Morgunblaðið - 05.02.1974, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1974
15
Fulltrúi Páfagarðs
heimsækir Pólland
Varsjá, 4. febr. AP-NTB
AGOSTINO Casaroli, erki-
biskup, sem hefur með
höndum utanríkismál í
stjórn Páfagarðs í Róm,
kom í þriggja daga opin-
bera heimsókn til Póllands
í dag. Er það í fyrsta sinn
frá lokum heimsstyrjald-
arinnar síðari, að fulltrúi
Páfagarðs kemur þangað
slíkra erinda, en til Pól-
Talið er, að meira en 200
manns hafi farizt í brunanum í
Sao I’aulo í Brazilíu fyrir helg-
ina. Til þessa hafa fundizt 186
lík I rústunum, en búizt við, að
mörg fleiri eigi eftir aðfinnast
m.a. innilokuö f lyftum.
Margir biðu bana, er þeir
stukku út um glugga og af
svölum efri hæða og sýnir
myndin einn þeirra.
Solzhenitsyn
hótað lífláti
Moskva 4. febr. AP.
ALEXANDER Solzhenit-
syn sagði á sunnudag, að
hann hefði fengið hótanir
frá sovézkum yfirvöldum
um að hann og fjölskylda
hans yrðu drepin. Var að
skilja, að hótanir þessar
hefði sovézka öryggislög-
reglan sett fram. Solzhen-
itsyn sagði, að hann yrði
Ólga í Sao
Paulo vegna
brunans niikla
Sao Paulo, Brazilíu,
4. febr. AP.
í FRÉTTUM frá Sao Paulo í
morgun ságði, að nú væri vitað
með vissu, að 182 hefðu látizt í
brunanum mikla þar í borginni á
laugardag, en aðrar heimildir
sögðu töluna á þriðja hundrað.
Mikil ólga er í borginni vegna
þessa bruna, og hermdu fregnir,
að ýmsir háttsettir embættis-
menn innan brunaeftirlitsins i
borginni hefðu verið reknir eða
ættu brottvísanir yfir höfði sér.
Er þeim borið á brýn að hafa
ekki framfylgt þeim reglum, sem
eiga að vera i nýjum háhýsum um
brunastiga og neyðarútganga, en
eins og fram hefur komið var
engu sliku til að dreifa í þessu
húsi. Þá er borgaryfirvöldum leg-
ið á hálsi fyrir slóðahátt í bruna-
vörnum og bent á, að ibúar borg-
arinnar séu nú 6 milljónir og ekki
veiti af, að þar séu að minnsta
kosti 70 slökkviliðsstöðvar, en
sem stendur séu þær aðeins 13.
var við stuðning og styrk
hvaðanæva að og það væri
sér mikil hvatning.
„Kannski tekst þeim að
eyðileggja bæði sjálfa sig
og mig,“ sagði rithöfund-
urinn „en sannleikanum
geta þeir ekki tortímt.“
Solzhenitsyn sagði, að stm-
hringingum væri haldið uppi til
hans og fjölskyldu hans þar sem
líflátshótanir væru settar fram og
virtist sem sovézka öryggislög-
reglan hefði hreinlega vakta-
skipti við þessar upphringingar.
Eins og skýrt hefur verið frá í
Morgunblaðinu er þessi síðasta
rógsherferð gegn Solzhenitsyn af
því sprottin, að bók hans
Gulageyjahafið hefur verið gefin
út á Vesturlöndum, en þar segir
hann frá fangabúðum Stalins og
dregur til ábyrgðar ýmsa þá, sem
enn eru i áhrifastöðum í Sovét-
ríkjunum.
Heikal:
Vill ekki verða
blaðafulltrúi Sadats
EDLENT
Kairó, 4. febrúar. AP.
MOHAMMED Heikal, fyrrver-
andi ritstjóri egypska blaðsins Al
Ahram, inun hafa skýrt vinum
sínum frá því í dag, að hann hafi
alls ekki í hyggju að þiggja út-
nefningu Sadats forseta sem
hlaðaful Itrúi hans. Aftur á móti
var það mál manna, að Heikal
hefði ekki tjáð Sadat þessa
ákvörðun sína, þar sem hann
hefur ekki hitt forsetann að máli
síðan á miðvikudaginn.
Það var Sadat sjálfur, sem vék
Krogh 1 fangelsi
Washington, 4. febrúar. AP.
EGIL Krogh jr., fyrrum starfs-
maður Hvíta hússins, sem dæmd-
ur var 24. janúar sl. í sex mánaða
fangelsi fyrir aðild sína að inn-
brotinu á skrifstofu læknis
Daniels Ellsbergs á sínum tíma,
gaf sig fram við lögregluna i Was-
hington í dag til þess að byrja
afplánun dómsins. Búizt er við, að
hann geti orðið laus aftur eftir
fimm mánuði, sýni hann af sér
góða framkomu í fangelsinu.
Krogh er 35 ára að aldri.
lands var honutn boðið eft-
ir að páfi hafði veitt utan-
ríkisráðherra Póllands
áheyrn í nóvember sl.,
fyrstum opinberra fulltrúa
kommúnískra stjórnvalda
þar í landi.
Casaroli mun eiga viðræður við
ýmsa forystumenn i Póllandi, og
ræða, auk annars, möguleika á
þvi, að komið verði á eðlilegu
diplómatísku sambandi milli Pól-
lands og páfagarðs. Ibúar Pól-
lands, sem eru um 32 milljónir,
eru að meirihluta rómversk-
kaþólskrar trúar.
Þegar eftir komuna til Varsjá
hófust fundir Casarolis með
pólska utanrikisráðherranum,
Stefan Olszowksi og Aleksander
Sakrzynski ráðuneytisstjóra, sem
fjallar um pólsk kirkjumál.
Brezhnev heim eftir
velheppnaða Kúbuför
Miami 4. febr. AP.
LEONID BREZHNEV, flokksleið-
togi Sovétríkjanna, er nú kominn
heitn úr sjö daga heimsókn til
Heikal úr starfi ritstjóra A1 Ah-
ram, en sem slikur hefur hann
orðið með þekktari blaðamönnum
i Arabaheiminum og víðar.
Óstaðfestar fregnir herma, að
Heikal hafi borizt fjöldi atvinnu-
tilboða frá blöðum í ýmsum
Arabalöndum, sömuleiðis í
Austur Evrópu og einnig frá
Bandarikjunum. Þá hefur
Gaddafy, Libyuforseti, að sögn,
látið að því liggja, að honum þætti
fengur að því að fá Heikal til
starfa.
Heikal var vikið úr starfi dag-
inn eftir að þriðji leiðari kom í
blaðinu, þar sem látinn var í ljós
efi um, að heilindi væru að baki
aðgerða Bandaríkjamanna i Mið-
austurlandadeilunni, og sömu-
leiðis var dregið i efa, að Kissing-
er væri fær um að koma á varan-
legum friði i þessum heimshluta.
Segja stjórnmálasérfræðingar, að
Sadat hafi með brottvisun
Heikals viljað sýna frain á, að
skoðanir blaðsins endurspegluðu
ekki alltaf afstöðu egypsku
stjórnarinnar, en A1 Ahram hefur
jafnan verið talið hálfopinbert
málgagn hennar.
Antonioni
gagnrýnd-
ur í Kína
Tokio, Peking, 4. febr.
AP— NTB.
FJÖLMIÐLAJlí Kina hafa ráð-
izt af hörku gegn kvikmynda-
gerðarmanninum italska,
Michaelangelo Antonioni,
fyrir kvikmynd, sem hann
gerði um Kina árið 1972.
Vekur nokkra athygli, hversu
síðbúin þessi gagnrýni Kin-
verja er, því að liðið er að
minnsta kosti ár frá þvi opin-
berir aðilar i Kína fengu
myndina fyrst til umsagnar.
Haft er eftir góðum heimild-
um, að allir ritstjórar i Peking
hafi séð myndina, en hún
hefur ekki verið sýnd almenn-
ingi og verður væntanlega
ekki í bráð, megi marka af-
stöðu stjórnvalda nú.
„Dagblað Alþýðunnar'' birti
heilsíðu grein um myndinaog
Antonioni, þar sem sagði m.a.,
að hann hefði lagt alla áherzlu
á að sýna það sem gamalt væri
í Kína, en minna hirt um að
sýna þann jákvæða árangur,
sem náðst hefði frá þvi bylt-
ingin var gerð. Jafnvel hefði
hann atað framfarir þjóðar-
innar auri. Sagði blaðið, að
með þessu móti hefði Antoni-
oni þjónað hagsmunum heims-
valdasinna, og taldi einsýnt.að
hann væri fjandsamlegur
Kína.
Meðal atriða, sem kvartað er
yfir, að hafi fariðúrskeiðishjá
Antonioni, eru eftirfarandi:
Hann tók ekkert eftir þvi, að
notaðar eru bæði litlar og
stórar dráttarvélar við^bústörf
i Kina, en sýndi hvar asni var
notaður sem dráttardýr. Hann
virti að vettugi áhrifamikil
atriði i starfi samyrkjubúa, en
beindi áhuga sínum fyrst og
fremst að gömlu fólki. Loks
segir, að Antonioni hafi f
leyfisleysi kvikmyndað sýn-
ingu á landbúnaðarafurðum og
túlkað hana i mynd sinni sem
„frjálsan markað ".
Fréttastofan Nýja-Kína
hefur tekið undir gagnrýni
Dagblaðs alþýðunnar og birt
kafla úr grein þess. Þar er m.a.
vísað til ummæla formanns
byltingarnefndarinnar í
Lánhsien-sýslu i Honan, þar
sem hann segir, að Antonioni
hafi einungis dvalizt þar um
slóðir i hálfan fjórða dag, en á
þeim tima hafi honum tekizt
að gera ofangreind mistök.
Kúbu, þar sem hann hlaut hinar
ágætustu móttökur. Aður en hann
hélt heimleiðis undirrituðu þeir
Fidel Castro og sovézki leiðtoginn
sameiginlega yfirlýsingu, en ekki
var birt að svo stöddu, hvað í
henni stóð. Fréttaritarar telja
víst, að þar sé kveðið á um vin-
samleg og elskurfk samskipti
Sovétríkjanna og Kúhu.
Þeir Castro og Brezhnev áttu
með sér fjölmarga fundi, meðan á
heimsókninni stóð, og skýrði
Castro fyrir honum þá uppbygg-
ingu, sem hefði orðið á Kúbu sið-
an byltingin var gerð þar fyrir
fimmtán árum.
Mikið hefur verið skrifað um
heimsókn Brezhnevs til Kúbu i
sovézkum og kúbönskum fjölmiðl-
um og iðulega sjónvarpað um
gervihnött beint til Sovétrikj-
anna, þegar Brezhnev hélt
þar ræður eða kom fram
opinberlega. Er haft fyrir satt, að
Brezhnev hafi óviða fengið jafn
hjartanlegar móttökur og hann
fékk í þessari Kúbuferð sinni,
enda hafði hann verið i sýnu létt-
ara skapi en venjulega í slíkuin
utanlandsferðum.
Þá hefur verið upplýst í
Moskvu, að undirbúningur, sé
hafinn að nýjum fundi þeirra
Brezhnevs og George Pompidou,
forseta Frakklands. Er búizt við,
að Pompidou heimsæki Moskvu i
lok þessa mánaðar og Andrei Gro-
myko utanríkisráðherra leggi
fyrir hann di'ög að dagskrá heim-
sóknarinnar, þegar hann kemur
við í París á leið sinni frá Banda-
ríkjunum.
Karpov vann
Moskvu 3. febrúar AP.
ANATOLY Karpov, einhver efni-
legasti skákmaður Sovétríkjanna
af yngri kvnslóðinni, sigraði í dag
I einvíginu við landa sinn Lev
Polugayevsky, og hefur þar með
hlotið rétt til að halda áfrain í
baráttunni um hver öðlist rétt til
að skora á heimsmeistarann
Bobby Fischer. Mikill fjöldi
áhorfenda fylgdist með síðustu
skákinni og gafst Polugayevsky
upp eftir 41 leik, enda var staða
hans þá orðin vonlaus, segja
fréttaritarar.
Polugayvesky tók ósigri sínum
drengilega, að sögn AP, og óskaði
Karopv til hamingju. Hann sagð-
ist hafa gert mistök snemma i
skákinni, sem hefðu leitt til þess,
að vinningsmöguleika hefði hann
ekki eygt, en um hrið haldið liann
gæti náð jafntefli. Kai'pov er að-
eins 22ja ára að aldri. Sovétmenn
binda miklar vonir við hann og
telja margir hann vera þann eina
af sovézkum skákmönnum, sem
gæti sigrað Fiseher.