Morgunblaðið - 05.02.1974, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 05.02.1974, Qupperneq 32
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1974 Dliprðimlilabib nUGLVSmGRR ^-»22480 l*h Einar Baldvin Guðmundsson hæstaréttarlögmaður látinn í Sundahöfn í Sjá frétt á bls. gær. Verið er að landa 450 lestum af loðnu úr Guðmundi RE. — 2. — Ljósm. Sv. Þorm. EINAR BaJdvin Guðmundsson hæstaréttarlögmaður varð bráð- kvaddur að heimili sfnu f gær- morgun — 70 ára að aldri. Hann var í hópi virtustu lögmanna hér- lendis og gegndi mörgum trúnað- arstörfum, átti m.a. sæti 1 Félags- dómi í mörg ár og var formaður stjórnar Eimskipafélags Islands til dauðadags. Einar fæddist hinn 28. desem- ber 1903 á Hofsósi i Skagafirði og voru foreldrar hans Guðmundur Einarsson, bóndi á Hraunum í Fljótum, síðar verzlunarstjóri á Siglufirði, og kona hans, Jóhanna Stefánsdóttir. Hann varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1923 og fimm árum síðar lauk hann embættisprófi í lögum frá Há- skóla Islands. Að því loknu stund- aði hann framhaldsnám í Svíþjóð. Um skeið starfaði hann á skrif- stofu lögreglustjórans í Reykja- vík og sem fulltrúi á lögfræði- skrifstofu Guðm. Olafssonar og Péturs Magnússonar. Hæstarétt- arlögmaður varð hann árið 1934 Allsherj arverkfall 19. febrúar ? 30 manna nefnd A.S.I. beinir því til aðildarfélaganna Þrjátíu manna samn- unar frá og með þriðjudeg- förnu. Síðast ræddust inganefnd Alþýðusam- inum 19. febrúar næst deiluaðilar við hjá sátta- bands íslands hefur óskað komandi. Ekkert hefur semjara í gær, en ekkert eftir því, að aðildarfélög miðað í samkomulagsátt miðaði í samkomulagsátt. A.S.Í. boði til vinnustöðv- með deiluaðilum að undan- Flest aðildarfélög Alþýðu- Stálu 400 kjötskrokkum og V/ lest af smjöri RANNSOKNARLÖGREGLAN í Hafnarfirði hefur upplýst þjófn- að á um 400 kjötskrokkum og 1250 kg af smjöri úr frysti- geymslu í Hafnarfirði. Voru tveir menn handteknir á föstudag, grunaðir um að vera valdir að þjófnaðinum, og hafa þeir játað á sig verknaðinn. Heildarverðmæti þýfisins nemur um tveimur milljónum króna. Rannsóknarlögreglunni var þriðjudaginn 29. jan. sl. tilkynnt um þjófnað á kjötskrokkum úr frystigeymslu i Hafnarfirði og var talið, að um 200 skrokka væri að ræða. Á föstudag voru tveir menn handteknir, grunaðir um þjófn- aðinn. Eftir yfirheyrslur viður- kenndu þeir þjófnaðinn og reynd- ist magnið þá hafa verið mun meira eða um 400 kjötskrokkarog 50 kassar af smjöri, alls 1250 kg. Nær allt þýfið fannst á sunnudag í frystigeymslu suður með sjó. Vantaði einungis þrjá kassa af smjöri, eða 75 kg, og um 20 kjöt- skrokka. Mennirnir hafa borið, að þeir hafi einungis verið tveir um þjófnaðinn. Annar þeirra er kaupmaður í Reykjavik og var ætlunin, að hann seldi kjötið og smjörið, en hinn fengi hluta af ágóðanum. Hafði þeim samizt svo Framhald á bls. 31 sambandsins hafa nú aflað sér heimildar til vinnu- stöðvunar. Samkvæmt þeim upplýs- ingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, samþykkti 30 manna samninganefnd- in einróma að beina því til aðildarfélaga A.S.Í. að boða til vinnustöðvunar þann 19. febrúar. Eins og fyrr segir, hafa flest aðildarfélög Alþýðu- sambandsins aflað sér verkfallsheimildar á félagsfundum. Samkvæmt lögum um vinnudeilur og stéttarfélög, þá er það á valdi stjórna- og trúnaðar- mannaráða að taka ákvörð- un um verkföll. Einar Baldvin Guðmundsson og ári síðar stofnaði hann ásamt öðrum málflutningsskrifstofu i Reykjavík, sem hann rak til dauðadags. Einar tók alla tíð virkan þátt í félagsmálum og gegndi fjölda trúnaðarstarfa. Þannig var hann Framhald á bls. 31 Smyslov vann Jón Kristinsson Önnur umferð Reykjavíkurmótsins í skák var tefld í gær- kvöldi. Er Mbl. fór í prentun var aðeins einni skák lokið. Smyslov vann Jón Kristinsson. HANNIBAL VALDIMARSSON: í þágu íslands að hér sé eftirlits- og varðstöð Matthías Steingrímsson Ungur sjómaður af Karlsefni drukknaði UNGUR sjómaður drukknaði sl. fimmtudagskvöld, 31. jan., er hann féll útbyrðis af togaranum Karlsefni, sem var að veiðum út af Vestfjiirðum. Hann hét Matt- hías Sævar Steingrímsson, til heimilis að Hvassaleiti 49 í Revkjavík. Ekki er ljóst um tildrög slyssins og engin vitni urðu að því, er Matthias féll fyrir borð. iMörg skip voru á veiðuin á þessu svæði og strax og ljóst varð um slysið, hófu þau leit á svæðinu, en án árangurs. Matthías var 26 ára að aldri, sonur hjónanna Steingríms * K. Guðmundssonar og Fjólu Sigurðardóttur. Hann lætur eftir sig ungan son. HANNIBAL Valdimarsson var einn af fjórum fslenzkum fram- sögumönnum á ráðstefnunni um um öryggismál Islands og Noregs, sem haldin var um síðustu helgi. Hannibal rakti þróun heimsmála síðustu áratugina og stöðu Is- lands og fjallaði um baráttu Is- lendinga fyrir tilveru sinni og sjálfstæði. I lok ræðu sinnar sagði hann svo: — ísland hefur ávallt haft inikla hernaðarlega þýðingu í átökum milli flotavelda á Norður- Atlantshafi. Sú varð t.d. reynsla okkar í seinasta stríði. Og vegna þessarar þróunar mála, hefur Is- land óumdeilanlega, mikla hernaðarlega þýðingu. — Eg held, að það sé ekki of- mælt, að það hljóti að vera varnarbandalagi vestrænna þjóða mikilvægt, jafnvel nauðsynlegt, að geta haft eftirlit með öllum hræringum skipa og hvers konar farartækja á Atlantshafi og undir yfirborði þess. % held ennfem- ur, að ísland sé slik vitneskja lika og ekki síður nauðsynleg. Bezt væri, að ísland gæti sjálft annast slíkt eftirlit að sem allra mestu leyti. En þar sem þvf er ekki til að dreifa, virðist auðsætt að Bandaríkin eða Norður-Atl- antshafsbandalagið fái aðstöðu til að annast það á líkan hátt og verið hefur. — Mín afstaða er því sú, að það sé í þágu varna íslands og íslend- inga, að hér sé eftirlits- og varð- stöð, en hins vegar eigi varnarlið að vera hér í algjöru lágmarjti, því að hér getur aldrei — m.a. vegna fámennis og smæðar þjóðarinnar — verið svo fjölmennt varnarlið, að neina verulega þýðingu hafi gagnvart hugsanlegri stórveldis- árás á landið. Undir slíkum kringumstæðum — sem Guð forði okkur frá að hugsa til — yrði allt að byggjast á því, hve fljótt væri hægt að flytja hingað herstyrk í stórum stíl landinu til varnar. — Ríkisstjórn íslands hefur skuldbundið sig til að gera eitt af tvennu i varnarmálunum: Að framkvæma endurskoðun á varnarsamningnum við Banda- Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.