Morgunblaðið - 18.12.1973, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1973
39
Mannfjöldinn f heiminum er
u um 3.600.000.000 og mann-
yninu fjölgar um a.m.k. tvo á
. i Undu. Tveir virðist ekki há
®a’ en hún táknar þó 120
"’anns á mínútu, 7.200 á
j^utfma, 172.800 á dag,
^09.600 á viku, 62.899.200 á
1 1 ng hún þýðir óviðráðan-
vandræði og hrun lífskjara f
eröidinni á endanum. Síðan
emir menn á um hvenær sá
nu kemur. Eitt er þó víst,
erði ekki gerðar róttækar ráð-
,jrafan'r’ sem duga til þess að
a§a úr mannfjölguninni og
. ra fæðingar jafnmargar
fnnsíöllum, þá getur jörðin
flengur brauðfætt mann-
0 eða veitt því þau lffsgæði
r? nann tilverurétt, sem það á
ett á og krefst. Allt annað, sem
yfði til að bæta úr fæðu-
; nrt*> auka framleiðslu og
na gæðin, yi-ði til einskis, ef
ekt-* °la mannfjölgun verður
, jt' stöðvuð. Með sama áfram-
ualdl mun þessum 3,6 milljörð-
url^ /"attna á hnettinum fjölga
m nelming á 35 árum.
Sj Júðirnar eru farnar að átta
, a Þessu. Nú þegar sjást þess
úr tmerkl’ a^fariðsé aðdraga
fa umni öru fjölgun, þótt hægt
Q ,ri' Af þeim 66 löndum, sem
uggar tölur eru til um, má
erkja, að dregið hefur ur
nannfjölgun í 56 löndum. Og
Ekki
hvort
heldur
hvernig
stöðvast
mann-
fjölgunin
bjartsýnir menn spá því, að sú
tilhneiging muni halda áfrain
út áttunda áratuginn. Fyrst
hægi mjög hægt á og síðan
hratt. En jafnvel þótt takmörk-
un mannfjölgunar f heiminum
verði áragnrusrík, þá munu
samt verða mikil þéttbýlis-
vandamál á hnettinum. Við
verðum að gera ráð fyrir því, að
heimurinn verði — þó vel tak-
ist til — að brauðfæða cg sjá
mörgum sinnum 3,6 milljörðum
manna fyrir viðunandi lífsskil-
yrðum.
Flestar þjóðir hafa nú gert
sér ljóst, að mannfjölgun getur
einfaldlega hvergi haldiðáfram
í það óendanlega, og margar
þeirra eru þegar farnar aðgera
ráðstafanir til að draga úr f jölg-
un. Ef við lítum á heimsálfurn-
ar, hverja fyrir sig, þá eru við-
brögðin eitthvað á þessa leið:
Afríka: Almennt talað hefur
verið tekinn upp áróður fyrir
fjölskylduáætlunum og hvatt
til þess að takmarka stærð fjöl-
skyldna f þeim löndum, sem
áður voru enskar nýlendur og
t«rii þá aðallega halöar í huga
félagslegar ástæður og tilraunir
til að draga úr fátækt. Fyrrum
nýlendur kaþólsku landanna
hafa yfirleitt verið á móti tak-
mörkun barneigna. Gömlu
frönsku nýlendulöndin eru þó
að draga úr banni við notkun
gelnaðarvarna. Kn poruigölsku
nýlendurnar hvetja til barn-
eigna. Margar Norður-Afríku
þjóðir eru að taka upp áætlun
um minni fjölskyldustærð. í
Suður-Afríku og Ródesiu hafa
hvítu íbúarnir lengi haft uppi
varnir gegn barneignum, og
þar er nú verið að byrja á því að
flytja þá stefnu með einka-
stofnunum út til hinna svörtu.
En stjórnvöld Suður-Afríku
hvetja til stórra barnafjöl-
skyldna meðal hvítra.
Sú trú er útbreidd meðal
þjóða sunnan Saharaeyðimerk-
urinnar að til þess að þróun
geti orðið f löndum, þurfi fleira
fólk. I sumum Afrikulöndum er
dánartalan mjög há, allt að
20—30 af þúsundi og sumir
trúa því, að þegar sú tala lækki,
þá muni fæðingartalan líka
lækka. En það er nauðsynlegt
að draga úr barneignum, áður
en dánartalan lækkar.
Asía: Þar er ástandið ákaf-
lega misjafnt eftir löndum. Ind-
land og Pakistan reka mjög
ákveðna stefnu til að draga úr
fjölskyldustærð og fækka fæð-
ingum, en sum minni löndin
sýna engan áhuga á málinu.
Singapore og Malasía eru þó
byrjuð herferðina. Kfna hefur
síðan á síðasta áratug tekið upp
mjög stranga stefnu til að draga
af félagslegum ástæðum úr
mannfjölgun í landinu. Síðan
1960 hefur verið rekinn áróður
fyrir síðbúnum hjónaböndum
Og þá gert ráð fyrir, að konan sé
a.m.k. 25 ára og maðurinn 30
ára, áður en þau ganga í hjóna-
band. Sfðan eignist þau ekki
nema 2 börn og það með 3—5
ára millibili. Hvatt er til þess,
að karlmenn, sem eignast hafa
2—3 börn, láti gera sig ófrjóa.
Getnaðarvarnameðul eru auð-
fengin, svo og fóstureyðingar. i
Japan var dregið mjög úr
mannfjölgun eftir sfðari heims-
sty rjöldi na með löggildingu
fóstureyðinga. Fræðsla og áróð-
ur í fjölmiðlum og skólum
hefur síðan náð þeim árangri,
að mannfjölgun er svipuð, þótt
dregið hafi úr fósturéyðingum.
Norður-Ameríka: Hvorki
Kanada né Bandarfkin hafa
neina opinbera mannfjölda-
stefnu, nema hvað viðkemur
innflytjendum. Ný löggjöf um
fræðslu til að draga úr mann-
fjölgun hefur verið til umræðu
í þinginu og í ýmsum fylkjum
hefur verið slakað mjög á regl-
um um fóstureyðingar. i júli-
mánuði 1969 fór Nixon fram á
að komið yrði upp nefnd til að
fjalla um mannfjölgun og fram-
tíð Ameríku, hvað sem af hefur
orðið.
Suður-Ameríka: Þrátt fyrir
örasta mannfjölgun, hefur
tregðan verið mest í Suður-
Ameriku við að viðurkenna
þörf á að draga úr mannfjölg-
un.
Það stafar vafalaust að hluta
af því, að þar er kaþölsk trú
rfkjandi, en einnig af þeirri al-
mennu skoðun að í þeirri
heimsálfu sé ótakmarkað ónýtt
land með ónýttum námum. og
að þröun til velmegunar krefj-
ist meiri mannafla.
Að auki hafa SAmerfkuþjóð-
irnar tilhneigingu til aðlíta tor-
tryggnum augum á allan utan-
aðkomandi þrýsting. En nú eru
hagfræðingar og stjórnmála-
menn farnir að sjá, að hin öra
mannfjölgun gleypir alla efna-
hagslega þróun, svo að hagur
manna batnar ekkert þrátt
fyrir aukna framleiðslu. Þu' er
farið að veita viðurkenningu
stofnunum, er vinna að fjöl-
skyldutakmörkun af félags-
legum orsökum og til að draga
úr hinum gífurlegu og oft
afdrifarfku ólöglegu fóstureyð-
ingum.
EJvrópa: Í Vestur-Evrópu eru
þesst, mál nú mjög ofarlega á
baugi hjá flestum þjóðum.
Enda er Evrópa eínn þéttbýl-
asti staðurinn á jörðinni og
getur ekki brauðfætt sitt fölk.
en verður að draga að annars
staðar frá til lífsviðurværis. i
löndum eins og Svíþjóð og Bret-
landi er uppi oprnber áróðurs-
stefna til kynferðisfræðslu og
takmarkana ábarneignum.
Þar er frjálslynd fóstureyð-
ingarlöggjöf, sem ýmis önnur
Evrópulönd eru að ræða eða
taka upp.
Flest kaþólsk lönd banna, að
mestu a.m.k., notkun getnaðar-
varna, en seinbúin hjónabönd.
ólöglegar fóstureyðingar og
aðrar hálffaldar aðgerðir halda
mannfjöldanum nokkuð niðri.
Austur-Evrópulöndin og Sovét-
ríkin hafa fjölskylduáætlanir á
sinni stefnuskrá og fóstureyð-
ingar eru framkvæmdar af heil-
brigffisstofnunum. Auk þess
stuðlar fræðsla. seinbúin hjóna-
bönd, almenn útivinna kvenna
o.fl. að hinni lágu fæðingartölu
þar.
Astralfa: íbúar Ástralíu og
Nýja Sjálands hafa lengst af
talió. að )vs\i Uiiil v\””i .• kk’
fullbyggð, sem hefur vafalaust
hvatt til barneigna og ásóknar í
innflytjendur. Þessi afstaða
hefur þó verið endurskoðuð nú
i báðum löndunum, en þar
hefur fólk aðgang að getnaðai’-
vörnum. "ins ng í .iUini..11^.
urelandi lönd'im
Öllum kemur nú orðið saman
um. að mannfjölgun. eins og
hún er nú, sé alvarlegt vanda-
mál. sem verður aðgefa fullan
gaum. Spurningin er ekki,
hvort ótakmörkuð mannfjölgun
geti haldið áfram — það getur
hún blátt áfram ekki. Viðfangs-
efnið er, hvernig eigi aðstöðva
hana með skipulegum aðgerð-
um og tæknilegum framförum f
getnaðarvörnum. sem nothæfar
séu í fátæku löndunum.
— E.Pá.
trölu
sYngur
eff þú vilt
vera öruggur um að
tengdamamma gisti
ekki eina nóttina enn ...
er betra aö hafa bílinn
á TOVO snjóhjólbörðum
TOYO snjóhjólbarðar
koma þér heilum heim
og að heiman!
Otsölustaöur:
Hjólbarðasalan
Borgartúni 24 Sími 14925
Umboð á íslandi
KRISTJÁN G. GÍSLASON HF