Morgunblaðið - 01.06.1974, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 01.06.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIU, LAUGARDAGUR 1. JUNI 1974 7 Afrlskir lögreglumenn í þjálfun fyrir úrvalssveilirnar. Undantekning frá aðskilnaðarstefnu Það er ótrúleg sjón að sjá hvíta menn og svarta þramma saman með alvæpni, hlið við hlið, I Suð- ur-Afríku — landi aðskilnaðar kynþáttanna, Apartheid. En furðu- legra er svo að komast að þvi, að blökkumennirnir eru að búa sig undir að drepa aðra blökkumenn. En þetta er þó rétt. Menn þessir eru félagar í úrvalssveitum lögregluliðs Suður Afríku. Þeim hefur verið safnað saman í sérstæðar hersveitir, sem eiga að berjast gegn „skæruliða- sveitum"blökkumanna frá öðrum Afríkulöndum, en þær sveitir hafa í vaxandi mæli látið til sín taka í Rhodesíu og Suður-Afríku að und- anförnu. Þetta virðist stangast á við að- skilnaðarstefnuna, en blökku- mönnum í Suður-Afríku finnst ekkert athugavert við að berjast gegn bræðrum sínum frá öðrum hlutum Afríku — sem segjast vera „baráumenn fyrirfrelsi" og stefna að bví að levsa Rodesíu og Suður- Afríku undan „oki hvíta mannsins". í Ijós kemur, þegar rætt er við þessa blökkumenn í lögreglusveit- unum, að þeir telja „skæruliða- sveitir" og „frelsisbaráttumenn" ekki réttnefni á þessar innrásar- sveitir blökkumanna. Allir kjósa þeir heldur að lýsa óvinunum sem ,, hry ðjuverkamönnum, sem eru undir handleiðslu og þjálfun kommúnista". Það þýðir ekki að deila við þá né segja, að þeir hafi verið „heila- þvegnir" í kennslustundum hjá hvítum þjálfurum sínum, því að þá benda þeir á, að einn þjálfaranna sé blökkumaður. Það er heldur ekki neinn venjulegur blökkumað- ur, heldur maður, sem í æsku fór frá Suður-Afrfku, gekk í lið með „frelsishreyfingunni", og var sendur til Moskvu og Algeirsborg- ar til ítarlegrar þjálfunar í skemmdarverkum og byltingar- undirbúningi. Fljótt kom að því, að honum féll ekki andinn í „frelsis- hreyfingunni" svo hann strauk úr þjálfuninni og sneri heim til Suð- ur-Afríku, og nú er þekking hans á þessum málum fullnýtt á vegum yfirvaldanna í Pretoria. „Tiny" Venter hershöfðingi. fyrrum aðstoðarlögreglustjóri, var að því spurður, hvort honum þætti ekki óeðlilegt, að blökkumenn berðust gegn blökkumönnum — í þágu hvítu Afríku. Hann svaraði: „Þegar við berjumst gegn hryðju- verkamönnum búnum sovézkum vopnum í landamærahéruðunum eru hagsmunir okkar þeir sömu og ekkert óeðlilegt við það að við stöndum saman. Við erum allir föðurlandsvinir, og litarháttur skiptir engu máli." Þetta er ekki f anda höfundar forum world features Eftir Gordon Winter „Apartheid"-stefnunnar Hendriks Verwörds fyrrum forsaetisráðherra landsins — en staðreynd er, að hundruð blökkumanna gegna nú þjónustu f landamærahéruðum Suður-Afriku við hlið hvítra, Engar upplýsingar eru gefnar um fjölda blökkumanna i þessum úrvalssveitum lögreglunnar, en vitað er, að þeir eru að minnsta kosti 800. Fyrir nokkrum dögum fengu suður-afriskir fréttamenn í fyrsta skipti að fylgjast með þjálf- un 200 svartra nýliða. Eru þjálfun- arbúðir þeirra i afskekktum dal í Austur-Transvaal, en nákvæm staðsetning þeirra er algert trún- aðarmál. Helzta vígorðið i þjálfunarbúð- unum er „útrýmið, útrýmið", og eitt helzta boðoröið er ,,þögn". Mikil áherzla er lögð á að kenna nýliðunum að ferðast hljóðlega um og með leynd er þeir fara að leita hópa hryðjuverkamanna og uppræta þá. Ekki er þeim sagt að drepa alla hryðjuverkamennina. Þjálfararnir ráðleggja nýliðunum að taka fanga, hvenær sem það er unnt og færa þá til yfirheyrslu. „En takið aldrei fanga nema þið séuð algerlega sannfærðir um, að hann hafi fleygt frá sér öllum vopnum." Nýliðarnir er varaðir við að tina upp hluti, sem þeir finna úti á viðavangi, þvi að óvinirnir skilja oft eftir sig penna eða hnífa, sem tendir eru öflugum sprengjum. Þess konar „beitu" notuðu skæruliðar Viet Cong i Suður-Viet nam, og getur ein svona sprengja orðið mörgum að bana. Einnig er brýnt fyrir nýliðunum að fara var- lega, þegar þeir leita á föllnum óvinum, þvi að ef til vill hafa félagar hinna föllnu tengt jarð- sprengjur eða handsprengjur við líkin. Svörtu lögreglumennirnir fá ná- kvæmlega sömu þjálfun og hvitir starfsbræður þeirra. Eftir tveggja vikna námskeið i lögregluskólan- um i Pretoria fara hvitu lögreglu- mennirnir til æfingabúðanna i einn mánuð, þar sem þeir eru i mjög strangri þjálfun. Blökku- mennirnir eru þar hins vegar i tvo mánuði, þvi að þeir hafa yfirleitt aldrei handleikið vopn fyrr. Að sögn Venters hershöfðingja reyn- ast blökkumennirnir oft óttalaus- ari og harðari bardagamenn en hvitu félagarnir. Yfirþjálfari búðanna er „Lollo" Van Vuuren liðsforingi er ekki síð- ur hrifinn. „Blökkumennirnir eru hreint afbragð. Eftir að þeir eru komnir upp á lagið eru þeir stór- kostlegir," segir hann. Ekki voru allir blökkumennirnir ánægðir með „Apartheid' -stefnuna, þegar fréttamenn tóku þá tali í þjálf- unarbúðunum, en sögðu ýmist að hún væri „óþægileg" eða „ill". Þeir voru hins vegar sammála um, að SuÖur-Afrika gæti ráðið fram úr eigin vandamálum án ihlutunar annarra ríkja — ekki sízt kommúnistarikja. „Við blökku- menn i Suður-Afriku vísum kommúnismanum á bug. Við vit- um, að ef kommúnistar tækju völdin i landí okkar yrði það áfram undir yfirráðum hvitra manna — og þá væru engin mótmæli tekin til greina," sagði einn nýliðanna. Blökkumönnunum er fullljóst, hve mikilvægu hlutverki þeir gegna i baráttunni gegn hryðju- verkamönnum. Þeir vita, að þeir eru ómetanlegir, þegar þörf er á upplýsingum frá svörtu ibúum landamærahéraðanna. Þeim er einnig Ijóst, að afriskar konur og börn hafa látið lífið vegna þess að hryðjuverkamenn, sem komið höfðu yfir landamærin frá Zambiu eða Tanzaniu, fengu hvorki mat né húsaskjól i þorpum innfæddra. Einhleypur reglusamur maður óskar eftir tveggja herbergja íbúð til leigu. Upplýsingar í síma 23206 eftir kl. 7 á kvöldin. Keflavik — íbúð óskast. 3ja til 4ra herb. íbúð óskast til leigu strax. Uppl. i síma 1120 frá 9 —12 og i sima 1891 eftir kl. 12. Plansar suðu beyjur og þenslustykki fyr- irliggjandi 4ra — 1 0". Málmtækni s.f., Súðarvogi 28—30, sími 36910. Duglegur 1 2 ára strákur óskar eftir sendi- starfi eða öðru. Hefur hjól. Enskukunnátta. Uppl. í síma 1 1 247. Keflavik 2ja herb. íbúð óskast strax. Upp- lýsingar i síma 1099. Birkiplöntur til sölu Úrvals birkiplöntur í mörgum verð- flokkum. Opið til kl. 10 virka daga og til 6 á sunnudögum. JÓN MAGNÚSSON, Lynghvammi 4, Hafnarf. Simi 50572. Mallorca — Spánn. Nauðsynlegur fróðleikur fyrir ferðafólk. Sparið fé, tíma og fyrirhöfn. Njótið sumarleyfisins til fulls. Ókeypis upplýsingar. Alvis, M64 sendist í Box 1 322. ísvél til sölu Til sölu er nýleg ísvél, 2ja hólfa. Sanngjarnt verð. Upplýsingar í síma 23330. Áreiðanlegur og duglegur 24 ára gamall mað- ur óskar eftir bifreiðastjórastarfi upplýsingar í síma 43541. Bröyt-grafa til leigu i smærri eða stærri verk. Upplýsingar i sima 99-1419 og 99-1518 eftir kl. 8 á kvöldin. „Au Pair" Norsk hjón með 1 barn á öðru ári búsett í London óska eftir að ráða stúlku 17—19 ára til heimilisaðstoðar. Ráðningartími helzt 1 ár. Skriflegar umsóknir sendist Morgunbl. merktar „Ágúst — 1 067" Allt á börnin í sveitina. Peysur. Buxur. Jakkar. Úlpur. Buxnasett. Blússur. Regnfatnaður. Barnaútigallar. Fallegar sængurgjafir. Allur ungbarnafatnaður. Prjóna- garn. Póstsendum. Bella. Laugavegi 99, gengið inn frá Snorrabraut. Sími 26015. Volvo eigendur athugið Verkstæði okkar verða lokuð vegna sumarleyfa sem hér segir: Verkstæðið Suðurlandsbraut 16, frá 15. júlí til 1 3. ágúst. Réttingaverkstæðið Hyrjarhöfða frá 8. júlí til 6. ágúst. Umboðsverkstæði okkar Kambur h.f. í Kópa- vogi verður opið. Ve/tir h. f. Sumartízkan í skinni GRAFELDUR HE INGÓLFSSTRÆTI5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.