Morgunblaðið - 12.05.1974, Qupperneq 39
MOKGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MAI 1974
39
— Ræða Geirs
Framhald af bls. 3
aóilum, sem hljóta aö koma inn í
verðlagið og þar að suki er það
svo, að þrátt fyrir frumvarpið, er
spáð 30% dýrtfðaraukningu a
árinu. Hitt meginatriði frum-
varpsins, að taka kaupgjaldsvísi-
töluna úr sambandi, er til þess
fallið að draga Ur vfxlahækkunum
verðlags og launa, en það er alger-
lega tilgangslaust, ef aðrar alhliða
ráðstafanir í efnahagsmálum, út-
lánum bankanna, í erlendri
skuldasöfnun o.s. frv. í raun og
veru greinir frumvarpið ekki frá
neinum ráðstöfunum að þessu
leyti og af ákvæðum þess er tæp-
ast hægt að marka, að nokkur
stefnubreyting sé í vændum að
þessu leyti, þótt ýmsar ráðstafan-
ir mætti gera án löggjafar eins og
t.d. af Seðlabankanum. Það er
talað um að binda skuli fjármagn
lífeyrissjóða og inlánsstofnana og
skylda þessa aðila til að lána fjár-
magn til opinberra þarfa og fjár-
festingarlánasjóða. Það er hér
sem víða annars staðar verið að
taka fjármagnið frá einstakling-
um og stofnunum í landinu og
færa það ríkinu til ráðstöfunar.
Takmörkun á fjármagni lffeyris-
sjóða og banka lendir fyrr eða
siðar á einstaklingum og atvinnu-
vegum, sem verða að eiga aðgang
af lánsfé. Hér þarf auðvitað fyrst
og fremst að takmarka útlán fjár-
festingarlánasjóöanna sjálfra og
draga þannig úr verðþenslu. í
frumvarpinu er ekki mætt vanda
atvinnuveganna, sem nú eru
reknir með miklu tapi miðað við
núverandi tilkostnað, atvinnu-
vegirnir þurfa á auknum tekjum
að halda, sem gerir það aö verk-
um, að gengiö þarf að síga, ekki
um 2—3% heldur fremur um
10—20%.
Um hvað verður barist?
Geir Hallgrimsson sagði síðan,
að Sjálfstæðisflokkurinn hefði
hvorki skotið sér undan ábyrgð á
að standa að bráðabirgðaráð-
stöfunum né mundi hann skjótast
undan ábyrgð að standa að varan-
legum ráðstöfunum. í þeim kosn-
ingum, sem framundan eru, verð-
ur í fyrsta lagi barizt um varnar-
málin, í öðru lagi um efnahags-
málin og í þriðja lagi um land-
helgismálið, 200 mílna fiskveiði-
lögsögu fyrir lok þessa árs, sagði
Geir Hallgrímsson. En síðast en
ekki sízt verður barizt um það i
þessum kosningum, hvort lýðræði
eigi að ríkja hér á landi. Það
verður barizt um það, hvort ís-
land á að vera í tengslum við
önnur lýðræðisríki og vernda
öryggi sitt með þeim hætti. Ilvort
við eigum að skapa hér traust
efnahagslíf, svo að efnahagslegu
sjálfstæði okkar sé borgið og
hvort við eigum með endurbótum
á stjórnarskránni og lögum lands-
ins að girða fyrir það, að landið
verði þinglaust og ríkisstjórn,
sem til flests er vís, stjórni án
þess aðhalds, sem þing setur
henni.
Við sjálfstæðismenn og Reyk-
víkingar vitum það vel, að grund-
vallarskilyrði þess, að unnt verði
að ná árangri á landsmálasviðinu,
er, að við höldum meirihluta í
Reykjavík. Stjórn Reykjavíkur í
höndum sjálfstæðismanna, sam-
hents og styrks meirihluta, hefur
sýnt fólkinu fram á, hvers slík
stjórn er megnug. Það gæti jafn-
vel verið okkur styrkur, í senn
bæði í borgarstjörnarkosningum
og Alþingiskosningum, aö svo
stutt er milli kosninganna. I
borgarstjórnarkosningunum
bendum við á, að vinstri meiri-
hluti hlýtur ávallt að vera
sundraður meirihluti, sem getur
ekki skapað stefnu þess í málefn-
um borgarinnar. Við vísum til
reynslunnar i landsstjórninni. i
Borgarafundur Valfrelsis
FÉLAGSSAMTÖKIN Valfrelsi
munu halda almennan borgara-
fund að Hótel Esju í dag, sunnu-
dag og hefst hann kl. 3.15. Um-
ræðuefnið verður skoðanakann-
anir og almennar atkvæðagreiðsl-
ur um menn og málefni. Einnig
verður ræddur sá réttur kjósand-
ans að strika út þá frambjóðend-
ur, sem hann vill ekki sem full-
trúa sína.
Alþingiskosningunum bendum
við á styrka, samhenta stjórn
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
og bendum landsmönnum á, að
þeir hafi nú um margra áratuga
skeið reynt alla möguleika sam-
steypustjórna, þannig að U'mi er
til kominn að fela nú einum
flokki meirihluta á Alþingi Is-
lendinga. Það hlýtur að vera tak-
mark okkar sjálfstæðismanna,
þött við náum því takmarki e.t.v.
ekki í næstu kosningum. Þá mun-
um við ná því fyrr eða sfðar.
Svo mikilvægar sem borgar-
stjórnarkosningarnar eru, sagði
Geir Hallgrímsson, verðum við að
leggja nú alla áherzlu á næstu
rúmum tveimur vikum að ná
árangri í þeirri varáttu og efla
Sjálfstæðisflokknum fylgis, er
tryggi meirihluta hans í borgar-
stjórn í næstu framtfð. Það er að
vísu mikil bjartsýni ríkjandi um
góðan árangur í borgarstjörnar-
kosningum, en við skulum ekki
láta þá bjartsýni draga úr starfi
okkar til aó ná árangri ó kjördegi,
heldur á sú bjartsýni að hvetja
okkur til starfa, og ef við teljum,
að stjórnvöld landsins hafi með
ákvörðun á kjördegi U1 Alþingis-
kosninga viljað gera okkur erfitt
fyrir í borgarstjórnarkosningum,
skulum við ekki heldur iáta hug-
fallast heldur efiast við þá raun,
sem í því er fólgin og magnast í
starfi okkar, þótt við þurfum að
berjast á tveimur vígstöðvum í
einu. Ég vonast til þess, að sú
kosningabarátta, sem nú er f
miðjum klíðum til borgarstjórna-
kosninga og sú kosningabarátta,
sem nú er að hefjast tii Alþingis-
kosninga megi leiða til þess, að
Sjálfstæðisflokkurinn eflist að
áhrifum, svo að tryggja megi
Reykjavík góða og styrka stjórn
og landinu þó kjölfestu, sem
Sjálfstæðisflokkurinn ávallt hef-
ur veriðlslandi og verður að vera,
ef vel á að fara í framtiðinni.
— Yfir 50%
Framhald af bls. 40
tvíburafæðingar voru 39. Ur-
vinnsla er n ú langt komin að sögn
Gunnlaugs Snædals læknis, þegar
Morgunblaðið fékk nokkrar upp-
lýsingar um þetta mál í gær. Kvað
hann margt merkilegt koma fram
en heildarniðurstaða verður ljós í
sumar og verður þá gefið út sér-
stakt rit um fæðingar ó Islandi
frá 1881—1972. Með þessu nýja
fyrirkomulagi í fæðingartilkynn-
ingum verður mun greiðari að-
gangur fyrir skipulagsmenn að
gera ráð fyrir einu og öðru í sam-
bandi við uppbyggingu skóla,
félagsaðstöðu og fleiru fram f tím-
ann.
Gunnlaugur kvað Jónassen
landlækni hafa gert skýrslur um
aldur mæðra á tímabilinu
1896—1900, en síðan 1906 liggja
fyrir tölur, sem verið er að vinna
úr. Kemur þar fram m.a., að korn-
ungum mæðrum hefur ekkert
fjölgað á þessu tímabili hlutfalls-
lega og undir 20 ára aldri eru
flestar mæður 18—19 ára.
Athyglisvert er, að þarna kemur
fram, að mæðrum undir 20 ára
aldri fer fækkandi þvert ofan í
það, sem haldið hefur verið fram
á opinberum vettvangi á undan-
förnum árum af „mörgum sjálf-
skipuðum vitringum“, eins og
Gunnlaugur orðaði það.
Það, sem einkum vekur athygli,
er, hvað íslenzkar konur eiga
börn sín á yngra aldursskeiði en
áður var, og má nefna tvo yngstu
aldursflokkana, þ.e. konur undir
25 ára aldri. Þessir tveir aldurs-
hópar voru aðeins 16 af hundraði
heildarf jölda mæðra 1896 —
1900, en á síðasta athugunartfma-
bili — 53 af hundraði.
Fróðlegt er að virða fyrir sér
fæðingatfðni f hinum ýmsu
aldursflokkum í upphafi og við
lok athugunartímabilsins. I
aldurshópnum 15 — 19 ára hefur
fæðingatföni nær áttfaldazt s.l. 65
ár en flestar mæður þar eru
18—19 ára. Fæðingatiðni aldurs-
hópsins 20—24 ára hefurnær tvö-
faldazt.
Hjá konum á aldrinum 25—29
ára hefur tíðni lækkað um 20 af
hundraði, en næsti aldurshópur,
30—34 ára, hefur nálega staðið í
stað.
Fæðingatíðni hefur lækkað f
þriðjung hjó konum 35—39 ára.
Hjá konum 40—44 ára er lækkun-
in fjórði hluti nú, á móti þvi sem
áður var og loks hjá konum 45 ára
og eldri er fæðingatíðni aðeins 10.
hluti af því sem var í upphafi.
1 skýrslu Jónassens landlæknis
frá 1896—1900 kemur m.a. fram,
að fjöldi mæðra undir 20 ára aldri
var aðeins 1,5% af heildartölunni
þá, en á þessu tímabili voru alls
11679 fæðingar. Mæður á aldrin-
um 20—29 ára voru 29,2%, en
49% mæðra, sem fæddu börn á
þessu tímabili, voru á aldrinum
30 —40 ára og 20,3% yfir 40 ára.
Það kemur því glöggt fram, að á
þessum tima áttu flestar konur
eða um 50%, börn sin á aldrinum
30 —40 ára og var frjósemi mikil
en á síðasta áratug eiga um 55%
kvenna börn sín ó aldrinum
20—30 ára.
A timabilinu 1961 —1970 urðu
alls 45168 fæðingar. Þar var hlut-
fallið þannig, að konur undir 19
ára aldri voru 17,6% af þeim kon-
um, sem fæddu börn, konur á
aldrinum 20—30 ára voru 55,2%,
konur á aidrinum 30 —39 ára voru
23,7% og konur yfir '40 ára voru
3,5%. (Konur yfir 40 ára voru
20,3% á tfmabilinu 1896—1900)
Til samanburðar má svo taka
árið 1972. Þá var fjöldi þeirra
kvenna, sem átti börn undir 20
ára aldri, kominn niður í 16,5%
(flestar á aldrinum 18 —19 ára),
fjöldi kvenna á aldrinum 20—30
ára var 54,5%, konur á aldrinum
30 —40 ára voru 20,4% og konur
yfir 40 ára voru 2,2%, en alls voru
4723 fæðingar á árinu 1972.
Einn þáttur þessara rannsókna
er könnun á fjölda barna, sem
fæðast utan hjónabands og innan.
Kemur greinilega fram þar, að
hjónaband á Islandi miðastfrem-
ur við stoínun heimilis en barn-
eignir. Um þriðjungur mæðra á
íslandi í dag á börn sín utan
hjónabands, en lang mestur hluti
þeirra mæðra er kominn í hjóna-
band með barnsföður sínum inn-
an fárra ára. 1 þessum efnum er
greiniléga annað sjónarmið en í
nágrannaiöndum okkar, þar er
þessu öfugt farið. Þegar barn er í
vændum rýkur fólk í að gifta sig,
en skilnaðir verða svo mjög tfðir
innan fárra ára,
— Ólafur
hindraði
Framhaid af bls. 40
Ólafur: Alveg sama, alveg
sama. .. Forsætisráðherra hefur
rétt til þess að l'ara til forseta og
segja: Ég óska eftir því aðþing sé
rofið, þá er forseti skyldugur að
verða við þeim tilmælum starf-
andi forsætisráðherra.
Vilmundur: Þrátt fyrir vilja
meirihluta Alþingis?
Ölafur: Já, annars ferforseti að
bianda sér í pólitík. Þrátt fyrir
vilja meirihlutans, sem nú er
kominn saman á Alþingi.
Og síðar f samtalinu, urðu þessi
orðaskipti ennfremur.
Vilborg Harðardóttir: Er það
rétt, sem Geir Hallgrímsson segir
í Morgunblaðinu í dag, að þú haf-
ir reynt að knýja Sjálfstæðis-
flokkinn til samstarfs, til
stjórnarsamstarfs?
Ölafur: Ég hagaði þessum við-
ræðum þannig, að ég setti fram
þessar tillögur og leitaði eftir því,
hverjir vildu leysa málið til
bráða. .. altso á grundvelli og
ákveða kosningar í haust ogþann-
ig, að allir flokkar væru með.
Þannig að allir flokkar, sem vidlu
vera með. . .
Ef einhver flokkur vild' ekkí
vera með, þá varð hann sjáltur aö
útiloka sig. Þetta gerði ég og þá
var sagt og skilið eins og hjá
Hannibal, þú verður að segja af
þér fyrst. En hvernig maður, ráð-
herra, sem hefur sagt af sér, for-
sætisráðherra, r, hefur sagt af
sér,hanngetUi kki rofið þing.
Vilmundi . En Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði getað gert það. ..
Ólafur: Já, já, ég var ekkert
að. . .
Vilmundur: . . .með meirihlut-
ann bak við sig...
Ólafur: Ég var bara ekkert á því
að gefa honum tækifæri ti I þess.
Verzlunar-
og íbúðarhúsnæðl
á stórri lóð til sölu í Hafnarfirði. Húsið er 2ja hæða
steinhús ásamt kjallara og risi. Húsnæðið er laust nú
þegar. Uppl. í síma 33040.
Tll sölu 5 herbergja
gamalt einbýlishús í Bolungarvík.
Upplýsingar í síma 94-7191.
íbúðlr til sölu
Tvær 3ja herb. íbúðir á bezta stað í Kópavogi
Seljast tilbúnar undir tréverk og málningu. Afhentar í
nóvember.
Uppl. í símum 43281 og 40092 á sunnud. og eftir kl. 7
virka daga.
HafnarfjörÖur
Vantar bla6bera I tvö hverfi
í Suðurbæ.
Upplýsingar í síma 50374.
3>lotDunX>Inl>iíi
NÝKOMIÐ
fjölbreytt úrval af varahlutum í loftbremsukerfi.
Blöðkur í þenjara á mjög hagstæðu verði.
Vélvangur h.f., Afgreiðslutími
Álfhólsvegi 7, fyrst um sinn:
sími 42233. 6—7 og á laugard.
Tryggvagata 10 Simi 21915-21286
P O Box 5030 Reykjavik
FA
SYNING
SYNING Á BÁTUM, UTANBORÐSMOTORUM
OG BÁTVÖGNUM VERÐUR í DAG KL. 2—6
VIÐ HAFNARHVOL í TRYGGVAGOTU.