Morgunblaðið - 09.02.1974, Page 15

Morgunblaðið - 09.02.1974, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRUAR 1974 15 er stemning ljóðsins alls staðar svo sterk.... Á MORGUN, sunnudaginn 10. febrúar, heldur finnska mezzo- sópran söngkonan Margit Tuure Laurila hljóinleika f Laugarneskirkju ásamt orgel- leikara kirkjunnar, Gústaf Jó- hannessyni. Á efnisskrá verða sönglög eftir Bach, Hannikain- en og Kuuisto og orgelverk eft- ir Bach og Reger. íslendingum hafa gefizt gull- in tækifæri að undanförnu til að kynnast finnskri músik og músikmennt. Fyrir skömmu voru hér á ferð Kim Borg, sem frægastur er núlifandi söngv- ara Finna, og Taru Valjakk, af- burða söngkona, sem m.a. gaf innsýn í Ijóðalagagerð ungra landa sinna sem hinna eldri. Jussi Jalas, hljómsveitarstjór- inn finnski, sem oft hefur oft hefur sótt okkur heim, stjórn- aði Sinfóníuhljómsveit íslands á tónleikum sl. fimmtudag og flutti þar meðal annars 2. sin- fóníu Sibeliusar og í vikunni kom einnig til landsins söng- konan Margit Tuure Laurila ásamt píanóleikaranum Meri Lauhos. Þær komu í boði Norræna hússins og Finnlands- vinafélagsins Suomi, tilþess að halda hljómleika á Runebergs- daginn, 5. febrúar, þar sem á efnisskrá voru eingöngu verk finriskra tónskálda. Margit Tuure Laurila er ein af fremstu ljóðasöngvurum Finnlands og Meri Louhos einnig kunnur listamaður í landi sínu, kennari í pianóleik við' Síbeliusarakademfuna í Helsinki og hefur auk einleiks- hljómleika unnið með mörgum beztu tónlistarmönnum Finn- lands, þar á meðal Taru Valjakka. Þar fyrir utan starfar hún fyrar finnska útvarpið, kynnir þar tón- list, hefur viðtöl við tón- listarmenn, innlenda og erlenda, og annast sérstakan óskalagaþátt unnenda sígildrar hljómlistar — þar eiga sem sé ekki einungis popp- og dægur- lagahlustendur þess kost að velja sér lög. Þegar blaðamaður Morgun- blaðsins hitti þær að máli sem snöggvast í vikunni, upplýsti Meri, að þáttur sinn í útvarpinu væri með þeim hætti, að fólk hringdi beint til sín, veldi lög, sem væru leikin af hljómplöt- um, hún rabbaði síðan við fólk- Rabbað stundarkorn við finnsku ljóða- söngkonuna Margit Tuure Laurila, sem syngur í Laug- arneskirkju á sunnudag, og píanóleikarann Meri Louhos ið og talaði um tónverkin sem flutt væru. Meðal þeirra tón- listarmanna, sem hún hefur haft viðtal við í útvarpi, er Þor- kell Sigurbjörnsson, tónskáld — þegar hann var í Finnlandi á ferð fyrir nokkrum árum. Meri Louhos kvaðst líka hafa hitt Halldór Haraldsson, pianóleik- ara, þegar hann lék i Helsinki á dögunum og lét vel af þeim hljómleikum. Að öðru leyti þekkti hún ekkert til íslands eða Islendinga óg kvaðst hafa hlakkað mjög til að koma hing- að. Báðar létu þær vel af dvöl sinni til þessa, vor.u nýkomnar frá ísafirði, þar sem Margit söng lög þýzkra og finnskra tón- skálda. Þar upplifðu þær þann þátt í daglegu lífi íbúa lands- byggðarinnar islenzkurað bíða í norðangaddi eftir flugvél, sem ekki kom, aka aftur til bæjarog svo aftur út á flugvöll, þegar veður leyfði lendingu. ,,Það var hræðilega kalt,“ sögðu þær — ,,en stórkostlegt." Við vorum hreint bergnumdar af um- hverfi ísafjarðar — og fólkið var svo dæmalaust elskulegt, rétt eins og við hefðum hitt það síðast í gær. Við fundum líka á öllu, að á ísafirði er gömul músikhefð, bæði af því, sem okkur var sagt, og af því hvern- ig fólkið hlustaði. Svo var þar prýðilegt hljóðfæri, Bösen- dorfer flygill, sem talar sínu máli. “ ,,Veiztu,“ — sagði Margit — ,,ég hef legið hérna inni og hvilt mig eftir ferðina og velt því fyrir mér, hvað gerir ísland svona heillandi. Það er svo frá- brugðið öllum stöðum, sem ég hef áður kynnzt og fólkið, sem á annað borð hlustar á músik, virðist lifa hana mjög sterkt, sennilega sterkara en annars staðar á Norðurlöndum. Við höfum fundið þetta báðar i þessari ferð.“ Margit Tuure Laurila kemur nú til íslands öðru sinni; var hér áður árið 1965 á vegum Norrænu félaganna, að frum- kvæði finnska sendiherrans i Ösló. Tónleikar hennar þá voru eftirminnilegir, sérstaklega sökum lifandi og dramatískrar túlkunar ljóðanna á efnis- skránni. Talið barst að upphafi Iistfer- ils hennar og þá-kom í ljós, að hún byrjaði sem ljóðalesari. „Ljóðalestur var hluti af tón- listarnáminu við Sibeliusaraka- demíuna,“ sagði hún — „og kennari minn þar sá fyrir því, að ég færi að lesa upp opinber- lega. Ég hef mikið dálæti á ljóð- list, — kannski þar sé fundin skýringin á hrifningu minni á Islandi, hér er stemning ljóðs- ins alls staðar svo Ste.rk.“ Þær Margit Tuure Laurila og Meyi Louhoseru báðar Karelar, komnar frá Kirjálahéruðunum, sem voru talsverður hluti Finn- lands fram til ársins 19,40, eða um 53.000 ferkm ao flat- armáli. í Vetrarstríð- inu við Rússa misstu Finn- ar mikið af þessum land- svæðum, náðu þeim þó aftur og vel það, svo sem sögufrægt er, en misstu þau á ný undir lok heimsstyrjaldarinnar og neyddust þá til að gera friðar- samninga við Rússa, þar sem þeir afsöluðu sér um 30 þús. ferkm af þessu landi. Kirkjálahéruðin hafa raunar öldum saman verið ríkjum hafa ráðið í Finnlandi og ibúar þeirra því vanir róstu- sömu lifi og harðindum. Kannski á annáluð lífsgleði þeirra rætur til þess að rekja. Þegar Rússar tóku héruðin i Vetrarstríðinu flúðu um 400.000 manns vestur á bóginn til annarra svæða í Finnlandi; seinna sneri talsverður hluti flóttamannanna aftur, þegar uppbygging hófst að nýju en hinir leituðu sér nýrra heim- kynna. Fjölskvlda Margitar sem var meðal flóttamannanna karelsku, hafði búið í Vjb.org. Meri var aftur á móti ættuð frá svæði i Kirkjálahéruðunum, sem nú er rétt innan við landa- mærin Finnlandsmegin. I rabbi um tónlistarlif í Finn- landi mátti heyra, að það væri býsna líflegt og fjölbreytt. Sin- fóníuhljómleikar vinsælir og mjög vel sóttir, talsvert um tón- Ieika fyrir börn og unglinga og áhugi vaxandi á hljómleika- haldi í litlum sölum, þar sem hlustendur komast nær flytj- endum en í stóru húsunum. „Kámmermúsik á vaxandi fylgi að fagna, og nú er að ganga vfir rómantísk bylgja. Hér áður fyrr voru ljóða- og rómönsukvöld ákaflega vinsæl og tíð en svo kom tfmábil, þegar ekkert rómantiskt mátti heyrast og þá dró úr áhuga á ljóðasöng. En nú er eins og þetta sé aftur að breytast,“ sögðu þær Margit Tuure Laurila og Meri Lauhos að lokum. — mbj. GuðmundurÞórðarson — Minningarorð í dag kl. 10:30 fer fram frá Fossvogskapellu útför Guðmund- ar Þórðarsonar. Hann lést í Land- spítalanum 31. janúar s.I. Guðmundur var fæddur að Þor- kelshóli í Víðidal V-Hún. 25. ágúst 1915, sonur óðalsbóndans Þórðar Guðmundssonar og konu hans G uðrúnar Benediktsdóttur. Dvaldist hann í foreldrahúsum fram til ársins 1938, en þá létust foreldrarhans með mánaðar milli- bili. Stuttu eftir andlát þeirra veiktist Guðmundur at' lömunar- veiki, þá aðeins 23ja ára gamall. Var hann fluttur fársjúkur i sjúkrahúsið á Hvammstanga og þaðan 6 vikum siðar i Landspftal- ann, þar sem hann dvaldi i 2'4 ár. Frá þessum tíma var hann alger öryrki. Minntist Guðmundur með hlýhug hjúkrunarfölks og lækna í þessum sjúkrahúsum og öðrum, sem hann hefur gist á þessu tíma- bi li. Sá er þessar línur ritar, naut þess trausts Guðmundar, að fá að fylgjast að nokkru með viðburða- rás hans daglega lífs, sem að vísu var ekki margbrotin. Tjáðí hann mér stundum vandamál sín, sem honum sýndist oft erfið úrlausn- ar, en auðleysanleg, þegar ígrund- uð voru ofan i kjölinn og með aðstoð góðra manna. Ég leyfi mér hér fyrir hönd Guðinundar að færa sérstakar þakkir tveimur mönnum, þeim Jóni Gunnlaugs- s.vni lækni og Þorkeli Þórðarsvni, fulltrúa í félagsmálastofnun Reykjavfkurborgar, þeim fyrri fyrir margra ára læknisþjónustu án eyris greiðslu og þeim siðari fyrir einstaka lipurð og skilning á veraldlegum vandamálum Guð- mundar. Ymsu fólki öðru átti Guð mundur þakkir að gjalda. Þótti honum miðui' að geta ekki launað þvi í gjaldmiðli þessa heims, gulli og silfri, en „Guðsblessunar bið ég þvi í bæntim minum, þegar ég leggst á koddann niinn á kvöld- in,“ sagði hann oft. Þrátt fyrir mikil og Iangvinn veikindi, naut Guðmundur vel liðandi stundar. Hann var að eðl- isfari léttur í lund og á broslegu hliðai- lífsins, vai' hann furðu fundvis. Óbilandi trú á lífið eftir þetta veitti honum styrk i erfiðleikum. Og oft ræddi hann við mig um þá vissu sína, að handan landamær- anna miklu, mvndi sál hans upp rísa óliáð lasburða líkama. Var þá sem mildi þeirrar hugsunar end- urspeglaðist í andlitsdráttum lians. Um leið og ég þakka Guðmundi fyrir ánægjulega viðkynningu, flyt ég svstrum hans Önnu og Ingibjörgu innilegar samúðar- kveðjur mínar. Guðmundi sjálf- um óska ég góðrar ferðar Guðs um geim. Eiríkur Asgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.