Morgunblaðið - 19.02.1974, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.02.1974, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19, FEBRUAR 1974 EINS og komið hefur fram í Morgunblaðinu áður, varð Egils- staðaflugvöllur ófær vegna aur- bleytu í janúar, þegar menn áttu síst von á því að völlurinn yrði ófær flugvélum. Astæðan fyrir þvf er sú, að smáhlýindakafli kom austanlands í byrjun mánaðarins og það varð nóg til þess, að völl- urinn varð eitt forað. Nú er mikill klaki í jörðu á Austurlandi, og starfsmenn Flugfélags Islands eru farnir að kvfða þeim tíma er klaki fer úr jörðu í vor, því þeir eru vissir um að völlurinn á þá eftir að verða ófær. Enþað kemur oftar og oftar fyrir að völlurinn verður ófær, án þess að við- komandi yfirvöld aðhafist nokkuð. Egilsstaðaflugvöllur er einn mesti umferðarvöllur landsins. Á síðasta ári fóru 25 þúsund far- þegar um völlinn með vélum Flugfélags Islands, sem er 18% aukning frá árinu áður. Þetta þýðir að hver Austfirðingur hefur farið 2,3 sinnum um völlinn á árinu. Lendingar á Egilsstaðavelli urðu i fyrra 1400 og er það 23% aukning frá árinu 1972. Jóhann D. Jónsson, umdæmis- stjóri Flugfélags Islands á Egils- stöðum sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að það væri alltaf hætta á að Egilsstaðaflug- völlur yrði ófær í þoku, og það hefði t.d. gerzt í janúar s.l. — Ástandið getur orðið enn verra í vor, þvi völlurinn fer frekar versnandi en batnandi, sem er eðlilegt þegar ekkert viðhald er á vellinum. „Það sem liggur beinast við,“ sagði Jóhann, „er að hefja bygg- ingu nýs flugvallar á svæði því, sem þegar hefur verið ákveðið, þ.e. á milli Snjóholts og Eiða, en þar munu vera hvað beztu aðflugsskilyrði á Héraði, en þarna þarf því að gera veðurathuganir og snjókomu." Rætt hefur verið um, að nýi völlurinn verði varaflugvöllur fyrir millilandaflugið, og segja má, að hann verði það sjálfkrafa ef hann verður búinn þeim tækj- um sem fullkomnust eru. „Því hefur verið fleygt hér um slóðír,“sagði Jóhann, „að yfirvöld flugvallarmála hugsi sér að láta grafá Egilsstaðaflugvöll upp og skipta um jarðveg í honum. Við hér fyrir austan teljum að það sé allsendis ófullnægjandi, enda eru t.d. aðflugsskilyrði að vellinum mjög léleg. Menn þurfa líka að hugsa um framtíðina. Þessi 1500 metra völlur fer að verða alltof lítill, og þvi liggur beinast við að byggja nýjan flugvöll. Ennfremur erum við hræddir um, að flugvöll- urinn geti lokast um nokkurn tima á meðan skipt er um jarðveg i honum, og við það fara miklir fjármunir til spillis hér, auk þess sem samgöngur við Austurland munu þá liggja niðri að mestu leyti.„ A nýjum gæsluvöllum er nú lítið hús með föndursal, svo hægt sé að taka börnin inn. Þarna er gæzlukona að lesa fyrir börnin á gæzluvellinum við Vesturberg. Aðsókn minnkar að leiksvœðum -Föndur- hús á nýju völlunum FJOLMENN UTFOR HÓLMFRÍÐAR FRÁ ARNARVATNI Björk, Mývatnssveit, 15. febrúar. I gær var gerð frá Skútustaða- kirkju útför Hólmfríðar Péturs dóttur frá Arnarvatni að við- stöddu fjölmenni. Séra Sigurður Guðmundsson prófastur á Grenj- aðarstað flutti kveðjur og þakkir frá Húsmæðraskólanum á Laug- um. Hólmfríður var frá upphafi í stjórn skólans og lét sér mjög annt um vöxt og viðgang hans. Þorgrimur Starri flutti kveðju- og þakkarorð, m.a. til aldamótakyn- slóðarinnar. Sóknarpresturinn, séra Örn Friðriksson, jarðsöng. Hann fór í ræðu sinni mjög lofsamlegum orðum um öll störf Hólmfríðar á sviði félags- Og menningarmála, einkum þó og sér í lagi málefni kvenna. Hún var formaður Kvenfélagasambands Suður-Þingeyjarsýslu um tugi ára og einnig í stjórn Kvenfélags Mý- vatnssveitar í fjölmörg ár. Hólmfríður fæddist áGautlönd- um 17. desember 1889 og var því á 85. aldursári, er hún andaðist í sjúkrahúsinu á H'úsavík 1. þessa mánaðar. Hún var tvíburasystir Jóns Gauta Péturssonar fyrrver- andi oddvita á Gautlöndum. For- eldrar þeirra voru Pétur Jónsson alþingismaður og ráðherra og Þóra Jónsdóttir frá Grænavatni. Þau systkinin misstu móður sína, er þau voru 5 ára. Hlýtur það að hafa verið þeim þungbært mjög. Jón Gauti lézt haustið 1972. Hólm fríður fluttist að Arnarvatni til- tölulega ung að árum og giftist Sigurði Jónssyni skáldi, sem þá var orðinn ekkjumaður og stóð uppi með stóran barnahóp. Kom þáí hlut hennar að veita forstöðu stóru og margmennu heimili. Verður það að teljast mikið afrek auk þess að geta lika sinnt sinum áhugamálum út á við eins og Hólmfríður gerði á ótal mörgum sviðum. Þau Hólmfriður og Sig- urður á Arnarvatni eignuðust 5 mannvænleg börn, sem öll eru á lífi. Sigurður á Arnarvatni andað- ist 24. febrúar 1949. Margir minn- ast þessara ágætu hjóna með mik- illi virðingu og þökk. — Kristján. Aðsókn varð minni að leiksvæð- um Reykjavíkurborgar á árinu 1973 en 1972, þó að völlunum hefði fjölgað. 1973 sóttu alls 395.178 börn leikvellina, en 1972 komu þangað 432.180 börn eða 32 þúsund börnum færra en áður. Astæðurnar taldi Bjarnhéðinn Hallgrímsson á fræðsluskrifstof- unni vera færri fæðingar í borg inni viðkomandi ár, aukið rými á dagvistunarstofnunum og í ein- hverjum mæli um kennt að mjög lítið var um börn á leikvöllum í desembermánuði í ár vegna veð- urs. Hins vegar hefur sú nýjung ver- ið upp tekin á nýjum gæzluvöll- um, að á völlunum er reist 25 ferm hús, þar sem börnin geta komið inn og verið 1 föndurher- bergi, ef veður er slæmt. Þar geta fóstrurnar þá lesið fyrir þau eða tekið þau inn í föndur á víxl, en foreldrar eru velkomnir með börnunum á gæzluvellina og hvatt til að þeir geri það í upp- hafi. Eru gæzluvellirnir við Yrsu- fell og Vesturberg þannig útbún- ir og nýir vellir verða það, auk þess sem hægt er að bæta húsum á ýmsa gömlu vellina. Ætti það að auka aðsókn og bæta aðbúð barn- anna. BÖRNUNUM FÆKKAR Börnunum hefur heldur fækk- að á leikvöllunum, en fæðingum fækkaði yfirleitt á þeim árum, sem þessi börn voru að fæðast úr 6630 á ári 1966 í 6092 1972, skv. áætluðum tölum. En fæðingar voru 1967 6643 talsins, 1968 6760, 1969 6513, 1970 6270, 1971 6122. Þjóðlagakvöld á Akranesi ÞJÓÐLAGAKVÖLD verður hald- ið á Akranesi n.k. miðvikudags- kvöld kl. 22. Verður skemmtunin í Sjálfstæðishúsinu þar, en Þór, félag ungra sjálfstæðismanna, stendur fyrir skemmtuninni. Arni Johnsen og fleiri þjóðlaga- og vísnasöngvarar munu koma þarna fram og m.a. ungt fólk frá Akranesi. Fróðlegt er i framhaldi af þessu að athuga aðsókn að leikvöllum, en þá sækja börn mest á aldrinum 2ja til 4ra ára, en allt upp í 6 ára. Þriggja ára börn nema 30% og 2ja og fjögurra 21.2% hvor árgangur. Þá kemur í ljós, að 1966 sóttu vellina 496.452 börn, en þá voru þeir alls 22 talsins. 1967 sóttu 476.329 börn 23 leikvelli, 1968 509.125 börn 24 leikvelli, 1970 502.449 28 velli, 1971 487.724 28 velli og 1972 432.180 29 velli. En sl.ár 395.179 börn 33 velli. Nýir Ieikvellir á árinu komu í gagnið við Yrsufell, þar sem byrj- að var 1. júní, við Lindargötu, þar sem var starfræktur völlur aðeins frá 6. júní til 8. september, leik- völlur við Bankastræti, sem byrj- aði 13. ágúst, og leikvöllur við Vesturberg, sem byrjaði 13. sept- ember. Það sést á skýrslunum, að vellirnir eru sóttir nokkuð mis- mikið, eins og að líkum lætur eða allt frá því að 28 þúsund börn koma þar og niður i rúm 7000, þar sem vellir eru opnir allt árið. Á þeim, sem aðeins voru starfræktir hluta af árinu, voru þó allt frá 1026 börn upp í 21.753 börn. M.vndin var tekin í Heimilinu hf. Heimilið - ný húsgagnaverzlun HEIMILIÐ, ný húsgagnaverzlun opp 5i á föstudag starfsemi sína að Sogavegi 188. Stofnandi og að- alhluthafi er Sveinn Guðmunds- son húsgagnasmíðameistari, sem rekið hefur húsgagnaframleiðslu í um 20 ár. Verzlunarstjóri er Örnólfur Örnólfsson. Sveinn sagði við opnun verzlun- arinnar, að hann mundi eftir sem áður leggja áherzlu á að bjóða upp á vandaðar vörur, hvort held- ur sem væru vörur er hann fram- leiddi sjálfur eða hann kæmi til með að selja frá öðrum framleið- endum. Verzlunin mun einnig flytja inn erlend húsgögn og þá eingöngu það bezta fáanlega á heimsmark- aðnum, að sögn Sveins, sérstæð húsgögn sem ósennilega yrðu framleidd hér á landi á komandi árum. Nú þegar eru til í verzluninni nýjar tegundir af borðstofuhús- gögnum úr palísander og verða síðar til úr öðrum viðartegundum. EgiLsstaðaílug- völlur ófaer um leið og hlánar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.