Morgunblaðið - 19.02.1974, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.02.1974, Blaðsíða 20
~m-------------------- - ■ — - -- — ■ — Jóðlíf Odds í Menningar- stofnuninni Einþáttungurinn Jóðlíf eftir Odd Björnsson verður frumsýnd- ur i enskri þýðingu hjá Menning- arstofnun Bandaríkjanna föstu- daginn 22. febrúar n.k. undir leik- stjórn Erlings Gíslasonar, en með hlutverk fara tveir amerfskir áhugaleikarar, Eli Whitney og Jim Henderson. Amerískur fiðluleikari hjá Sinfóníuhljómsveitinni, Marlyn Gibson, mun leika einleik við upphaf leiksins. Sýningarnar verða haldnar hjá Menningarstofnun Bandaríkj- anna, 3. hæð, föstudaginn 22. feb., laugardaginn 23. feb. og sunnu- daginn 24. febrúar og hefjast all- ar kl. 20.00. Aðgöngumiðar kosta 150 krónur og verða afhentir í Ameríska bókasafninu, Neshaga 16, frá mánudegi til föstudags, milli kl. 13—19 daglega. — Minning Sigurlaug Framhald af bls. 23 ein af annarri um Jitla telpu, er snerist kringum búsmalann eða átti sér yndisstund úti í náttúrunni, sem hefur margt að bjóða þeim, sem kunna að meta það og skilja. Sigurlaug dó þann 31. janúar sl. 87 ára að aldri. 011 systkini hennar voru farin á undan henni yfir móðuna miklu. Nú er hljótt í dalnum þeirra systkina. Hey- dalurinn er í eyði. Þar hljóma ekki lengur glaðir barnahlátrar eða smáir fætur trítla þar um völl. Blómskrúðið breiðir úr sér í brekkunum þar. Nú sést ekki lengur litil telpa flétta sér blóm- sveiga á fagxan og listrænan hátt, en þar munu hennar fyrstu list- munir hafa orðið til. Ég mat frænku mína mikils og mun ávallt minnast hennar sem glæsilegrar. greindrar konu, sem bjó yfir listrænum fegurðar- smekk og ríkri ábyrgðartilfinn- ingu. Jón Kristjánsson. MORGUNBLAÐIÐTÞRIÐJTTOAGUR 19. FEBRUAR 1974 Útgerðarmenn - skipstjórar Höfum alla sverleika af loðnunótarefni á lager. Og einnig höfum við fyrirliggjandi allar gerðir af fiskitrollum. Tökum einnig loðnunætur til geymslu og viðgerðar. Fljót og góð vinna. Neth.f., Vestmannaeyjum, sími 264. Bólstrarar - Húsgagnaverzlanlr Erum að taka heim mikið litaúrval af leðurlíkiáklæðum. Davíð S. Jónsson og Co. h.f. Sími 24-333. JJlm ■ ■ m TIL SOLUI KAUPNIANNAHÖFN BLAÐIÐ FÆST IMÚ í LAUSA SOLU I BLAÐASÖLUIMIMI I FLUGAFGREIÐSLU SAS I SAS-BYGGINGUNNI I MIO BORGINNI. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Félagslíf □ EDDA 59741927 — 1 □ EDDA 59741927= 2 I.O.O.F. Rb 4 = 1232198’A — N.K. I.O.O.F. = Ob. 1 P. = 155219 8'/2 E. I. Flladelfla Reykjavík. Almenn samkoma i kvöld kl. 8.30. Ræðumaður: Trygve Lie frá Nor- egi Kristinboðsfélagið í Keflavik. Fundur verður i Keflavíkurkirkju þriðjudagskvöldið 19. febrúar kl. 8 30 Frú Lilja Kristjánsdóttir sér um fundarefnið. Allir velkomnir Stjórmn. K.F.U.K. Reykjavík Fundur I kvöld kl 20.30. Það var um aldamótin, séra Jónas Gísla- son sér um fundarefni. Allar konur velkomnar Stjórnin. Handavinnukvöldin eru á miðvikudögum kl. 8. e.f. að Farfuglaheimilinu Laufásvegi 41. Kennd er leðurvinna og smelti. Nánari uppl í síma 24950 á mið- vikudögum milli kl. 8—10 e.h. Farfuglar. GBflM FRVSTIKISTUR FYRSTA FLOKKS FRÁ FÖNIX HÁTÚNI 6A,SÍMI 24420 ABENDING Komin er út gók, sem ber nafnið ,,Hvað er framundan?" Höfundur er Hákon Ó. Jónasson. Nafn bókarinnar er sérkennilegt virðist jafnvel spámannlegt. Og munu margir spyrja, hver geti sagt um það, sem er framundan. Engin af þeim bókum, sem eru skrifaðar af ófullkomnum mönnum, geta uppfyllt þær kröfur. Þær túlka mein- ingar ófullkominna manna. Það er aðeins Biblfan, sem uppfyllir allar þessar kröfur. Maðurinn getur aðeins sagt um tímann, sem liðinn er, en hinn eilifi allsráð- andi ,,Andi" knúði þá, sem skrifuðu Bibliuna til þess að gjöra það samkvæmt sannleikanum. Biblían er þess vegna hin algjöra Mann- kynssaga, skrifuð fyrirfram. Þess vegna bendir hún okkur á timann, sem er framundan, sem er framundan og er oft tekið þannig til orða i Biblíunní: Þegar þið sjáið þetta koma fram. Það er þetta sem gerir okkur, sem rannsökum Bibliuna, fær um að segja hvað framundan er. Æskilegast væri að fólk keypti þessa bók sér til fróðleiks. Fæst i bókabúðum. Hákon Ó. Jónasson. ATVIU ATVINNA SölumaBur Fasteignasala óskar eftir sölu- manni. Umsækjendur sendi umsóknir til Morgunblaðsins fyrir 21. febr. n.k. merktar „Fasteigna- sala —3225“. AÖstoÖarmaBur verkstjóra Óskum að ráða nú þegar röskan ungan mann í spunaverksmiðju vora í Mosfellssveit. Vaktavinna. Þarf að hafa bíl til að fara til og frá vinnustað. Bílastyrkur. Álafoss h.f., sími 66300. Stýrimann, matsvein og háseta vantar á 65 rúmlesta netabát sem rær frá Suðurnesj- um. Uppl. í síma 42418 og 43169. Innflutningsfyrirtæki í miðbænum óskar eftir að ráÖa stúlku hálfan eða allan daginn við bókhald. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist til skrifstofu Félags íslenzkra stórkaupmanna, Tjarnargötu 14, fyrir 28/2. Bílstjóri — VerksmiÓjustörf Duglegur maður vanur að aka vöru- bifreið óskast strax. Viljum einnig ráða nokkrar stúlkur til verksmiðju- starfa. Upplýsingar hjá Sigurði Sveinssyni verkstjóra, Þverholti 22. H.F. Ölgerðin Egill Skallagrímsson Háseti vanur netaveiðum, óskast á mb Vestra, Patreksfirði. Símar 34349 og 30505. Bókband Hef mikinn áhuga á að komast að sem nemi í bók- bandi, strax eða í haust. Er 25 ára, hef lokið iðnskóla- prófi. Alger reglusemi. Meðmæli. Þeir, sem áhuga hafa sendi tilboð merkt: „Bókband 74 — 3224“. Stúlka óskast til afgreiðslustarfa í brauðgerðar- hús okkar, nú þegar. G. ÓLAFSSON & SANDHOLT Laugavegi 36. Sími 12868 og 13524.*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.