Morgunblaðið - 23.11.1973, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1973
Ætlar að keppavið
jómfrú Ragnheiði
Endurminningar Guðrúnar
r
A. Símonar komnar út
„ÞÓ AÐ endurminningar mínar
komi nú út, þýðir það alls ekki að
ferli mfnum sé lokið — síður en
svo. Það kemur þá bara annað
bindi, eins og hjá jómfrú Ragn-
heiði.“ Þannig fórust Guðrúnu Á.
Sfmonar, söngkonu, orð á fundi
með blaðamönnum, en endur-
Guðrún Á. Sfmonar
minningar hennar „Eins og ég er
klædd" er nú komin í bókabúðir.
Gunnar M. Magnúss hefur skráð,
en útgefandi er Bókaforlag Odds
Björnssonar á AJkureyri.
Guðrún var hress að vanda og
kvaðst ákveðin í því, að þessi
bók seldist. „Hins vegar datt mér
aldrei í hug að ég myndi lenda í
samkeppni við framliðna
manneskju á bókamarkaðinum í
ár, og er ég þó vön samkeppni af
öllu tagi. Annars virðumst við
jómfrú Ragnheiður eiga ýmislegt
sameiginlegt, því að á einum stað
í bókinni er sagt frá þvf, þegar
nokkur styr stóð um meydóm
minn.“
Gunnar M. Magnúss var einnig
kampakátur yfir sameiginlegum
árangri þeirra Guðrúnar og
klappaði föðurlega á bókina. „Der
skal to til,“ sagði hann, „til að úr
verði krói. Hér sjáið þið króann
— fallegur, finnst ykkur ekki?
Samt var alltaf borð á milli
okkar.“
Það kom í ljós, að þau Gunnar
og Guðrún höfðu hafizt handa við
skrásetningu endurminninganna
í marzmánuði sl. þannig að ekki
skakkar nema hálfum mánuði svo
hinum viðurkennda 9 mánaða
meðgöngutíma hafi verið náð,
þegar bókin kom út. Nýjasta
tækni við æviminningaritun —
segulbandið — var notað við
samningu þessarar bókar, en ekki
fer miklum sögum af framandi
röddum á bandinu nema hvað
stöku sinnum heyrðist kattar-
mjálm einhvers staðar i bak-
grunninum.
„Guðrún kom svo sannarlega til
dyranna, eins og hún er klædd,"
sagði Gunnar. „Þetta er opinská,
hreinskilin og falslaus frásögn
heillandi konu, sem lifað hefur
ótrúlega viðburðaríka ævi. Ég
vona að mér takist að ná Guðrúnu
nokkuð vel í þessari bók — lista-
mannsferli hennarog einkalífi.“
Guðrún bætir því hér við, að
henni hafi alltaf fundizt það
lióður á endurminningabókum til
þessa, hversu fólk væri ragt við
að lýsa einkalífi sínu. „Eg segi
hérna frá ástamálum mínum,
þeirri gleði og vonbrigðum, sem
ég hef mætt á lífsleiðinni. Eg er
alveg óhrædd við það. Ég hef
alltaf verið líkamleg gunga,
hrædd við lækna og allt svoleiðis,
en ég hef aldrei verið andleg
gunga.“ Bókin rekur allan lífs-
feril Guðrúnar fram á þennan
dag, segir frá söngnáminu í
Englandi og á ítalíu, fólki, sem
hún kynntist á lífsleiðinni, frá
köttunum sínum auðvitað, og þá
ekki sfður frá viðskiptum sínum
við Þjóðleikhúsið — ,,það er verið
að myrða Mozart í Þjóðleik-
húsinu“ eru til að mynda
upphaf sorð eins kaf lans.
Aðstandendur bókarinnar
munu einnig taka upp skemmti-
lega breytni, því að á þriðju-
daginn kemur verða þau Guðrún
og Gunnar stödd í tveimur bóka-
verzlunum og munu þar árita
afkvæmi sitt fyrir þá, er þess
óska. Þau verða í bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar milli kl.
14 og 15 og í bókabúð Máls og
menningar milli 15.30 og 16.30.
Bókin er alls 220 bls. og prýdd
fjölda mynda.
Hef fjársterkan kaupanda
ag 3ja — 4ra herb. íbúð á Stór-Reykjavíkursvæði,
Breiðholts-, eða Árbæjarhverfi koma ekki til greina.
íbúðin bar ekki að losna fyrr en næsta sumar.
Guðm. Karl Jónsson hdl.,
Faxatúni 17, Garðahreppi,
sími 42960.
AKRANES
4 raðhús til sölu. Húsin eru fokheld með steyptri loftplötu
og einangrun í lofti. Tveim húsanna verður skilað
snemma i janúar, tveim þeim síðari nokkuð seinna. Allar
nánari upplýsingar gefnará kvöldin og um helgina í síma
1 940, Akranesi. HýS & EIGNIR
BANKASTRÆTI 6
Símar 16516 — 16637.
þorskanet
væntanleg
næstu fjóra mánuði eru því miður lofuð. Við getum tryggt
yður góð þorskanet á lægsta fáanlega verði hér í apríl og
síðar, ef pantað er strax.
HriJjfm O.OUoAúnP
Hverfisgötu 6, sími 20000.
(Jr vélasalnum f hinu nýja brauðgerðarhúsi Brauðs h.f.
GETA BAKAÐ 20 ÞUSUND
KM AF BRAUÐI Á ÁRI
LANDSINS stærsta hakarí var
tekið í notkun s.l. laugardag. Það
er Brauð h.f., sem er eigandi
þessa nýja brauðgerðarhúss, en
gert er ráð fyrir, að 8000-10000
brauð verði bökuð á dag í brauð-
gerðarhúsinu. Ef öll brauðin
verða tengd saman í eina lengju
eru þau um 20 þús. km á ári,
þannig að þau myndu ná hálfa
leið í kringum hnöttinn.
Brauð h.f. var stofnað árið 1963,
Lýst eftir
ökumönnum
SL. þriðjudagsmorgun, 20. nóv.,
var dökkrauðri fólksbifreið ekið
utan í konu við Skúlatorg. Kona
ók bifreiðinni. Sú, sem ekið var á,
taldi sig ómeidda, en annað kom í
ljós seinna, og er því ökukona
bifreiðarinnar beðin að hafa sam-
band við rannsóknarlögregluna
vegna óhappsins.
Föstudagskvöldið 9. nóv. sl., kl.
20, var vínrauðri Peugeo-leigubif
reið ekið aftan á græna Volkswag-
en-bifreið við umferðarljósin á
mótum Njarðargötu og Hring-
brautar. Við fyrstu athugun
virtist ekkert tjóna hafa orðið á
VW-bifreiðinni, en annað hefur
komið f ljós, og er leigubifreiðar-
stjórinn, ungur, dökkhærður mað-
ur, beðinn að hafa samband við
rannsóknarlögregluna vegna at-
viksins.
Helgafell:
af þeim Kristni Albertssyni,
Hauki Friðrikssyni og Óskari Sig-
urðssyni, með það í huga, að mæta
framkomnum kröfum neytenda,
um breytt fyrirkomulag á sölu,
dreifingu og umbúðum brauða,
sem og annarra matvæla, vegna
tilkomu fyrstu kjörbúðanna.
Hin nýja brauðgerð er í Skeif-
unni 11, og áformað er, að stækka
brauðgerðina á næstu 2 — 3 ár-
um. Þá verður heildargólfflötur
hússins um 1500 fermetrar. Allar
vélar eru keyptar frá v-Þýzka
fyrirtækinu Werner og Pfleid-
erer, sem er háþróað í framleiðslu
slíkra véla og eitt stærsta fyrir-
tæki sinnar tegundar í Evrópu.
Markmið fyrirtækisins með
þessum framkvæmdum er m.a. að
stuðla að auknu hreinlæti við
brauðgerðarframleiðslu, sem
meðal annars felst í því, að tekin
er upp nýjung í sambandi við
geymslu mjölvöru. Þegar mjölið
kemur í bakarfið er það strax los-
að í þar til gerða tanka, sem taka
30 lestir af mjöli. Sfðan fer mjölið
eftir lokuðu kerfi gegnum sér-
staka sigtisvél, sem á að fyrir-
byggja að aðskotahlutir komist í
deiglögunarvélarnar.
Fjármunir þeir, sem eru bundn
ir i vélum og öðrum tækjum, í
brauðgerðarhúsinu nema samtals
29 millj. kr.
Tvær myndir úr nýju þjóðsagakverunum; t.v. „Skrattinn og þrfr
djöflar hans“ eftir Gylfa Gfslason, og t.h. „Smalastúlkan“ eftir Guð-
rúnu Svövu Svavarsdóttur.
Ný myndskreytt þjóðsagnakver
„FRUMSKILYRÐIÐ til að tengj-
ast börnum er að hafa eitthvað
gott að lesa fyrir þau,“ sagði
Ragnar f Smára þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann vegna
merkrar útgáfu Helgafells nú f
haust á fimm þjóðsagakverum,
þar sem jafnmargir ungir íslenzk-
ir listamenn myndskreyta sjálf-
valið efni úr fslenzkum þjóðsög-
um. Útgáfa þessi er að sjálfsögðu
við hæfi alls almennings, en höfð-
ar þó sérstaklega til barna. „Ég er
ekki andvfgur svonefndum barna-
bókum,“ sagði Ragnar, „en mér
blöskrar margt af því, sem útgef-
endur ætla börnum til lesturs.
Þessar þjóðsagabækur eru valdar
fyrir fullorðið fólk til þess að lesa
fyrir börn, og ættu að vera grund-
völlur fyrir spurningar og svör,
sem brúað geta bilið milli kyn-
slóðanna, sem svo er nefnt.“
Listamennirnir, sem mynd-
skreyta þessi fimm þjóðsagakver
eru Jóhanna Þórðardóttir, Gylfi
Gfslason, Þorbjörg Höskuldsdótt-
ir, Guðmundur Ármann Sigur-
jónsson og Guðrún Svava
Svavarsdóttir. Hringur Jóhannes-
son listmálari, og Þorsteinn frá
Ilamri höfðu hins vegar umsjón
með útgáfunni. Myndirnar, sem
eru alls um 50, eru allar natúra-
liskar, og í beinum tengslum við
efnið og túlka það.
Um útgáfu þjóðsagnakveranna
segir m.a. í tilkynningu frá Helga-
felli:
„Sem myndlistarkynning gefur
safnið glæsilega og skemmtilega
hugmynd um vinnubrögð lista-
fólks, sem mun í framtíðinni setja
svip á myndlistarlíf okkar. Mynd-
skreyting bóka og feikning yfir-
leitt hafa verið vanræktar greinar
hér á landi, en það er að breytast.
Ungir listamenn hafa meir og
meir tekið að sinna dráttlist.
Bókaskreytang mun í framtíðinni
verða snar þáttur í bókamenn-
ingu íslendinga, ef að líkum læt-
ur, og úrvals listamenn munu í
alvöru leggja stund á hana.
Helgafell hefur áður haft for-
göngu um myndskreyttar útgáfur
af fornsögum, og ýmsir helztu
listamenn okkar lagt þar hönd að
verki. Varla þarf að minna á, að
íslenzkar þjóðsögur eru lfka mikil
arfleifð, hnitmiðuð og fullkomin
list, þar sem hún rís hæst. Og
jafnframt sú orðsins list, sem er
ótvíræðast allra eign.
Þjóðsögur hafa alla tíð tengt
saman hugmyndir hinna eldri og
yngri. Börnin hafa lært þær vi.ð
kné hinna fullorðnu, hinir full-
orðnu skynjað hugarheim barns-
ins gegnum þær. Vafalaust er
myndin mál tímans ekki siður en
orðið. Og líklega eru þjóðsögurn-
ar ekki jafnsterkur tengiliður
kynsfóðanna og áður, og er þá
tvfmælalaust illa farið.
Það er von útgefanda, að hin
handhæga myndskreytta útgáfa
megi á nýjan hátt glæða áhuga
barna, sem fullorðinna á þjóðsög-
um og auðvelda þeim að njóta
þeirra f sameiningu."
Þessi þjóðsagnaútgáfa Helga-
fells er prentuð í Vikingsprenti.