Morgunblaðið - 01.06.1974, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.06.1974, Blaðsíða 3
MOKGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JUNÍ 1974 3 #4 1 V T Ivsfe. Í p ur vermu eftir einar sigurðsson Tíðarfarið Tiðin var ágæt siðustu viku, há átt ot'tast á norðan og hægviðri. Atlabrögð Bátar eru nú sem óðast að byrja eftir vertiðina. einkum eru það togveiðar, en sárafáir bátar eru enn með net. Þá er humarveiðin að byrja. Tveir bátar frá Þorlákshöfn eru nýlega lagðir af stað með afla sinn, um 70 lestir hvor, til sölu erlendis, Dalaröst og Jón á Hofi. Tveir bátar eru að veiðum og munu einnig sigla. 1 Þorlákshöfn hefur aflinn hjá þeim, sem veiða í troll og landa heima, komizt upp í 30 lestir. Sama er að segja um báta i öðrum verstöðvum, eins og Sandgerði og Vestmannaeyjum, þeir hafa verið að fá upp í 30 lestir í trollið. Hins vegar hafa minni heimabátar í Grindavík verið að fá 2—4 lestir yfir daginn. Einn bátur, Arnar- borgin frá Sandgerði, er búinn að fá 90 lestir í trollið, síðan hann byrjaði. Netabátar frá Grindavík hafa verið að fá 10—15 lestir, 2ja nátta. 1 Sandgerði hefur verið rýrara. Huinarbátar eru rétt að byrja, einn og tveir í verstöð og nokkru fleiri sums staðar. Þeir hafa al- mennt verið að fá 500 kg af slitn- um humri. Þó fékkeinnbáturfrá Grindavík 1500 kg af humri, var hann austur í bugtum. Einn bátur, Bjarnarey, landaði 60 lestum af spærlingi i Grinda- vík i vikunni. Togararnir Togararnir hafa verið við Aust- ur-Grænland og á ,,Fjöllunum“ og verið að afla sæmilega. Þessi skip lönduðu i Reykjavík í vikunni: Þormóðurgoði 2161estir Júpíter 2161estir Engey um 300 lestir ögri var væntanlegur síðast í vikunni. Kosningaúrslitin Það, sem mesta athygli vakti í vikunni, voru sveitarstjórnar- kosningarnar um siðustu helgi. Það er kannski ekki hægt að segja að einn flokkur sé flokk ur einkarekstrarins í landinu, það vantar mikið á. Allir flokkar hafa til að mynda staðið að svokölluð- um bæjarútgerðum. Þetta eru samt að mestu sjónar- mið eða afstaða, sem komin eru til ára sinn. Tvær stærstu bæjarút- gerðir landsins í Reykjavík og Hafnarfirði, eru áratugagamlar, og togaraútgerðin á Akureyri flokkast að miklu leyti undir bæj- arútgerðir, enda þótt hún sé hlutafélag. Upp úr nýsköpuninni spruttu margar bæjarútgerðir, sem nú hafa fyrir löngu lagt upp laupana, og má þar nefna svo til alla aðra kaupstaði Tandsins til viðbótar þeim, sem áður eru taldir, svo sem ísafjörð, Siglufjörð, Seyðis- fjörð, Neskaupstað, Vestmanna- eyjar og Keflavík. En það er margur annar at- vinnurekstur en útgerð, sem er og verið hefur á vegum sveitarfélag- anna, svo sem ýmisiegt á verklega sviðinu, og skal ekki farið frekar út í þá sálma. Sú var tfðin, að sósíaldemó- krataflokkarnir töldu það sálu- hjálparatriði, að atvinnurekstur- inn væri það, sem þá var kallað þjóðnýttur. En nú hafa þessir flokkar mjög horfið frá þeirri stefnu, og kemur það berast fram í því, að þó þessir flokkar hafi áratugum saman haft meirihluta á þjóðþingum til dæmis Norður- landa, hafa þeir enga tilburði sýnt í þá átt að þjóðnýta atvinnuveg- ina. Hins vegar vita allir, að kommúnistar stefna að afnámi eignarréttarins og þjóðnýtingu svo til alls atvinnu lífs i löndum, sem þeir ná einræði í. Nú er það í umræðum um þjóð- nýtingu fyrir löngu hætt að bera nokkurn árangur að telja kjós- endum trú um, að þeir geti haft einhvern ábata af bæjarreknum fyrirtækjum.þvert á móti eru þau tíðum baggi á borgurunum, til að mynda togaraútgerð, heldur er haft fram á, að það sé mikilvægt frá atvinnulegu sjónarmiði. En nú þegar slegizt er um hverja vinnandi hönd, eru þau rök líka að verða léttvæg. Samt er eðlilegt að gera ráð fyrir því, að atvinnurekstur, hvort sem það er útgerð og fisk- vinnsla, skili arði. Þá má næst- um segja, að það sé forsenda þess, að einstaklingar og félög fáist við slíkt. En hvað veldur því þá aó bæjarútgerðir og fiskvinnsla, svo að talið sé það stórvirkasta, skila kannski tapi ár eftir ár og safna skuldum hjá bæjarfélögunum. Þetta er ekki einsæmi, Ham- borg átti 14 togara og seldi þá; þegar tapið óx borginni yfir höf- uð. Er sambandið milli „eigend- anna" — borgaranna — og fyrir- tækisins ekki nógu náið. Það er of mikil útþynning á „eignaréttin- um“, að 80.000 manns skuli eiga þrjá togara og eitt fiskiðjuver. Er þá sú leið betri, sem Þjóðverjar hafa mikið farið og mörg sveitar- félög hérlendis að hafa rekstur- inn í almenningshlutafélagi. Svo er til að mynda um hinar frægu þýzku Volkswagenverksmiðjur. Svo einkennilegt sem það kann að virðast, þá fyrirfinnst vart nú orðið atvinnurekandi í „vonar- sæti“ á framboðslistum í stærsta kjördæmi landsins, Reykjavík. Hins vegar eru margir fulltrúar úr ýmsum öðrum stéttum. Eru þeir svona sinnulausir um sín mál eða hafa þeir gefizt upp við að berjast fyrir sínum málstað. Eða er kjörorðið stétt með stétt orðið að veruleika í öllum flokkum. Það er þó öllum orðið ljóst, hvar í flokki sem þeir standa, að mikil- vægast af öllu er, að atvinnutækin séu rekin snurðulaust, þá vegnar öllum vel i þessu landi. Norðmenn hætta blokkaútflutningi til USA Nordic Group, samband 15 norskra frystihúsa, hefur hætt að flytja út þorskblokk til Bandarikj- anna. Birgðir af blokk hlaðast upp vestra og verðið fellur. Alaska-ufsinn, sem kemur frá Japan og er seldur ódýrt, ýtir þorskinum út af markaðnum. En það er fleira, sem kemur til. Undanfarin ár hefur verð á fiski stórhækkað og verðið á fiski upp úr sjó fylgt á eftir. Fyrri hluta þessa árs hefur verðið á banda- ríska markaðnum lækkað veru- lega, án þess að hráefnisverðið hafi fylgt á eftir. Kjöt og fiskur lækkar í USA. Þegar olíukreppan var í Banda- ríkjunum, dró mjög úr allri verzl- un, og margar vörur lækkuðu i verði og þar á meðal kjöt, svo að ekki varð mikill rnunur á kjöt- og fiskverði. Nú er talið, að verð á fiski hafi á þessu ári lækkað um 15—20%. Þó hefur verðið á is- lenzku flökunum enn ekki lækk- að, þó að blokkin hafi lækkað. Japanir í Kóreu Fyrir utan að framleiða Alaska- ufsa i Japan hafa Japanir stofn- sett stór fyrirtæki í Kóreu, þar sem kaupgjald er mjög lágt til þess að veiða og framleiða Alaska- ufsa fyrir Bandaríkjamarkaðinn. sem kemur til með að hafa þar mikil áhrif. Danir Iækka veró á iðnaóarfiski. Danir hafa nú lækkað verð á iðnaðarfiski í 8 krónur kg en var 10 krónur kg. Otrúlega hátt. Veióin í Perú Ferú var árum saman mesta fiskveiðiþjóð heims, en svo gættu Perúmenn ekki að sér frekar en Islendingar með síldina — og veiddu of mikið, svo að veiðin fór yfir 10 milljón lestir — Islending- ar veiða alls svona 3/4 milljön lesta — Nú verður ekki leyft að veióa i Perú nema 3 millj. lesta 1974. En verðið féll líka um helming, jafnframt því sem framieiðslan óx, úr 8 krónum kg af mjölinu í 4 krónur nú. En það var fleira, sem hjálpaði til. Farið var að nota soyabaunir i staó fiskimjöls, og verðið á þeim var mjög lágt vegna mikillar framleiðslu. 1972 árgangurinn Norðmenn hafa, meðal annarra rannsókna, rannsakað þorsk- og ýsuárgangana frá 1972 og komizt að þeirri niðurstöðu að þeir séu i meðallagi. Þeir merktu einnig mikið af ungfiski i vetur. Verndun fiskstofnanna Það gæti verið ástæða til i öllu nefndafarganinu að skipa nefnd til þess að gera tillögur um enn frekari verndun fiskstofnanna umhverfis Island. Ný reglugerð um stækkun möskva á botnvörpu, bann við notkun neta með smáum möskvum, bann við að fl.vtja í land meira en 5% af fiski, sem ekki telst verzlunarvara, og meiri takmarkanir á smáfiskveiði. En þetta er ekki nóg. Það þarf meira til ef ekki á illa aó fara. til að mynda lokun fleiri uppeldis- svæða ungfisks og hert eftirlit með seiðadrápi i rækju- og hum- arvörpur. BRv ■ i UTSYIMARFERÐ ER SPARNAÐU R! Hvað kostar góð sumarleyfisferð til Dæmi: Ferð á eigin vegum SÓ/arlanda? Almennt flugfargjald til Malaga — CostadelSol • kr. 47.440.- 1. fl. gisting i nýrri ibúð með baði og öllum búnaði samkv. verðskrá i 14 daga kr. Samtals kr. -r Samskonar Útsýnarferð kr. Sparnaður farþegans kr. 9.860.- 57.300. 27 300 - 30.000- ÚTSÝNARFERÐIN ER FARIN MEÐ SÖMU FLUGVÉLAGERÐ — BOEING 727 — 1. FLOKKS VEITINGUM Á LEIÐINNI, SÖMU GISTINGU OG AÐ OFAN GETUR, OG ALLRI ÞJÓNUSTU FARARSTJÓRA OG STARFSFÓLKS ÚTSÝNAR. MISMUNURINN KR. 30.000,- ER HAGN- AÐUR FARÞEGANS. SAMBÆRILEGUR SPARNAÐUR í ÍTALÍU- FERÐUM! HVAR GETIÐ ÞÉR GERT BETRI FERÐA- KAUP? Mesta feröaúrvaliö — Beztu sumarleyfisstaðirnir og ferðimar seljast uppl Maí 12. Costa del Sol uppselt 22. Italía — Gullna ströndin uppselt 31. Ítalía — Gullna ströndin uppselt Júní 1. Costa del Sol uppselt 1 5. Ítalía — Gullna ströndin 6 sæti 19. Costa del Sol uppselt 29. Costa Brava 4 sæti Júlí 2. Ítalía — Gullna ströndin laus sæti 3. Costa del Sol 1 0 sæti 15. Costa del Sol laus sæti 16. Ítalía — Gullna ströndín laus sæti 1 7. Costa del Sol 1 4 sæti 24. Costa del Sol laus sæti 29. Costa del Sol laus sæti 31. Costa del $ol uppselt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.