Morgunblaðið - 05.02.1974, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.02.1974, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1974 21 Þorvaldur Sigurðsson: Ærið oft heyrir maður fólk ræða það sín á milli, hve „dæmafár" og vonlaus maður hann sé þessi eða hinn, sem ratað hefir I þá óttalegu ógæfu að þurfa að sitja í fangelsi hér á íslandi og friðþægja þar fyrir lögbrot sfn, sem í flestum tilvikum orsakast af sjúkleika, er orsökin oftast alkó- hólismi. Hér er á engan hátt verið að mæla lögbrotum bót, síður er svo. En það, sem hvað helzt vakir fyrir mér með þessum línum, er einmitt það, sem ég gat um í upp- hafi. Fólki, sem lítt eða ekki þekk- ir til þessara stórkostlegu vanda- mála, hættir þvi miður of oft til þess að kasta fram fullyrðingum og nefna þann, sem I það og það skiptið á í hlut, hinum verstu nöfnum, sem tunga okkar á yfir að ráða um þá einstaklinga, sem á engan hátt vilja leggja sitt af mörkum til þess, að refsivist lok- inni, að gjörast nýtir þjóðfélags- þegnar. I afar mörgum tilvikum er hér um að ræða einstaklinga, sem gjörsamlega hafa losnað úr tengsl- um við ættfólk sitt og raunar mjög margir lifað um árabil utan við hið almenna samfélag og eru þá tíðast nefndir rónar. Ég, sem þessar línur rita, þekki þessi vandamál til hlitar, þar sem segja má, að ég hafi verið í hópi róna I a.m.k 10—15 ár, en fyrir Guðs heilögu náð losnað á dásam- legan hátt úr því „víti“, sem leiðir til vistar f fangelsi. Innan veggja fangelsanna hefi ég kynnzt mörgum afbragðs „drengjum“, svo elskulegum, að sambærilegum öðlingum mætir maður því miður of sjaidan úti í hinu frjálsa samfélagi, þar sem þó er, sem betur fer, miklu meira af sannarlega góðu fólki en ég hafði t.d. búizt við. Flestir vilja hverfa frá villu síns vegar. Þegar maður situr inni með mönnum í langan tíma, jafnvel svo árum skiptir, fer ekki hjá því, að menn kynnast mjög náið og oft er þá rætt um það böl, sem menn Ur fangavist hafa lifað við og leitt hefir þá inn í fangelsi. Flestir þeirra, sem ég hefi verið á vist með og mál þessi hafa verið rædd við, þrá svo sannarlega annað og betra líf en það, sem aftur og aftur hefir leitt til fanga- vistar um lengri eða skemmri tíma. Margir þessara manna eru uppfullir af góðum áformum um bættan lífernismáta, þegar út í lífið kemur, en því miður hafna flestir aftur í fangelsi, af því að þeir hafa hreinlega gefizt upp við að reyna að gjörast nýtir þegnar á ný. Vera má, að fólki þyki slik uppgjöf lítt karlmannleg og það er einmitt slíkt fólk, sem ég hvað helzt vildi beina orðum mínum til. Ég efast um, að það fólk, sem harðast dæmir þá, sem lenda í þeim hroðalega vitahring að vera nefndir „síbrotamenn", gjöri sér grein fyrir því, hversu óskaplegt áfall það er í okkar fámenna sam- félagi að lenda í fangelsi. Hér er útilokað fyrir menn að ætla sér þá dul að leyna því, að þeir hafi ratað í þessa ógæfu, vera má, að það heppnist um stuttan tíma, en einatt kemur sannleikurinn í ljós og hefir þá jafnan i för með sér hinar ömurlegustu afleiðingar. Menn hafa jafnvel verið komnir í bærilega vinnu, haft herbergi og lifað fullkomlega eðlilegu lifi þar til ósköpin dundu yfir, fólk vill ógjarnan hafa slika menn í hús- um sinum og hið sama er að segja um flesta vinnustaði. Allt ber því að sama brunni, fórnarlambið ræður ekki við vandann, flýr á vit flöskunnar og leitar uppi gamla félaga og þannig endurtekur þetta sig aftur og aftur og afleiðingin verður svo sú, sem að framan greinir. Mikill meirihluti þeirra manna, sem frá Litla-Hrauni losna, koma þaðan með öllu peningalausir, því að það eru aðeins örfáir menn, sem komast þar í þá vinnuað- stöðu, að þeir geti safnað saman upphæð, sem nægir þeim til þess að geta fengið sér herbergi og átt fyrir nauðþurftum, þar til þeir fá greidd sin fyrstu vinnulaun. Það hlýtur að hljóma kynlega, þegar ég fullyrði, að það séu aðeins hinir heppnu, sem safnað geti sér peningum á meðan á refsivist stendur og þeir eru að afplána dóma sína á stofnun, sem nefnist VINNUHÆLI. En svo undarlegt sem það nú annars er, þá er þar eystra ekki um neina vinnu að ræða; ef menn komast ekki í hin föstu og nauðsynlegu störf svo sem i eldhúsi, við þvotta og svo þrifnað á húsakynnunum. Þarna er hrúgað saman hinum ólikustu manngerðum án þess að nokkuð sé gert, sem umtalsvert er, til þess að skapa mönnum að- stöðu til hollra og uppbyggilegra starfa. Af þessu leiðir svo, að upp koma alls kyns vandamál, sem alls ekki væri um að ræða ef næg og holl störf væfu til staðar fyrir þá ógæfusömu einstaklinga, sem staðinn þurfa að gista. Mér er sagt, að um þessar mundir sé þessi staður fullsetinn og eru þar þá samankomnir rúm- lega 50 menn, sem flestir hafa ekki annað fyrir stafni en að ráfa um ganga og sali, sitja að fjár- hættuspili og hópast svo saman og segja sögur af endemum sinum, einatt er þá litið mest upp til þess, sem svæsnastar segir sögurnar, og öllum ætti að vera ljóst, hver háski felst í sliku ástandi. Núverandi dómsmálaráðherra hefir nú látið setja saman heljar- mikinn lagabálk og svo raunalegt sem það er, verður ekki annað séð en þar sé fremur um spor afturá- bak að ræða en framþróun, sem taki mið af þvi, sem bezt hefir gefizt með þeim þjóðum, sem lengst eru á veg komnir í þessum málum. Lagabálk þennan hefir hið háa Alþingi samþykkt án þess að leita álits sér menntaðra fólks í þessum málum, og þvi er naumast að vænta raunhæfra úrbóta í þessu mikilvæga máli á næstunni. <Til gamans vil ég láta þess getið, að það kostar ríkissjóð aðeins tæp hundrað þúsund að vista einn mann á L. H. á mán.) Væri ekki vitlegra, að hið opinbera veitti þó ekki væri nema örlítið brot af kostnaðinum við rekstur L. H. og fleiri slíkra stofnana til þeirra aðila, sem sýnt hafa og sannað, að þeir hafa upp á raunhæfa hjálp að bjóða, sem sannanlega hefir bjargað mér og fleirum til nýs og betra lífs, fært okkur áður óþekkta gleði, komið okkur til þess að skynja unað mannlífsins, fegurð og dásemd sköpunar Guðs, gert okkur að nýtum þjóðfélags- þegnum og fært okkur heim sann- inn um, að ekkert nema sönn og hrein biblíuleg trú megnar að bjarga þeim, sem utangarðs hafa orðið í samfélaginu, þ.e. trúin á Jesú Krist. Og hér á íslandi er einmitt um þessar mundir kappsamlega unnið að því að efla og styrkja „Samhjálp hvítasunnumanna“, sem aðeins hefir starfað hér i eitt ár við mjög frumstæð og erfið skilyrði, án allrar fjárhagsaðstoð- ar hins opinbera, sem, að því er bezt verður séð, telur, að mál þess ógæfusama einstaklings, sem ratað hefir út i þá ógæfu að hafna i fanglesi, séu og verði leyst með þvi einu að loka hann inni í svo og svo langan tíma og vísa honum síðan allslausum aftur út á þá braut, sem i ógöngurnar leiddi. Að lokum Ég á þvi láni að fagna að vera í dag frelsað Guðsbarn, sem á yndislega eiginkonu ásamt fjórum indælum stjúpdætrum. Allt þetta hefir Guð gefið mér ásamt svo ótal mörgu öðru og fæ ég aldrei nógsamlega þakkað hið fórnfúsa og hljóðláta starf, sem söfnuður hvitasunnumanna, Fíladelfía, hefir um langt árabil rekið austur á Litla-Hrauni. Það er fyrst og fremst fyrir dásamlegt samfélag þeirra, sem ég er þess megnugur að rita þessar línur, því að þar kynntist ég mikilvægi þess að fela Guði öll mín mál og leita trausts og halds í hans heilaga orði. Það er vegna samfélagsins við hann, sem dó á Golgata fyrir syndir okkar, að ég hefi verðveitzt frá víni og öðrum þeim löstum, sem ég hafði svaml- að í svo lengi (20 ár), þótt oft hafi á móti blásið, m.a. í sambandi við atvinnu. Fimm sinnum á aðeins einu ári sótti ég um vinnu, er auglýst hafði verið og lét þess jafnan get- ið, að ég væri fyrrverandi drykkjumaður, en væri nú frelsaður frá öllu slíku. Þessu var jafnaf mjög vel tekið og haft á orði, að ekki væri ónýtt að fá reglumann til starfa, en í öll þessi fimm skipti fór á sama veg, ég var kvaddur á fund viðkomandi for- stjóra og þá tjáð, að þvf miður gætu þeir ekki haft í þjónustu sinni mann með mína fortíð. Þeir höfðu einfaldlega hringt eða á einhvern hátt haft samband við sakaskrá ríkisins og fengið þar uppgefinn allan minn endemis- feril, Þvi svo undarlegt sem manni virðist það, er sakaskráin opinbert plagg, sem öllum virðist heimilt að skyggnast í. Þessu ásamt svo mörgu öðru þurfum við að bréyta til þess að auðvelda leið þeirra, sem upp- hefja vilja nýtt og farsælla ævi- skeið; það hlýtur að vera þjóð- hagslega hagkvæmt svo ekki sé minnzt á hið mannuðlega sjónar- mið, því að svo er Guði fyrir að þakka, að enn búum við óáreitt í lýðfrjálsu landi, hvað svo sem verða kann ef þróun þjóðmála verður með þeim hætti, sem við búum við í dag. — Stórn endurhæfingarráðs ásamt framkvæmdastjóra og sálfræðingi, t.f.v. Haukur Þórðarson yfirlæknir, Carl Brand framkvæmdast., Ölöf Rikardsdóttir, Heiðrún Steingrfmsdóttir, Oddur Ólafsson formaður, Sveinn Ragnarsson og Gylfi Ásmundsson sálfræðingur. Endurhæfingarráð ríkisins: 19 öryrkjar á almennan vinnumarkað á s.l. ári „AÐALATRIÐIÐ er, að öryrkjar viti af starfsemi okkar, svo að þeir geti leitað hingað eftir að- stoð,“ sagði Oddur Ólafsson lækn- ir, formaður endurhæfingarráðs rfkisins, er stjórn ráðsins boðaði blaðamenn á sinn fund f vikunni. Tilefni fundarins var að vekja athygli á tilveru ráðsins og raktir voru helztu þættir f starfsemi þess. Skrifstofa endurhæfingarráðs tók til starfa 1. júni 1973, með viðtalstíma fyrir hádegi, alla virka daga. Tilgangur hennar er að hafa umsjón með starfsendur- hæfingu öryrkja og skipulagn- ingu á þeim málum. Arið 1970 voru sett fyrstu lög um endurhæf- ingu á Islandi og er þar kveðið svo á um, að félagsmálaráðherra skipi sjö menn f ráðið þar af sex eftir tilnefningu eftirtalinna aðila, einn frá hverjum: öryrkjabanda- lags Islar.ds, Alþýðusambands Is- lands, Vinnuveitendasamband Is- lands, Sambands íslenzkra sveitarfélaga, Læknafélags Is- iands og menntamálaráðuneytis- ins. Ráðherra skipar einn mann án tilnefningar og er hann jafn- framt formaður ráðsins. Frá því að skrifstofan opnaði hafa um 100 einstaklingar leitað til hennar, og af þeim voru 66 prófaðir. Vikulegir fundir hafa verið haldnir síðan 6. nóvember s.l. og hafa þar komið saman til skrafs og ráðagerða Gylfi As- mundsson sálfræðingur, Haukur Þórðarson yfirlæknir og fram- kvæmdastjóri endurhæfingar- ráðs, Carl Brand. Mál 40 einstakl- inga, sem þegar hafa verið próf að- ir, hafa verið afgreidd og var 8 manns vísað i nám eða starfskynningu, 23 vís- að til frekari rannsókna, 9 vísað á verndaðan vinnu- stað, en 7 koma sterklega til greina á verndaðan vinnustað. 19 — Þessi mynd skýrir að nokkru starfsemi endunhæfingarráðs. (Ljósm. Mbl. 01. K.M.) öryrkjar voru ráðnir í störf á hin- um almenna vinnumarkaði. Verndaðir vinnustaðir í landinu eru nú 4, Reykjalundur, Múla- lundur, Blindraheimilið og Björg á Akureyri og eru pláss á þessum stöðum eitthvað á annað hundrað. Lausleg könnun, sem Oddur Ólafsson og Haukur Þórðarson gerðu sl. sumar leiddi hins vegar I ljós, að þörf er fyrir 200—300 pláss í viðbót. Þessi tala gæti þó hækkað til muna ef atvinnu- ástand I landinu breyttist til hins verra, því það gefur auga leið að öryrkjar eru verst settir þar sem atvinnuleysi er annars vegar. Endurhæfingarráð vinnur nú að undirbúningi á hugsanlegri fjölg- un verndaðra vinnustaða og er m.a. í ráði að koma á fót tveimur slíkum vinnustöðum í Reykjavík nú í náinni framtíð. I endurhæfingarráði eiga nú sæti Ólöf Rikardsdóttir frá öryrkjabandalagi Islands, Heið- rún Steingrfmsdóttir frá A.S.I., Svavar Pálsson frá .V.I., Sveinn Ragnarsson frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, Haukur Þórðarson yfirlæknir frá L.I., Þóra Einars- dóttir frá menntamálaráðuneyt- inu og Oddur Ólafsson læknir, sem er formaður ráðsins og skip- aður af félagsmálaráðherra. Skrifstofa endurhæfingarráðs er til húsa í Hátúni 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.