Morgunblaðið - 12.05.1974, Síða 30

Morgunblaðið - 12.05.1974, Síða 30
,0 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MAl 1974 Dýrmætir fomgripir lánaðir hingað úr erlendum söfnum ----------— í tilefni af landnámsafmæl- inu verður opnuó á listahátíó mikil sýning, sem sýna á íslenzka myndlist í 1100 ár. Er hún nú í fullum undirbúningi. I framkvæmdanefnd sýningar- innar eru fulltrúar frá Félagi íslenzkra myndlistarmanna, Listasafni Íslands, Þjóðmiðja- safni tslands og Arkitekta- félagi Íslands. En sýningin verðuropnuð á Kjarvalsstöðum 7. júní og stendur lengur en listahátfð, eða til 15. ágúst. Þessari sýningu er ætlað að rekja sögu íslenzkrar mynd- listar og skreytilistar frá land- námsöld til okkar daga, ásamt dæmum byggingarlistar frá hverju skeiði sögunnar. Eru verk til sýningar dregin víðs vegar að, úr söfnum í Reykja- vík, og þá að sjálfsögðu mjög mikið úr Þjóðminjasafni, nokkuð úr byggðasöfnum úti á landi, t.d. úr byggðasafni Arnessýslu og úr einkaeigu. En einnig hefur- verið leitað til erlendra safna um lán á fslenzkum listaverkum frá fyrri iildum og er það kannski nýstárlegast. Mbl. leitaði frétta af því hjá Þorkeli Grímssyni, safnverði, fulltrúa Þjóðminjasafnsins f undirbúningsnefnd. Hann sagði, að leitað hefði verið eftir láni á ýmsum munum erlendis en ekki væru öll svör komin. Til dæmis kemur Vfdalíns- klæðið frá Viktoríu og Albert safninu í London, en það er rúmábreiða, sem kona Páls Vídalíns saumaði og þ.vkir það mjög merkur gripur. Þá kemur hingað frá Hol- landi merkiiegt teppi, refil- saumað altarisklæði úr Twentsafni f Enehede, sem talið er vera fslenzkt miðalda- klæði. En refilsaumuðu altaris- klæðin eru í tölu mestu dýr- gripa fslenzkra, sem varðveitzt hafa. Hafa Hollendingar talað um að senda með teppinu hingað mann, sem gæti þess, hvort sem af því verður eða ekki. Elsa E. Guðjónsson hefur skrifað í Andvara grein um altarisklæðið í Enchede. Á því miðju er mvnd af heilagri þrenningu og utan um tígullaga rammi og nemur horn hans við breiðan lcturbekk með áletruninni „Komið þér hinir blessuðu föður míns og takið að erfð ríkið, sem yður er fyrir- búið frá grundvöllum heims“. í þrfhyrningunum eru svo tákn guóspjallamannanna. Leiðir Elsa getum að því, að klæðið sé úr Múlakirkju f Aðaldal. Ekki fékkst lánaður Grundar- stóllinn frægi frá Danmörku, en ýmis verk verða lánuð úr Þjóðminjasafninu í Kaupmannahöfn a.m.k. eitt fallegt teppi. Einnig söfnum í Björgvin, í Stokkhólmi og Ósló. Og frá Clunysafninu í París kemur mjög merkilegt fslenzkt miðaldaklæði, refilsaumað altarisklæði með heilagra manna myndum frá Grenjaðar- stað. Einn af þeim merkilegum munum, sem fegnir verða að láni erlendis frá og ekki hafa fyrr verið til sýnis hér, er stærsta drykkjarhorn, sem til er, drykkjarhornið frá Dresder. Það er 86,5 sm á lengd og út- skorið með silfurbeit. Einnig fæst lánað frá Noregi Velken- hornið svonefnda, sem er si Ifurhúið og fagurt. Þá er Þjóðm injasafnið að láta draga upp eftirlíkingu af Valþjófsstaðahurðinni í litum. En danskur maður að nafni Peter Poulsen lét á sínum tíma litgreína þær litaleifar, sem á henni finnast og ætti að verða mjög skemmtilegt að sjá hvernig hurðin var í litum. Þá er ætlunin að sýna hana með 3 hringjum, eins og talið er, að hún hafi verið, en nú eru aðeins á hurðinni 2 hringir. Þá koma handritalýsingar úr Árnasafni f Kaupmannahöfn vegna sýningarinnar. Og er verið að gera ljösmyndir af íslenzkum handritum, sem sýndar verða bæði gegnum- lýstar og á stórum Ijósmyndum. Margt fleira merkilegra muna verður þarna að sjá. Sýningin verður í öllum sölum Kjarvalsstaða og verður hagað í tímaröð. Hefst hún í vestursal byggingarinnar með deild elztu listminja Islendinga, er nær yfir rómanska stfltfmabilið og allt til loka þjóðveldis á ofan- verðri 13. öld. Þar næst tekur við deild gotsneska stílsins frá því um 1300 og til siðaskipta um miðbik 16. aldar. Þar verð- ur sýnd málmsmfð, tréskuróur, steinhögg og refilsaumur, mál- verk, handritalýsingar, bein- skurður og fleira. Þriðja sýningardeildin nær svo frá siðaskiptum og fram yfir 1800. Tekur hún aðallega til ýmiss konar bændalistar, vefnaðar, útsaums, útskurðar og mynd- skreytingar á nytjamunum. Og þar eru einnig málverk, eink- um altaristöflur eftir sjálf- menntaða alþýðumálara þessa tfmabils. Verða þar sýndar þessar skemmtilegu gömlu töfl- ur úr Þjóðminjasafni eftir Hallgrfm Jónsson, Jón Hallgrímsson og Amunda smið. Þess má geta, að ætlunin er að reyna að sýna Þingvallaaltaris- töfluna eftir Ofeig í Heiðarbæ, sem gefin var nýlega frá Englandi og ekki er farin aust- ur í Þingval lakirkju. Fjórðu deildinni, sem er einna smæst, er ætlað að sýna tilraunir til endurvakningar myndlistar á 19. öld, bæði alþýðumálara og þeirra, er fyrstir stunduðu málaranám erlendis. Er þar einkum um að ræða mannamyndir, sem safnið á mikið af og einnig fyrstu landslagsmyndir f fslenzkri list. Þessu næst tekur við allstór deild, sem sýnir hina miklu nýmótun myndlistar, sem varð í byrjun þessarar ald- ar. Helgast það aðallega af landslagsmálverki en einnig höggmyndalist, og nær fram til áranna 1920. Og í austursölum sýningarhússins er sögu mvnd- listarinnar, málverka, teikn- inga, svartlistar, höggmynda, steinglers og myndvefnaðar síðan fylgt fram stig af stigi, ásamt samtíma dæmum byggingarlistar, allt til yngri listamanna á okkar dögum. Jafnframt verða sýndar högg- myndir utan dyra. Verður þetta mjög umfangs- mikil sýning og merkileg og mikil vinna við undirbúning, sem er í fullum gangi nú. — E.P. Velkenhornið frá listiðnaðarsafninu f Ósló verður lánað á sýning- una hér. Islenzka altarisklæðið úr Clunysafninu f Parfs LISTAHATIÐ 1974 Iængsta forna drykkjarhornið, sem til er, verður lánað hingað frá Noregi Kefi Isaumaða altarisklæðið, sem Twentsafn í Enchede lánar á sýninguna um íslenzka myndlist. Líklega úr Múlakirkju í Aðaldal.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.