Morgunblaðið - 05.02.1974, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.02.1974, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRUAR 1974 11 Tekur ár að hreinsa Súezskurð? Tel Aviv, Kairo, 2. febr., NTB. HAFT er eftir áreiðanlegum heimildum I Israel, að Joseph Sisco aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna sé væntaniegur tii Israeis og Sýrlands innan skamms til að reyna enn að koma á viðræðum stjórna þeirra um fangaskipti og brottflutning her- sveita þeirra frá Golanhæðum. Þá herma blöð í Beirut, að stjórnir Israels og Jórdaníu vinni f sam- einingu að áætlun um framtíð hernumdu svæðanna á vestur- bakka Jórdanár og á Gazasvæð- inu. I Kairo er nú rætt um, hve langan tíma muni taka að hreinsa Súezskurð svo, að hann verði skipgengur á ný. Er haft eftir erlendum sendimönnum þar, að hreinsunin muni taka allt að því ár; egipzka stjórnin sé að vísu á því, að verkinu verði lokið á fjór- um mánuðum, en hún eigi eftir að fjarlægja mikið magn af duflum og öðru sprengiefni úr skurðin- um, áður en unnt sé að byrja að draga burt skrokka skipanna, sem sökkt var í skurðinum i sex daga stríðinu 1967, — og það muni taka langan tíma. Hækka forvexti Brussel, 2. febrúar, NTB. BELGAR hafa hækkað forvexti um einn af hundrað í 8.75%. Þetta er áttunda hækkunin á for- vöxtum i Belgíu á 13 mánuðum. Forvextirnir voru 4% í desember 1972. 70.000 til ísraels Tel Aviv, 2. febrúar, NTB. RÚMUR helmingur 70.000 Gyð- inga, sem flytjast til ísraels á þessu ári, kemur frá Sovétríkjun- um að sögn talsmanns banda- rískra Gyðingasamtaka. Um 1.2 milljarða dollara þarf til að veita innflytjendunum húsaskjól og sjá þeim fyrir menntun og félagslegri aðstoð. Hvítabirnir verndaðir Ósló, 2. febrúar, NTB. SOVÉTRÍKIN hafa undirritað samning um verndun hvítabjarna á norðurheimskautasvæðum. Þar með hefur samningurinn verið undirritaður af öllum þeim fimm löndum, sem hann nær til. Allar nútíma veiðiferðir eru algerlega bannaðar samkvæmt samningnum, en Eskimóar, sem byggja Iífsafkomu sína að nokkru leyti á veiði hvítabjarna, fá að stunda veiðarnar áfram með hefð- bundnum aðferðum. Samningurinn var gerður vegna þess, að talið er, að nútima veiðiaðferðir ógni tilveru hvíta- bjarna á norðurheimskauts- svæðunum. Samningurinn gildir fyrst um sinn til fimm ára. Áður hafa Bandaríkin, Kanada, Danmörk og Noregur undirritað samninginn. MORGUNBLAÐSHÚSINU Lokað frá hádegl I dag vegna larðarfarar Heildverzlun V. H. Vilhjálmssonar, Bergstaðastræti 13. Hveragerði Frá 1. febrúar mun Páll Michelsen annast dreifingu og innheimtu Morgunblaðsins í Hveragerði. Sími 4225. Mun blaðið framvegis verða borið til kaupenda daglega. - mokarinn mikli frá BM VOLVO Stór hjól; drif á tveim eða fjórum hjólum; mismunadrifslás; 80 ha. dieselvél með beinni innspýtingu; rúmgott og hljóðeinangrað örygg- ishús með Volvosæti; vökvastýring; liðlegur og kraftmikill í ámokstri; lyftir, staflar, dregur, ýtir. Allar upplýsingar um LM 621, LM 641, og aðrar ámokstursvélar frá BM Volvo eru ávallt til reiðu. ámokstursvél LM 641-621 Suóurlandsbraut 16 »Reykjavik •Simnefni Volver»Simi 35200 TRAMPS Teg. 2310 TRAMPSSKÓR: ísvörtu leðri meðhrágúmmisólum. Stærðir: 36 — 40 Verð kr. 2.485 — 41 _ 44 Verðkr. 2.585 — Teg. 2323 TRAMPSSKÓR: í svörtu leðri eða brúnu leðri, með hrágúmmísólum. Stærðir: 36 — 40 Verð kr. 2.485.— 41 — 44 Verðkr. 2.585.— Teg. 2325 TRAMPSSTÍGVÉL í svörtu leðri með hlýju fóðri og hrágúmmisól- um. Stærðir: 36 — 40. Verð kr. 3.285.— 41 — 45. Verð kr. 3.385,— PÓSTSENDUM SKÓVERZLUN ÞORÐAR PETURSSONAR Kirkjustrætl 8 v/Austurvöll.síml 14181

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.