiftur h.f. 1973. NAFN Hersilíu Sveinsdóttur hef- ur oft heyrst í útvarpsdagskránni. Hún hefur verið þar með vísna- þátt, ef ég man rétt. Nú sendir hún frá sér smásagnasafn og kem- ur þar með skýrar fram í dagsljós- ið. Hér reynist sem sé vera á ferðinni fyrrverandi kennslukona norðan úr Skagafirði. Hefur hún ekki sem slík frá ýmsu að segja? Hví setti hún þá ekki heldur saman ævisögu? Var það of bert? Var heppilegra að tjá lffsreynslu sina í skáldskaparformi? Ekki er út í hött spurt, því lengsta sagan í bókinni, Laufás, er einmitt frá- saga af starfi barnakennara i sveit fremur en raunveruleg smá- saga.Hyggég.að ævisaga frá hendi Hersilíu hefði orðið skemmtilegri og ræð það mesl á þessum smásög- um hennar, en einkum þeirri, sem ég var að nefna. Hersilía seg- ir nefnilega vel frá, en veitist ekki að sama skapi auðvelt að takmarka efni sin i samræmi við listrænar kröfur smásöguforms- ins. Ég tek sem dæmi fyrrnefnda sögu, Laufás. Hersilía segir þar frá bæði mönnum og málefnum eðaréttara sagt: skilgreinir menn samkvæmt afstöðu þeirra gagn- vart tilteknu málefni: Ungur barnakennari ræðst til starfa i fæðingarsveit sinni, knýr á sveit- ungana að þeir reisi skólahús, kemur málinu i höfn, en bakar sér um leið óvild skattgreiðenda i hreppnum og glatar þá um leið trausti barnanna, sem heyra, hvað sagt er um hann heima hjá sér. Ekki get ég fullyrt, að Hers ilía leggi beinlinis eigin reynslu í þessa sögu, en hygg hún hljóti að minnsta kosti að hafa munað eftir starfi sínu, þegar hún samdi sög- una. En því merkilegra verður þetta þá sem frásaga. Hins vegar þykja mér ekki til bóta þeir tilburðir hennar að flétta inn f þetta ástarævintýri og láta að lok- um allt enda í faðmlögum uppi á f jallstindi. Er það ekki eins og að leggja rauða rós ofan á óhrjálegan skjalabunka? Hvorki verður frá- sagan læsilegri fyrir bragðið né á neinn hátt merkilegri. Ilins vegar er alltaf fróðlegt að heyra, hvað gott fólk segir um lífsreynslu sína — starfsreynslu ekki hvað sfst. Og barnakennari í sveit hefur gegnt svo veigamiklu hlutverki i þjóðlífinu, komið svo mörgum til þroska og kynnst svo náið högum fjölda fólk, að hann ætti að hafa frá nógu mörgu að segja, þó hann neiti sér um að skálda. Fáa hygg ég hins vegar hafa verið sparari á að skrifa sjálfsævisögur; kannski fyrir þá sök, að kennarinn veit of mikið, meira en hæfa þykir að birta á prenti, auk þess sem hann þykist ef til vill bundinn þagnarskyldu gagnvart þeim, sem hafa treyst honum og trúað. Meiri eiginleg smásaga er Gæfuspor, sem bók Ilersiliu hefst á. Þar er einnig horft á mannlífið frá sjónarhóli kennara, en á annan hátt. Vel er sú saga skrif- uð; sennilega besta sagan í bók- inni sé við listrænar eigindir mið- að. Minnisstæðari er hún hins vegar ekki; er um of fegruð; ekki alls ótrúleg, eins og hún er fram sett, en brýtur þó i bág við veru- leikann, eins og hann blasir tiðast við augum. Sögu þeirri, sem þarna endar vel, lýkur oftast dapurlegar i lífinu. í veruleikan- um fara menn ekki ávallt batn- andi. Og gamall kennari ætti að vita, að stökkbreytingin: vondur maður verður góður maður — er þvi miður sjaldgæf nema í ævin- týrum. Sú var tiðin, að barna- bókahöfundar sömdu mikið af svona krassandi betrunarsögum, óþekkum krökkum til eftirdæmis, en eru nú mikið til hættir því, þar eð tekið er að gera til þeirra list- rænar kröfur jafnt og til annarra rithöfunda. Þá vil ég nefna sögunar Enginn veit hvað undir annars stakki býr, en þar þykir mér Hersilia þræða betur veginn milli frásögu og skáldskapar, enda er það saga úr gamla tímanum; runnin upp úr islenzku sveitalífi eins og það gerðist aldirnar i gegnum, um- hverfi, sem Hersilíu er áreiðan- lega runnið í merg og bein. T\rær sögur eru enn í bókinni, Móður- minning og Ilildur, en ekkert er sérstakt um þær að segja framar því, sem sagt hefur verið um hin- ar fyrrnefndu. Guðmundur G. Ilagalín fylgir bókinni úr hlaði með formála og segir þar meðal annars: „Trúlega hristaýmsir vandlátir og dálítið tizkubundnir rit- dómarar höfuðið yfir þessum sög- um og segja með fyrirlitningu: „Enn ein keidingabókin til viðbót- ar.“ Hvort sem þessi varnagli Ilaga- líns reynist þarfur eður ei, verð ég að segja, að mér finnst Hersilía ekki fara með neinar kerlinga- bækur, hvorki i gamalli né ný- legri (og líkast til einnig misskil- inni) merking orðsins. Ilei-silíu þarf ekki að skjalla. Sögur hennar eiga skilið að vera lesnar og gagn- rýndar i alvöru. Alvaran í þeim veldur þvi, að þær hripa ekki strax niður úr hugskotinu. heldur taka sér þar bólf.estu, þróast og vaxa. Kannski er of mikið sagt, að þetta sé svipmikið sem skáldskap- ur. Ætli sé ekki nær að segja, að þetta sé eins og góð kynni í dag- legu lífi, þar sem allt er sagt og gert óæft, en getur þó engu að siður orðið minnisstætt og gagn- legt f bráð og lengd? Erlondur Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.