Morgunblaðið - 05.02.1974, Síða 28

Morgunblaðið - 05.02.1974, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRtJAR 1974 eltir Gísil, Elríkur 09 Helglrs skilaði þeim á réttum tíma, því að það er nauðsyn- legt. „Rokið er ekki fugl,“ sögðu Helgi og Eiríkur í kór. „Við þekkjum rokið alltof vel til að halda, að það sé fugl. Það er bara vindur." „Þið eruð heimskingjar,“ sagði Gísli. „Rok er fugl. Hann var fugl, skal ég segja ykkur.“ Nú hlógu bæði Eiríkur og Helgi. „Jæja,“ sögðu þeir fyrirlitlega. „Svo að rok er fugl og var fugl. Skelfing ertu vitlaus. Þú hefur fengið sólsting. Farðu inn og leggðu þig.“ Gísla sárnaði við vini sína, en hann vildi samt fræða þá um það rétta i þessu máli. „í Þúsund og einni nótt,“ sagði hann, „er sagan um hann Sindbað sæfara. Hann fór í margar sjóferðir eins og pabbi þinn, Helgi,“ Gísli leit á Helga, „en þetta var í gamla daga, svo að hann lenti í óteljandi ævintýrum. Hann hitti fuglinn Rok.“ Helgi og Eiríkur skelltu báðir upp úr. „Víst hitti hann fuglinn Rok,“ sagði Gísli ákveðinn. „Ég get ekkert að því gert, þó að hann hafi heitið Rok eins og rok. Nafnið hans er bara skrifað með stórum staf, því að hann hét Rok eins og ég heiti Gísli, þú Eiríkur og Helgi Helgi.“ Hann benti á þá til skiptis um leið og hann sagði þessi orð. „Og Rok átti afskaplega stór egg.“ „Ertu viss urnþað?" spurði Eiríkur. „Já, þau voru næstum þvf eins stór og hús. Kannsi vorum við allir þrír í sama egginu. Við erum jafn- gamlir," svaraði Gísli. En það gat ekki verið. Helgi var yngstur. Gísli var orðinn átta ára og Eirfkur líka. Nei, þeir höfðu sennilega komið sinn úr hverju Rok-egginu, en alls ekki verið í því sama allir. „Þið megið ekki gleyma að gefa mér eitthvað á morgun,“ sagði Helgi litli, áður en hann fór inn að borða. „Gefa?“ spurði Eiríkur. „Já, það á alltaf að gefa afmælisgjafir," sagði Helgi litli. „Ég fæ margar.“ „Hvað færðu þá?“ spurði Gísli. „Ég veit það ekki ennþá,“ svaraði Helgi litli. „Það er leyndarmál, segir mamma. Hún segir, að það sé ekkert í það varið að vita fyrir fram, hvað maður fái í afmælisgjöf. Þið megið ekki segja mér, hvað þið ætlið að gefa mér.“ Skelfing fannst þeim Gísla og Eiríki það einkenni- legt að mega ekki segja frá gjöfunum. „Veiztu, hvað þú ætlar að gefa Helga?“ spurði GIsli Eirík. „Leyndarmál,“ sagði Eiríkur íbygginn og svo fóru þeir báðir inn að borða. 3. kafli. Afmælisveizlan. Næsta dag hringdi Eiríkur hátíðlega á bjölluna hjá Gísla. Mamma Gísla koma til dyi^a. „Góðan daginn,“ sagði Eiríkur. „Er Gísli tilbúinn? Hann Helgi litli á nefnilega afmæli í dag.“ „Gísli er að greiða sér,“ sagði mamma hans og svo bauð hún Eiríki allra náðarsamlegast inn í for- stofuna. Það var mjög sjaldgæft, að hún byði ein- hverjum inn í stofuna sína eins og þið munið kannski. Það var nefnilega hvítt teppi á gólfinu þar. DRÁTTHAGIBLÝANTURINN Jonni ogcTManni Jóri Sveinsson Þessi gullna rák var óviðjafnanlega fögur, hón var á sífelldu iði, glitrandi og blikandi. Það var eins og hún væri stráð ótölulegum aragrúa af perlum og gimsteinum. Það var hrífandi sjón. En nú vorum við komnir að uppgöngustiganum á „Fyllu“. Þar tóku á móti okkur tveir danskir foringjar í skín- andi einkennisbúningum. Franska lækninum, drengjunum tveimur og Manna og mér var boðið strax upp á þilfar, en hásetarnir urðtt eftir í bátnum. Dönsku sjómennimir tóku okkur ljúfmannlega. Þeir horfðu á eftir okkur undmnarfullir, þegar við gengum eftir þilfarinu til híbýla yfirforingjans. Læknirinn gekk á undan með liðsforingjanum. En við drengirnir fjórir fylgdum á eftir. Freysteinn Gunnarsson þýddi Við tókum eftir því, að allt var hér hreint og fágað. Þilfarið var nauðþvegið. Þar sást ekki einn óhreinn blettur. Fallbys8urnar og allt annað, sem úr málmi var, gljáði eins og það væri nýkomið úr steypunni. Við gengum niður stiga og inn til yfirforingjans. Þar vora skrautlegir salir, sem ekki stóðu að baki söl- um þeim, sem við höfðum séð í franska herskipinu. Yfirforinginn á „Fyllu“ var tigulegur maður og við- mótsþýður, með svart yfirskegg og snöggt klipptur Hann gekk á móti franska lækninum og heilsaði hon- um blíðlega með handabandi. Þá bauð hann honum til sætis á rauðum hægindastól. Því næst kom hann til okkar drengjanna og heilsaði okkur og lét okkur setjast á rauðan legubekk, sem stóð við vegginn. Þeir töluðu saman á frönsku. — Hvað segirðu um að borða úti f kvöld??? — Og ef þér óskið einhvers, þá hringið bara ... — Hættu þessum öskrum mað- ur, — þú fælir allan fisk I burtu ...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.