Morgunblaðið - 09.02.1974, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 09.02.1974, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRUAR 1974 29 ROSE- ANNA FRAMHALDSSAGA EFTIR MAJ SJÖWALl OG PER WAHLOÖ JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR ÞÝDDI 27 sýn, þar sem við höfum nöfnin á flestöllu fólkinu og höfum þegar haft samband við obbann af því. Kolberg gat verið sannfærandi í tali. Það var eiginlega sérgrein hans að stappa stálinu í Martin Beck. Martin sagði: — Hvað er klukkan? — Tiu mínútur yfir sjö. — Býr einhver hér í grendinni? Kolberg gáði í minnisbók sína. — Ofursti og eiginkona hans, aldurhnigin, eru hér skammt frá. — Hver fór að tala við þau? Þú? — Nei, Melander hitti þau. Hann sagði að þau væru geðfelld- asta fólk. — Og var það allt og sumt? — Já. Þeir voru komnir á staðinn fá- einum mínútum síðar. Frúin opn- aði fyrir þeim. — Axel, hér eru tveir menn frá lögreglunni, hrópaði hún inn f stofuna. — Segðu þeim að koma inn, æpti ofurstinn á móti — eða hafð- Velvakandi svarar í sima 1 0-1 00 kl. 1 0.30 — 1 1.30, frá mánudegi til föstudags. % Umræður um jafnréttismál „Ein á brúnleitum sokkabux- um“ skrifar: „Kæri Velvakandi. Ég er mikil kvenréttindakona, eða öllu heldur mannréttinda- kona, og fylgist með öllum um- ræðum um þau mál af miklum áhuga. Þess vegna leiðist mér óskaplega, hversu öfgakenndar þesar umræður hafa verið hér á landi fram að þessu og tel, að þær séu fyrst og fremst til þess fallnar að skaða þennan annars ágæta og mikilvæga málstað. Eitt dagblaðanna hefur nú tek- ið upp sérstakan „rauðsokkuþátt" sem birtur er þar öðru hverju, og þetta álít ég vera lofsvert fram- tak, en það ókemmtilega við þetta er það, að þarna er varla hampað öðru en margþvældum öfgaskoð- unum og gífuryrðum, sem ég tel ekki gefa umræðum um jafnrétt- ismál kynjanna það gildi, sem æskilegt væri. Hér fyrr á árum létu kvenrétt- indakonur talsvert til sín taka og varð þeim vel ágengt á ýmsum sviðum. Samt sem áður er svo ótalmargt ógert í þessum málum, ekki sízt vegna þess, að þjóðfé- lagshættir eru nú gjörbreyttir frá því, sem var á sokkabandsárum kvenréttindahreyfingar hér á landi. Þess vegna er ömurlegt ef ein- irðu kannski hugsað þér að ég færi út á tröppur til þeirra. Martin sló bleytuna af hattinum sinum og Kolberg þurrkaði í ákafa af fótunum á sér. — Herrarnir verða að afsaka, að ég stend ekki upp. A smáborði fyrir framan hann lágu dómínókubbar, koníaksglas og í sjónvarpstækinu var Jón Jetson og fjölskylda hans í ham. Og hávaðinn var vægast sagt ær- andi. En svo virtist sem hjónin tækju allsekki eftir honum. — Má bjóða mönnunum koníakslögg? Það er það eins, sem getur hjálpað í svona fúlviðri, sagði ofurstinn. — Ég er á bíl, sagði Kolberg og horfði löngunaraugum á flösk- una. Martin Beck ýtti við Kolberg. — Þú verður að hafa orð fyrir okkur, sagði hann. — Hvað segið þér? hrópaði ofurstinn. Martin tókst að brosa og hann bandaði vingjarnlega frá sér hendi. Ef hann gerði hina minnstu tilraun til að hafa af- skipti af þeim samræðum, sem hverri öfgahreyfingu örfárra ein- staklinga á að haldast það uppi að taka mál þessi upp á sina einka- arma og eyðileggja þannig mál- staðinn. Ég vil þess vegna koma þeirri tillögu á framfæri við Morgun- blaðið, að það Iáti jafnréttismál til sín taka í auknum mæli, og það fyrr en seinna. Af persónulegum ástæðum óska ég eftir því, að nafn mitt verði ekki birt að sinni. „Ein á brúnleitum sokkabuxum“.“ 0 Aðgæzlu þörf við loðnuveiðarnar Rannveig Vigfúsdóttir, Austur- götu 40, Hafnarfirði skrifar: „Nú þegar loðnuveiðin er kom- in í fullan gang flýgur mér oft í hug sú mikla ofhleðsla á skipun- um, sem á sér stað og er eins og sumarhleðsla var á síldveiðum fyrr á árum. Er þó mikill munur á veðurfari og sjólagi i þessum tilvikum. Ég er fyrrverandi sjómannskona, og er ég hrædd við þessa tilhugsun. Um hávetur eru veður oft vá; lynd og oft ekki lengi að skipast í lofti. Þarf þá að hafa fulla að- gæzlu við hleðslu skipa — það er öryggið, sem skiptir mestu máli. Við megum ekki leggja ofur- kapp á að koma með of hlaðin skip þótt það gefi mikið í aðra hönd fyrir alla hlutaðeigendur. Slysin eru mörg hjá okkar sjó- sóknarþjóð, og vil ég beina því til skipstjóra að gæta fullrar varúð- ar, bæði vegna öryggis þeirra sjálfra og skipshafna, sem þeim er í raun og veru trúað fyrir. þarna myndu fara fram, var hann sannfærður um, að raddbönd hans myndu bresta. Samtalið hélt áfram milli Kolbergs og gömlu hjónanna. — Myndir? Nei, við erum hætt að taka myndir. Ég sé svo illa og Axel gleymir alltaf að færa. Ungi maðurinn, sem var hér fyrir hálf- um mánuði, spurði okkur reyndar lfka um þetta. Ljómandi geðsleg- ur, ungur maður. Martin og Kolberg litu snöggt hvor á annan. Ekki var það þó einvörðungu vegna þess hvern vitnisburð Melander fékk hjá gömlu hjónunum. — En það er nú svo skrítið. hrópaði ofurstinn — Jentsch major. Ja, þið vitið náttúrlega ekki hver hann er. En við sátum við sama borð og hann og konan hans i ferðinni. Við vorum jafn- aldrar en hann var dálítið óhepp- inn í herþjónustunni og hætti á undan mér. Hann fór nú vel út úr því og fékk forstjórastöðu í ein- hverju matvælafyrirtæki eftir því sem ég man. Eins og þið getið ímyndað ykkur áttum við mörg sameiginleg áhugamál og tíminn flaug áfram þegar við hittumst. Þvi að hann hafði séð sitt af hverju í stríðinu. Ja, í niu mán- uði, eða kannski voru það ellefu þá var hann í víglinunni þar sem bláa herdeildin var, já ... Martin leit örvæntingarfullur á skerminn og frúin hafði einnig beint sjónum sínum þangað og virtist hafa gleymt öllu öðru i kringum sig. — Já, .. .já, einmitt, öskraði Kolberg. Svo dró hann andann djúpt og sagði undra þróttmikilli röddu og allafdráttaralust: — Ofurstinn var víst áð minn- ast á einhverjar myndir ... — Ha? Já, hvað ég vildi sagt hafa þá var það nú svo skrftið, að Jentsch major er hreinasti snill ingur í að taka myndir. Þött hann hafi ekkert betri sjón en við. Hann var að taka myndir í sífellu og fyrir fáeinum dögum sendi hann okkur heilan bunka af myndum, sem hann hafði tekið i ferðinni. Það var svei mér vin- gjarnlegt af honum, þvi að þetta Mig langar til að beina því til kvenna skipstjórnarmanna að hafa áhrif á menn sína í þeim efnum. Af eigin raun þekki ég það, að sjómannskonan er oft hrædd um mann sinn og sjómenn yfirleitt í hörðum vetrarveðrum. Munið, að öryggið er fyrir öllu og hagsæld þjóðarinnar þar með. Rannveig Vigfúsdóttir." % Misvitur er þjóðin Jón Konráðsson á Selfossi skrif- ar: „I fyrra, þegar mjólkin var hækkuð í verði, varð uppi fótur og fit vegna mótmæla, og salan minnkaði af ýmsum ástæðum. Nú þegar áfengi hækkar, þá kemur annað hljóð i strokkinn. Það er ekki verið að gera verkfall á brennivinið. Sumir. telja, að fólk hafi lengi peninga fyrir áfengi og spari þá heldur við sig eitthvað annað, eins og til dæmis mjólkurkaup. Er þjóðin svona? Tæplega. Vísitalan hækkar og þar af leið- andi verðlagið, og þá eru komnar víxlhækkanir, sem ekki er gott. Áfengi er talið vera nauðsynja- vara, eins og fram kemur af þvi, að það er nú tekið með í vísitöl- una. Áfengi, sem allir vita, að er hinn mesti bölvaldur, og fjöldi manns leggur fram krafta sina til að útrýma. Afengisneyzlan kostar þjóðina ógrynni fjár — og tára. Ríkisvaldið ætti að gera meira til að reyna að minnka áfengisneyzlu og leggja langtum meira af mörk- um til hjálpar áfengissjúklingum. hlýtur að hafa kostað heil ósköp. Þessar líka skinandi myndir. Það er gaman að eiga þær til minning- ar. Martin Beck reis upp og dró ögn niður i sjónvarpinu. Hann gerði það alveg ósjálfrátt og í nokkurs konar sjálfsvörn. Ofurstafrúin leit hissa á hann. — Ha? Jú, auðvitað erum við með myndirnar. Misse, viltu sækja mynd-irnar, sem við feng- um frá Þýzkalandi. Ég ætla að sýna mönnunum þær. Myndirnar voru litmyndir i stærðinni 12x12. Þær voru að minnsta kosti fimmtán eða tutt- ugu talsins. Martin Beck og Kol- berg stóðu til hliðar við stól ofurstans og rýndu á myndirnar. — Þetta hér — það erum sem sagt við og hérna sjáið þér majórs- frúna já og hér er konan min ... já og hérna er mynd af mér .. .Þetta var tekið uppi i brú og ég er þarna að tala við skipstjórann, eins og þið sjáið. Og hérna .. .ég sé nú því miður ekki nógu vel lengur .. .viltu rétta mér stækk- unarglerið, góða... Ofurstinn fægði stækkunargler- ið vandlega og hélt síðan áfram. — Já, biðum nú við, hérna er majórinn sjálfur og svo við hjón- in. Líklega hefur majorsfrúin tekið þessa mynd, hún er líka dálitið hreyfð. Og hér erum við líka — sú mynd er tekin í sama skipti, bara á öðrum stað, sýnist mér. Og .. .látum okkur nú sjá. .. konan, sem ég er að tala við á þessari mynd heitur frú Lieben- einer, hún var líka þýzk. Hún sat við borð hjá okkur og var mjög viðfelldin og virðuleg kona, en orðin gömul. Hún hafði misst manninn sinn við E1 Alamein. Afram var haldið að skoða myndirnar. Fyrirmyndirnar voru vægast sagt einhliða. En það var auðvitað bót í máli, að þeir vissu nú upp á hár hvernig majðrsfrú Jentsch frá Osnabruck leit út. Síðast myndin lá á borðinu fyrir framan ofurstann. Það var ein af þeim myndum, sem Martin vissi, að allir höfðu tekið. Afturstefnið á Diönu. Skipið hafði lagzt að við Riddarholmshafnargarðinn og tveir leigubílar höfðu ekið upp að landgöngubrúnni. Sumir halda, að brugg myndi aukast við slíkar aðgerðir. Alltaf hefur verið eitthvað um brugg og smygl, og það er verk- efni löggæzlunnar að koma í veg fyrir slíkt — auðvitað með hjálp góðra manna. En það er áreiðan- legt, að það er að spara eyrinn, en fleyja krónunni að hafa fámenna og vanbúna lögreglu og Iöggæzlu i landinu. # Burt með áfengi úr vísitölunni Lýðræði er ekki alltaf það sama og óstjórn og stjórnleysi, eins og sumir halda. Stjórnleysi kemur lýðræðinu fyrir kattarnef. Ef halda á uppi lögum og reglu í landinu, verður að hafa öfluga lögreglu-og löggæzlu. Nú er rikis- valdið búið að taka að sér alla löggæzlu í hinu íslenzka lýðræðis- ríki, og héðan af hefur þvi ríkis- stjórnin og Alþingi heiður eða skömm af, eftir því hvernig til tekst, en þjóðin öll þarf að standa saman til styrktar traustu og rétt- látu þjóðfélagi. Kjósendasleikjur er orð, sem stundur heyrist, og vitanlega klóra blessaðir þingmennirnir okkur á bak við eyrað rétt fyrir kosningar 'og stundum þess á milli. Þeir ættu hins vegar að hugsa meira um það, að það er betra að falla með sæmd en lifa við skömm. Burt með áfengi úr vísitölunni. Á Bræðramessu 1974, Jón Konráðsson." | Messur á morgun Neskirkja. Barnaguðsþjónusta kl. 10.30. Sr. Frank M. Halldórs- son. — Guðsþjónusta kl. 2. Sr. Jóhann S. Hlíðar. Arbæjarprestakall. Barnasam- koma i Árbæjarskóla kl. 10.30. — Guðsþjónusta i skólanum kl. 2 e.h. Æskulýðsfélagsfundur á sama stað kl. 8.30 siðdegis. Sr. Guð- mundur Þorsteinsson. Breiðholtsprestakall. Barnaguðs- þjónusta í Breiðholtsskóla kl. 10.30. — Fella- og Hólasókn. Barnaguðsþjónusta í Fellaskóla kl. 10.30. Messa kl. 2 e.h. Sr.Lárus Halldórsson. Oddi á Rangárvöllum. Messa kl. 2 e. h. Barnamessa að Hellu kl. 11 f. h. — Stefán Lárusson. Grindavíkurkirkja. Messa kl. 2 e.h. Sr. Jónas Gíslason lektor messar og mun hann fyrst um sinn annast prestsþjónustu í Grindavíkurprestakalli vegna for- falla sóknarprestsins þar, Jóns Árna Sigurðssonar. — Sóknar- nefndin. F’ríkirkjan í Hafnarfirði. Barna- samkoma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2. Þórhildur Ólafs, stud. theol., prédikar. Guðfræðinemar leiða söng undir stjórn dr. Róberts A. Ottóssonar. Organleikari Olafur Finnsson. — Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Dómkirkjan. Messa kl. 11. Sr. Þórir Stephensen. — Messa kl. 2 (fjölskyldumessa). Sr. Öskar J. Þorláksson dómprófastur. Barna- samkoma kl. 10.30 i Vesturbæjar- skólanum við Öldugötu. Pétur Þörarinsson, stud. theol., talar við börnin. Sr. Óskar J. Þorláksson. Laugarneskirkja. Messa kl. 2 e.h. Bamaguðsþjónusta kl. 10.30. Tón- leikar í kirkjunni kl. 5. Sr. Garðar Svav arsson. Kársnesprestakall. Banasamkoma i Kársnesskóla kl. 11. Guðsþjón- usta í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Árni Pálsson. Digranesprestakall. Barnaguðs- þjónusta í Vighólaskóla kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorbergur Krist.iáns- son. Innri-Njarðvíkurkirkja. Barna- guðsþjónusta kl. 11 og messa kl. 2. — Sr. Björn Jónsson. Keflavíkurkirkja. Messa kl. 5. Sr. Jónas Gíslason lektor prédikar í tilefni kristniboðsviku. Altaris- ganga. — Sr. Björn Jónsson. Reynival laprestakal I. Messað að Reynivöllum kl. 2. — Sóknar- prestur. Bústaðakirkja. Barnasamkoma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2. — Sr. Ólafur Skúlason. Dómkirkja Krists konungs f Landakoti. Lágmessa kl. 8.30 f.h. Hámessa kl. 10.30 f.h. Lágmessa kl. 2 e.h. Grensásprestakall. Barnasam- koma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2. — Sr. Halldór S. Gröndal. Fríkirkjan í Reykjavfk. Barna- samkoma kl. 10.30. Guðni Gunn- arsson. Messa kl. 2. Sr. Þorsteinn Björnsson. Háteigskirkja. Lesmessa kl. 9.30. Barnaguðsþjónusta kl. 10.30. Sr. Arngrimur Jónsson. — Messa kl. 2. Sr. Jón Þorvarðsson. Elliheitnilið Grund. Messa kl. 2 e.h. Sr. Árelfus Níelsson. —Félag fyrrv. sók’tarpresta. ' Hvalsneskirkja.Messa kl. 2. — Sr. Guðmundur Guðmundsson. Stokkseyrarkirkja. Guðsþjónusta kl. 2 e.h. Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 f.h. — Sóknarpprestur. Bænastaðurinn Fálkagötu 10. Samkoma kl. 4. Sunnudagaskóli kl. 11. Langholtsprestakall. Barnasam- koma kl. 10.30. Sr. Árelíus Niels- son. Guðsþjónusta kl. 2 (ræðu- efni: í þjónustu ljóss eða myrk- urs) — Sr. Sigurður Haukur Guð- jónsson. — Óskastundin kl. 4. — Sigurður HaukurGuðjónsson. Sunnudagaskóli kristniboðsfélag- anna. I Alftamýrarskóla kl. 10.30. — öll börn eru velkomin. Garðakirkja. Barnasamkoma i skólasalnum kl. 11 árd. — Messa ki. 2. — Bogi Pétursson frá Akur- eyri prédikar. Framhald á bls. 18 VELVAKANDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.