Morgunblaðið - 09.02.1974, Side 28

Morgunblaðið - 09.02.1974, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRUAR 1974 W3 Gísli, Eiríkur og Helgi En Gunnar frænka sagði ekki fleira. Hún rétt leit á hamsturinn og þaut svo veinandi fram í eldhús til mömmu hans Helga litla. „Mikið er hún frænka þfn fljót að hlaupa," sagði Eiríkur. „Það er ég viss um, að hún hefði komizt i Ólympíuliðið, ef hún hefði veljað.“ „Hún er nú ekki vön að hlaupa svona hratt,“ sagði Helgi litli. „Kannski hún hafi bara gert það, af því að ég á afmæli í dag.“ Eirikur, Gísli og Pálína litu öll undrandi á hann. „Ja, hún er sko frænka mín,“ sagði Helgi litli til útskýringar. „Hún hefur kannski viljaðsýna, aðhún Að skreyta veizluborðið Þftta er ána’lis huginvnd fyrir þá, sem vilja skrevta veizlu- horðið. Þú færð þér banana, siinsur eldspítuin í hann þannig að þær verði eins og fætur. Ról'an er gerð úr pípuhreinsara, augun úr lakkrís og eyrun úr inarsipan. i eftlr inglbiörgu Jönsdötlur gæti annað og meira en prjóna lopapeysur. Hún teygir nefnilega lopann eins og hún getur og hefur alltaf gert það, segir mamma.“ „Ætlarðu ekki að aðgæta það, sem ég gaf þér?“ spurði Eiríkur og rétti fram höndina í áttina að pakkanum, sem Helgi litli hafði sett á borðið fyrir framan sig. „Ja-ú,“ sagði Helgi litli, „en heldurðu, að litla dýrinu líði vel í kassanum á meðan?“ „Þetta er ekkert lítið dýr, heldur einmana hamst- ur, sem ég fann gangandi úti á götu,“ sagði Gísli móðgaður. „Þú sérð nú vonandi, að ég hef sett bæði baðmull í botninn og vatn í smádollu hjá honum. Svo er haframjölið út um allt.“ „Mér sýnist hamsturinn vera að naga gat út úr kassanum," sagði Helgi. „Hvar á ég að geyma hann, ef hann sleppur út?“ „Þú átt að fá þér spýtur,“ sagði Pálína. „Þú færð þær á starfsvellinum. Svo neglirðu þrjár saman hlið við hlið fjórum sinnum. Næst neglirðu þær saman á hliðunum og setur svo botn i. Þá ertu kominn með hamstrabúr." Gísli, Eiríkur og Helgi litu með virðingu á Pálfnu. Kannski var hún ekki svo galin af stelpu að vera. Sumar stelpur eru nú heldur betri en aðrar, því er ekki að neita. Gisli fór að hugsa um, hvort það væru sæmilegar stelpurnar, sem yrðu að mömmum, en Eiríkur ákvað á stundinni að banna sæmilegu stelp- unum að verða þvottasjúkar mömmur, þegar þær yrðu stórar. Þær mættu vel borða mikið, hafa silki- borða í hárinu (því að stelpur og mömmur eru pjattaðar), en þær máttu alls ekki þvo sér. Það áttu að vera lög. „Ætlarðu ekki að taka upp gjöfina mína?“ spurði Eíríkur. „Þetta er leyndardómsfyllsta gjöfin í öllum heiminum, því að hún er svo mikið leyndarmál, að það veit enginn, hver hún er, nema ég.“ Helgi opnaði gjöfina hans Eiríks. Hann stóð og glápti á pakkann, þegar hann var búinn að opna hann. „Ég hugsa, að þú hafir gleymt gjöfinni heima“ sagði hann. „Já, þú, þú hefur víst gleymt henni uppi á lofti, því að það er ekkert f pakkanum.“ „Ha-ha-ha!“ sagði Eiríkur hrifinn. „Það er nú samt svolítið í kassanum.“ „Ekki get ég séð það,“ sagði Helgi litli. (^Nonni ogcTI4anni eftir Jón Sveinsson Freysteinn Gunnarsson þýddi Þegar við vöknuðum, urðum við þess brátt varir, að skipið lá inni á höfn á Akureyri, því að vélin var ekki í gangi og allt var kyrrt og rólegt. Við klæddum okkur í snatri og hlupum upp á þiljur. Fylla lá við akkeri, hér um bil á sama stað og „La Pandore“ hafði legið áður. Hásetarnir umkringdu okkur og gerðu ýmislega að gamni sínu við okkur. Vinir okkar, drengirnir, komu nú til okkar og fóru með okkur í mötuskála foringjanna, þar sem þeir borð- uðu morgunverð með okkur. V4ð fengum. heitan grjónagraut með sykri og kanil út á og smjörklípu í. Eftir morgunverð hittum við skipstjórann í káetu sinni. Hann heilsaði okkur vingjarnlega, benti brosandi á sverðin okkar og spurði, hvort við hefðum fastráðið að ganga í danska sjóherinn. Við svöruðum, að við þyrftum fyrst að biðja foreldra okkar leyfis. „Það er vel hugsað hjá ykkur“, sagði hann. Svo bætti hann við: „Snemma í morgun kom bátur hingað, og var erind- ið að spyrjast fyrir um ykkur“. Við rákum upp stór augu. „Já“, sagði hann. „Foreldrar ykkar hafa verið mjög hræddir um ykkur, síðan þið týndust, og margir bátar hafa verið sendir að leita að ykkur. Sem betur fór, hafði ég góðar fréttir að færa foreldrum ykkar. Ég lét skila til þeirra, að þið væruð hér í bezta yfirlæti og ég myndi senda ykkur heim fljótlega“. ÍVIeöimoíQunkciífiiiu — Farið þér ekki bráðum að koma til að gera við gólfið?- I — Þetta var skemmtileg til- viljun ... ég ætlaði nefnilega einmitt að fara að segja þér, að þú ert neyddur til þess... — Itvað settirðu eiginlega mikið ger í kökuna??? | | | l IBER- — Segið mér, fáið þið gjaldkerar aldrei löngun til að stinga af með kassann???

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.