Morgunblaðið - 09.02.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1974
Bjarni Guðnason:
Þingsályktunartillaga um
uppsögn varnarsamningsins
Hinn nýi skuttoeari Hraðfrvstihúss Eskifjarðar og Kaupfélags
Héraðsbúa, Hölmanes, kom til Eskifjarðar í fyrradag. iHyndin er
tekin af skipinu, þegar það skreið inn Eskifjörð, og staðurinn,
sem skipið heitir eftir, Hólmanes er í baksýn. Ljdsm. Mbl.:
Þórleifur Olafsson.
Vandamálin að rekja
framleiðslukostnaðar
I FYRRADAG var lögð fram á
Alþingi tillaga frá Bjarna Guðna-
syni til þingsályktunar um upp-
siign varnarsamnings milli ís-
lands og Bandaríkjanna. Tillagan
er svohljóðandi: „Með skírskotun
til þess, að sá sex mánaða frestur,
sem tilskilinn er til endurskoð-
unar á varnarsamningi milli ís-
lands og Bandaríkjanna frá 5.
maí 1951, er liðinn, ál.vktar
Alþingi að fela ríkisstjórninni að
leggja nú þegar fyrir Alþingi
frumvarp tii laga irni uppsögn
samningsins."
1 greinargerð með tillögunni
segir Bjarni Guðnason m.a., að nú
sé sýnt, að st jórnarflokkarnir
hyggist hlaupast frá því að koma
öllum bandarískum her af landi
brott á kjörtímabilinu, undir þvf
yfirskini, að aðildin að NATO
leggi íslendingum á herðar þær
skyldur, að NATO-ríkin hafi
Epli
26%
100 kr.
liækkun f tíð vinstri stjórnar.
hér aðsetur fyrir flug-
sveit, flugvirkja og lög-
gæzlu. En af NATO-samning-
um frá 1949 megi ráða, að
íslendingar hafi engar skyldur
vegna NATO-aðildarinnar
að hafa hér her eða her-
stöðvar á friðartímum. Og
um þessar mundír sé með frið-
samlegasta móti frá stríðslokum í
okkar heimshluta. Þá segir einnig
í greinargerðinni, að varnarliðið
bandaríska hafi mengað svo
hugarfar margra íslendinga, að
þeim finnist þeir vart geta lifað
án þess. Mengun hugarfarsins sé
nú komið á það alvarlegt stig, að
hrottför varnarliðsins þoli enga
bið, ella blasi við herseta áíslandi
til frambúðar.
Kíttisverk-
smiðja reist
í Hveragerði
í RAÐI er að reisa mikla kíttis-
verksmiðju við Ilveragerði.
Framkvæmdir við bvgginguna
munu hefjast á næstunni, en hún
verður alls um 4 þúsund fer-
metrar á tveimur hæðum, en
henni hefur verið valinn staður
milli nýja og gamla þjóðvegarins,
austan við Breiðumörk. Aðal-
hvatamaður að stofnun verk-
smiðjunnar er Olafur Þorgríms-
son.
Gert er ráð fyrir, að í þessari
verksmiðju fari þó fyrst í stað
aðeins fram átöppun, en hráefnið
verði flutt hingað til lands frá
Bandaríkjunum. Hins vegar
verður kíttið mestmegnis flutt út
til Evrópulanda, einkum Efna-
hagsbandalagslandanna.
Kíttisverksmiðja þessi hefur þó
að undanförnu verið talsvert til
umræðu meðal íbua Ilveragerðís,
en þar óttast margir mengun af
völdum hennar. Þess vegna hefur
félagsskapurinn Junior Chamb-
ers i Hveragerði ákveðið að boða
til almenns borgarafundar meðal
íbiia Hveragerðis um málefni
verksmiðjunnar. Er hér fyrst og
fremst um að ræða kynningar-
fund, þar sem munu mæta full-
trúar úr sveitarstjórn, og fulltrúi
frá stjórn verksmiðjunnar til að
gera grein fyrir málinu. Þá verða
einnig almennar fyrirspurnir og
umræður. Verður fundurinn
haldinn að Hótel Ilveragerði og
hefst kl. 2.
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi fráSambandi íslenzkra sam-
vinnufélaga 8. febrúar 1974.
Vegna blaðaskrifa, sem spunn-
izt hafa um sölu á kvenkápum úr
islenzkri prjónavoð til Bandaríkj-
anna, þykir Sambandi íslenzkra
samvinnufélaga rétt að koma eft-
irfarandi upplýsíngum á fram-
færi:
1. í lok nóvember 1973 fengum
vér fyrirspurn frá bandaríska
fyrirtækinu Sperry & Hutchinson
Co., vegna American Express. Var
spurzt fyrir um, hvort vér gætum
selt þeim kvenkápur úr íslenzkri
ull og á hvaða verði. Vér óskuðum
eftir nánari upplýsingum um snið
og frágang og að þeim fengnum
var athugað, hvort Prjónastofa
Borgarness gæti tekið að sér verk-
ið. Reyndist svo vera. Tilboð f
kápurnar, byggt á útreikningum
prjónastofunnar, var síðan sent
til Bandaríkjanna. Þess skal sér-
staklega getið, að Iðnaðardeild
Sambandsins hefur um nokkur
undanfarin ár haft milligöngu um
sölu erlendis á ýmsum fram-
leiðsluvörum Prjónastofu Borgar-
ness.
2. Fulltrúar American Express
og Sperry & Ilutchinson komu
síðan hingað til lands 29. janúar
s.l. Var málið þá frekar rætt og
kaupin gerð. Það skilyrði var sett
af hálfu hinna erlendu kaupenda,
að Sambandið hefði milligöngu
um samningana.
3. Vér teljum miður farið, að
reynt hefur verið að gera þennan
sérstaka samning tortryggilegan i
Fyrsti
ráðherrann
fallinn
r r pi • •• •
i profkjori
Sfmað var til Morgunblaðsins í
gærkvöldi úr Þingeyjarsýslu og
þau tíðindi sögð, að fyrsti ráð-
herrann væri failinn. Síðan f.vlgdi
sú skýring, að í S-Þingeyjarsýslu
hefði nýlega farið frain prófkjör
innan Framsóknarflokksins og
þar hefði Ingvi Tryggvason,
hlaðaful Itrúi Búnaðarfélags is-
lands, farið með sigur af hólmi
gegn Jónasi Jónssyni, aðstoðar-
ráðherra Halldórs E. Sigurðsson-
ar, og fengið 113 atkvæðum fleira
en Jónas.
Búnaðarþing
sett á mánudag
Búnaðarþing — hið 56. í röð-
inni, verður sett í Búnaðarþings
salnum í Bændahöllinni næst-
komandi mánudag kl. 10 f.h.
Asgeir Bjarnason, formaður
Búnaðarfélagsins, setur þingið og
Halldór E. Sigurðsson land-
búnaðarráðherra flytur ávarp. Þá
verða kjörnir starfsmenn þings-
ins, en formaður Búnaðarfélags
Islands er sjálfkjörinn forseti
þess.
Fundir Búnaðarþings eru öll-
um opnir, sem hafa áhuga á að
fylgjast með störfum þess.
til mikils
hérlendis
augum blaðalesenda með skír-
skotun til þeirra miklu erfiðleika,
sem prjóna- og saumastofur víða
um land eiga nú við að etja.
Vandamál þessara fyrirtækja á
rætur sínar að rekja til þeirrar
staðreyndar, að framleiðslukostn-
aður allur hefur hækkað miklu
örar en svo, að hægt hafi verið að
jafna allan muninn með hærra
söluverði erlendis. Það er að vor-
um dómi fráleitt að halda því
fram, að sá sérstaki samningur,
sem hér um ræðir og snertir
aðeins eitt framleiðslufyrirtæki,
geti á nokkurn hátt orðið ráðandi
um úrlausn þess mikla vanda,
sem hér er við að eiga og snertir
mörg fyrirtæki víðs vegar um
landið.
4. Svo sem kunnugt er, selur
Samband íslenzkra samvinnufé-
laga mikið magn af ullarvörum til
Sovétríkjanna. Hér er um að ræða
vörur, sem framleiddar eru í
miklu magni í verksmiðjum Sam-
bandsins á Akureyri, þar sem
hægt er að koma við fuilkomn-
ustu vélum og ýtrustu hagræð-
ingu. Því miður er naumast hægt
að gera ráð fyrir, að þær vörur,
sem hér um ræðir, mundu fallnar
til framleiðslu f litlum fram-
leiðslueiningum. Hins vegar
hefur nú um nokkurra mánaða
skeið farið fram athugun á því,
hvort hægt mundi að ná samn-
ingum um sölu til Samvinnusam-
bands Sovétríkjanna á vörum,
sem henta mundu til framleiðslu i
minni framleiðslueiningum. Mun
innan skamms fást úr þvi skorið,
hvort hægt verður að leiða þessa
samninga farsællega til lykta og
ná verði, er nægi til þess að
standa undir hérlendum fram-
leiðslukostnaði. Þess skal að lok-
um getið, að hinn 1. þ.m. var
ákveðið, að fyrirsvarsmenn
prjóna- og saumastofu á Norður-
landi og á Egilsstöðum kæmu
saman til fundar með forráða-
mönnum Iðnaðardei ldar Sam-
bandsins til viðræðna um hugsan-
lega samvinnu. Mun fundur þessi
verða á Akureyri 13. og 14. febrú-
ar n.k.
Borgarfulltrúi Framsóknar tvísaga:
Kristján Ben. tók ekki boði borgar-
stjóra um að hlusta á eigin ræðu!
A FUNDI borgarstjórnar
Reykjavíkur á fimmtudags-
kvöldið kom til snarpra orða-
hnippinga milli Birgis ísleifs
Gunnarssonar borgarstjóra og
Kristjáns Benediktssonar (F).
En Kristján gerði bókun frá
Albert Guðmundssyni að um-
ræðuefni og taldi, að með henni
hefði Albert bundíð enda á far-
sæla forystu sjálfstæðismanna í
íþröttamálum. Bókun Alberts,
sem gerð var í borgarráði 5.
þ.m., var á þá leið, að hann tæki
ekki þátt í afgreiðslu á tillögu
um girðingu í kringum vellina i
Laugardal og mundi ekki taka
þátt í afgreiðslu málefna þeirra
valla, sem þar væru í byggingu.
Albert Quðmundsson kvaðst
vilja segja Kristjáni það sama
nú 'og hann hefði sagt á um-
ræddum borgarráðsfundi.
Þ.e.a.s. að skoðanir sínar á gerð
íþróttavalla mótuðust af ára-
tuga reynslu og því hefði hann
jafnan lagt áherzlu á, að komið
yrði upp boðiegum keppnisvöll-
um. En þær girðingartegundir,
sem lagt hefði verið til að nota í
Laugardalnum, teldi hann ljót-
ar og auk þess væru þær þannig
úr garði gerðar, að auðvelt væri
að standa utan vallanna og
horfa á kappleiki og þannig
töpuðu íþróttafélögin miklu fé.
Birgir ísleifur Gunnarsson
borgarstjóri kvaðst furða sig á
og fordæma þær tilraunir, sem
Kristján Benediktsson væri að
gera til þess að reyna að sanna
einhvern ímyndaðan klofning í
röðum sjálfstæðismanna og
hikaði hann jafnvel ekki við að
nota vísvitandi lygar í því
skyni. Sbr. það að í næstu liðum
umræddrar fundargerðar tók
Albert Guðmundsson þátt i að
samþykkja tilboð um gerð
malarvallar í Laugardal og gerð
vélfrystst skautasvells. En í
fyrri ræðu sinni fullyrti
Kristján, að Albert mundi
standa gegn þessum fram-
kvæmdum og tiltók sérstaklega
væntanlega skautahöll, sagði
borgarstjóri. Og þótt Kristján
hafi í seinni ræðu sinni þrætt
fyrir að hafa nefnt skautasvell-
ið, þá mun hljóðritun fundarins
leiða hið gagnstæða í Ijós og vil
ég hér með bjóða Kristjáni og
viðstöddum blaðamönnum að
koma til skrifstofu minnar kl.
9,30 í fyrramálið og hlýða á
hljóðritunina.
Blaðamaður Morgunblaðsins
þáði þetta boð borgarstjóra, en
ekki létu Kristján Benedikts-
son eða blaðamenn annarra
blaða, sem á fundinum voru,
frá Alþýðúblaðinu, Tímanum
og Þjóðviljanum, sjá sig.
Hinn umdeildi hluti úr fyrri
ræðu Kristjáns hljóðar svo orð-
rétt:
„Mér fannst þessi bókun og
sá skoðanaágreiningur, sem
upp er risinn meðal bftr.
Sjálfst.fl., það athyglisverður,
að rétt væri að gera hann að
sérstöku umtalsefni hér i
borgarstjórn. Það er einnig
athyglisvert, að í þessari hókun
erfyrst og fremst vikið að þeim
mannvirkjum í Laugardal, sem
eftir er að reisa þar, cn það eru
fyrst og fremst íþróttavel lirnir,
sem þar munu risa á næstunni
til viðhótar við Skautahöll, sem
gert hefur verið ráð fyrir að
Framhald á bls. 18