Morgunblaðið - 12.05.1974, Síða 7

Morgunblaðið - 12.05.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MAI 1974 Indira Gandhi (sitjandi í rólunni) með dansflokki frá Rajastan. Áhrifamesta kona heims Indira Gandhi varð forsætisrðð- herra Indlands árið 1966. Var skipan hennar ! embættið bráða- birgðaráðstöfun. og til þess ætlazt að hún gegndi embættinu í eitt ár. Hún hefur nú setið við völd f átta ár og borið sigur af hólmi i tvenn- um þingkosningum. Margar ástæður voru fyrir þvi að leiðtogar sameinaða Kongress- flokksins ákváðu að skipa Indiru Gandhi i embættið. Hún var þá hálffimmtug og var hæglát. sem margir mistúlkuðu sem veikleika tákn, og flokksleiðtogarnir töldu að með því að skipa þessa óreyndu konu i embætti væru þeir að tryggja sin eigin völd á ókomn- um ðrum. Einnig var það stað- reynd að margir leiðtoganna sjálfra þóttu óhæfir til að taka að sér embættið, ýmist vegna trúar- bragða eða héraðarígs. Ljómi var hins vegar yfir nafni Nehrus og vitað að meirihluti þjóðarinnar gat fallizt á að dóttir Jawaharlal Nehrus tæki við stjórnartaumun- um. Með yfirgnæfandi meirihluta- stuðningi þingflokks Kongress- flokksins og við almennan fögnuð indversku þjóðarinnar tók Indira Gandhi við embætti forsætisráð- herra Indlands, sem er næst fjöl- mennasta riki heims með um 500 milljónir ibúa. Ekki reiknuðu þing- menn með að hún yrði afkasta- mikil í embættinu, og við henni blöstu margs konar vandamál þjóðar, sem var að rétta við eftir styrjöld við Pakistan. Fyrsta verk- efni hennar var að tryggja þjóðinni næg matvæli og koma i veg fyrir hungursneyð. Indira hélt sambandi sinu við almenning i landinu með því að hafa „opið hús" á hverjum morgni milli klukkan átta og níu, og þar tók hún á móti fólki úr öllum stéttum og hlustaði á vandamál þess. I bersku hafði Indira verið einmana og óörugg, og ekki bætti þar úr að móðir hennar lézt meðan Indira var enn i æsku; en tveir atburðir i ævi hennar sönnuðu hugrekki hennar og styrk. Sá fyrri var þegar hún giftist Feroze Gandhi, sem ekki var talinn henni samboðinn, gegn óskum fjölskyld- unnar. En hún unni honum, hún þekkti kosti hans, og hún ekki aðeins giftist honum, heldur sneri fjölskyldu sinni á hans band. Seinni atburðurinn var erfiðari. Faðir hennar var forsætisráðherra og Indira annaðist húsmóðurhlut- verkið hjá honum við opinber veizluhöld og móttökur. Feroze átti sæti á þingi. Honum hafði verið úthlutað húsi, og vildi hann að eiginkonan og synirnir byggju þar. Indira fómaði einkalífinu með manni slnum, þvi henni fannst hún standa i algjörri þakkarskuld við aldraðan föður. Gárungar sögðu að hún vildi fremur vera húsmóðir hjá forsætisráðherran- um en litilfjörleg þingmannsfrú, og fjölskyldan hæddist að hjóna- bandi hennar. Feroze sætti sig við ákvörðun hennar, kom daglega til að snæða með fjölskyldu sinni, og synirnir bjuggu hjá honum i sumarleyfum sinum. Indira sat við dánarbeð hans er hann lézt. Það kom fljótt í Ijós að Indira Gandhi var leiðtogum Kongressflokksins ekki jafn leiðitöm og þeir höfðu gert ráð fyrir, og létu þeir hana þvi heyra það að ef til vill yrði skipt um forsætisráðherra að loknum þingkosningum. Þeir höfðu haldið hana litt greinda og óákveðna. forum world features Eftir Ela Sen Uppeldi hennar hjá föðurnum hafði gleymzt, og i Ijós kom að hún hafði ákveðnar skoðanir, var óhrædd við smá mistök. og naut stuðnings bæði ungra ráðgjafa og eldri þingmanna Kongressflokks- ins, sem sýndu henni og hagsmun- um þjóðarinnar fullan trúnað I verki. Indiru Gandhi var orðið það Ijóst árið 1966 að leiðtogar Kon- gressflokksins voru henni and- snúnir, þar sem hún lét ekki stjórnast, en fór sinu fram. „Flokksleiðtogarnir vilja mig ekki, en þjóðin stendur með mér," sagði hún. Leiðtogarnir urðu að sætta sig við hana áfram, þvi hún ein gat tryggt sigur I þingkosning- unum, sem þá voru framundan. Eftir kosningarnar fóru áhrif Indiru vaxandi, þótt meirihluti Kongressflokksins á þingi hefði minnkað litillega. Fór svo að flokkurinn klofnaði vegna ágrein- ings fyrri leiðtoga við Indiru Gandhi, og fylgdi meirihluti þing- manna forsætisráðherranum. Til aðgreiningar var flokkur Indiru nefndur Kongress R„ en andstað- an Kongress O. Áfram beitti Indira sér fyrir mat- vælaöflun. „Vestræni heimurinn er gagntekinn hugmundinni um takmörkun á fjölgun mannkyns." sagði hún, „en meðan ég get séð þjóð minni fyrir nægum mat óttast ég ekkert." Engu að siður mælti hún með takmörkun bameigna, og fræðsla á þvi sviði naut fjár- hagslegs stuðnings stjórnar henn- ar. Þegar hún svo sá að indverskir bankar, sem lutu stjórn stóriðnað- arins, voru tregir til að styðja við bakið á smærri fyrirtækjum, lét hún þjóðnýta bankana. Þótti hún sýna mikið hugrekki þegar hún bauð iðjuhöldunum byrginn, en þá efndi hún til nýrra þingkosninga í febrúar 1971 undir vfgorðinu „út- rýmum fátækt", og vann þar yfir- burða sigur. Hörmungamar i Austur-Pakistan og flóttamanna- þyrpingin við austur landamæri Indlands ollu nýjum erfiðleikum. Tekið var við flóttamönnunum, en Indira var jafnan ákveðin í að þeir skyldu snúa heim þegar unnt reyndist. Svo kom 14 daga stríðið, sem lauk með því að Austur- Pakistan varð sjálfstætt riki og hlaut nafnið Bangla Desh. Mountbatten lávarður sagði um Indiru Gandhi að hún væri áhrifa- mesta kona heims. Áhrif hennar og Indlands hafa vaxið, og i heimalandi hennar á hún engan hættulegan stjórnmálakeppinaut. Ríkisstjórnin á enn við alvarleg efnahags- og þjóðfélagsvandamál að striða. En þótt þróunin hafi verið hæg, hafa lifskjör þjóðarinn- ar batnað i valdatið Indiru. Um utanrikisstefnu sina segir hún: „Ég vil eiga friðsamlega sam- búð við nágranna mina — Kina og Pakistan. Indland hefur ekki ráð á styrjöldum á fimm ára fresti." Hún hefur tekið upp viðræður við Kinverja um bætta sambúð. Varð- andi Pakistan hefur náðst sam- komulag um Kashmir-hérað, og allar horfur eru á þvi að núverandi vopnahléslina verði framtiðar landamæri rikjanna. Hún vill einn- ig bæta sambandið við Bandarikin og telur aðild Indlands að Brezka samveldinu mjög gagnlega. Indira Gandhi er sósíal- demókrati, þótt sumir segi hana vera kommúnista. Flestir vinstri- flokkarnir eru henni fylgjandi. „En," segir hún, „ef stjórn mín tæki upp stefnu, sem væri Iftið eitt meira til hægri, gæti það orðið til þess að efla kommúnista og valda mikilli röskun I stjórn lands- ins." Ég hef þekkt Indiru Gandhi i rúm 30 ár og jafnan átt auðvelt með að ná tali af henni. Nehruarn- ir gleyma ekki gömlum vinum. Indira er þar engin undantekning. Hún er hlédræg, en hefur fundið öryggi í sinni nýju stöðu. Hún nýtur einkalffsins þar sem hún býr með sonum sinum tveimur og barnabörnum. Þetta er indversk fjölskylda, þótt önnur tengdadótt- irin sé itölsk. Indira Gandhi, feimna unga stúlkan, hefur blómstrað, og er nú fögur eldri kona, full af sjálfstrausti. sem ekki hefur glatað neinu af kvenlegum yndisþokka sínum þrátt fyrir þá ábyrgð, sem hvílir á herðum hennar. STÓRT FALLEGT EINBÝLISHÚS í Vogunum til leigu í sumar eða lengur. Leigist með eða án húsgagna. Tilboð séndist Mbl. fyrir 20 maí merkt 1041 LAND ROVER diesel árg 1 972 til sölu Upplýsingar i síma 50768 50 FM BÍLSKUR til leigu. Tilboð sendist Mbl fyrir 20 maí merkt Bílskúr 4668 HERBERGI ÓSKAST Ungur maður óskar eftir herbergi á leigu. Reglusemi Upplýsingar í síma 14509. \ TIL LEIGU 4ra herbergja ibúð i Kópavogi Austurbæ frá 1. júni eða fyrr og til 30. sept Húsgögn, gluggatjöld og eldhúsáhöld geta fylgt Tilb sé skilað á afgr MBL merkt: ibúð 3375 • TIL LEIGU 4ra herb. ibúð i Safamýri Tilboð sendist afgr. Mbl fyrir 15. mai merkt: „Útsýni — 4929". TIL LEIGU er góð tveggja herbergja, litil kjallaraibúð. Tilboð með upp- lýsingum um fjölskyldustærð sendist Mbl. fyrir 14. þ.m. merkt 4934 FISKSALAR ATHUGIÐ: Til sölu þurkuð ýsa. Fiskverkun Guðbergs Ingólfsson- ar, Garði, sími 92-71 20. KONAÓSKAR eftir stofu og eldunaraðstöðu eða einstaklingsibúð, helzt í miðbæn- um tlmabilið 1 4. mai — 1 . okt. Upplýsingar i sima 13097. TILSÖLU 3 ungar kýr. Uppl. í sima 66233 milli kl 1 2 — 1 á hádegi. STÚLKA MEÐ STÚDENTSPRÓF óskar eftir vinnu. Margt kemur til greina. Upplýsingar í síma 36848. LÓÐIR Vinnum hvað eina. er viðkemur lóðafrágangi. Sími 84388 IÐNAÐARHÚSNÆÐI Óska að taka á leigu 40—50 ferm. iðnaðarhúsnæði i Reykjavik, Kópavogi eða Hafnarfirði. Tilboð merkt: „4933", sendist afgr. Mbl. ATVINNUREKENDUR 24 ára Verzlunarskólastúdent ósk- ar eftir atvinnu frá 1. júni. Fjöl- breytt starfsreynsla. Vinsamlegast sendið tilboð i pósthólf 5075 sem fyrst. SUMARHÚS— EYÐIJÖRÐ Vil leigja eða kaupa sumarbústað eða eyðijörð innan 1 00 km radíus- ar frá Reykjavik. Tilboð merkt: ,4932" sendist afgr. Mbl. HJÓLHÝSI Til sölu er vel með farið Cavalier 12oo S hjólhýsi. Uppl. í síma 41 489 eftir kl. 1 9 næstu daga TILSÖLU steypuhrærivél i góðu lagi. 1 'h — 2 rúmmetrar. Hagstætt verð. Sími 93-1 469 eftir kl 7 á kvöldin. GARÐVINNA — LÓÐAVINNA. Girðum, leggjum stéttir. Útvegum hraun og fl Símar 40083 og 40432. TILSÖLU Skoda 1000 MB árgerð 1969 ekinn aðems 32 þús km Góður bill Upplýsingar í sima 95-1 359 TIL SÖLU Af sérstökum ástæðum er til sölu Mallorca —• ferð með góðum af- slætti. Upplýsingar i sima 14516 eftir kl. 5 MATVÖRUVERZLUN i eigin húsnæði til sölu í Vestur- bænum. Tilboð sendist Mbl. fyrir 15. þ.m. merkt: „Góð verzlun — 4600". NÝLEG 4RA HERBERGJAÍBÚÐ til leigu i Vesturbænum frá 1. júni. Tilboð sendist Mbl. merkt 4598. UNGUR REGLUSAMUR maður óskar eftir herbergi á leigu i Hafnarfirði eða Garðahreppi Upplýsingar í sima 52616. ELDHÚSINNRÉTTING TIL SÖLU ásamt eldavél og tvöföldum stál- vaski Upplýsingar í sima 25721. TILSÖLU Ford D 800 '66 8 tonna. Simi 10433. UNG HJÓN óska eftir litilli íbúð yfir sumar- mánuðina Vilja gjarnan skipta á íbúð sinni í Sviþjóð og ibúð í Reykjavik. Upþlýsingar i síma 84901 eftir kl. 19.00. TILSÖLU stór jeppakerra, burðarþol 1. tonn. Uppl. í síma 37764 i dag og næstu daga HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGRENNI Úrvals saltkjöt Hangikjöt úrbeinað 650 kr. kg. Ódýrir niðursoðnir ávextir. Kjötkjallarinn, Vesturbraut 1 2. STEREO Til sölu B & O magnari með FM — bylgju. Hátalarar fylgja. Simi 36619. HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGRENNI Nautahakk 410 kr. kg 5 kg á 1995 kr. Nautabuff 610 kr kg Rúllupylsur 345 kr stk. Egg 290 kr kg Kjötkjallarinn, Vesturbraut 1 2. VIÐSKIPTAFRÆÐINEMI á seinni hluta óskar eftir starfi frá 1. júni n.k. Upplýsingar I síma 19974 Sjá einnig blaðsíðu 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.