Morgunblaðið - 01.06.1974, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 01.06.1974, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1974 19 Þrjár kynslóðir. Myndin tekin 1953. Þegar mvndin var tekin var Hákon konungur rúmiega áttræður að aldri. 1 brúðkaupi Haralds ríkisarfa. heimsókn norsks þjóðhöföingja til lýðveldisins íslands. Norska þjóðin finnur sig nátengda hinni íslenzku þjóð og hefur fylgzt með örlögum hennar fyrr og siðar með bróðurlegum áhuga og samúð. Frændsemis- tilfinningin og vináttan við ís- lendinga hefur ætið lifað hjá norskú þjóðinni. Haf skilur löndin, en þó eru þjóðir okkar tengdar sterkum böndum. Sam eiginleg saga vor hefur og styrkt þann samhug. Vér Norð- menn erum stoltir af þvi, að fyrsti landnámsmaðurinn, Ing- ólfur Arnarson, var Norðmað- ur. Þær erfðavenjur og þau lög, sem snemma gerðu island að réttarríki, hafa einnig haft mik- ilvæga þýðingu fyrir þjóðfé- lagsþróuniNoregi. Grundvöllur íslenzks þjóðfélags var einstakl- ingsfrelsi innan þeirra tak- marka, sem lög samfélagsins settu, og sú arfleifð hefur einn- ig orðið undirstaða samfélags í Noregi og öðrum norrænum löndum. Mikilvæga þætti sögu vorrar höfum vér fengið frá Íslandi. Norsku konungasög- urnar, ritaðar af islendingum, urðu mjög mikilvægur aflgjafi þróun norskrar þjóðernistil- finningar og urðu um leið mik- ilvægar þjóðlegri þróun í Nor- egi. Fyrir þetta verða Norð- menn ætíð þakklátir islandi. .. Einnig á vorum tímum hefur island stóru hlutverki að gegna í norsku menningarlifi. i klass- iskum menntum, bókmenntum og listum, hafa islendingar unnió afrek. Fjörið og kraftur- inn í menningarstarfsemi á is- landi kemur glöggt í ljós, þegar litið er til þess, að svo fámennri þjóð, sem talar sérstaka tungu, hefur ekki aðeins tekizt að koma á stofn eigin háskóla en hefur einnig nóg aflögu til að veita verulegt menningarlegt framlag til annarra þjóða og hafa önnur norræn lönd ekki sízt notið þar góðs af." SÍÐARI ÁR Eftir að Haraldur ríkisarfi festi loks ráð sitt og gekk að eiga Sonju Haraldsen, sem hann hafði unnað hugástum ár- um saman, hefur vegur norsku konungsfjölskyldunnar farið vaxandi á ný og áhugi almenn- ings aukizt að sama skapi. Ljóst er eftir að litli prinsinn Hákon fæddist, að framtíö konungsrík- is í Noregi er tryggð og Harald- ur ríkisarfi og Sonja krónprins- essa og börri þeirra hafa öðlazt vinsældir þjóðarinnar. Þær raddir í Noregi, sem vilja af- nám konungdóms, eru þar ekki háværar og’enda þótt Ólafur konungur sé sýnu virtari en sonur hans að svo komnu máli er ekki líklegt, að Norðmenn vilji ekki una við að fá Harald sem konung, þegar þar að kem- ur. Norska þjóðin metur Ólaf konung að verðleikum. Hann varð henni ungur sameiningar- tákn, tápleg framkoma hans á striðsárunum, hlýtt viðmót hans og einlægur áhugi á vel- ferð þegna hans mun væntan- lega verða það, sem landar hans meta mest og iengst. Norska konungsfjölskyldan viö heimkomuna til Noregs að styrjöld lokinni. Herdís Hermóðsdóttir, Eskifírði: Silkiormar ríkis- stjórnarinnar... eða?... Þau fáheyrðu tiðindi hafa nú gerzt, að verkföll hafa verið gerð á islandi til að taka brauðið frá munni hinna vinnandi stétta, f bókstaflegri merkingu. Slíkt hefur vist aldrei verið gert áður i neinu landi, enda trúlega engin verkalýðsforysta svo klafa- bundin ríkisstjórninni, að hún semji um auknar skattaálögur á þá, sem verst eru settir tjárhags- lega í þjóðfélaginu, þ.e. barn- mörgu fjölskyldurnar og gamla fólkið. Þetta hefur verkalýðsfor- ystan gert nú og kallar „kjarabæt- ur“! Og ríkisstjórnin, sem kallar sig „stjórn hinna vinnandi stétta“ gerir meira. Hún leyfir vikulega stórfelldar hækkanir á öllum nauðsynjavörum, stórfelldastar á innlendum matvælum, aðallega landbúnaðarvörum, svo nú er vart hægt að tala um verðhækkun á þeim, heldur stökkbreytingar á verðlagi búvaranna. Á meðan bændur njóta rfkisverndaðrar einokunaraðstöðu, mata þeir krókinn. Mannlegt kannski, en siðferðislega rangt. Þetta er ekki sagt af illvilja við bændur. Það er sjálfsagt, að þeir fái hliðstætt kaup og aðrar stéttir, en ef ríkis- vernduð einokun og okur á búvör- um þarf til að veita þeim það, á að leyfa þeim að stunda arðbær störf í þjóðfélaginu og flytja inn'land- búnaðarvörur. Það er sannarlega kominn timi til að hugsa alvar- lega um þetta mál, þegar svo er komið, að fólk almennt getur ekki keypt nauðsynlegustu fæðuteg- undir til að halda lífi og heilsu. Nú er svo komið, þrátt fyrir þær kauphækkanir, sem orðið hafa. Þessu til sönnunar vilég sýna hér tvær töflur, sem sýna vikuneyzlu 6 manna fjölskyldu, fyrir og eftir siðustu kaup- og verðhækkanir. 16.2. 1974 Verð Mjólk 25.30 kg 4 1 á dag kr. 101,20 kr. 708.40 Rjómi 222.00 kg 1 1 á viku kr. 222.00 Skyr 62.00 kg 2 kg á viku kr. 124.00 Smjör 356.00 kg 2 kg á viku kr. 712.00 Ostur 30% 202.00 kg 1 kg á viku kr. 202.00 Kartöflur 32.00 kg 1V4 kg á dag kr. 336.00 Lærissn. 329.00 kg 3 kg á viku kr. 987.00 Súpukjöt 256.00 kg 3 kg á viku kr. 768.00 Egg 310.00 kg 1 kg á viku kr. 310.00 16.2. ’74, vikukaup verkamanns, dagvinna 6.930.— kr. 4.369.40 kr., 173.25 á klukkustund. Vikuneyzla 6 manna f jölskyldu. 10.3. 1974 Verð á viku Mjólk 32.60 kg 4 1 á dag kr. 140.40 kr. 912.80 Rjómi 263.30 kg 1 1 á viku kr. 263.30 Skyr 73.00 kg 2 kg á viku kr. 146.00 Smjör 464.00 kg 2 kg á viku kr. 928.00 Ostur 30% 208.00 kg 1 kg á viku kr. 208.00 Kartöflur 37.00 kg 1H kg á dag kr. 388.50 Lærissn. 406.00 kg 3 kg á viku kr. 1.218.00 Súpukjöt 315.00 kg 3 kg á viku kr. 945.00 Egg 310.00 kg 1 kg á viku kr. 310.00 10.3. 1974, tímakaup verkamanns 203.30 kr, kr. 5.319.60 vikukaup kr. 8.132.— _____________________________ un 171.70 kr. meira á dag. En aðeins siðasta verðhækkun á 1 kg. af smjöri og 1 kg af lærissneiðum (108 kr. hækkun á smjöri, 77 kr. á lærissneiðum, samtals 185 kr.), er 13.30 kr. hærri en dagkaupshækk- un hans nemur. Þetta er orðið hreint brjálæði. Og hvað segja neytendur? Hvað segja islenzkar húsmæður? Ekk- ert. Hreint ekkert, vesalingarnir. Bitnar þetta dýrtíðarflóð þó einna mest á þeim, þar sem það kemur í þeirra hlut að þurfa að sjá til þess, að börn þeirra og annað heimilisfólk fái nógari og hollan mat qg hlý föt, ásamt öðrum nauð- synjum. Ofan á allt bætist svo það ófremdarástand, sem ríkir í tolia- málum varðandi heimilistæki, sem nauðsynlegust eru á hverju heimíli, þau eru í 80%, 90% og 100% tollaflokki. Á þessar vörur er lagður hærri innflutningstoll- ur en á nokkrar aðrar vörur, sem fluttar eru til landsins, rétt eins og þar væru um sérstakan munað- á viku Nú getur hver maður séð, hvers vegna fólk er nauðbeygt til að vinna fram á nætur og dugir ekki til. Það er ekki furða, þó að fólki því, sem hefur verið að greiða olíureikningana sina fyrir síðasta mánuð t.d. alltfrá 10 þúsund upp í 16 þúsund kr., hrjósi hugur við. Og svo ætlar hin göfuga og rétt- reiknandi landsforsjón að bæta kjör hinna lægst launuðu. með þvi að leggja ofan á hið geigvæn- lega vöruverð 5% söluskattsstig. Dettur nokkrum heilvita manni í hug, að annað'eins og þetta séu kjarabætur? Viljandi hef ég sleppt öllum prósentureikningi. Eg álít út- reikninga 6 manna nefndarinnar á landbúnaðarvöruverði i pró- sentum mjög villandi og rangláta. Það hlýtur hver maður að skilja, að eftir því sem vöruverðið er hærra, þvi hærri krónutala, þó að hækkað sé um sömu prósentutölu. Til að skýra þetta nokkuð, vil ég benda mönnum á, að ef viðtökum vikukaup verkamanns, sem er nú 8.132.— kr. og skiptum því niður á hina 7 daga vikunnar, verða dagpeningar hans 1.161.70 kr. Var fyrir hækkun kr. 990.— Þá hef- ur hann eftir siðustu kauphækk- arvarning að ræða. Þetta er alger- lega forkastanlegt.Svo eru skatt arnir nú .til umræðu á Alþingi, sem ég vona, að verði banabiti þessar lánlausu rikisstjórnar. Því að ég trúi ekki, að Bjarni Guðna- son greiði atkvæði sitt með 5% söluskattshækkun nú, þó að hann hafi á sinum tíma greitt nýju skattalögunum atkvæði sitt. Hann hefur sýnt, að hann er ekki sam- vizkulaus. En fari svo hatrammlega, að ríkisóstjórnin komi sínum málum fram enn einu sinni, verða silki- ormar ríkistjórnarinnar að iða. Þvi ég lit svo á, að hinar vinnandi stéttir og raunar allur landslýður sé af þessari rikisstjórn nýttur eins og silkiormarnir. Hann er látinn vinda upp á sig silkiþráð- inn í spjarir stjórnarinnar. Það er, hann fær hærri krónutölu, sem stjórnin hirðir svo aftur í hækkuðum sköttum eins og silki- ormaræktandinn vindur þráðinn ofan af ormum sinum. Samt ætla ég að vona. að Guð verði okkur ei svo gramur. að hann láti það verða hlutskipti okkar á ellefu hundrað ára af- mæli islandsbyggðar. Skrifað 10.3. 1974.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.