Morgunblaðið - 29.01.1974, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1974
Jeane Dixon
Spáin er fyrir daginn f dag
Hrúturinn
21. marz — 19. aprfl
Einbeittu þér að því að Ijúka þeim verk
efnum, sem nú þegar liggja fyrir áður en
þú hefst handa um ný. Þú átt við einhver
tilfinningaleg vandamál að strfða um
þessar mundir, en Ifklegt er. að þú losnir
úr þeim viðjum von bráðar.
Nautið
20. apríl -
■ 20. maí
liugmyndir þínar og aðgerðir falla vel
inn f hið félagslega umhverfi, sem þú
hrærist f þessa dagana og þú skalt færa
þér það f nyt út í yztu æsar. Gefðu þér
tfma til andlegra hugleiðinga.
Tvíburarnir
21. maf — 20. júní
Reyndu að losa þig undan áhrifum, sem
þú hefur verið undir upp á sfðkastið og
hafa virkað neikvætt á Iff þitt. Snúðu við
blaðinu og hleyptu ferskum hugmyndum
og nýjum áætlunum inn í daglegt Iff þitt
áður en það er um seinan.
'CW£i Krabbinn
21. júní — 22. júlí
Þú eyðir meiri tfma í að fara f kringum
hlutina en framkvæma þá. Breyttu þessu
strax. Varastu að gefa loforð, sem þú
getur ekki staðið við, og gefðu vandamál
um fjölskyIdunnar meiri gaum en þú
hefurgert að undanförnu.
M
Ljónið
23. júlf-
22. ágúst
Þessi dagur verður að öllum Ifkindum
geislandi skemmtilegur og óvenju við-
hurðarfkur. Sennilega færðu kærkomna
heimsókn gamals kunningja. og dagur-
inn mótast að mestu af gagnkvæmri vin
áttu og skemmtilegheitum ykkar beggja.
Mærin
23. ágúst — 22. sept.
Vertu vakandi fyrir sveiflum umhverfis-
ins og margbrevtileik mannlffsins í
kringum þig. Þú verður að semja þig að
breyttum aðstæðum, en gerðu það án
þess að glata persónuleikanum eða eðlis-
lægum einkennum þínum. Ef þér tekst1
það, ertu hólpínn.
Wh\ Vogin
W/i^
23. sept. — 22. okt.
Allar líkur eru á, að þetta verði skemmti-
legur dagur og þess vegna verður lundin
létt og þú gengur með jákvæðu hugarfari
að hverju verki. Eyddu kvöldinu í góðum
hópi vina og kunningja.
Drekinn
23. okt. — 21. nóv.
Farðu mjög gætilega f sambandi við
ákveðið mái á næstunni. þvf að vopnin
kunna að snúast f hendi þér áður en
varir. Sérstaklega skaltu gæta þín á
ákveðinni persónu, sem lætur Ifklega við
þig, en er ekki eins trú þér og þfnum
málstað og hún vill vera láta.
Bogmaðurinn
22. nóv. — 21. des.
Berðu ekki svona mikla umhyggju fyrir
Ifkama þfnum og fjármunum. Mundu, að
dyggðin vex ekki upp af fjármunum,
heldur fjármunir upp af dyggð og
reyndu að beita kröftum þínum f þjón-
ustu sannleikans.
Vká Steingeitin
22. des. — 19. jan.
Það er eins gott fyrir þig að gera þér
strax Ijóst, að þessi dagur bfður ekki upp
á spennandi augnabiik eða miklar fram-
kvæmdir. Þú skalt þvf forðast fjölmenni
og reyna að halda þig sem mest heima,
án þess þó að vera of áberandi þar frekar
en annars staðar.
Vatnsberinn
20. jan. — 18. feb.
(íerðu langtímaáætlanir og reyndu að
einfalda hlutina fyrir þér sem mest þú
mátt. Þetta eru erfiðir tímar, en með
dugnaði og yfirvegun ætti þér að takast
að komast yfir það versta.
Fiskarnir
19. feb. — 20. marz
Þú ert of kröfuharður og ósanngjarn við
þá, sem þú umgengst. Keyndu samninga-
leiðina og þú munt komast að raun um,
að sanngirni borgar sig margfalt. Seinni
hluti dags mun sennilega bjóða upp á
eitthvað óvenjulegt og spennandi.
— Jæja, ég vona, að þú sért
ánægður.
HOi/DiDN’THELPME
[l)UH HðMEliJOKK,
ANDI fAlLEPÍ I
6ÖT AN “F ‘£
Acmuv,
l'M QUITE
FLATTKED..
IT'S 50RT0F A GOMPLIMENT
TMAT ‘ÆHJ THlNK (M HELP
(jJOOLD HAYE BEEN 50 YALUA0LE..
IF IT WAS A
COMPLIMEKT, I SURE
PIPNT MEAN mi
— Þú hjálpaðir mér ekki með
heimaverkefnin og ég féll, fékk
einn.
— Ég er eiginlega bara upp með
mér ...
— Það má Ifta á þetta sem ákveð-
inn heiður fyrir mig, að þú skulir
telja mitt liðsinni svo þýðingar-
mikið.
— HEIÐUR FYRIR ÞIG?
VERTU VISS UM, AÐ
ÞAÐ VAR EKKI ÞANNIG
MEINT!