Morgunblaðið - 12.05.1974, Side 3

Morgunblaðið - 12.05.1974, Side 3
 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MAI 1974 3 Tíðarfarið Tíðin var góð til sjávarins síðustu viku, lengst af hæg norðanátt. Aflabrögð Afli er nú orðinn rýr í net, en sæmilegur í troll. Bátarnir hafa verið að fá þetta 5—10 lestir þegar vitjað er um netin annan hvern dag, en það gera helzt allir nú orðið. Lokadagurinn var f gær, en hann er nú aðeins svipur hjá sjón hjá því sem áður var. Þá hættu helzt allir daginn fyrir lokadag og notuðu sjálfan lokadaginn til þess að gera upp við vertíðarfólk sitt. En þá var ekki verið að taka kaup- ið eða hlutinn vikulega þvi marg- ir áttu launin fyrir vertiðina ósnert á lokadag. Þá var svo mikil peningaveita þennan dag, að útibú úti á landi þraut seðla og urðu þá að gefa út ávlsanir á næsta banka þar sem viðkomandi átti heima. Ekki liggja enn nákvæmar tölur fyrir um afla hæstu bátanna i helztu verstöðvunum en hér eru taldir upp hæstu bátarnir i nokkr- um verstöðvum: Akranes: Sigurborg 540 lestir og Grótta 525 lestir. Keflavik: Ólafur Sólimann 700 lestir og Valþór 550 lestir. Vestmannaeyjar: Kópur 975 lestir, Danski Pétur 900 lestir, Sæbjörg 850 lestir, Þórunn Sveinsdóttir 842 og Kap 810 lestir. Þorlákshöfn: Brynjólfur 1025 lestir, Jón á Hofi 1000 lestir og Skálafell 810. Grindavik: Geirfugl 800 lestir, Hópsnes 740 lestir og Þórir 680 lestir. Hellisandur: Skarðsvik 1220 lestir, Hamrasvanur 880 lestir, og Sæljón 800 lestir (60 sj.f.) Höfn: Hvanney 560 lestir, Sig- urður Ólafsson 390 lestir og Eskey 377 lestir. Sandgerði: Bergþór 1065 lestir, Jón Oddur 710 lestir og Hafnar- berg 530 lestir. Togararnir Afli hefur verið misjafn hjá togurunum, bezt hefur veiðzt við Grænland og hafa tveir togarar, Ögri og Hrönn fyllt sig þar. Þessi skip lönduðu í siðustu viku i Reykjavík: Hrönn 351 lest Þormóður goði 181 lest Júpiter250 lestir Hjörleifur 220 lestir. Afli Norðmanna Nú um mánaðamótin var þorsk- afli Norðmanna orðinn 80.000 iestir á móti 123.000 lestum árið áður eða 1/3 minni. Rúmur helm- ingur aflans var saltaður. Meiri afli í S-Afríku. Það er ekki alls staðar sem afli fer minnkandi þvi að 1973 varð hann 20% meiri i S-Afríku en árið áður, á2. milljón lesta. I S-Afríku eru nú 60 togarar. Færeyingar auka flotann í Lagtinget er komin fram til- laga um að landssjóður Færey- inga veiti nauðsynieg lán til ný- bygginga á 25 fiskibátum, sem verða 100 lestir að stærð hver. Sjálfstæðismenn voru reiðu- búnir til stjórnarmyndunar Framhald af bls. 1 1956, krafðist Framsóknarflokk- urinn þess, að Ólafur Thors segði af sér, sem hann og gerði. Þótt þar hafi e.t.v. verið betur frá samningum gengið en i þessari stjórn, liggur í augum uppi, að slíkur samningur um að fara ekki þingrofsleiðina, getur ekki leitt til þess að knýja flokk til þess að sitja í stjórn áfram út kjörtíma- bilið, eða meðan sú ríkisstjórn situr, sem flokkurinn, sem á móti þingrofi er. tók þátt í upphafi. í öðru lagi haíði forsætisráðherra áður sagt, þegar honum var bent á, að nkisstjórn hans kæmi eng- um málum fram og ætti því að segja af sér, að hann viki ekki nema fyrir vantrausti. En eftir afsögn Björns Jónssonar og yfir- lýsingu samtakanna, boðaði ég fyrir hönd sjálfstæðismanna flutning vantrauststillögu, sem sfðar var flutt af fonnönnum stjórnarandstöðuflokkanna, en sú vantrauststillaga fékkst ekki tek- in á dagskrá í sameinuðu þingi, þótt fyrir lægi skrifleg krafa meirihluta þingmanna, sem sýndi og að þessi vantrauststillaga mundi hljóta sluðning meirihluta Alþingis. Þegar til kom stóð for- sætisráðherra ekki við orð sín, hann vék ekki einu sinni fyrir vantrausti. Svo mikið var honum og öðrum ráðherrum í mun að halda f ráðherrastólana, að hann veifaði þingrofsvaldinu yfir höfð- um þingmanna, meðan óformleg- ar og afar lauslegar viðræður fóru fram um möguleika á myndin annars meirihluta á þingi. Geir Hallgrímsson vék síðan í ræðu sinni aö þeim kostum sem nefndir hefðu verið um nýja stjórnarmyndún og áður hafa ver- ið raktir í Morgunblaðinu, og sagði, að af Sjálfstæðisflokksins hálfu hefðu veriðtalin lítil líkindi á svokallaðri þjóðstjórn, þar sem slfk sámvinna við Alþýðubanda- lagið væri lítt fýsileg. Slíkt ábyrgðarleysi hefði sá flokkur sýnt í efnahagsmálum og djúp- stæðuf ágreiningur væri milli hans og Sjálfstæðisflokksins i varnar- og öryggismálum lands- ins. Sjálfstæðismenn töldu út af fyrir sig, að fjögurra flokka stjórn eða þriggja flokka stjórn kæmi til greina og sömuleiðis samstjórn Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknarflokksins og á þeim grund- velli lýstu sjálfstæðismenn sig reiðubúna til að ræða möguleika á myndun meirihlutastjórnar og ennfremur hugsanlegri meiri- hlutastjórn Sjálfstæðismanna, Samtakanna og Alþýðuflokksins f trausti þess, að Magnús Torfi Ólafsson tæki málefnalega af- stöðu eins og hann hafði lýst yfir á þingi, þannig að slfk stjórn kæmi málum fram. Þá töldu sjálf- stæðismenn vel koma til greina, að Sjálfstæðisflokkurinn einn myndaði minnihlutastjórn, ef hann næði til þess styrk og stuðn- ingi eða hlutleysi annarra flokka, er verðu slíka rikisstjórn van- trausti. Sjálfstæðismenn lýsti sig reiðubúna til að ræða alla þesSa möguleika og töldu þá geta verið fyrir hendi, eftir að núverandi ríkisstjórn hefði sagt af sér. Aftur á móti voru sjálfstæðismenn þeirrar skoðunar, að það væri ekki sæmandi stærsta flokki þjóð- arinnar að láta þvinga sig með þingrofsvaldi ti 1 þess fyrirfram að tryggja áfram öðrum flokki setu í ráðherrastóli eða forystu í ríkis- ■ stjórn. Þá vék Geir Hallgrímsson að því, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði talið eðlilegt að efna til kosninga sem allra fyrst, þó ekki fyrr en 14. júlí eða í fyrsta lagi 7. júlí, svo að sveitarstjórnarkosn- ingar væru vel um garð gengnar, áður en ganga þyrfti frá framboði til Alþingiskosninga. Talið var rétt að efna til kosninga sem allra fyrst.sagði formaður Sjálfstæðis- flokksins, vegna þess í fyrsta lagi, að það væri æskilegt, að sem stytztur tími liði frá falli vinstri stjórnarinnar til kosninga, svo að kjósendum gætu fellt dóm yfir vinstri stjórninni alveg ótvírætt á verkum hennar sjálfrar og því þrotabúi, sem hún er að skilja eftir sig, en f öðru lagi var ástæðan sú, að ljóst væri, að e.t.v. væri ekki unnt nú á næstunni að gera nema brýnustu bráðabirgða- ráðstafanir. en aftur á móti væri full þörf á því sem fyrst og fyrr en 1. desember n.k. að gera varan- legri ráðstafanir, svo að hjól at- vinnulífsins hættu ekki að snúast. Sjálfstæðismenn töldu rétt, að menn ætluðu sér aðeins lengri tíma til að kanna alla möguleika til þess að samstaða næðist um málefnalega úrlausn vandamál- anna. Burtséð frá hinum ýmsu valkostum stjórnarmyndunar, hljóta þeir fyrst og fremst að byggjast á málefnalegum grund- velli, á því, hvaða stéfnu flokkarnir vilja taka til úrlausnar aðsteðjandi vandamálum. Þótti sjálfstæðismönnum rétt að ætla 2—3 daga til viðbótar til að kanna frekari möguleika á myndun nýrrar ríkisstjórnar og samstöðu um úrræði. Alþýðubandalagið mun hafa lýst andstöðu við þjóð- stjórnarhugmynd, en Alþýðu- flokkur og Samtökin báðu um frest.ef gefa ætti endanlegt svar. En í raun og veru var aldrei beðið um endanlegt svar við hugmynd- um, sem fram höfðu komið. Svo brátt var forsætisráðherra, að enginn frestur var gef inn, tryggja skyldi setu f ráðherrastólum næstu tvo mánuði í örvæntingar- fullri tilraun til að framlengja lif leifanna af vinstri stjórn. Þingrofið Þá vék Geir Hallgrímsson að þingrofinu og sagði að í skjóli myrkurs hefði forsætisráðherra lesið á fundi sameinaðs þings, sem meinað var að fjalla urn van- trauststillögu tneirihluta þing- manna, forsetabréf um þingrof, þar sem þingrofið er rökstutt með ósmekklegum, staðlausum stað- hæfingum og ösönnum áfellis- dómum yfir stjórnarandstöðunni. Pullyrt er í fyrsta lagi, að engar horfur séu á því, að unnt sé að mynda meirihluta, er staðið gæú að starfhæfri ríkisstjórn og í öðru lagi, að málefni séu í algerri sjálf- heldu á Alþingi og stjórnarand- staðan fáist eigi til að afgreiða aðkallandi og mikilvægar efna- hagsráðstafanir. Ég hef lýst þvi að framan, að engin alvarleg tilraun hafði i raun og veru verið gerð til þessað mynda nýjan meirihluta á Al- þingi, en rétt er, að málefni voru komin í sjálfheldu en fyrst og fremst fyrir þrásetu núverandi rikisstjórnar, bæði efúr að hún missti meirihlutann i neðri deild sl. haust og í sameinuðu þingi sl. helgi. En úr þeirri sjálfheldu mátú auðveldlega komast og tryggja nýjan, starfshæfan meiri- hluta á Alþingi, eingöngu meö því að núverandi rikisstjórn segði af sér. Þótt þingrofsleiðin sé stund- um farin til að skjóta ágreinings- málum til þjóðarinnar, þá var slíku ekki til að dreifa hér. Efna- hagsmálafrumvarpið hafði verið lagt fram, en fyrstu umræðu ekki lokið og engin atkvæðagreiðsla hafði farið fram um það. Það reyndi því aldrei á afstöðu þing- manna úl frumvarpsins. En aðal- atriðið er þó, að bæði er efnahags- frumvarpið sjálft og afstaða stjórnarflokkanna úl þess svo óljós og loðin, að enginn veit í raun hvaða ágreining er verið að bera undir þjöðina, ef þetta frum- varp er tilefni til þingrofs. Nú er búizt við, að bráðabirgðalög verði gefin út, er ráða eigi fram úr efnahags- vandanum. Fróðlegt verður að sjá, hvernig þau líta út og bera saman viðfrumvarp rikisstjórnar- innar. Forsætisráðherra hefur sagt, að hann hygðist stjórna án þess að gefa út bráðabirgðalög, eða í það minnsta að grípa sem minnst úl útgáfu bráðabirgðalaga og fer þá að verða vandséð, hvern- ig hann eða núverandi ríkisstjórn lítur á þann vanda, sem við biasir. Sá vandi getur ekki verið mikill, sem unnt er að leysa án þess aðtil löggjafar komi. En f þingrófsboð- skapnum er hins vegar tvennt rétt og satt. I fyrsta lagi, aö einn stuðningsflokkur ríkísstjórnar- innar hefur sliúð samstarfi á Al- þingi, en sú staðreynd á auðvitað að leiða til lausnarbeiðni ríkis- stjórnarinnar en ekki til þingrofs, og i öðru lagi, að stjórnmála- flokkarnir almennt óski auk þess ef.úr kosningum. en það er ein- mitt sönnun þess, að þingrof á þessu stigi málsins var óþarft, þar sem stjórnmálaflokkarnir hefðu getað komið sér saman um að efna til nýrra kosninga, eftir að nauðsynlegar efnahagsráðstafan- ir til bráðabirgða hefðu verið gerðar og sömuleiðis, þótt sam- staða hefði ekki tekizt um þær. Minnsti vandinn var fyrir flokkana að koma sér saman um að efna til nýrra kosninga. En auk þess er þetta þingrof sérstaks eðlis. Rjúfa má þing með tvennum hætti, annars vegar er þing rofið frá og með kjördegi, þannig að umboð þingmanna falli ekki niður fyrr en nýir þingmenn eru kosnir í væntanlegum kosn- ingum. Hins vegar má rjúfa þing frá og með þeim degi, sem þing- rofið er birt þingheimi. Þá fellur niður umboð þirigmanna og þá ér landið þinglaust frá og með þeim degi og þar til kosningar fara fram F>rri aðferðin er mun al- gengari og hefur ávallt verið not- uð, síðan landið varð lýðveldi, en seinna ieiðin var síðast farin 1937 og raunar einnig 1931 í afar um- deildu þingrofi þá. Bjarni heiúnn Benediktsson telur báðar þessar leiðir stjórnskipulega lögmætar, en það er ekki sama og að báðar leiðirnar eigi sér lýðræðislegan, pólitiskan og siðferðilegan grund- völl. Olafur Jóhannesson beiúr nú þeirri aðferð að svipta þing- menn umboði þegar i stað og láta landið vera þinglaust fram til kosninga. A íslandi, sem á elzta löggjafarþing f heimi, er nú ekk- ert þing og engir þingmenn. Um- boð þeirra allra er niður fellt, en i raun fer umboðslaus minnihiuta- stjórn með völdin, sú stjórn, sem hefði verið felld frá völdum á næstu dögum ef Alþingi sæú áfram og fram komna vantrausts- tillagan hefði hiotið þinglega meðferð. Þessi minnihlutastjórn stjórnar með tilskipunum eins og hún væri einræðis- eða herfor- ingjastjórn úti í löndum, þótt ráð- herrarnir séu að vísu mismunandi hermannslegir. En uggvænlegast er, að valdamestu mennirnir og þeir, sem oftast hafa ráðið ferð- inni á ferli núverandi rfkisstjórn- ar.eru ráðherrar kommúnista. Ég kemst ekki heldur hjá því að harma, að þessari aðferð þingrofs, að gera þingmenn umboðslausa, hefur verið beitt af forsætisráð- herra i umboði forseta Islands. Þetta er í fyrsta og eina skiptið, sem þessari þingrofsaðferð er beitt síðan Island varð lýðveldi eins og ég gat um áðan. Þessi aðferð er í raun leifar frá því, að ísland var konungsdæmi og kon- ungurinn var einvaldur, en á ekki við í dag. I 1. gr. stjórnarskrárinn- ar segir: „ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn." I dag er ríkisstjórnin ekki þingbundin og hefur ekki það aðhald, sem lög- gjafarþing á að veita rikisstjórn í lýðræðisríki. Þótt þessi leið hafi verið talin lögmæt þá skortir all- an lýðræðislegan, siðferðilegan grundvöll að fara hana nú. Önnur vinstri stjórn fallin. Forma ðu r Sj álf stæ ði sf lok ksi n s vakti síðan athygli á þvi, að nú væri í raun og veru önnur vinstri stjórnin á tæpum tveimur áratug- um fallin og það eru sömu eftir mælin efúr þær báðar, efnahags- leg vandamál á hrikalegan mæli- kvarða og stöðvun atvinnuveg- anna fyrirsjáanleg. Ástand og horfur nú eru þó mun alvarlegri en við fall fyrri vinstri stjórnar. Skv. þeim tölum, sem birtar hafa verið, má gera ráð fyrir, að efna- hagsvandinn sé tvisvar úl þrisvar sinnum stærri nú en hann var þá. Þá var engin samstaða um úrræði til úrbóta og nú er heldur ekki samstaða um úrræði til úrbóta. Ég kalla ekki það lagafrumvarp, sem lagt hefur verið fram. úrræði og því síður er samstaða um það frumvarp með stjónarflokkunúm, sem efúr sitja. Hvernig stendur á því, að samstarf vinstri flokkanna mistekst alltaf? Eg held, að skýr- ingin liggi I þeim eiginleika sósíalfskra flokka og vinstri flókka að lofa upp i ermina, að reyna með lýðskrumi að blekkja fólk til fylgis við sig og telja því trú um, að það sé hægtaðgera allt fyriralla í einu án þess að nokkuö þurfi fyrir það að borga. Afleið- ingin af þessari vinstri stefnu er einnig sú, ef fólkið trúir henni úl lengdar, að það afsalar sér smátt og smátt sjálfræði sinu. valdi yfir lifi sfnu, starfi og afkomu, því að úl þess að reyna að efna loforðin. þarf að auka skattaálögurnar i sífellu og draga valdið meira og meira i hendur rikisstjörnarinnar sjálfrar frá einstaklingunum. frá fólkinu i landinu, frá staðaryfir- völdum viðs vegar um landið. Þetta er grundvallarskýringin á því hvers vegna vinstri stjórnir eru ekki langlífar. En þær gætu orðið langlifar, ef á bak við þær væri það vald. sem gæti kúgað landsmenn úl hlýðni við stjórnina. Vonandi verður það aldrei svo. að hér sé unnt með stjórnskipunum að ráða yfirlandi og hamingju og veiferð fólksins án þess að fólkið geti gripið í taumana i kosningum. Myndin. sem við blasir Myndin, sem við blasir efúr fall vinstri stjórnar. er í mjög stuttu máli þessi, sagði Geir Hallgrims- son. Viðskiptahallinn verður á þessu ári 8 þús. milljónir króna. Erlendar skuldir hækka um 5—6 þús. milljónir króna og liafa þá , þrefaldazt á valdaú'ma núverandi ríkisstjórnar. Halli á rikis- búskapnum er 2000 milljónir króna og halli á f járfesúngarlána- sjóðum annað eins. Gjaldeyris- varasjóðurinn fer minnkandi og hefur minnkað um 40—50% frá áramótum og nemur nú aðeins tæplega tveggja mánaða inn- f lutningsmagni. I kjölfar 30°íi dýrú’ðaraukningar á sj. ári er spáð allt að 50% verðbóigu á þessu ári og kaupgjaldskostnaður atvinnuveganna er áætlaður að hækki á árinu um 60% miðað við það, sem var á sj. ári. Miöað við núverandi tilkostnað er frysti- vinnsla rekin með 12-1400 milljóna halla á ársgrundvelli. Þessi halli tvöfaldast miðað við væntanlegan úlkostnað í haust og nær þrefaldast miðað við til- kostnað eins og hann verður f lok ársins. Bátaflotinn er ívkmn með hundruð milljón króna tapi og togararnir með 1000 milljón króna halla á ári. Það er því ekki ofmælt. að fuilkomin stöðvun at- vinnuveganna blasi við. Bæta „úrræðin" nokkuð um? En bætir þá frumvarpið um efnahagsráöstafanir nokkuð hér um, sagði Geir Hallgrímsson. Það gildir til 1. desember og raunar eiga áhrif þess að gild til áfamóta. Annað aðalatriði þessa frumvarps er verðstöðvun. Verðstöövun hefur í raun og veru átt að vera i gildi frá hausti 1970. Eg nefndi fvrr hvaða verðhækkanir hefðu orðið á síðasta ári og hverju væri spáð um þær á þessu ári. Eru nú lýkur til þess, að þessi verðstöðv- un frumvarpsins nái tilgángi sín- um fremur en verðstöðvun hingað lil á vinstristjórnarferli? Nei, því að ekki eru enn komnar fram verðhækkanir hjá ýmsum opinberum fyrirtækjum og öðrum Framhald á bls. 39 I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.