Morgunblaðið - 19.02.1974, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1974
21
niriar sogur
Frumskógar
drengurinn
lii£
efov
Kudyard KlptÍKCÞ
EN EKKI GETLK?
HANN BdARGAÐ
5E'R SoalFURI
FRUMSKOGINUM!
HANN VERE)-
UREKK/ EINN
SHIRi KAN.MANNSKÆÐA Tl'GRtSDVKlÐ ER
KOMIB INN A VElÐ'SVÆÐl ÚLFANNA-• •/
DRENGURINN
HANN GA.TI DREPlÐ
DRENGINN.Oö ALLA
SEM RTVNA Aö
yERNDA HANNV
mmfr £ i%7 —.
Duney Produclioni
World Righl* Reterved
MOGLI hefur FAR-
ID MARGA LEIDANSRA
UM FRUM5KÖGINN -
MEÐ ME'R, ÉSFyLGI
HONUM riL manna-
—t- ByGSÐA- .-r
Reykjavíkurskákmótið
Þeir, sem komu til þess að horfa
á skemmtilegr skákir stórmeist-
aranna i 9. umferð Reykjavíkur
mótsins urðu víst flestir fyrir von-
brigðum. Velimirovic hinn júgó-
slavneski er þekktur um allan
heim fyrir skemmtilegar sóknar-
skákir sínar, en ósköp lítið hefur
farið fyrir þeim hæfileika stór-
meistarans hér. Ef dæma ætti
Velimirovic af þeim skákum, sem
við höfum séð hann tefla, myndu
sennilega margir ætla, að hann
þyrði alls ekki að seilast eftir
frumkvæðinu nema þegar hann
þættist örugglega eiga við sér
veikari andstæðing að etja. Svo
slæmt er þetta nú ekki, en gegn
Forintos var júgóslavneski stór-
meistarinn ekki í miklum sóknar-
ham. Ungverjinn beitti Petroff-
vörn, öllu var skipt upp og jafn-
tefli samið í 18. leik.
Jón Kristinsson hafði svart
gegn ögaard og kom upp afbrigði
af Sikileyjarvörn. I 17. leik fórn-
aði Norðmaðurinn skiptamun,
sem Jön þáði og gátu fáir séð hver
hugmyndin var með fórninni. Jón
jók svo stöðuyfirburði sína smátt
og smátt og var ekki annað að sjá
en sigurinn væri vís. En það sann-
aðist nú einu sinni enn, að þetta
er ekki hans mót. Hann hafði unn-
ið enn meira lið, hafði tvo hróka
og óstöðvandi frípeð gegn drottn-
ingunni þegar hann lék skyndi-
lega af sér öðrum hróknum í tíma-
hrakinu og mátti gefast upp.
Búlgarski stórmeistarinn Tring-
ov beitti Benónývörn gegn Frey-
steini, sem valdi hvassasta áfram
haldið og tefldi augljóslega stíft
til vinnings. í miðtaflinu vann
Tringov tvo létta menn fyrir
hrók, en biðstaðan er mjög tvísýn.
Magnús Sólmundarson lék b3 í
fyrsta leik gegn Guðmundi, en
skákin tefldist yfir í Rétibyrjun.
Guðmundur fékk góða stöðu út
úr byrjuninni, en lenti í slæmu
timahraki. Þá urðu honum á slæm
mistök, sem urðu til þess að
Magnús náði sterku frumkvæði
og i biðstöðunni virðist Magnús
eiga nær allra kosta völ.
Ingvar Asmundsson tefldi Réti-
byrjun gegn Kristjáni Guðmunds-
syni. Eitthvað virtist Ingvar
kunna illa við stöðuna þvi
Kristján náði fljótlega að jafna
taflið og náði jafnvel frumkvæð-
inu á tímabili. I tímahrakinu urðu
honum á slæm mistök, sem kost-
uðu mann og þar með var allt
búið.
Nú skulum við lita á viðureign
þeirra Júlíusar og Friðriks.
Hvítt: Júllus Friðjónsson
Svart: Friðrik Ólafsson
Vængtafl.
I.g3
(Júlíus hefur mikið dálæti á
vængbyrjunum, en einhvernveg-
inn finnst manni, sem hann hafi
meira vald á þeim stöðum, sem
upp koma eftir kóngspeðsbyrj-
un).
1. — e5, 2. Bg2 — Rf6, 3. e4 —
Rc6,4. Re2 — Bc5, 5. c3
(Með 5. Rc3 gat hvitur komist í
velþekkt afbrigði af Vínartafli.
Nú nær svartur að jafna taflið
auðveldlega)
5. — d5, 6. d4 (?)
(Hér var sennilega betra að leika
6. d3, peðið á d4 verður eilífur
höfuðverkur).
6. — exd4, 7. exd5, — Rxd5, 8.
cxd4 — Bb6, 9. Rbc3 Be6, 10. 0-0
— 04), 11. Be3 IIe8, 12. Dd2 I)d7,
13. Hadl.
(Annar möguleiki, og sennilega
ekki síðri var hér 13. Hacl, ásamt
Re4 og Rc5).
13. — Had8, 14. Hfel — f6, 15.
Dcl — Df7,16. Rxd5.
(Hér var vafalítið betra að leika
strax a3. Það er aldrei gott að láta
kóngsbiskupinn af hendi i svona
stöðum).
16. — Bxd5, 17. Bxd5 — Hxd5, 18.
a3 —Ild7, 19. Hd2?
(Til greina kom að leika 19. b4,
þessi leikur er tímatap).
19. — IU5!
(Nú verða hvitu reitirnir, c4 og b3
ákjósanleg skotmörk fyrir riddar-
ann).
20. Hd3 — Rc4, 21. Dc2 — Hde7,
22. Rf4 — He4, 23. Hc3 — Rd6,
24. Hd 3?
(Tapar peði, en staða hvíts var
mjög erfið og tíminn orðinn
naumur).
24. — Bxd4, 25. Rg2 — Rf5, 26.
Dd2 T c5, 27. b4 — b6, 28. bxc5
— bxc5, 29. Hbl — h5, 30. Hdb3
— h4, 31. gxh4
(Þessi leikur getur ekki talist
beinlínis fallegur en það gilti víst
nokkuð svo einu hverju hvítur
iék).
31. — Bxe3, 32. Rxe3 — Rd4 og
hvltur gafst upp.
Þá er aðeins eftir að geta um
eina skák, en þar áttust við hinir
heimsfrægu sovézku stórmeistar-
ar og þeir hikuðu ekki við að sýna
snilli sýria heldur tóku alla við-
stadda í smákennslustund í því,
hvernig menn eiga að skipta upp
á öllum miinnunum i tuUugu
leikjum og semja síðan jafntefli.
Jón Þ. Þór.