Morgunblaðið - 05.02.1974, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.02.1974, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRUAR 1974 19 ÞAÐ hefur orðið að samkomulagi, að á meðan á VI. Reykjavíkurmótinu standi muni undirritaður skrifa dag- legan þátt frá mótinu, þar sem reynt verður að lýsa gangi hverrar umferðar í stuttu máli og birta skákir. Ég mun reyna að birta að minnsta kosti eina skák með skýringum á hverjum degi, en vil þó taka mönnum vara fyrir því að taka skýringarnar sem heilagan sannleika. Þær verður í flestum tilfellum að vinna í flýti og sömuleiðis kemur það rúm, sem mér er skammtað, í veg fyrir að um nokkra tæmandi könnun á skákunum geti verið að ræða. Þá skal það enn tekið fram, að ekki mun endilega verða um að ræða birtingu beztu skáka hverrar umferðar, heldur mun ég reyna að velja þær skemmtilegustu og mest spennandi. VI. Reykjavfkurmðtið I skák var sett á Kjarvalsstöðum f fyrra- dag. Guðmundur G. Þórarinsson forseti Skáksambands Islands flutti stutt ávarp, þar sem hann rakti sögu þessara móta og skýrði tildrög þess, að þetta mót er hald- ið. Síðan flutti Magnús Torfi Ólafsson menntamálaráðherra hina eiginiegu setningarræðu. Ráðherranum mæltist vel að vanda, en mikil ósköp og skelfing eru að heyra hvern stjórnmála- manninn á fætur öðrum koma til þess að setja skákmót og rugla alltaf saman hneftafli og skák. Alltaf á að sfna fram á, að Islend- ingar hafi stundað skák sfðan iand byggðist, hvenær svo sem það nú var, en gallinn er bara sá, að menn voru ekki að tefla skák, þá er þeir sátu tveir að tafli f túnfætinum heima hjá sér. Helzt er talið, að tafl fornmanna hafi verið hneftafl, en ekki er fylli- lega ljóst, hvernig það var teflt, kannski svipað og kotra. Að lokinni setningarræðunni lék Birgir tsleifur Gunnarsson borgarstjóri fyrsta leiknum f skák þeirra Tringovs og Smyslovs og þar með var keppnin formlega hafin. 1 upphafi beindust augu áhorf- enda eins og gefur að skilja mest að skákum stórmeistaranna, en þar gerðist þó fátt markvert fyrsta kastið. Tringov og Smyslov tefldu spánskan leik og fékk Tringov heldur þægilegri stöðu út úr byrjuninni. Þung undiralda var í skákinni allan tímann og fór hún í bið í tvísýnni stöðu. Fáir menn eru eftir á borðinu og kæmi mér ekki á óvart þótt úrslitin yrðu jafntefli. Davið Bornstein hafði svart gegn Norðmanninum Leif 0gaard. 0gaard er þekktur fyrir mjög örugga taflmennsku og ekki brá hann vana sínum að þessu sinni. Bronstein komst lftið áfram og var samið um jafntefli eftir 27 leiki. Friðrik Ólafsson hafði svart gegn Kristjáni Guðmundssyni. Flestir munu hafa búizt við þvf fyrirfram, að Friðrik ynni þarna auðveldan sigur, en það fór á aðra leið. Kristján hafði lengi framan mjög góða stöðu og á tímabili heyrði maður þær raddir, að sennilega væri staða Friðriks töp- uð. I tímahrakinu gerðust hins vegar margir hlutir í senn og þeg- ar því lauk var Kristján með skiptamun meira, en þar á móti hefur Friðrik peð og enn getur allt gerzt. Ingvar Asmundsson hafði hvítt gegn júgóslavneska stórmeistar- anum Velimirovic, sem beitti Sik- ileyjarvörn. Mikil barátta var f skákinni og þegar hún fór f bið, hafði Ingvar riddara, biskup og þrjú peð gegn hrók og fjórum peðum Júgóslavans. Peðin eru öll á sama væng og þykir mér senni- legt, að skákin endi með jafntefli. Sagt var, að Ingvar hafi boðið jafntefli í biðstöðunni en stór- meistarinn hafnað. En hann ætti að gá að sér sá góði maður, í svona stöðu gætu vopnin auðveldlega snúizt í höndum hans. Júlfus Friðjónsson tefldi Benónýbyrjum gegn Freysteini. Tefldi Július býsna djarflega framan af og fórnaði m.a. peði. Þegar átökin virtust vera að ná hámarki sömdu keppendur hins vegar um jafntefli, enda mun tími beggja þá hafa verið orðinn naumur. Þá er komið að þeirri skákinni, sem mesta athygli vakti, og er það skemmtilegasta skák umferðar- innar. Hvftt: G. Forintos (Ungverjal.). Svart: Guðmundur Sigurjóns- son. Griinfeldsvörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. Rc3 — d5, (Grunfeldsvörnin nýtur alltaf mikilla vinsælda og Guðmundur hefur oft beitt henni með góðum árangri. Hér er hins vegar sá galli á gjöf Njarðar, að Forintos er einn helzti sérfræðingur i þessari byrjun, jafnvígur með hvitu og svörtu). 4. Bg5, (Hér komu auðvitað fjölmargir leikir til greina, en þessi er sagð- ur mikið i tizku um þessar mund- ir).4. — Re4, 5. Bh4 (Þetta er líka tízkuleikur. Sumir meistarar hörfa með biskupinn til f4, en aðrir leika einfaidlega 5. cxd5 og svara Rxg5 með 6. h4). 5. — c5, (Svartur verður að ráðast gegn hvita peðamiðborðinu án tafar). 6. e3 — Da5, 7. Db3 — cxd4, 8. exd4 — Bh6, 9. Hdl — 0-0, (Skemmtileg peðsfórn, sem virð- ist gefa svörtum góða möguleika við fyrstu sýn). 10. cxd5 — Bd7 (I skýringarherberginu stungu menn uppá 10. — e6, en eftir 11. Bc4 virðist allt vera í lagi hjá hvitum). 11. Bd3 (Forintos hugsaði alllengi um þennan leik og þegar hann birtist töldu ýmsir, sem vit þóttust hafa á, að nú hefði honum orðið alvar- lega á í messunni, hann tapaði skiptamun án þess að fá nokkuð í staðinn). 11. — Rxc3, 12. bxc3 — Ba4, 13. Da3 — Dxd5, 14. Dxa4 — Dxg2, 15. Ke2 — Dxhl, 16. Rf3 — Dg2, (Þégar hvitur lék 11. Bd3 var augljóst, að þessi staða gæti kom- ið upp. Nú kemur hins vegar i ljós, að Forintos hefur séð einum lengra en við spekingarnir). 17. Bf5! (Hótar að vinna drottninguna. Kannski var bezt fyrir svartan að leika hér 17. — Rc6, því að eftir 18. Hgl — Dxgl, 19. Rxgl — gxf5 hefur hann tvo hróka og peð fyrir drottninguna. Svarta kóngsstaðan væri að vísu viðsjárverð og hvíti biskupinn mjög sterkur, en engu að síður væri mikið eftir af skák- inni). 17. — e6, (Hér reiknaði Guðmundur ein- göngu með svarinu 19. Hgl og lái honum hver sem vill. Eftir 19. Hgl — Dxgl, 20. Rxgl — exf5 væri allt í himnalagi hjá svört- um). 18. Be4!! (Þessi leikur er hreint og beint magnaður, hann hótar eiginlega öllu, sem hægt er að hóta i stöð- unni). 18. — e5, (Nú gekk ekki 18. — Rc6 vegna 19. Hgl og hvítur hefur drottn- ingu og biskup gegn tveim hrók- um. Svartur reynir því að skapa sér gagnfæri með atlögu gegn hvíta kónginum). 19. Bxb7 — e4, 20. Bxe4 — Rd7, (Hjá liðstapi varð ekki komizt). 21. Dxd7 — Hfe8, 22. Dd5 (Ekki Borgarstjðrinn f Reykjavfk, Birg- ir Isleifur Gunnarsson leikur fyrsta leikinn. 22. Kd3 vegna 22. — Hxe4, 23. Kxe4 — f5 + ), 22. — Dg4, 23. Kd3 — Hab8, 24. Hgl — Dc8, 25. Re5 (25. Bxg6 litur vel út við fyrstu sýn, en þá svarar svartur einfald- lega með 25. — Da6 + ). 25. — He6, 26. Dc4 — Df8, 27. Bd5 — Hxe5, 28. dxe5 — Hb2, 29. Dc7 — Hd2+, 30. Kc4 og hér fór svartur yfir tfmamörkin, en staða hans er allavega töpuð. Benóný Benediktsson hefur aldrei þótt rétttrúnaðarmaður i skákbyrjunum. Hér fer á eftir skák hans við Jón Kristinsson, sem notfærir sér vel ónákvæma byrjunartaflmennsku andstæð- ingsins. Hvftt: Jón Kristinsson Svart: Benóný Benediktsson Vængtafl 1. C4 — c6, 2. Rf3 — Rf6, 3. g3 — d5, 4. b3 — Bg4, 5. Bg2 — Rbd7, 6. Bb2 — Bxf3, 7. Bxf3 — e5, 8. cxd5 — cxd5, 9. Rc3 — e4, 10. Bg2 — Bc5,11. Ra4 — Bd6, 12. 0-0 — h5, 13. d3 — h4, 14. dxe4 — hxg3, 15. hxg3 — b5, 16. Rc3 — Bxg3, 17. fxg3 — Db6+, 18. Hf2 — Rg4, 19. e3 — Rxf2, 20. Kxf2 — Df6+, 21. Ðf3 — Hc8, 22. Dxf6 — Rxf6, 23. Hcl — Rg4+, 24. Kgl — dxe4, 25. Rxb5 — 0-0, 26. Bxe4 — Hcd8, 27. Bd4 — Hfe8, 28. Bc6 — Ile6, 29. Hc3 — a5, 30. Bf3 — Rf6, 31. Hc5 — Re4, 32. Bxe4 — Hxe4, 33. Rc3 — Hg4, 34. Kf2 — Ha8, 35. Rd5 — Kh7, 36. Re7 — g6, 37. Kf3 — f5, 38. Rd5 — Kh6, 39. Hcl — Hg5, 40. Rf4 — Kh7, 41. Hhl+ — Hh5, 42. Rxh5 — gxh5 og gafst upp um leið. Að lokum skal þess getið, að skák Magnúsar Sólmundarsonar og Victor Ciocaltea var frestað, þar sem Rúmeninn kom ekki til landsins í tæka tfð. Jón Þ. Þór.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.